Dagblaðið Vísir - DV - 29.08.1997, Qupperneq 12
» myndbönd
MYNDBANDA
Þyrnum stráður ferill ***
Hér segir frá dægurlagahöfundinum Denise Wa-
verly, ferli hennar og einkalífi frá sjötta áratugnum
til þess áttunda. Eftir að hafa verið hafnað sem söng-
konu leggur hún fyrir sig lagasmíðar og kemur
strax lagi inn á metsölulista og verður fljótt einn af
virtustu dægurlagahöfundum landsins. Eftir von-
brigði og sorgir í ástarlífinu tekur hún loks sjálf upp
plötu með eigin lögum og lætur þar með sinn gamla
söngkonudraum rætast. Allison Anders tekst hér að skapa mjög athygl-
isvert og eftirminnilegt drama og nýtur þar góðrar aðstoðar aðal-
leikkonunnar Illeana Douglas. Hún er mjög hæfileikarík en jafnframt
stórlega vanmetin leikkona og það geislar af henni í aðalhlutverkinu.
Matt Dillon og John Turturro skapa einnig mjög eftirminnilegar persón-
ur. Þama er einnig að finna Eric Stoltz, Patsy Kensit og Bruce Davison
og þá má sjá ýmis þekkt nöfn í pínuhlutverkum, t.d. Bridget Fonda sem
lesbísku söngkonuna og Peter Fonda sem rödd gúrúsins. Að lokum ber
að geta þess að tónlist og textagerð öll er cifar vönduð og skemmtileg.
Grace of My Heart. Útgefandi: CIC- myndbönd. Leikstjóri: Allison Anders.
Aðalhlutverk: llleana Douglas, Matt Dillon, Eric Stoltz og John Turturro.
Bandarísk, 1996. Lengd: 111 mín. Öllum leyfð.
Mars Attacks! ★★★*
Litlir grænir kallar frá Mars koma fljúgandi til
jarðarinnar á fljúgandi diskunum sínum og segja
plánetunni stríð á hendur. Þrátt fyrir hetjulega til-
burði jarðarbúa virðist ekkert bíta á Marsbúana og
mannkynið virðist vera í bráðri útrýmingarhættu,
en þá berst hjálp úr óvæntri átt. Þessi óður Tims
Burtons til ódýrra B-mynda sjötta áratugarins er
hreinasta meistaraverk og drephlægilega fáránleg út
í gegn. Leikararnir skemmta sér greinilega stórkost-
lega og bestir era Jack Nicholson og Glenn Close í
hlutverki forsetahjónanna. Einnig má nefna Pierce
Brosnan sem hinn vel meinandi prófessor, Sarah
Jessica Parker og Michael J. Fox sem sjónvarpsfréttahjúin, Rod Steiger
sem stríðsæsingahershöfðingjann og að lokum Lisa Marie í pínulitlu
geimverúhlutverki, því eina sem ekki er tölvuteiknað. Annars slá tölvu-
teiknuðu Marsbúarnir allt annað út, þeir eru eins og illgjarnar útgáfur
af ofvirkum krökkum og skemmta sér konunglega við að hrekkja jarð-
arbúa á sem hrottalegastan hátt. Hugmyndaauðgin í þessari mynd er
meiri en í öllum hinum Hollywood-myndum ársins og hún er ásamt
fimmta frumefninu flottasta og fyndnasta sci-fi mynd sem gerð hefur
verið.
Mars Attacks! Útgefandi: Warner- myndir. Leikstjóri: TTm Burton. Aðal-
hlutverk: Urmull af stórleikurum. Bandarísk, 1996. Lengd: 101 mín. Bönn-
uð innan 12 ára.
★** Átta daga umsátur
Ástralska myndin Mr. Reliable er byggð á sönn-
um atburðum og segir frá því þegar lögreglan um-
kringdi hús Wally Mellish þar sem hún hélt að hann
héldi kærustu sinni og bami hennar í gíslingu. Um-
sátrið stóð i átta daga og lögreglan var I meira lagi
undanlátssöm, leyfði skötuhjúunum að giftast, gaf
honum M16 hríðskotariffil og felldi síðan niður all-
ar ákærur á hendur honum. Þessa átta daga varð
hann alþýðuhetja og fjöldi fólks safnaðist saman fyr-
ir utan húsið til að fylgjast með og styðja Wally.
