Dagblaðið Vísir - DV - 17.09.1997, Síða 6
MIÐVIKUDAGUR 17. SEPTEMBER 1997
20
Tölvuleikir:
Framhalds-
leikir alls-
ráðandi
Ýmislegt er væntanlegt í tölvu-
leikjaflórunni á næstunni. Einkum
virðast það vera framhaldsleikimir
sem mest framleiðsla er á núna.
Hjá Megabúö Skífunnar eru
væntanlegir bráðlega Tomb Raider
2, Crash Bandicoot 2, Pandemonium
2, Dark Forces 2 og Lands of Lore 2.
Það nýjasta í PC-leikjunum er þó
Outpost 2 frá Sierra. Einnig hefur
Sierra náð dreifingarrétti á Blizzard
sem framleiddi Warcraft 1&2 og Di-
ablo. Einnig er væntanlegt frá Blizz-
ard Starcraft, sem er eins konar
geimútgáfa af WarCraft 2 og einnig
aukaborð fyrir Diablo.
Leikimir, þar sem maðin- getur
gerst framkvæmdastjóri knatt-
spyrnuliðs, hafa alltaf verið gríðar-
lega vinsælir og þá helst Champ-
ionship Manager 2. Nú er komin ný
útgáfa af þeim leik, 97/98 enhanced.
Sá leikur skartar ensku, ítölsku,
spænsku, portúgölsku, þýsku og
frönsku deildinni. Allt hefin- verið
uppfært og nú geta menn ráðið hver
tekur vítaspymur, aukaspymur og
homspymur.
Playstation-eigendur geta einnig
glaðst yfir því að nú er að koma
slíkur leikur fyrir þá. Sá heitir
Premier Manager 98 og er frá
Gremlin Interactive.
Japis selur nú marga leiki fyrir
Sega-leikjatölvumar. Þar eru knatt-
spymuleikimir einnig í fararbroddi
og sá sem nú er væntanlegur heitir
Worldwide soccer 98. Einnig er
væntanleg Sega-útgáfa af hinum
vinsæla leik Quake. Af öðram Sega-
leikjum má nefna kappakstursleik-
inn Touring Car Championships,
bardagaleikinn Dragon Force og síð-
ast en ekki síst Jurassic Park sem
byggist á samnefndri kvikmynd.
Japis hefur einnig selt töluvert af
leikjum frá Disney Interactive og
eru fleiri leikir væntanlegir þaðan.
Um þessar mundir er Hercules að
koma í verslanir Japis og í næsta
mánuði kemur leikrn- sem byggður
er á ævintýrinu inn Aladdín. Sá
leikur heitir Aladdin The Fate of
Agrabah.
-HI
Hercules-leikurinn mun brátt sjást í verslunum Japis.
Netverk:
Pappírslaus viðskipti
ryðja sér til rúms
Netverk hefur verið frumkvöðull á
sviði hugbúnaðar í pappírslausum
viðskiptum (EDI) á íslandi. EDI felur
í sér flutning á viðskiptagögnum á
stöðluðu formi milli tölva. Kosturinn
við EDI-formið er að allar tegundir
tölvukerfa geta átt samskipti óháð
hvaða hugbúnaður og stýrikerfi er
notað. Til þess að hægt sé að notfæra
sér EDIFACT-staðalinn þurfa að vera
til staðar svokallaðir EDI-þýðarar og
samskiptahugbúnaður (EDI- kerfi)
og/eða X.400 pósthús. Netverk hefur
sérhæft sig í þróun og sölu slíks bún-
aðar.
Nú þegar hafa nokkrir stórir aðilar
í verslun tekið upp EDI. Þeir senda
pantanir og taka á móti staðfestingu
og reikningi pappírslaust. Meðal
þeirra eru Sól, Bónus, Hagkaup, 10-11
verslanirnar og um 120 stór-
ir og smáir heildsalar og
framleiðendur. Vænta má að
viðskiptabankarnir taki upp
EDI-samskipti á þessu ári.
Ferðir í tollinn
óþarfar
Sú stofnun sem hefur ver-
ið brautryðjandi í EDI-sam-
skiptum hér á landi er Emb-
ætti Ríkistollstjóra. Með'upp-
töku á EDI-staðlinum hefur
hraðinn og öryggið apkist
við tollafgreiðslu. Núnai tek-
ur aðeins um 5-10 mín. að
ganga frá tollpappírum. Ferð-
ir í tollinn eru óþarfar lauk
Viöskiptabankar verða bráöum meö pappírs-
laus viöskipti.
