Dagblaðið Vísir - DV - 17.09.1997, Síða 12

Dagblaðið Vísir - DV - 17.09.1997, Síða 12
MIÐVIKUDAGUR 17. SEPTEMBER 1997 jLí"V 2» tölvur Ef þú værir aðdáandi hljóm- sveitarinnar Genesis hefðirðu get- aö beðið þolinmóð(ur) eftir því að ný plata frá þeim kæmi í búðir. Eða þú gætir kveikt á tölvunni og farið á vefsíðu Liveconcerts (http: //www.liveconcerts.com) og séð þá ýta hljómplötunni úr vör í Kennedy-geimferðamiðstöðinni í lok ágúst sl. Eða brjálaðir aðdá- endur U2 sem myndu gera hvað sem er til að sjá tónleika með þeim með því skilyrði að það kost- aði ekki meira en fimm þúsund kall gátu farið á U2’s Popmart Web á heimasíðu Microsoft 31. ágúst síðastliðinn. Þar var bein útsending á vefnum frá tónleikum sem sveitin hélt í Dublin. Að- gangseyrir: Enginn. Ekki stór nöfn strax Þessi tvö dæmi eru aðeins brot af dæmum um hvernig hægt er að njóta tónleika með uppáhalds- hljómsveit sinni heima hjá sér án ' þess að þurfa að borga svimandi háar upphæðir til að komast á tónleika. Beinar útsendingar um Netið er það sem koma skal. En það er best að vara fólk við. Það finnast ekki mjög margir tón- leikar með stórstjörmun á vefnum alveg strax. Flestar vefsíður sem bjóða upp á beina útsendingu frá tónleikum bjóða upp á blöndu af þokkalega frægum og algjörlega óþekktmn hljómsveitum. Stóriun nöfnum á þó eftir að fjölga eftir xþví sem tónlistarmenn gera sér betur grein fyrir markaðs- og út- breiðslumöguleikum Netsins. 3,5-4 milljónir heim- sókna á mánuði Sérfræðingar telja að af þeim vefsíðum sem upp á slíkt bjóða sé L.A. Live (http://www.lalive.com) sú sem einfaldast er að flakka um og er einnig hvað innihaldsríkust. Sú vefsíða fær um 3,5 til 4 milljón- ir heimsókna á mánuði. Það þykir aðalkosturinn við þessa vefsíðu að lítið er um skraut sem tekur lang- an tíma að hlaða inn. Það eru sýn- ingamar sem eru látnar tala. Chris Hovarth, einn af aðstand- endum L.A. Live, segir að síðan hafi sent út á vefnum yfir hundr- að tónleika og uppákomur síðan 1995 og fá sýningarnar að meðal- tali 100 þúsund áhorfendur hver. Hann segir að þessar beinu út- sendingar verði sífellt vinsælli sama hvort um stóra eða smáa at- burði sé að ræða. Einnig séu hljómsveitir að gera þetta i aukn- tun mæli til að ná til fleiri áhorf- enda. Hovarth vill þó taka skýrt fram að þetta muni aldrei koma í stað- inn fyrir að fara á tónleika með hljómsveitunum. „Þetta gefur hins vegar fólki sem kemst ekki á tónleikana eða hefur ekki efni á því tækifæri til að sjá hljómsveit- ina,“ segir hann. Hjá L.A. Live em ekki aðeins beinar útsendingar heldur er einnig hægt að sjá fyrri tónleika sem hafa áður verið sýndir beint. Fleiri tónleikastaðir Önnur síða sem sérhæfir sig í beinum útsendingum frá tónleik- um er Liveconcerts (http: //www.liveconcerts.com). Fyrsta útsendingin á þeirra vegum fór fram á síðasta ári og síðan þá hafa þeir sent út tónleika frá mörgum þekktum tónlistarmönnum, m.a. Tinu Turner. Það er að vísu nokk- uð erfitt að hlaða síðuna inn en á móti kemur að þeir eiga gott safn af tónleikum. Auðvelt er að leita í safninu. Það er flokkað eftir tón- listartegundum þannig að maður leitar aðeins að tónleikum sem era innan þeirrar tónlistarstefnu sem maður er hrifnastur af. AudioNet hreykir sjálfa sig að því að vera í forystu í netvarpi. Það er að vissu leyti rétt því úr- valið þar er ótrúlega mikið. Þar era reyndar ekki bara tónleikar í beinni útsendingu bæði í útvarpi og sjónvarpi. Þar eru einnig iþróttaviðburðir, fréttaefhi og ým- Ókeypis geisladiskur með Internethugbúnaði og fjöldinn alluraf leikjum Fyrsti mánuðurinn ókeypis Hringdu í síma 750 5000 /f'i islandia internet W