Ekki veit ég hversu nálægt er farið sannleikanum í
myndinni en sumt er fremur illa útskýrt eins og til dæmis hvers vegna
í ósköpunum Wally neitaði löggunum um inngöngu í upphafi og hvem-
ig honum datt í hug að ybba gogg gegn hálfu lögregluliði landsins. Hins
vegar er gefin góð skýring á því hvers vegna hann komst upp með það.
Leikarar standa sig nokkuð vel og myndin er oft meinfyndin, en því
miður dettur hún niður þess á milli og verður fyrir vikið lítt eftir-
minnileg.
Mr. Reliable. Útgefandi: Háskólabíó. Leikstjóri: Nadia Tass. Aðalhlutverk:
Colin Friels og Jacqueline McKenzie. Áströlsk, 1996. Lengd: 108 mín. Öll-
um leyfð. -PJ
Lítill spæjari **
Harriet M. Welsch er 11 ára stelpa sem ætlar aö
verða rithöfundur. Bamfóstran hennar segir henni
að æfa sig með þvi að skrifa niður allt sem hún sér
og hún ákveður því að eyða frítíma sínum i að
njósna um fólk. Hún skrifar allt niður í minnisbók-
ina sína, þ.á m. viðkvæmar athugasemdir um vini
sina og bekkjarfélaga, sem síðan komast i bókina
með þeim afleiðingum að henni er útskúfað og eng-
inn vill tala við hana. í fyrstu ákveður hún að hefna
sín grimmilega en síðan verður henni ljóst að til að
fá vini sína til baka verður hún að biðjast afsökunar
á gerðum sínum. Það er lítið merkilegt að finna í
handritinu, söguþráður og persónusköpun em bara eins og við er að bú-
ast í miðlungsbarnamynd. Leikaramir eru líka nokkuð slappir og
Michelle Trachtenberg vantar sjarma til að bera uppi aðalhlutverkið.
Hins vegar er kvikmyndataka oft frumleg og athyglisverð. Böm em afar
þakklátur áhorfendahópur og hafa sjálfsagt gaman af myndinni, en ann-
ars er hálfbjánalegt að hálfþrítugur maður sé að dæma bamamynd.
Harriet the Spy. Útgefandi: CIC- myndbönd. Leikstjóri: Bronwen Hughes.
Aöalhlutverk: Michelle Trachtenberg og Rosie O'Donnell. Bandarísk,
1996. Lengd: 98 mín. Öllum leyfð.
-PJ
FÖSTUDAGUR 29. ÁGÚST 1997 TTTT*
Myndbandalisti vikunnar
29. júlí til 4. ágúst júlí
SÆTI FYRRI VIKA VIKUR Á LISTA TITILL ÚTGEF. TEG. ■
1 Ný 1 Mars Attacks Warner rayndir Gaman
2 5 2 Extreme Measures Skrfan Spenna
3 2 4 Fled Warner myndir Spenna
4 1 4 Ransom Sam-myndbönd Spenna
5 4 3 High School High Skrfan Gaman
6 3 4 Daylight ClC-myndbönd Spenna
7 6 4 2 She's the One Skrfan Gaman
S 6 Preacher's Wife Sam-myndbönd Gaman
9 10 2 Shine Háskólabíó Drama
10 9 s : Two Days in the Valley Sam-myndbönd Spenna
11 S 5 Set it off Myndferm Spenna
12 ný : 1 In Love and War Myndform Drama
13 Ný ; 1 \ Thinner Sam-myndbönd Spenna
14 l i 14 9 \ Bound j Sam-myndbönd 1 Spenna
15 i5 ; 9 Sleepers Háskólabíó , Spenna
16 12 . 6 Mirror Has Two Faces Skífan Gaman
17 ! 13 6 Frighteners ClC-myndbönd > Spenna
1S , 1 u • i 5 That Thing You Do! Skrfan 1 Gaman
19 Ai - 9 Djöfiaeyjan Skrfan Gaman
2, 16 7 Turbulence ! Sam-myndbönd , Spenna
Gamanmyndin Mars Attacks! er hástökkvari vik-
unnar á myndbandalistanum, stekkur beint í topp-
sætiö. Hún er jafnframt eina nýja myndin á listan-
um. Röö hinna myndanna hefur riölast nokkuö.
