Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 29.08.1997, Qupperneq 7

Dagblaðið Vísir - DV - 29.08.1997, Qupperneq 7
FÖSTUDAGUR 29. ÁGÚST 1997 Jósefsdalurinn um helgina: Heimsbikarmót í torfæru íslensk torfæra hefur vakið heimsathygli og áhugi fyrir henni veriö mikill. Seinni hluti heimsbikarmótsins í torfæru fer fram í Jósefsdal á morgun. DV-mynd JAK Það verður eflaust mikill hama- gangurinn í Jósefsdalnum um helgina þegar seinni hluti BF Go- odrich heimsbikarmótsins í tor- færu fer þar fram. „Ætli það séu ekki fyrst og fremst spennan og áhættan sem draga menn að þess- ari íþrótt,“ segir Ragnar Kristins- son, formaður Jeppaklúbbs Reykjavíkur, sem stendur fyrir keppninni. Torfærumót á íslandi hófust fyrst fyrir 30 árum og var þá aðal- lega keppt á Hellu, í Grindavík og á Akureyri. „Upphatlega kepptu menn bara á heimajeppunum sínu, Land Rovernum, Bronconum og fleiri bílum, en eftir því sem fram liðu stundir urðu bílamir þróaðri. Jepparnir nú á dögum eru allir sérhannaðir, enda er bíllinn sjálfur veigamikið atriði keppn- innar,“ segir Ragnar. „Til dæmis eru bílarnir nú með sérstökum búnaði sem sér vélinni fyrir bens- íni þó að bíllinn fari á hvolf. Þegar notast var við blöndunga lentu menn stöðugt í þvi að vélin drap á sér í miklum halla. Ökumennirnir gátu því ekki keyrt sig út úr hall- anum og bílarnir ultu oft harka- lega.“ Yfir 200 milljónir áhorf- enda íslensk torfæra hefur átt vaxandi vinsældum að fagna á undanfom- um árum. Erlendis hefur gætt mik- ils áhuga fyrir íþróttinni og samið hefur verið við sjónvarpsstöðvar um sýningarrétt frá íslensku mót- unum. Nú er talið að 200-300 millj- ónir víðs vegar um heiminn horfi á íslenska torfæru í sjónvarpi. Að- standendur torfærumótanna á ís- landi hyggjast færa út kvíarnar í náinni framtíð og skipuleggja mót annars staðar í Evrópu. „Við erum rétt að byrja. Torfæran er ung íþrótt sem á framtíðina fyrir sér,“ segir Ragnar um hugsanlega út- þenslu íslensku mótaraðarinnar. Að sögn Ragnars hafa torfærumót- in í sumar gengið vel og keppnin verið afar spennandi. „Ég vænti að spennan nái hámarki á morgun þar sem Jósefsdalurinn hefur orð á sér fyrir harkalega keppni. Brattinn þar er mjög mikill og á köflum keyra menn nær alveg lóðrétt eða í um 80 gráða halla." Keppnin fer fram á morgun, laugardag, í mynni Jósefsdals og hefst dagskráin kl. 13. Ef menn eru árrisulir og vilja fylgjast með keppninni í heild þá borgar sig að mæta klukkan 10 því að þá verða tvær þrautir keyrðar. Eftir hádegi verða sex þrautir keyrðar. -kbb Nýlistasafnið: Menning í farangrinum - pakkað niður um helgina Nú fer í hönd síðasta helgi sýn- ingarinnar „Færur“ (Spostamenti) sem haldin er í Nýlistasafninu. Titlinum „Færur“, sem er fornt ís- lenskt orð yfir farangur, er ætlað að vísa til hugmynda um hvernig einstaklingur ber ávallt með sér sina eigin menningu á ferðum sin- um um heiminn. Víst er að lista- mennirnir, sem sýna í Nýlistasafn- inu, hafa töluvert af menningu í sínum farangri þar sem þeir eru allir frá Ítalíu. Á sýningunni eru ekki einungis myndlistarmenn þvi að einnig eiga nokkur tónskáld þar verk. Tónskáldin eru öll í AGON hópnum frá Mílanó en hann hefur á síðustu árum unnið sér sess sem einn af miðpunktum framsækinnar tónlistar í heimin- um. Hópurinn starfar að fram- leiðslu, rannsókn og vörslu tónlist- ar og nýtir sér að einhverju leyti upplýsinga- og rafeindatækni. Eitt af meginmarkmiðum AGON er að glæða áhuga tónlistarfólks, fræði- manna og almennings og tónsmíð- um er notfæri sér nýjustu tækni við tónsmíðar um leið og kannað- ir eru nýir möguleikar tengsla og víxlverkana milli hefðbundinna hljóðfæra og háþróaðs tæknibún- aðar. Sýningunni í Nýlistasafninu lýkur um helgina. Fjöldi manna hefur lagt leiö sína í Nýlistasafniö til að skoöa ítalska samtíma- list. Sýningunni lýkur nú um helgina. DV-mynd Hilmar Þór helgina n SÝNINGAR I