KtoKhJlsi 6 H0Re»K|.nA Simi ?50 SOCO Phil Collins og félagar í Genesis hafa haldiö tónleika á vefnum. islegt fleira. Ef leitað er að tónleikum er al- gjör nauðsyn að líta inn á Plug- gedin.com. sem starfrækt er af AudioNet. Þar er hægt að hlusta á tónleika, geisladiska og útvarps- stöðvar. Það verður hægt að velja um tónlistarmann til að horfa á eða velja hvað marga tónleika maður vill sjá. Þar hefur maður í raun svið sem maður hefur full- komna stjórn á sjálfur. Þar þarf reyndar að ná sér í Real Audio (sem reyndar er nauðsynlegt til að hlusta á beinar útsendingar), Microsoft NetShow og VDO Live Player. Svo skal minnst á Imusic. Þar er að vísu ekki stórt safn en nokk- ur stór nöfn á borð við No Doubt, Smashing Pumpkins, Prodigy og Garbage. Að vísu ekki útsending- ar frá tónleikum þeirra en eitt- hvað af gömlum tónleikmn. Einnig era yfirlit yfir næstu tón- leika, sem og textar við lög þeirra. Það er því ljóst að tónlistar- áhugamenn geta fundið ýmislegt við sitt hæfi á vefnum, sérstaklega þegar beinum útsendingum frá tónleikum frægra hljómsveita og tónlistarmanna á vefnum mun fjölga. -m/CNN Tölvuverðlaunahátíð tilnefningar Tölvuaðdáendur eiga sína hlið- stæðu við óskarsverðlaunin. 14.-19. október stendur yfir í Hollywood tölvuverðlaunahátið, þar sem veitt verða verðlaun fyrir ýmislegt sem tengist tölvmn og Neti. Það var nefnd skipuð forsvars- mönnum ýmissa margmiðlunarfyr- irtækja og öðrum tölvuáhugamönn- um sem valdi þá sem tilneöidir eru til verðlauna. Meðal þeirra sem skipuðu nefndina voru Gene Hack- man leikari og leikstjórarnir Rob Reiner og Mark Rydell. Hátíð þessi er hugmynd komin frá Carlos og Janice de Abreau sem eru þekktust fyrir að hafa skrifað bókina „Hus- band, Lover, Spy“ sem komst á met- sölulista New York Times fyrir tveimur áram. Kynningin verður að sjálfsögðu sýnd beint á Netinu á slóðinni http: //www.HollywoodAwards.com. Þar fást einnig nánari upplýsingar um hátíðma. Hér á eftir fer listi yfir nokkra af þeim sem tilnefndir eru til verð- launanna: Besta skemmtanavefsíðan: - E! Online (http://www.eonl- ine.com). Comedy Central (http: // www.ComedyCentral.com). - ESPNet SportsZone (http://esp- net.sportzone.com). - You Don’t Know Jack (http: // www.bezerk.com). Besti margmiðlunarframleið- andi: - Erik Dehkoda, Disney Online - Robert Gonzalez, Wamer Bros. Online - Lynda Weinman, Art Center Col- lege of Design - Brett Leonard og Michael Lewis, L-Squared Entertainment Besta skemmtiefni á geisladiski: - Batman & Robin - Passage to Vietnam - The Individualist - Mt. Diablo Besti tölvuleikurinn á geisladiski: - Baldies - Microsoft Close Combat - Meat Puppet Tölvuleikjaverölaun veröa veitt á þessari hátíö. - The Art of Fly-Fishing Vol. I: Ri- vers of the British Isles Besti tölvuleikur ársins: - Carmedgeddon - PGA Tour Pro - Riana Rouge - You Don’t Know Jack Volume 2 Besti leikjavefur - CNET (http://www.gamecent- er.com). SpotMedia Communications: GameSpot.com (http://www.game- spot.com). Attitude Network (http: / / www.happypuppy.com). - Activision (http://www.activisi- on.com). -HI/Reuter 26 milljón tölvur á Netinu Nýleg könnun sem birtist í New York Times sýnir að 26 milljón tölvur séu nú tengdar Netinu. Fyrir ári var þessi fjöldi 14,7 milljónir. Könnun þessi var gerð af Cristian Huitema vísindamanni við rannsóknarstoöiun Bellcores í arkitektúr. Þess má geta að samkvæmt sömu könnun voru 19,5 milljónir tölva nettengdar í júlí. Sama tala ári áður hljóðaði upp á 12,8 milljónir. Það er því ljóst að þeim fjölgar mjög hratt sem tengjast Netinu í heimin- um. -HI

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.