Ransom, sem var á toppnum í síöustu viku, er í
fjórða sæti en Extreme Measures hefur færst úr
fimmta sætinu í annaö og rutt Fled niöur í það
þriöja. High Scool High hefur síöan falliö um eitt
sæti, niður í þaö fimmta.
Á myndinni heilsa Marsbúarnir upp á mannfólkiö.
Fled Ransom
Mars
Attacks!
Jack Nicholson,
Annette Bening og
Glenn Close.
Myndin segir frá
því er geimskip
byrja skyndilega að
streyma til jarðar frá
Mars. Innanborðs
eru heldur ófrýnileg-
ir Marsbúar sem
ómögulegt er að geta
sér til um hvað eru
að hugsa. Það verður
að sjálfsögðu uppi
fótur og fit á jörðu
niðri þar sem fólk
hefur enga hugmynd
um hvemig taka
skuli á móti hinum
óvæntu gestum.
Herinn er þó í við-
bragðsstöðu og í ljós
kemur að full þörf er
fyrir hann.
Extreme
Measures
Gene Hackman og
Hugh Grant.
Þegar heimilislaus
maður, sem ber arm-
band merkt nafni
þekkts sjúkrahúss,
deyr á slysavarð-
stofu i New York
veitir enginn því at-
hygli nema ungur
læknir, Guy Luthans
að nafni. Hann
ákveður því að
grennslast fyrir um
málið og ekki líður á
löngu uns athygli
hans beinist að virtri
og víðfrægri rann-
sóknarstofhun sem
stýrt er af einum fæ-
rasta og frægasta
lækni og vísinda-
manni landsins, dr.
Lawrence Myrickck.
Laurence Fish-
burne og Stephen
Baldwin.
Gamansama
spennumyndin Fled
hefst á því að til
handalögmála kemur
milli þeirra Pipers
og Dodge sem eru
fangar i vegavinnu-
flokki. Þeim tekst aö
flýja og lögreglan set-
ur allt í gang til að
ná þeim. Þar að auki
eru þeir með leigu-
morðingja mafiunn-
ar á hælunum.
Ástæðan fyrir áhuga
mafíunnar á þeim er
sú að Dodge býr yfir
vitneskju um disk-
ling sem hefur að
geyma ólögleg leynd-
armál mafiunnar.
Mel Gibson og
Rene Russo.
Auðkýfmgurinn
Tom Mullen (Mel
Gibson) og eiginkona
hans lenda í verstu
martröð allra for-
eldra þegar ungum
syni þeirra er rænt.
Mullen fær senda
mynd í pósti af synin-
um, bundnum og
kefluðum, ásamt
kröfum um svimandi
hátt lausnargjald.
Mullen er nauðbeygð-
ur til að verða við
kröfum ræningjanna.
En þegar afhending
lausnargjaldsins fer
út um þúfur og skotb-
ardagi brýst út
ákveður Mullen að
taka mestu áhættu
lífs síns.
High School
High
Jon Lovitz, Tia Car-
rere og Louise
Fletcher
Lovitz leikur
hrekklausan kenn-
ara, Richard C. Cl-
ark, sem tekur upp á
því að flytja sig um
set og hefja kennslu
við hinn alræmda
Marion Barry fram-
haldsskóla. Fljótlega
uppgötvar hann að
nemendumir vilja
gera flest annað en
að láta troða í sig
einhverjum vísdómi.
Þarna er nefnilega
samankomið þvílíkt
lið af afspymuléleg-
um námsmönnum að
annað eins hefur
tæplega sést.