Dagblaðið Vísir - DV - 17.09.1997, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 17.09.1997, Blaðsíða 2
MIÐVIKUDAGUR 17. SEPTEMBER 1997 isll&Hvur * * i* Ýmislegt nýtt hjá Apple-umboðinu: Kerfi 8 gjörbreyting frá eldri stýrikerfum Þab verfiur mikiö um aö vera hjá Apple á næstunni. Ýmsar nýjungar eru að koma hjá Apple-umboðinu sem ættu að gleðja Machintosh-notendur hér á landi. Eigendur Machintosh-tölva geta nú notið þess besta úr bæði PC og Machintosh-umhverfinu án mikils tilkostnaðar. Hingaö til hefúr Machintosh-notendum staðið til boða að setja spjald í Makkann sem inniheldur PC móðurborð. Sú lausn er dýr og ekki á hvers manns færi. Nú býðst Makkaeig- endum að kaupa hugbúnað frá Connectix sem ber nafniö Virtual PC og gerir í raun það sama og fyrrnefnd spjöld. Forritið rúmast á einum disklingi. Þegar það er ræst líkir það eftir Pentium MMX tölvu og má þá nota öll þau stýrikerfi og forrit sem ganga fyrir PC-tölvur. Forritið er einfalt í uppsetningu og eru til útgáfur til aö setja upp bæði Windows 3.x og Windows 95. Hægt er að setja upp sameiginlega möppu sem nota má bæöi inni í Virtual PC og Machintosh-hlutan- um. Þetta er mjög hentugt ef verið er að vinna með skjöl sem flytja þarf i PC- umhverfi. Kerfi 8 Apple hefur nú einnig komið með nýja uppfærslu á MacOS stýrikerfi Machintoshtölva. Aö sögn forsvarsmanna Apple er nýja kerfið mikil bylting og mikill munur er á kerfi 7.6.1. og 8.0, reyndar svo mikil aö líkja má við breytinguna sem varö á milli 6.5 og 7 á sínum tíma. Nýja kerflö er einkum ætlað nýrri tölvum og gengur aðeins á tölvum með Moto- rola 68040 eða PowerPC örgjörva. Þetta þýðir að kerfi 7.6.1. er sein- asta stýrikerfíð fyrir eldri Machin- tosh tölviu-. Með því aö sleppa þeim var hægt aö framleiða tölu- vert hraöara og betra kerfi fyrir nýju vélamar. Útlit nýja kerfisins er alveg nýtt. Þegar tölvan er ræst eftir innsetningu á kerfi 8 birtist alveg nýtt umhverfi. Gamla Machintosh- umhverfið er farið og í staðinn komið nýtt útlit. Hægt er aö hafa eigin ljósmynd á skjáboröinu sem gerir mnhverfið í tölvunni per- sónulegt og eru gæði myndanna alveg imdraverð. Ef ekki er notuð ljósmyndin eru skjáborösmynstrin frá kerfi 7 enn til staðar. Allt sem tengist gluggaumhverf- inu, eins og heitisrönd, sknmrönd og möppur, hefur fengið þrívítt út- lit. Hægt er að skoöa innihald glugga sem hnappa, sem gerir tölv- una aögengilegri fyrir böm, þar sem aðeins þarf að smella einu sinni á hnappinn en ekki tvisvar. Auðveldara er að feröast um stýrikerfiö þar sem ekki þarf að tvísmella á allar möppur til að komast á þá réttu. Músarhnappn- um er einfaldlega haldið niðri þangað til komið er að réttu möpp- unni. Kerfið sjálft hefur líka tekið töluveröum breytingum. Finder hefur verið endurskrifaður fyrir PowerPC örgjörvann en hann var áður aðeins skrifaður fyrir 680x0 örgjörvann sem gerði forritið hæg- virkara en ella. Finder styðm* nú fjölverkavinnslu þannig að hægt er að setja í gang fleiri en eina af- ritirn í einu og samt gera enn fleira á meöan á því stendur, t.d. tæma ruslið. Notandinn þarf því ekki að bíða meöan Finder er að afrita. öll uppsetning á Kerfi 8 tekur sérstakt tillit til Netsins og að tölv- an sé uppsett til netnotkunar. All- ur hugbúnaöur, sem notaður er í netvinnslu, fylgir meö kerfmu. Kerfið er það hraðvirkasta sem komið hefúr frá Apple. Sýndar- minnið er orðið enn hraðvirkara en í 7.6.1. þannig að ekki þarf að nota forrit frá þriðja aðila til að