Dagblaðið Vísir - DV - 12.09.1997, Blaðsíða 2
i6 kvikmyndir
K * *-------
Kringlubíó/Regnboginn - Addicted to Love:
Sjúklegást **
Vel heppnaðar rómantísk-
ar gamanmyndir eru bæði
hugljúfar og skemmtilegar.
Frá draumasmiðjunni í
Hollywood hafa komið ágæt-
ar myndir sem standa undir
þvi að vera bæði hugljúfar
og skemmtilegar og er
skemmst að minnast French
Kiss, sem nefnd er hér sem
dæmi, þar sem í henni lék
Meg Ryan annað aðalhlut-
verkið og átti taugar áhorf-
enda. í Addicted to Love hef-
ur greinilega átt að endur-
taka leikinn og er Meg Ryan
ekki í ólíku hlutverki, auk
þess sem franskur karlmað-
ur kemur við sögu. Aftur er hún stúlka sem hefur verið svikin í tryggð-
um. En þar sem French Kiss státaði af góðri sögu þá er sagan í Addict-
ed to Love þvílíkt bull að sjálfsagt hefði verið hægt að gera ágætan farsa
úr henni.
Ryan leikur stúlku sem hefur lent í klónum á frönskum glaumgosa
sem nýtir sér það að stúlkur í New York falla fyrir frambm’ði hans og
sjarma. Það er eins og hann segir sjálfur: „1 Frakklandi tók engin eftir
mér en í New York fellur kvenfólkið að fótum mér.“ Nú vill svo til að
Frakkinn hefur náð að stinga undan ungum stjömufræðingi sem hefur
eigin vísindalegu hugmyndir um hvemig á að ná kærustunni til sín aft-
ur. Ryan og Broderick sameinast því í aðgerðum gegn kærastuparinu,
aðgerðum sem vægast sagt eingöngu fólki sem þjáist af ástsýki gæti dott-
ið í hug að framkvæma. Meg Ryan reynir sitt besta en hefur oft gert bet-
ur. Matthew Broderick reynir og reynir en hann er enginn Kevin Kline
og það vantar útgeislun í leik hans.
Einstaka atriði era smellin. Það era þessi atriði sem gefa tilefni til að
halda að betur hefði tekist til hefði myndin verið byggö upp sem' hrein
gamanmynd, rómatíkinni að mestu sleppt.
Leikstjóri: Griffin Dunne. Handrit: Robert Gordon. Kvikmyndataka:
Andrew Dunn. Tónlist: Rachel Portman. Aðalhlutverk: Meg Ryan, Matt-
hew Broderick, Kelly Preston og Tcheky Karyo.
Hilmar Karlsson
Stjörnubíó - Lífsháski:
Leigjandinn **+
1 auglýsingu frá Stjömubíói er eftirfarandi spurningu varpað fram:
„Er Walter haldinn ofsóknaræði eða hangir líf hans á bláþræði?" Lífs-
háski segir frá ungum arkitekt, Walter Woods (Rob Lowe), sem heldur
til Los Angeles til þess að teikna hús fyrir auðugan viöskiptavin (James
Belushi). Hann tekur íbúð á leigu í gömlu, niðurníddu húsi og hefst
handa. Honum verður þó lítið úr verki. Nágrannamir era einkennileg-
ir, húsvörðurinn sérvitur (Dean Stockwell) og viðskiptavinurinn skiln-
ingslaus hrokagikkur. Ekki líður á löngu þar til Walter verður þess full-
viss að fylgst sé með honum.
í fjölbýlishúsi býr borgarbúinn oft í einangruðu en nánu samlífi við
fólk sem hann hvorki þekkir né vill kynnast. Myndir likar Lífsháska
leggja áherslu á þessa einangran með því að færa aðalhetjuna í annarlegt
umhverfi og neyða hana til þess að laga sig að þessu litla samfélagi. Frá
síðustu árum má nefna mynd Polanskis, The Tenant (1976), og mynd
Coenbræðra, Barton Fink (1991). Lífsháski Walters minnir um margt á
raunir Bartons þótt sú síðamefnda sé betri mynd. í öðram myndum er
samfélagi hússins stefnt í voða með því að kynna nýjan og dularfúllan ná-
granna sem virðist hafa ýmislegt óhreint í pokahominu. Sem dæmi má
nefna mynd Hitchcocks, The Lodger (1926), Apartment Zero (1988) og
Pacifíc Heights (1990). Allar þessar myndir eiga það sammerkt að ala á
firringu, annarleika og vanlíöan sem breytir heimili manna í sjálfskipað,
martraðarkennt fangelsi því skuggar, kæfð hljóð og allt það áreiti sem
borgarbúinn á að venjast leggjast á sálina og aia á ofsóknarótta. En hetj-
an heldur sig þó innan dyra, því allt er betra en að horfast í augu við þann
hrylling sem leynist úti á stigagangi. Enn eitt dæmi um mynd sem elur á
kæfandi innilokunarkennd er mynd Polanskis, Repulsion (1965).
