Dagblaðið Vísir - DV - 26.09.1997, Side 9
FÖSTUDAGUR 26. SEPTEMBER 1997
Pierre Dörge's New Jungle Orchestra - China Jungle
Mikiðflör ★★★
Stutt er síðan Frumskóga-
hljómsveit danska gítarleikar-
ans Pierre Dörges lék á
RúRek-djasshátíðinni í
Reykjavík. Þá var troðfuUt á
Hótel Sögu og var hljómsveit-
inni ákaft fagnað. Pjörið í
músíkinni er mikið og hún er
einhvem veginn þess eðlis að
margir hafa efasemdir um að
hún skili sér vel á plötum.
Það má til sanns vegar færa
því að ekki hljóma allar plöt-
ur hljómsveitarinnar eins vel
og þessi hérna en hún er í einu orði sagt stórskemmtileg. Á það
ber þó að líta að maður kannast við mörg lögin frá tónleikunum
svo að það er dálítið eins og skemmtileg upprifjun að hlusta á þau.
Ekki er þó allt eintómt fjör og trumbusláttur og homablástur með
látum á China Jungle. Það má finna rólegri hliðar á hljómsveit-
inni í lögum eins og Feng Huang og Magic Mystery Moon þar sem
rödd hljómborðsleikarans Irene Becker er notuð mjög smekklega
með öðrum hljóðfærum, eins og hljóðfæri fremur en söngrödd
beinlínis. Sama gerist í lagi trommarans Bents Clausens, Clear as
a Bell.
Allra handa þjóðleg áhrif blandast í þessari músík, aðallega þó
frá fjarlægum heimshomum, Afríku og Asíu, og svo sérstaklega
frá Kína. Svo blandast þetta djassi á mjög sérstæðan hátt. Lagið
Lions of Shanghai er til að mynda mjög melódískt, með gamaldags
djassyfirbragði, og er tileinkað ævafornum hljóðfæraleikurum
sem í „hundrað ár“ (P.D.) hafa leikið næstum því hvert einasta
kvöld á Peace Hotel í Shanghai. - Á hljómdiskinum em 15 lög
hvert ööru skemmtilegra og alls ekki eins þreytandi til lengdar og
við mætti búast af hljómsveit með svona sérstæðan karakter.
Ingvi Þór Kormáksson
Sigur Rós: Von
lilraun ★★*
Hljómsveitin Sigur Rós er í
hópi yngri sveita landsins og
hefur starfað í fjögur ár. Von er
fyrsta plata sveitarinnar og
verður að teljast ólík öllu þvi
sem er að gerast í íslensku tón-
listarlífi. Flest lög plötunnar
liggja í sveimandi andrúmslofti
strengja og hljóðgervla og ten-
órrödd söngvarans minnir
ósjálfrátt á tíðasöngva munka á
miðöldum. Við fyrstu hlustun
hvarflaði að mér að hér væri
um að ræða nokkurs konar
þematónlist líkt og Peter Gabriel gerði við Martin Scorsese-myndina
The Last Temptation of Christ en sú hugmynd fjaraði brátt út þó að
margt sé líkt með verkunum og skírskotanir í theologíu sé að fmna
í textum við lögin Hún Jörð og Syndir Guðs. Lagið Myrkur kemur
manni nokkuð á óvart inni á miðri plötu, gjörólíkt öllu öðru á plöt-
unni, með þéttum bassaleik og einhvem veginn dettur manni U2 í
hug. Lagið á eftir heitir 18 Sekúndur Fyrir Sólarupprás og er þögn í
18 sekúndur, nokkuð góður húmor það. Lagið Von verð ég aö telja
besta lag plötunnar og nýtur söngur Jóns Þórs Birgissonar þar sín
einna best. Vert er að geta vandaðs umslags á disknum sem er að öllu
leyti verk þeirra félaga.
Von er plata með mjög sterkan heildarsvip og Sigur Rós hefur
sterk sérkenni sem koma berlega í ljós. Hins vegar á ég erfitt með að
gera upp við mig hvort sveitin eigi meira erindi við gerð kvikmynda-
tónlistar eða sem kærkomin viðbót og útvíkkun við frjótt tónlistarlíf
um þessar mundir. En það er mitt vandamál! Páll Svansson
Spaðar: Ær og kýr
Hrátt en stórgott
Hljómsveitin Spaðar er að
mestu leyti skipuð háskóla-
mönnum og kenmmim sem
ráða ekki við spilagleði sína
eða að koma henni á framfæri.
Og það er það sem prýðir
þessa plötu, gleðin skín hvar-
vetna i gegn þó að söng sé á
sumum stöðum áfátt.
