Dagblaðið Vísir - DV - 29.08.1997, Page 10
FÖSTUDAGUR 29. ÁGÚST 1997 JLlV
24
Mnlist
island
• i.i-i
| 2.(4)
* 3.(7)
I 4.(2 1
| 5.(5)
t 6.(3)
t 7. (1 )
t 8.(8)
t 9.(15)
t 10. ( 6 )
t 11(9)
t 12.(10)
t 13.(16)
t 14.(11)
t 15.(19)
t 16.(12)
t 17. (13)
t 18. (Al)
t 19. ( - )
t 20. (- )
Be here now
Ousis
Pottþótt ást
Ýmsir
Strumpastuð 2
Strumparnir
OK Computer
Radiohead
Blossi
Úr kvikmynd
Fat of the Land
Prodigy
Bandalög 7
Ýmsir
Reif í fíling
Ýmsir
Stoosh
Skunk Anansie
Spice
Spice Girls
No Way out
Puff Daddy
Pottþótt 8
Ýmsir
Falling into You
Celine Dion
Forever
Wu Tang Clan
Bestu barnalÖgin
Ýmsir
Backstreet's Back
Backstreet Boys
Töfrablik
Jón frá Hvanná
Batman & Robin
Úr kvikmynd
Legend
Bob Marloy
Pop
U2
London
_.—_ — lög — -
| 1. (1 ) Men in Black
Will Smith
| 2. ( 2 ) Tubthumping
Chumbawamba
t 3. (- ) You're the One I Love
Shola Ama
| 4. ( 3 ) l'H Be Missing You
Puff Daddy & Faith Evans
| 5. ( 5 ) Freed from Desire
Gala
| 6. ( 4 ) All I Wanna Do
DAnnii Minogue
t 7. (- ) Never Gonna Let You Go
Tina Moore
| 8. ( 6 ) Everybody
Backstreet Boys
| 9. ( 7 ) Mo Money Mo Problems
The Notorious BIG
t 10. (- ) Queen of New Orleans
Jon Bon Jovi
New York
___ —lög — „—
t 1. ( 2 ) Mo Money Mo Problems
The Notorious B.I.G.
I 2. ( 1 ) I II Be Missing You
Puff Daddy & Faith Evans
| 3. ( 3 ) Quit Playing Games
Backstreet Boys
I 4. ( 4 ) Semi-Charmed Life
Third Eye Blind
| 5. ( 5 ) 2 Becomo 1
Spice Girls
( 6. ( 6 ) How Do I Live
Leann Rimes
t 7. ( 8 ) Not Tonight
Lil'Kim FeaL Da Brat. Left Eye...
| 8. ( 7 ) Never Make a Promise
DruHill
t 9.(10) DoYouKnow
Robyn
t 10. (-) Sunny Came Home
Shawn Colvin
Bretland
— plötur og diskar—
1
t 1. ( -) Be here now
Oasis
2. ( 1 ) White on Blonde
Texas
3. ( 3 ) That Fat of the Land
The Prodigy
4. ( 4 ) OK Computer
Radiohead
5. ( 7 ) Always On My Mind
Elvis Presley
| 6. ( 2 ) Backstreet's Boys
Backstreet Boys
t 7. ( 9 ) LI.F.E. (Love is for Ever)
Billy Ocean
| 8. ( 5) Blurring the Edges
Meredith Brooks
( 9. ( 6 ) Spice
LSpice Girls
10. (10) Sheryl Crow
Sheryl Crow
Bandaríkin
— plötur og diskar —
| 1. (1 ) No Way Out
Puff Daddy & The Family
t 2. (3 ) Men in Black - The Album
Soundtrack
| 3. ( 2 ) The Art of War
Bone Thugs-N-Harmony
t 4. ( 5 ) Spice
Spice Girls
t 5. ( 6 ) Middle of Nowhere
Hanson
t 6. ( 9 ) Yourself Or Someone Like You
Matchbox 20
t 7. (-) Pieces Of You
Jewel
( 8. ( 8 ) Surfacing
Sarah McLachlan
| 9. ( 7 ) Def Jam's How To Be A Player
Soundtrack
t10. (10) The Fatof the Land
Prodigy
Verv
- aftur á toppinn eftir samstarfsslit í eitt og hálft ár
í hvert sinn sem þú kveiktir á
imbanum á níunda áratugnum
voru það Phil Collins, Robert Pal-
mer eða Peter Gabriel sem birtust
á skjánum! „Hverjir eru þessir
gæjar í jakkaíotunum sem halda
alltaf áfram að vera á toppnum,
mamma? Þegar ég sá svo Happy
Mondays og The Stone Roses var
sem hulu væri lyft frá augum mín-
um. Ég gerði mér grein fyrir því
að tónlistin gæti haldið áfram, það
væri hægt að gera hlutina á nýjan
leik en ekki bara endurtaka þá. Ég
held að The Verve verði að starfa
áfram og ryðja veginn!"
- Richard Ashcroft, söngvari
The Verve.
Áður en nokkur hafði heyrt um
Oasis var breska sveitin The Ver-
ve orðin að goði meðal aðdáenda
sinna í Bretlandi og annars staðar
í heiminum. Sveitin var stofnuð í
Wigan í Bretlandi í kringum 1990.
