Dagblaðið Vísir - DV - 29.08.1997, Blaðsíða 3
'D’W FÖSTUDAGUR 29. ÁGÚST 1997
Háskólabíó:
Mr. Bean:
The Ultimate Disaster Movie
Háskólabíó frumsýnir í dag nýj-
ustu stórmynd Breta, „Bean: The
Ultimate Disaster Movie“. í aðal-
hlutverki er hin stórskemmtilega
og seinheppna persóna, Mr. Bean,
sem leikarinn Rowan Atkinson hef-
ur gert ódauðlega. Bean, sem segja
má að sé Charlie Chaplin níunda
og tíimda áratugarins, er persóna
sem prófar helst tannburstann
áður en hún kaupir hann, ýtir bíln-
um þínum úr bílastæði ef hann
þarf sjálfur á því að halda, eða neit-
ar að gefa kærustunni með sér af
poppkominu þegar hann býður
henni í bíó.
í viðtali sem tekið var við Atkin-
son var hann spurður að því hvem-
ig hr. Bean hafi verið sem bam að
aldri. „Hann hefur verið mjög svip-
aður, því i rauninni er Bean ekkert
annað en bam. Þema manngerðar-
innar er „bam í fullorðnum lík-
ama“. Ég held að sú karaktergerð
sé það sem fólki finnst skemmtileg.
Það eru ekki bara fullorðnir sem
hafa gaman af Bean, unglingar og
böm niður í þriggja ára aldur
kunna vel að meta þessa persónu
sem er svo eigingjörn og virðist
vera án nokkurra tengsla við þær
persónur sem hann umgengst, líkt
og óvita böm. Vegna þess held ég
að hr. Bean hafi verið mjög svipað-
ur persónu sinni á barnsaldri."
Fram að þessu hefur Bean aðal-
lega skemmt áihorfendum í sjón-
varpsþáttum, en nú er komið að
kvikmyndinni. í myndinni fer hr.
Bean til kvikmyndaborgarinnar
Los Angeles og hann er þar tekinn
í misgripum fyrir heimsfrægan
listaverkarýni. Bean veldur miklu
uppnámi hvar sem hann kemur, í
listagalleríi, á spitölvun, flugvöllum
eða heimilum Bandarikjamanna
sem ætla að snobba fyrir þessum
heimsfræga rýni.
Óhætt er að segja að þessi breska
mynd hafl farið sigurfor um heim-
inn. Á Bretlandseyjum hefur engin
kvikmynd í sögunni fengið eins
mikla aðsókn á fyrstu sýningar-
helgi sinni. Hún var sýnd í 335
kvikmyndasölum og náði inn um
Bandaríkjamenn halda að hr. Bean sé mikill sérfræðingur um listaverk.
300 milljónum íslenskra króna með
um 750.000 áhorfendur. Fyrra að-
sóknarmetið átti myndin kostu-
lega, „Four Weddings & A Funer-
al“. Frá Hoflandi berast svipaðar
fréttir, aðeins myndin Jurassic
Park hefur náð meiri aðsókn á
sinni fyrstu sýningarhelgi í land-
inu og í Ástralíu og á Nýja-Sjálandi
voru viðtökur áhorfenda viðlíka.
Allt stefnir í að Mr. Bean: The
Ultimate Disaster Movie verði að-
sóknarmesta breska kvikmynd sög-
unnar.
Leikstjóri myndarinnar er Mel
Smith en handritið að myndinni
var skrifað af Richard Curtis og
Robin Driscoll.
-ÍS
y ^ alPÉÍ1
íli a» V SMl 1 Íiíld' 1 í m ■ %• Hií a
Rowan Atkinson hefur ekki síður „gúmmíandlit" en Jim Carrey.
Sambíóin:
Hefðarfrúin og umrenningurinn
*foikmyndir,i
jiT __________
Nothing to Lose ★★★
HandritiB er skemmtilega skrifaB og
Robbins og lawrence ná samleik sem hef-
ur myndina langt yfir þá meBalmennsku
sem einkennir fjölmarga þá dóma sem ég
las um hana. Ég er haldlnn þeirri sérvisku
aB telja gamanmynd gófla ef hún er fyndin.
Jude ★★★
Myndin er afbragflsvel unnin, leikurinn
og leikstjórnin til fýrirmyndar og kvikmynda-
takan í samraemi viö andrúmsloft myndar-
innar. Handritið er ágætt í flesta staði, en
ber þess þó vitni að það er unniö upp úr
langri skáldsögu.
-6E
Blossi ★★★
Þafl telst enn fréttnæmt aö íslensk kvik-
mynd bæti einhverju viö og auögi Islenska
kvikmyndagerö og sögu. Blossi sýnir og
sannar að ekki bara Júlíus Kemp, heldur Is-
lensk kvikmyndagerö í heild sinni, hefur
komið langan veg síðan Veggfóöur. Sarrv
ræðurnar rúlluðu vel I meðförum þeirra Páls
Banlne og Þóru Dungal sem, þrátt fyrir
reynsluleysi, voru meö eindæmum sann-
færandi og skemmtileg sem dálítið ráðvillt
ungmenni.