búa til sýndarminni. Rhapsody Loks skal minnast á nýja stýri- kerfið Rhapsody sem nú er komið út. Flest MacOs forrit munu geta keyrt á Rhapsody. Meðal kosta þessa stýrikerfis má nefna samhliða fjölör- gjörvavinnslu. Rhapsody mun geta nýtt allt að 20 örgjörva í einu sem er nokkuð sem hvorki MacOs né Windows NT geta. Kerfinu verður skipt í tvennt, í Unix skel og Find- er. Því þarf ekki að endurskrifa forrit fyrir Rhapsody sem eru skrifuð fyrir Unix. QuickDraw og QuickTime verða flutt yfir á Rhapsody. Guli kassinn er meginhluti Rhapsody en forrit framtíðarinnar munu keyra í honum. Eldri forrit, sem skrifuð eru fyrir MacOs, mvmu hins vegar keyra í Bláa kassanmn sem er reyndar forrit í Gula kassanum. Rhapsody verður einnig með innbyggða Java-sýnd- arvél og forrit, sem skrifuð eru í Java, keyra beint á kerfið og nota sjálfkrafa MacOs viðmótið. Slóðin á vefsíðu Apple er http: //www.apple.is. HÉR FYRIR NEDAN GEFUR AD LÍTA GOTT MMX TILBOD Nuna komum vid jafnvel sjálfum okkuc á ovart med þessu spcengitilbodi Ef þú býrð á Reykjavikursvæðinu bjóðumst við til þess að koma heim til þín, setja upp vélina og kenna þér fyrstu skrefin svo að þeir sem óöruggir eru geti nýtt vélina frá fyrsta degi. langholtsvegur 115 ■ 104 Reykjavík ■ Simk 568 1616 ■ http://www.treknet.is/frontur ■ frontur@treknet.is * 200 Mhi MMX örgjörvl *24 hraða geisladrif * 32 MB EDO mlnni *512K flýtlminni * 3.1 GB narður diskm * 15" Skjár * 33.600 mótald mánuðl hjá Hríng * 16 bita 30 hljóðkort * 120W hátalarar * S3 Virge 30 skjákort með 4Mb * 7 geisladiskar með Mitrosoft forritum. * Win 95 uppsett á vél með CD og handbók —200-MHz-MMXi 129*900 Við hjá Fronti biðjum þig um að gera verð- samanburð vegna þeirrar staðreyndar að þetta verð er nlægilega lágt. AGRESSO 5 - ný útgáfa Ný útgáfa af viðskiptahugbúnaö- arkerfinu Agresso - Agresso 5 - er komin á markaðinn. Agresso 5 byggir á styrk fyrri úgáfu, fjöldi samtengdra kerfishluta og má i því sambandi nefna fjárhagsbókhald, viðskiptamannabókhald, birgðabók- hald, starfsmannastjómun og launa- kerfi og verkbókhald. Fyrri útgáfa vann til fjölda verölauna og viður- kenninga og má nefna að hið virta tímarit PC-User veitti Agresso gull- verölaun. Alþjóðleg samtök fram- leiðenda á hugbúnaði völdu Agresso sem besta viöskiptahugbúnaöar- kerfiö fyrir meðalstór og stór fyrir- tæki og stofnanir. Það er Skýrr hf. sem er þjónustuaðili Agresso á ís- landi. Ýmislegt nýtt er í nýju útgáfunni. Meðal annars er unnt að vera með mörg tungumál og gengi, tækni- vandamál vegna ársins 2000 verða leyst og hægt er að skanna og geyma skjöl og reikninga. Einnig er hægt aö tengja kerfið við tölvupóst sem auðveldar rafræna skýrslu- dreifmgu og velja á milli tengingar við gagnagnmnana Oracle, Sybase, Informix, Ms SQL Server eða Ingris. Agresso er staðlaður hugbúnaður meö mikinn sveigjanleika. Unnt er að laga kerfið að þörfum hvers fyr- irtækis án þess að forrita í kerfinu sjálfú. Virkni og útlit mynda er samræmt, þannig að þegar notandi hefur náð tökum á einum kerfis- hluta á hann auövelt meö að ná tök- um á þeim næsta. Hægt er að vera meö mörg fyrirtæki í sama kerfinu. Agresso er hannað fyrir Windows- umhverfi og því er auðvelt að flytja gögn á milli eða tengjast öðrmn Windows-forritum, s.s Excel. Þess má geta að lokum að nú er unnið að uppsetningu á Agresso hjá Reykjavíkurborg, Rafmangsveitu Reykjavíkur og fjármálafyrirtækj- um. -HI

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.