Richard Ashcroft söngvari, Simon
Jones bassaleikari og Peter
Salisbury höfðu þekkt hver annan
frá því í barnaskóla og Nick
McCabe gítarleikari var síðan tek-
inn í hljómsveitina þegar meðlim-
ir sveitarinnar voru í mennta-
skóla. Eftir að skólagöngu var lok-
ið voru atvinnuleysisbæturnar
það eina sem hélt hljómsveitar-
meðlimum uppi fjárhagslega en
andlega segjast þeir hafa hlustað
mjög mikið á góða tónlist á þess-
um tíma. Fyrstu árin var æft
Áöur en nokkur hafði heyrt um Oasis var breska sveitin The Verve oröin aö goöi meöal aödáenda sinna í Bretlandi
og annars staöar í heiminum. En allt í einu á hátindi frægöar sinnar tvistraöist hljómsveitin og kom ekki saman fyrr
en aö átján mánuðum liönum.
„Ég held aö viö höfum ekki misst af miklu síöustu átján mánuöina. Þetta hef-
ur ekki beint veriö litríkasta tímabiliö í breskri rokksögu," segir Ashcroft,
söngvari The Verve, með glott á vör.
stanslaust og sveitin náði strax
persónulegum og sérstökum stíl
sem brátt náði eyrum útsendara
hljómplötufyrirtækja og gagn-
rýnenda þegar sveitin kom fram á
tónleikum. Þeim var lýst sem
„risa“ og „ódauðlegum" áöur en
þeir höfðu gefið út eina einustu
plötu. Eftir örfáa tónleika var
þeim boðinn samningur hjá Virg-
in Records og The Verve gaf út
fyrstu plötu sina A Storm in Hea-
ven og hélt í tónleikaferðalag þar
sem óþekkt hljómsveit frá
Manchester, sem kölluð var Oasis,
hitaði upp fyrir þá. The Verve var
strax spáð miklum frama og 1995
kom út platan A Northern Soul
sem að mati gagnrýnenda var tal-
in ein athyglisverðasta plata árs-
ins. Sveitin hafði náð ótrúlegum
þroska á stuttum tíma. Noel
Gallagher, vinur þeirra í Oasis,
hafði látið það frá sér fara að hann
teldi A Northem Soul jafngóða
Oasis-plötunni Morning Glory og
vonaðist eftir að sveitirnar héldu
áfram að koma saman fram. En
allt í einu á hátindi frægðar sinn-
ar tvístraðist hljómsveitin.
Þroski og þreyta
„Við vorum aðeins nitján ára
þegar fyrsta plata okkar kom út,“
segir Ashcroft. „Þegar við ákváðum
að hætta var það vegna þess að
hefðum við ekki hætt þá hefði
aldrei verið snúið til baka. And-
rúmsloftið var í lagi þegar við kom-
um fram á sviðið en um leið og við
lögðum niður hljóðfærin varð loftið
lævi blandið. Við höfðum allir
breyst mikið sem einstaklingar og
lífiö leitt okkur á ólíkar brautir."
Miklar sögusagnir gengu síðan um
sveitina, aðallega þess efnis að
sveitin væri ekki hætt heldur væri
aðeins að losa sig við Nick
MacCabe gítarleikara. Þetta var
heldur ótrúlegt þegar tillit er tekið
til þess að gítarleikur MacCabes
var jafnmikið aðalsmerki sveitar-
innar sem söngur Ashcrofts.
Leitað nýrra leiða
Sveitin með Ashcroft í farar-
broddi en án MacCabes gerði nú
ýmsar tilraunir með gestagítar-
leikurum og framleiðendum en
allt endaði á einn veg: ómögulegt.
Það var kominn tími fyrir alla að
líta í eigin barm. Fyrir Ashcroft
hafði þessi tími verið mikilvægur
til að skerpa sköpunargáfu sina og
MacCabe gat greitt úr persónuleg-
um málum.
„Jafnvel þegar hann spilar lítið
sem ekkert í einhverju lagi þá
skín sál hans í gegn,“ segir Ash-
croft um MacCabe. „Ég hringdi
einfaldlega í hann og bað hann að
koma aftur.“ Eftir eitt og hálft ár
tók sveitin til starfa að nýju og
hefur gefið út nokkur lög af vænt-
anlegri plötu sinni Urban Hymns
sem kemur út í september næst-
komandi. Lagið Bitter Sweet
Symphony trónir nú ofarlega á
mörgum listum viðs vegar um ver-
öldina og endurkoma The Verve i
tónlistarheiminn er sem ferskur
andblær í stöðnuðu lofttómi.
„Ég held að við höfum ekki
misst af miklu síðustu átján mán-
uðina. Þetta hefur ekki beint verið
litrikasta tímabilið í breskri rokk-
sögu,“ segir Ashcroft með glott á
vör. Texti Bitter Sweet Symphony
er lýsandi fyrir textagerð Ash-
crofts sem ætíð felur í sér sögu um
lífið, dauðann, angist, ást, kynlif,
vimu og eiturlyf.
„Lifið er sætbeisk symfónía þar
sem þú ert háður peningum þar til
þú deyrð," segir í texta Bitter
Sweet Symphony.
Ef lögin sem The Verve hefur
gefið út af væntanlegri plötu sinni
vitna um það sem koma skal meg-
um við eiga von á frábærri plötu í
september.
-ps