Gallerí, Ingólfsstræti 8. Sýning á | verkum þýsku listakonunnar Lore i Bert Mengenlehre, Mengjafræði, I ljósverk og verk unnin í pappír, til 14. september. Opið fimmtudaga til sunnudaga fró kl. 14-18.00. Gallerí Listakot, Laugavegi 1, Reykjavík. Sýning á grafík eftir | Birnu Matthíasdóttur framlengd til i 6. september. Virka daga er opið frá kl. 10-18 og laugard. frá 10-16. Gallerí Regnbogans, Hverfis- götu 54. Sýning á verkum Sigurðar | Örlygssonar er opin virka daga frá j kl. 16-24 og frá kl. 14-24 um helg- I ar' 1 GaUerí Svartfugl, Listagilinu, j Akureyri. Hrefna Harðardóttir er með sýningu á leirkerum til 6. sept- i ember. Opið þriðjud. til sunnud. frá ;í kl. 14-18. i Gerðuberg. Jón Jónsson er með málverkasýningu. Opið fimmtud. til | sunnud. frá kl. 14-18. Hafiiarborg, Strandgötu 34, ; Hafnarfirði. Nú standa yfir þijár í sýningar á verkum úr eigu safns- l ins. Opið 12-18 alla daga nema þriðjud. í Hóte! Höfði, Ólafsvík. Sýning á samtímalist eftir fjölda íslenskra I listamanna. Isafoldarhúsið, Þingholtsstræti 5. Heidi Kristiansen sýnir mynd- : teppi. Vinnustofan er opin alla s virka daga fró kl. 12-18. i Kjarvalsstaðir Sýningin fslensk : myndlist til 31. ágúst. Opið alla | daga frá kl. 10-18. Sýning Davids | Asjevolds og Árna Haraldssonar. : Listasafn ASÍ - Ásmundarsalur, < Freyjugötu 41. 30. ágúst opna j sýningar Aðalheiðar Valgeirsdóttur, | Imyndir og spor, og Svanhildar Sig- urðardóttur, Skúlptúr. Til 14. sept- 5 ember. Opið þriðjudaga til sunnu- t daga fró kl. 14 til 18. ;; Listasafn Árnesinga, Tryggva- götu 23. Sýning á myndlist 15 Sel- Ífyssinga til 31. ágúst. Opið frá 14-18 alla daga. Listasafii íslands. Sýning á | myndlist og miðaldabókum íslands. | Sýning þriggja listamanna frá | Sviss, Thomas Huber, Peter Fischli og David Weiss, er framlag Lista- ' safnsins til ON ICELAND. Opið 11-17 alla daga nema mán. t Listasafii Kópavogs. 30. ágúst opna þrír listamenn sýningar í i Gerðarsafni, Kristín Jónsdóttir, ! Ragna Ingimundardóttir og Mál- | fríður Aðalsteinsdóttir. Opið 12-18 ! alla daga nema mán. I Listaskólinn í Hveragerði. Frá 30. ágúst verður samsýning undir : nafninu „Sjö mólarar“. : Listhúsið í Laugardal. Gallerí | Sjöfn Har. Myndlistarsýning á verkum eftir Sjöfn Har. Opið virka daga kl. 13-18 og laugardaga kl. 11-14. Listasafn Sigurjóns Ólafssonar, Laugarnesi. Sumarsýning á 27 ! völdum verkum eftir Siguijón. Opið Ialla daga nema mánudaga frá kl. 14-17. Listhús Ófeigs, Skólavörðustíg 5. Sýning á verkum Harri Syijánen. Opið mán.-fös. frá kl. I 10-18 og lau. frá kl. 11-14. I Nýlistasafnið, Vatnsstig 3B. Nú : stendur yfir alþjóðlega sýningin On 1 Iceland. Opið alla daga nema I mánudaga frá kl. 14.00-18.00. ; Perlan, Öskjuhlíð. Sýning á verk- um Ingu Hlöðversdóttur til 7. sept- ember. Opið alla daga frá kl. 10. Samtök iðnaðarins, Hallveigar- stíg 1. 30. ágúst kl. 15 heldur hol- I lenski ljósmyndarinn Wout Berger : fyrirlestur um áhrif ímyndar í myndefnis. | SjónarhóII, Hverfisgötu 12. Síð- | asta sýningarhelgi á verkum Gunn- 1 ars Karlssonar. Opið fimmtud. til sunnud. frá kl. 14-18. Sjóminjasafn íslands, Hafnar- : firði. Sýning á 20 olíumálverkum j eftir Bjama Jónsson listmólara. Til **; 30. september verður Sjóminjasafn- j ið opið alla daga frá kl. 13-17. Snegla, listhús, Grettisgötu 7. í ! gluggum stendur yfir kynning á verkum Sigríðar Erlu úr jarðleir. I Opið virka daga kl. 12-18 og kl. : 10-14 laugard. Stofnun Arna Magnússonar, j Árnagarði. Sumarsýning handrita 1997. Opið daglega kl. 13-17 til S ágústloka. Hulduhólar í Mosfellsbæ. Síð- asta sýningarhelgi á verkum eftir ( Sverrir Haraldsson. Opið 14-21 ; alla daga. [ Stöðlakot, Bókhlöðustíg 6, | Reykjavík. Sýning á grafíkmynd- um eftir Rikharð Valtingojer, !; Þrenningin. Opið daglega frá kl. c 14-18 til 7. sept. Skálholt. Sýningin Kristnitaka stendur til 14. október.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.