Living in Peril vinnur ágætlega úr þeim minnum sem ég rakti hér að
ofan. Hún bliknar í samanburði við það besta úr fortíðinni en kom mér
þó skemmtilega á óvart. Hún vísar skemmtilega i hefðina sína og leik-
aramir era sannfærandi í óvenjulegum hlutverkum.
Leikstjóri: Jack Ersgard. Handrit: Patrick, Jesper og Jack Ersgard. Kvik-
myndataka Ross Berryman. Aðalhlutverk: Rob Lowe, James Belushi,
Dean Stockwell, Patrick Ersgard og Dana Wheeler-IMicholson.
Guðni Elísson
FÖSTUDAGUR 12. SEPTEMBER 1997 JjV
Laugarásbíó og Stjörnubíó sýna Spawn:
Hetja á samningi hjá
skrattanum
Spawn sem Laugarásbíó og
Stjörnubíó eru að hefja sýningar á
er gerð eftir vinsælli teiknimynda-
sögu og er aðalpersónan stríðsmað-
ur með hæfileika atvinnumorðingja
sem auk þess hefur hæfileika til að
breyta sér í heilt vopnabúr þegar
það á við. Spawn, en svo er nafnið
sem þessi ómennski stríðsmaður
gengur undir, var einu sinni venju-
legur maður sem hét A1 Simmons.
Hann starfaði fyrir ríkislögregluna.
Spilltir félagar hans myrtu hann
þegar hætta var á að hann kæmi
upp um þá. Simmons er friðlaus í
umhverfi sínu og gerir samning við
þann í neðra á sama hátt og Faust
gerði foröum. Hann fær að fara til
jarðarinnar til að hitta eiginkonu
sína. í staðinn samþykkir Simmons
að leiða her djöfulsins í þeirri við-
leitni hans að eyða öllu lífi á jörð-
inni. Fær hann að gjöf ýmsa hæfi-
leika sem mennskum mönnum eru
ekki meðfæddir. Þegar til jarðar
kemur hittir hann fyrir Cogliostro
sem hvetur hann til að snúa við
blaðinu og berjast fyrir betra lífi fyr-
ir mannfólkið.
í helstu hlutverkum era Michael
J. White, John Leguizamo, Martin
Sheen, D.B. Sweeney, Theresa
Randle og Nicole Wiliamsson. Leik-
stjóri er Mark Dippé
sem er hér að leik-
stýra fyrstu kvikmynd
sinni en Dippé er mik-
ill brellumeistari sem
meðal annars gerði
brellur i The Abyss,
Jurassic Park og
inator 2 en frá 1988
hefur hann unnið hjá
því þekkta fyrirtæki
Industrial Light +
Magic. Hann hefur
4 fengist við að leikstýra
auglýsingamyndum og
tónlistar-
myndbönd-
um.
Term
Spawn er eins manns her sem
enginn ræður við.
í Spawn eru
margir þekktir leikarar en að-
alleikarinn, Michael Jai
White, er þó að mestu óþekkt-
ur. Hann vakti fyrst athygli
þegar hann lék Mike Tyson í
sjónvarpsmyndinni Tyson.
White hefur mikla reynslu í
sjálfsvarnaríþróttinni karate
og hefur æft af kappi í ein
átján ár. Hann er með á bak-
inu eina tuttugu og sex meist-
aratitla, meðal annars hefur
hann orðið Bandaríkjameist-
ari. Áður en hann hóf sjálfur
aö leika í kvikmyndum var
hann oft fenginn til að hanna
bardagaatriöi. Eftir að Micha-
el Jai White hafði leikið Tyson
lék hann nokkur smáhlutverk
í kvikmyndum, meðal annars
í 2 Days in the Valley, Full
Contact og Universal Soldiers.
Hlutverkið í Spawn er það
stærsta hingað til. -HK
Kurt Russell og
Kathleen Quinla-
in leika hjón sem
eru aöskilin á
hrottalegan hátt.