Dagblaðið Vísir - DV - 19.09.1997, Qupperneq 11
FÖSTUDAGUR 19. SEPTEMBER 1997
Í
• ★
nlist
25
'é
EltonWJ ohn
Heföi einhver sagt Elton John
þegar hann vann að breiðskífunni
The Big Picture fyrr á árinu að
hann ætti mest selda lagið í Bret-
landi þegar platan kæmi út er hætt
við að hann hefði hrist höfúðið
fremur vantrúaður. Þessi er eigi að
siður raunin. Smáskífan Candle in
the Wind kom út í sinni nýju mynd
um síðustu helgi og aldrei hefur
nokkur önnur verið rifin úr hönd-
um afgreiðslufólks hljómplötuversl-
ananna af jafnmikilli áfergju. Plötu-
pressur í Bretlandi og Þýskalandi
höföu ekki undan að framleiða smá-
skífur til að byrja með. Sex hundruð
þúsund eintök hurfu eins og dögg
fyrir sólu og milljón til viðbótar
gerði ekki meira en að fullnægja eft-
irspuminni. Það er ekki fyrr en nú,
viku síðar, að átján hundruð eintök-
in sem Skífan pantaði fyrir íslands-
markað eru að koma til landsins.
Það verður skammt stórra högga
á milli hjá Elton John því að The
Big Picture verður að öllu óbreyttu
gefin út um allan heim á mánudag-
inn kemur. Á plötunni era ellefú lög
og er Candle in the Wind ekki
þeirra á meöal. Hún er fyrsta platan
með nýrri tónlist sem Elton sendir
frá sér síðan Made in England kom
út árið 1995 og er númer fjörutíu og
eitthvað í röðinni á ferli poppstjöm-
unnar sem spannar núorðið meira
en þrjátíu ár.
Annasamt ár
Elton John hefur við nóg að sýsla
á árinu 1997. Útgáfa smáskífunnar
Candle in the Wind var að sjálf-
sögðu ekki inni í myndinni i upp-
hafi ársins og reyndar ekki fyrr en
í byrjun september, eftir sviplegt
fráfall Díönu prinsessu af Wales.
Fyrsta stórverkefni söngvarans á
þessu ári var að halda upp á fimm-
tíu ára afmælið.
Talsverður hluti ársins hefur far-
ið í að vinna með Sir Tim Rice að
tónlist sem byggð verður á óperunni
Aidu eftir Verdi og Disney ætlar aö
gefa út sem teiknimynd áður en
- ótrúlega vinsæll um þessar mundir
langt um liður. Elton John og Tim
Rice náðu einmitt prýðilega saman
fyrir nokkrum árum þegar þeir
sömdu saman lög og texta fyrir aðra
Disneymynd, The Lion King. Það
verkefni er aldeilis ekki úr sögunni
því að söngleikurinn Lion King með
tónlist þeirra félaganna verður
frumsýndur á Broadway í New
York í nóvember.
Á þessu ári eru þrjátíu ár liðin
síðan Elton John og Bernie Taubin
hófu að vinna saman. Taubin hefur
einmitt samið velflesta textana við
lög Eltons og lét sig ekki muna um
að breyta textanum við Candle in
the Wind á örskammri stund núna
um daginn. Platan The Big Picture
er meðal annars gefin út til að fagna
þessu gifturíka samstarfi tvímenn-
inganna.
Viðurkenningafjöld
Elton John hefur verið önnum
kafinn við að taka á móti ýmiss
konar viðurkenningum fyrir vel
unnin störf undanfarin misseri.
Bretadrottning sæmdi hann CBE-
orðunni í fyrra. Árið á undan af-
henti Svíakonungur honum Polar-
tónlistarverðlaunin sem Stikkan
Anderson, umboðsmaður ABBA,
stendur aö. Hann var fyrir nokkru
tekinn inn í frægðarsal rokksins
vestur í Bandaríkjunum. Við Brit-
verðlaunaafhendingu fékk hann
viðurkenningu fyrir gifturíkt ævi-
starf og síðast en ekki síst var hann
gerður að heiðursfélaga við konung-
legu tónlistarakademíuna fyrr á
þessu ári. Slíkur heiður hlotnast
fáum öðrum en stórjöfrum tónlistar-
innar á borð við Mendelssohn, Liszt
og Richard Strauss.
Ljóst er af öllum þessum ósköp-
um að Elton John er einn ástsælasti
dægurtónlistarmaður heimsins nú
um stundir. Plötur hans hafa selst í
um það bil hundrað og fimmtíu
milljón eintökum frá því að sú
fyrsta kom út árið 1969. Ljóst er að
ófáar milljónimar bætast við á
næstu vikum. -ÁT
Elton John: Vinsældir hans eru meö fádæmum um þessar mundir.
ii
e
±
n
lilell
xln
Greifarnir á Norðurlandi Reggae on lce í Búðardal
Hljómsveitin Greifamir verða á ferð
um Norðurland þessa helgina. I kvöld
spilar sveitin í Miðgarði í Skagafirði og
annað
kvöld
verða
þeir í
Sjall-
anum
á Ak-
Greifarnir veröa fyrir noröan.
eyri.
Eftir
þessa
helgi
taka
Greif-
amir sér síðan tveggja helga frí til að
leggja lokahönd á nýjan geisladisk sem
væntanlegur er frá þeim.
Hljómsveitin Reggae on Ice verður í
fríi í kvöld. Á morgun heldur hún hins
vegar vestur og spilar á réttarballi í
Tjarnarlundi rétt fyrir utan Búðardal.
Sóldögg á Isafirði
Hljómsveitin Sóldögg heldur vestur
um helgina og leikur í Sjallanum á ísa-
firði í kvöld og annað kvöld.
Skítamórall
Hljómsveitin Skítamórall mun spila á
Gauki á Stöng í kvöld. Annaö kvöld mun
hljómsveitin síðan halda til Selfoss og
spila á Inghóli.
SÍN á Kringlukránni
í kvöld og annað kvöld mun hljóm-
sveitin SÍn halda uppi fjörinu í Kringlu-
kránni. Hljómsveit þessa skipa Guð-
mundur Símonarson og Guðlaugur Sig-
urðsson. í leikstofunni mun Viðar Jóns-
son trúbador halda uppi stemningunni.
Svensen og
Hallfunkel a
Gullöldinni
Hinir frábæra „stuð-
hattar" Svensen og Hall-
funkel.munu skemmta á
GuUöldinni í kvöld og
annað kvöld.
Vanir menn í Naustkjallar-
anum
Það er dúettinn Vanir menn sem
spila lifandi tónlist í kvöld og annað
kvöld í Naustkjallaranum.
Ultra á Þorláks-
höfn
Hin geöþekka hljóm-
sveit Ultra mun annað
kvöld skemmta Þorláks-
hafnarbúum og nær-
sveitarmönnum á Dugg-
unni.
Stuöhattarnir Svensen og Hall-
funkel veröa á Gullöldinni.
’