-ÚD
Fimmta frumefnlð ★★★
Ómissandi og án hiks ein alfallegasta og
smartasta framtíðarmynd sem ratað hefur
á sýningartjald. Samspil hljóðs og myndar
er með eindæmum elegant og til að njóta
þessa alls sem best er vænlegast að búta
heilann upp og stýra allri orku á augu og
eyru.
-úd
Elskunnar logandl bál
★★★
Ástarsamband nemanda og kennara er
viðfangsefni Bo Widerbergs. Myndin er vel
heppnuð útfærsla á erfiðum tilfmninga-
flækjum. dramatisk en þó oft með kómlsku
yfirbragði. Sonur leikstjórans Johans Wider-
bergs sýnir afburðaleik I erfiðu hlutverki.
-HK
Grosse Pointe Blank
i i_,
★★★
Styrkur „Leigumorðingjans" felstl óvenju
myrkum húmor, afbrags samtöium og góð-
um leik Cusacks. Aukahlutverkln eru einnig
mjög vel mönnuð.
-GE
Horfinn heimur: Jurassic
Park ★★★
Eftir frekar hæga byrjun þar sem mlkill
timi fer I útskýringar tekur Horfinn heimur
vel við sér þegar komið er I návígi við
grameðlur, snareðlur og aðrar fornar eðlur.
Sagan er greinileg framhaldssaga, þar sem
lítið er um nýjar hugmyndir, en af sinnl al-
kunnu snilld og fagmennsku tekst Steven
Spielberg að skapa mlkia og ógnvekjandi
skemmtun sem fær stundum hárin til að
risa. -HK
Men In Black ★★★
í MIB er eins og yflrfærslan úr teiknl-
myndasögu I kvikmynd sé aldrei fullfrágeng-
in og kemur þetta sérstaklega niður á plott-
inu. Áherslan er sllk á húmor og stil að sjálf-
ur hasarinn verður útundan og I raun virkar
MIB meira sem grínmynd en hasar. En þrátt
fyrir alla galla er þessi mynd ómissandi fyr-
ir alla þá sem láta sér ekkert mannlegt
óviðkomandi. -úd
í dag munu Sambíóin frumsýna í
Saga bíói teiknimyndina Heföarfrú-
in og umrenningurinn, eða Lady
and the Tramp, eins og myndin
heitir á frummálinu. Það er að sjálf-
sögðu Disney-fyrirtækið sem fram-
leiðir þessa mynd. Hún segir frá of-
dekruðum hundi af góðu heimili
sem fer á stjá með skaðlegum hundi
sem hefúr ekki átt sjö dagana sæla,
í leit að rómantík, ævintýrum og
skemmtunum.
Hefðarfrúin og umrenningurinn
er endurgerð á samnefndri teikni-
mynd sem Walt Disney lét gera á
sjötta áratugnum. Þótti nú tími til
að endurvekja þessa stórskemmti-
legu sögu með nútímatækni. Þrátt
fyrir að nýjasta tækni sé notuð, ligg-
ur gífurleg vinna að baki myndinni.
Yfir 150 teiknarar og listamenn
unnu að gerð hennar í fjögur ár og
þurftu þeir að teikna yfír 4 milljón-
ir mynda áður en yfir lauk. I endan-
legri gerð eru 110 þúsund litaramm-
ar á filmunni.
Það sem er sérstakt við myndina,
er að allt sjónarhom er frá augum
hundsins séð og áhorfendur sjá því
Að sjálfsögðu er myndin hér á landi
með íslensku tali þekktra, íslenskra
leikara.
atburðina frá miklu lægra sjónar-
homi en mannskepnan er vön. Sög-
una um hefðarfrúna og umrenning-
inn má rekja allt aftur til ársins
1937 og teiknimyndasería um sög-
una birtist fyrst á síðum dagblaða á
stríðsárunum (1943). Endanleg saga
mun þó ekki hafa verið fúllmótuð
fyrr en nokkrum áratugxnn síðar.
Að sjálfsögðu er myndin hér á
landi með íslensku tali. Þeir sem
ljáðu raddir sínar í myndina voru
Hilmir Snær Guðnason, Edda
Heiðrún Backman, Margrét Vil-
hjálmsdóttir, Felix Bergsson, Róbert
Ámfinnsson, Pálmi Gestsson, Jó-
hann Sigurðsson, Þóra Friðriksdótt-
ir, Steinunn Þorsteinsdóttir og
Bergur Ingólfsson.
-ÍS
Unga kynslóðin kannast við þessi andlit úr samnefndri teiknimynd sem Walt
Disney lét gera á sjötta áratugnum.