Dagblaðið Vísir - DV - 22.09.1997, Side 1
21
Hlynur Stefánsson, fyrirliði IBV, tók við Islandsbikarnum í knattspyrnu í
Vestmannaeyjum í gær. Eyjamenn urðu þá meistarar í annað skipti í sögunni. Á minni
myndinni „tollera" leikmenn ÍBV þjálfara sinn, Bjarna Jóhannsson.
DV-myndir Brynjar Gauti
Guðmundur með KR?
- Willum og Njáll líklega áfram með nýju liðin í úrvalsdeildinni, Þrótt og ÍR
Þó svo að keppnistímabili knatt-
spyrnumanna sé ekki lokið eru
hafnar þreifingar fyrir næstu leik-
tíð. Samkvæmt heimildum DV hafa
KR-ingar rætt við Guðmund Torfa-
son, þjálfara Grindvíkinga, um að
hann taki við þjálfun KR-liðsins á
næsta keppnistímabili en Guð-
mundur hefur náð mjög góöum ár-
angri með Grindavikurliðið.
Þróttarar, sem leika í efstu deild
eftir 12 ára hlé, hafa rætt við Will-
um Þór Þórsson um aö hann haldi
áfram þjálfun liðsins. Willum sagði
í samtadi við DV að hann myndi
skoða málið og gefa Þrótturum
svar innan skamms.
Þá er talið öruggt að Njáll Eiðs-
son verði áfram þjálfari hinna ný-
liðanna í úrvalsdeildinni, ÍR-inga,
sem tryggðu sér sæti í efstu deild í
fyrsta skipti á laugardaginn.
-GH/VS
Góður útisigur
hjá St. Otmar
Júlíus Jónas-
son og félagar í
St. Otmar héldu
áfram sigur-
göngu sinni í
svissneska hand-
holtanum á laug-
ardag. Þeir unnu
þá Wacker Thun
á útivelli, 27-28, og eru efstir eft-
ir þrjár umferðir með sex stig.
Júlíus skoraði 3 mörk í leiknum.
„Þetta lið er mjög erfítt heim
að sækja og þvi gott að sleppa
með sigur þaðan. Við vorum
mest sex mörkum yfir en þeir
áttu góðan lokasprett. Mér sýnist
við eiga góða möguleika á að
vera við toppinn í vetur en
Winterthur og Schafihausen
verða sennilega erfiðustu mót-
herjamir," sagði Júlíus við DV.
-VS
Damon Johnson
á Skagann
DV, Akranesi:
Úrvalsdeildar-
lið ÍA í körfu-
knattleik fékk
góðan liðsstyrk
um helgina en
þá gekk félagið
frá samningi við
Bandaríkja-
manninn Dam-
on Johnson. Johnson lék með
Keflvíkingum á síðasta keppnis-
tímabili og átti einn stærsta
hlutixm í velgengni félagsins en
hann var kjörinn besti erlendi
leikmaðurinn.
„Þetta er enn einn liðurinn í
því endurreisnarstarfi sem við
stöndum nú í. Við bindum mikl-
ar vonir við framlag Johnsons
enda höfum við orðið fyrir veru-
legum skakkaföllum frá því á
síðasta tímabili. Þetta kom mjög
snöggt upp á. Johnson var áður
búinn að hafna tilboði frá okkur
og við vorum nánast búnir að
skrifa undir samning við annan
leikmann þegar við fréttum af
því að Johnson vildi koma til
okkar,“ sagði Sigurður Sverris-
son, formaður Körfúknattleiksfé-
lags ÍA, við DV í gær.
-DVÓ
TBR í fimmta
til áttunda sæti
TBR náði góðum árangri í
Evrópukeppni félagsliöa í bad-
minton sem lauk á Norður-ír-
landi um helgina. Félagið hafn-
aði í 5.-8. sæti af um 20 liðum en
TBR hefur reyndar oft áður náð
þeim árangri.
TBR tapaði, 0-7, fyrir Hvid-
ovre frá panmörku í fyrsta leik
en vann síðan St. Truiden frá
Belgíu, 4-3, og Alicante frá
Spáni, 5-2, og endaði í öðru sæti
í sínum riðli. -VS
Einar með KA?
Sigurður Lárusson verður
ekki áfram þjálfari 1. deildar liðs
KA í knattspymu. Samkvæmt
heimildum DV er mjög líklegt að
Einar Einarsson taki við starf-
inu en hann lék með KA í sum-
ar. -VS
Eiður á batavegi
Eiður Smári Guðjohnsen,
knattspymumaðurinn efnilegi,
er kominn til PSV Eindhoven á
ný eftir meðferð hjá sprautusér-
fræðingum í Múnchen. Hann er
á góðum batavegi og ætti að geta
byrjað æfingar af fúllum krafti
innan skamms. -KB/VS
Lottó:
14 2124 26 B: 36
Enski boltinn:
XX2 X22 Xll 1X22
{