þess sem fyrirtæki, sem nota þessa
tækni, fá gjaldfrest á öllum tollum og
gjöldum í 1-2 mánuði vaxtalaust.
Með nýlega samþykktum tollalög-
um hefur verið tekið stórt skref í átt
aö hraðari samskiptum og frá og með
1. janúar árið 2000 verður eimmgis
hægt að tollafgreiða vöru með EDI-
samskiptum. Er lagasetning þessi til
marks um hvemig þessi viðskipta-
máti er að ryðja sér til rúms. í dag em
um 60 fyrirtæki tengd tollinum með
EDI og er ljóst að þeim á eftir að fjölga
hratt á næstu árum.
Samskiptakerfi gegnum
Inmarsat
En Netverk er með fleira í boði.
Þann 3. júní sl. tóku fjarskipti á sviði
símasamskipta nýja stefnu og það af
miklum krafti þegar vel heppnað flug-
tak fjórða Inmarsat-3 gervihnattarins
átti sér stað. Gervihnattasendingar ná
nú yfir 98% jarðarkringlunnar og
gera þar með einfóld og þægileg fjar-
skipti að raunhæfum möguleika.
Netverk hefur getið sér gott orð fyr-
ir þróun og hönnun hugbúnaðar-
lausna fyrir Inmarsat gervihnatta- og
þjónustuaðila. Hingað til hefur ekki
verið mögulegt að taka á móti eða
senda skeyti um Inmarsat - A/B/C
eða M á öðrum stafagerðum en sem
finnast í ensku. Með samhæfðu átaki
og íslensku hugviti sem byggist á
þekkingu og reynslu af skeytakerfum
hefur Netverk, fyrst i heimi, þróað
lausn sem stuðlar að því að óhefð-
bundin stafasett, þ.á m. íslensk og
rússnesk, komast nú um Inmarsat-
A/B/C og M óbrengluð.
Netverk hefur einnig náð góðum ár-
angri við að ná kostnaöi við skeyta-
sendingar niður. Hingað til hefur ekki
verið mögulegt með góðu móti að
senda tölvupóst í gegnum gervihnött
án þess að kostnaðurinn stígi upp úr
öllu valdi. Meö nýjum hugbúnaði frá
Netverk, sem felur í sér þjöppun, er
hægt að ná niður kostnaði við send-
ingar um allt að 50-60% ef send eru
t.d. 60-70 skeyti mánaðarlega. Einnig
er mögulegt aö senda skeyti um In-
marsat C með þjöppuðu viðhengi, t.d.
Word, Excel eða Powerpoint.
Útgerðir í sambandi við
skip sín
Þessi hugbúnaöur gerir t.d. útgerð-
um kleift að vera í stöðugu sambandi
við skip hvar í heiminum sem þau
kunna að vera. Upplýsingar eru send-
ar og mótteknar sjálfvirkt eða hand-
virkt frá skipum hvar sem þau em
stödd. Hægt er að fylgjast með allri
framvindu sendinga, t.d. hvort skeyti
hafi verið móttekiö, lesið eða því eytt
án þess að vera lesið eða það fallið í
sendingu. Hugbúnaðurinn getur leit-
að sjálfkrafa að ódýrustu leiðinni, t.d.
NMT, GSM eða Inmarsat A/B/M eða
C. Sjálfvirkur flutningur er möguleg-
ur á öllum vinnsluupplýsingum, afla-
tölum, bókhaldsgögnum, viðhaldsupp-
lýsingum, pöntunum eða öðrum
skyldum upplýsingum sem tengjast
rekstri fyrirtækisins.
Þessa sfundina er Útgerðarfélag
Akureyringa fyrst íslenskra fyrir-
tækja að prófa búnað frá Netverk um
borð í skipum sinum.
Netverk gerði fyrr á þessu ári
samning við fjarskiptafyrirtæki kór-
esku fyrirtækjasamsteypunnar Hy-
undai um sölu á samskipta- og upplýs-
ingakerfi. Fjarskiptabúnaðurinn var
settur um borð í 85 af flutningaskip-
um samsteypunnar og notaður til fjar-
skipta við höfuðstöðvar í landi svo og
á milli skipanna sjálfra. Kerfíð leysti
þar með af hólmi um 10 ára gamalt og
óskilvirkt fjarskiptakerfi af enskum
uppruna. Einnig hefur Netverk hann-
að samskiptakerfl fyrir aðila í Rúss-
landi, Hong Kong, Noregi, Svíþjóð og
Frakklandi.
Þá hafa aðilar í Suður-Ameríku,
þ.e. Chile og Argentínu, sýnt þessu
kerfi mikinn áhuga.