Dagblaðið Vísir - DV - 29.08.1997, Qupperneq 11
FÖSTUDAGUR 29. ÁGÚST 1997
tónlist
Radiohead er
:kki að reyna að
;era það gott í
Ameríku! Eða
annars staðar!
Þeir félagar
‘ gera það sem
* þeir vilja,
venjulega hið
óvænta án
áhrifa mark-
>egar sveitin sló í
gegn í Bandaríkjunum fyrir
nokkrum árum með laginu Creep
var hún boðin velkomin í landinu
sem snýr venjulega baki við bresk-
um hljómsveitum. En þegar næsta
plata Radiohead, The Bends, var
gefm út hafði tónlistin snúist um
180 gráður og har engin merki
fyrri laga. Bandaríkjamenn urðu
heldur ekkert áfjáðir í að kaupa
plötuna.
Þetta er orðinn nokkurs konar
stíll sveitarinnar, „Við gerum það
sem við viljum og farðu til and-
skotans ef þér líkar það ekki!“
The Bends seldist ekki í milljónum
eintaka en þrátt fyrir það fóru aðr-
ir hópar hlustenda að taka eftir
þessari sérstöku hljómsveit. Plat-
an var í einstöku uppáhaldi gagn-
rýnenda og vel á minnst, annarra
tónlistarmanna, sem oft vitnuðu í
„Við erum mjög ólíkir innbyröis," segir Thom Yorke, söngvari Radiohead, „en
samt sem áöur höfum viö náð því marki að kynnast hver öörum þaö vel aö
viö getum stillt okkur saman án þess aö vera ein Radiohead-loftbóla. Þannig
höldum viö sérkennum hvers og eins og ákveðnum frumleika."
áhrif plötunnar á eigin lagasmíð-
ar. R.E.M óskaði eftir því sérstak-
lega að sveitin hitaði upp fyrir sig
á Monster hljómleikaferðalaginu i
fyrra og Alanis Morissette byrjaði
sína tónleika á eigin útgáfu af
Creep þegar Radiohead hitaði upp
fyrir hana í fyrra. Meðlimir Radi-
ohead segja að það sé stór munur
á hljómsveitum sem hlusta á aðrar
hljómsveitir og almenningi sem
kveikir á útvarpinu til að komast
að því hvað sé góð tónlist!
OK Computer
Hljómsveitin fer ætíð ótroðnar
slóðir í lagasmíðum, ekki síst á
nýjustu plötu sinni, OK Computer,
sem kom út núna í júli síðastliðn-
um. Platan var að meginhluta tek-
in upp í gamalli eplageymslu,
nokkra kílómetra fyrir utan Ox-
ford, heimaborg Radiohead, og
var eytt töluverðum tíma og fjár-
magni í að innrétta húsnæðið og
koma fyrir tækjabúnaði. Radi-
ohead fullgerði síðan fjögur lög í
húsnæðinu en hélt þá á enn fjar-
lægari slóðir þar sem nálægð Ox-
ford hafði áhrif á einbeitinguna.
Allt I allt tók gerð OK Computer
eitt ár og þegar henni lauk var út-
gáfufyrirtæki Radiohead, Capitol
Records, komið með stórar áhyggj-
ur af efni plötunnar. Capitol
Records fannst platan allt of þung
fyrir hinn almenna hlustanda. Það
þyrfti minnst fjórar hlustanir til
að ná lögunum og að auki hentuðu
lögin mjög illa fyrir útvarp þar
sem þau skorti mörg hver ákveðn-
ar og einfaldar melódíur.
Radiohead hélt þó sínu striki og
Capitol Records hefur staðið þétt
við bakið á henni og samþykkt að
gera myndband við hvert einasta
lag plötunnar þannig að úr verði
ein heild í myndrænni frásögn.
Þegar grannt er skoðað kemur líka
í ljós að lögin á plötunni mynda
eina heild eða sögu og textarnir
ýta á hlustandann að mynda sér
skoðun. Platan fjallar um þann
sem er minni máttar og sífellt að
berjast við óvininn.
Óvinurinn innra með
þér!
Fyrsta lag plötunnar Airbag seg-
ir frá manni sem hefur lifað af
bílslys og ætlar að sigra heiminn.
í næsta lagi á eftir er sami einstak-
lingur flúinn inn í skúmaskot og
hræðist æðra vald sem stöðugt
angrar hann. Næstu þrjú lög
byggja upp þennan ótta og beiðast
lausnar. Karma Police fjallar síðan
um þegar þessu aðili er byrjaður
að velta því fyrir sér hvort þessi
óvinur sé innra með honum sjálf-
um. Á Climbing the Walls er það
síðan staðfest: „Open up your
skull and I’ll be there, climbing up
the walls“. Síðasta lag plötunnar
fjailar síðan um leið hans til að
sleppa. Á hundrað kílómetra
hraða gerir hann sér grein fyrir
árekstrinum sem hann er um það
bil að lenda í og þetta síðasta lag,
sem í raun er fyrirrennari fyrsta
lagsins, kemur þér í heilan hring á
plötunni!
Tónlistin
Áhyggjur Capitol Records eru
að hluta til á rökum reistar. Flest
lög plötunnar eru ekki vel til þess
fallin að fá spilun í útvarpi. Enda
var það ekki meginhugsun Radi-
ohead. Hér er frekar um að ræða
tónverk sem í heild sinni skilar
einhverju til hlustandans, ákveð-
inni sögu í tónum og textum. Það
væri því óréttlátt að grípa eitt og
eitt lag og slíta það úr samhengi
við heildina á kostnað vinsælda-
lista og frægðar. Samt sem áður
hefur það gerst og sýnir eingöngu
hve frábær tónlist Radiohead er.
Félagarnir halda að nokkru leyti
áfram á sömu braut á fyrri plötu
sinni, The Bends. Gróflr gítarar
hafa vikið fyrir tærum hljómum
og ljúfsár söngur Thom Yorke tjá-
Thom Yorke, söngvari Radiohead, á
útgáfutónleikum fyrr í sumar.
ir okkur tilfínninganæmi sem á
ekki sinn líka og hrollurinn hrísl-
ast niður eftir bakinu á þér. Á
plötunni er lika ákveðinn klassísk-
ur stimpill sem að nokkru leyti
kemur fram í notkun strengja-
sveita en aðallega í melódíunum
sjálfum, flóknum og tilfmningarík-
OK Computer verður að teljast
meðal betri verka sem komið hafa
út síðustu ár, ekki síst fyrir frum-
leika og þann heildarsvip sem
Radiohead nær!
„Við erum mjög ólíkir innbyrð-
is,“ segir Thom Yorke, söngvari
Radiohead, „en samt sem
áður höfum við
náð því marki
að kynnast hver
öðrum það vel
að við getum
stillt okkur
saman án
þess að vera
ein Radiohead
loftbóla.
Þannig höldum
við sérkennum hvers og
eins og ákveðnum frum-
leika.“
tL
e
S
±
n
◄
&
fcjell
Nú er komið að því. Síðasta helgi
sumarsins er framundan og allra síð-
asta tækifærið fyrir skólafólk að
skemmta sér áður en bókaflóðið skell-
ur á. Margar hljómsveitir halda nú
um helgina sitt lokasumarball, nema
auðvitað þær sem eru nú þegar lagst-
ar í vetrarhíðið. Það er þó ekki þar
með sagt að fjörið sé búið og eiga
landsmenn eflaust eftir að skemmta
sér vel í haust og vetur.
Fjörkálfurinn þakkar landsmönn-
um fyrir sumarið og óskar þeim gleði-
legra vetrarnótta.
inn og hefjast þeir klukkan 19. Óvænt-
ir gestir á hljómleikunum verða amer-
íska stórhljómsveitin Bloodhound Gang.
Sálin
Blur
Hljómsveitin sem allar ungmeyjar
landsins hafa beöið eftir er loksins kom-
in til landsins á ný. Blur, með Damon Al-
bam i broddi fylkingar, heldur hljóm-
leika í Laugardalshöllinni á sunnudag-
Um helgina
lýkur sumartón-
leikaferð Sálar-
innar. Sveitin
hefur gert víð-
reist í sumar og
leikið hvar-
vetna við hvem
sinn fingur.
Enn hefur Sálin
þó ekki leikið á Suðurnesjum og um
helgina verður gerð bragarbót á því. Síð-
ustu miðnæturtónleikar Sálinnar í sum-
ar verða nefnilega haldnir i hinu fom-
fræga félagsheimili, Stapa, á laugardag-
inn.
Greifarnir
Greifamir
eru aldeilis
búnir að eiga
gott tónlistar-
sumar og að
sögn hljóm-
sveitarmanna
eitt það allra
besta frá stofnun sveitarinnar. Nú er
einnig komið að því að Greifamir taki
upp úr ferðatöskunum enda búnir að
vera í endalausum tónleikaferðalögum í
allt sumar.
í kvöld spilar hljómsveitin á Inghóli,
Selfossi, og annað kvöld heldur hún risa-
lokaball í Hreðavatnsskála þar sem búist
er við miklu fjölmenni.
8-villt
Loksins er
komið að því að
hljómsveitin 8-
villt leiki á höf-
uðborgarsvæð-
inu en hún hef-
ur verið á
fleygiferð um landið í allt sumar. Hljóm-
sveitin hefur hvarvetna hlotið mikla at-
hygli og ekki síst hinar íðilfógru söng-
konur sveitarinnar, Söngsysturnar fjór-
ar. 8-villt spilar á Gauki á Stöng bæði í
kvöld og annað kvöld.
Hótel Saga
Hilmar Sverrisson leikur fyrir gesti á
Mimisbarnum bæði á fóstudags- og laug-
ardagskvöld. Á laugardagskvöld verður
stórdansleikur í Súlnasalnum með
hljómsveitinni Saga Klass ásamt söngv-
urunum Sigrúnu Evu Ármannsdóttur og
Reyni Guðmundssyni.
Skítamórall
Hljómsveitin Skítamórall ætlar að
skella sér vestur á ísafjörð um helgina
og spila í Sjallanum bæði í kvöld og
annað kvöld. Búast má við mikilli
kátínu langt fram eftir nóttu.