Tónlistin leiðir okkur á slóð-
ir mandólínleikara og annarra
gleðigjafa Grikklands og Aust-
ur-Evrópu, enda eru höfundar
sumra laga ættaðir þaðan.
Engu síðri eru lagasmíðar þeirra Guðmundar Ingólfssonar, Guð-
mundar Guðmundssonar, Gunnars Helga Kristinssonar og Magnúsar
Haraldssonar. Lögin Lítill fugl og Ekki lengur eftir Guömund Ingólfs-
son þykja mér þó bera af. Tónlist og flutningur Spaða á plötunni Ær
og kýr setur mann í brúðkaupshugleiðingar að því leytinu til að hér
er komin hljómsveitin sem spilar í brúðkaupinu. Slíka lifshamingju
• sem'Spaðar túlka er erfitt að leika eftir og greinilegt að meðlimir
skemmta sjálfum sér konunglega. Er hægt að biðja um meira?
Páll Svansson
★★★
með tónleika
Hljómsveitin Maus heldur í
kvöld tónleika í Norðurkjallara
Menntaskólans við Hamrahlíð.
Hljómsveit þessi hefur spilað þar
árlega undanfarin ár. Hljómsveit-
irnar Andhéri og 200.000 naglbítar
frá Akureyri hita upp.
Á tónleikunum mun Maus leika
lög af væntanlegri plötu sem áætl-
að er að komi út eftir um mánuð.
Hinar tvær hljómsveitirnar eru
reyndar einnig að vinna að útgáfu
á efni.
Verð á þessa tónleika er 350
krónur fyrir félaga nemendafélags
MH, 450 krónur fyrir nemendur í
framhaldsskólum og 500 krónur
fyrir aðra.
Þess má til gamans geta að þess-
ir tónleikar eru þeir 100. sem
Maus heldur á ferli sínum. Búast
má við að eitthvað skemmtilegt
verði gert í tilefni þessara tíma-
móta.
Mezzoforte
- ný heimildarmynd
Stutt tónleikaferð hljómsveitar-
innar Mezzoforte til Noregs í ágúst
tókst mjög vel og fékk hún mjög
góða dóma í norskum blöðum, að
sögn Eiríks Ingólfssonar, umboðs-
manns hljómsveitarinnar. Eftir
þessa tónleikaferð hafa þeir Mezzof-
orte-félagar tekið sér frí ffá tónleik-
um af persónulegum ástæðum. Frið-
rik Karlsson gifti sig þann 16. ágúst
og eiginkona Eyþórs á von á sínu
fjórða bami í september.
Hins vegar hefur hljómsveitin
verið að vinna að nýju efni. Uppi
eru áætlanir um aö plata með bestu
lögum Mezzoforte komi út fyrir jól
eða í byrjun næsta árs. Eitthvert
nýtt efni verður líklega á plötunni,
t.d. endurunnar útgáfur af lögunum
„Monkey Fields“ eða „Make it Fun-
ky“. Einnig er Stöð 2 að vinna að
heimildarmynd um Mezzoforte sem
mun gera öllum ferli hljómsveitar-
innar skil. Þar verða syrpur af tón-
leikum hljómsveitarinnar og viðtöl.
Áætlað er að sýna þessa heimildar-
Ný plata frá
Unun og
myndband
í vinnslu
Hljómsveitin Unun hefur vakið
mikla athygli bæði hér á landi og
erlendis fyrir frábæra framkomu
og góða tónlist og hún er að gera
það gott í Bretlandi þessa dagana.
„Við gáfum út þessa plötu, You do
not Exist, opinberlega þann 1.
september. Lagið komst á lista í
breska útvarpinu en svo dó Díana
prinsessa af Wales og þá var lag-
inu kippt út. Við forum í mynd-
bandagerð á mánudaginn og tök-
um lagið I see Red. Það er unnið í
OZ. Leikstjóri er Sjón og framleið-
andi er Úlfur. Við fórum líklega til
Englands í nóvember að spila en
það er samt ekki staðfest," sagði
Þór Eldon, einn Ununarmanna, i
samtali við DV. -DVÓ
mynd fyrir lok þessa
árs og verður mynd-
in einnig sýnd á al-
þjóðlegum vettvangi.
Árlegir tónleikar
hljómsveitarinnar
verða líklega í
Reykjavík í lok nóv-
ember eða í byrjun
desember. Hljóm-
sveitin mun líklega
halda i tónleikaferð
þegar safnplatan er
komin út.
-DVÓ
Billy Joel:
Hættur að
I
Billy Joel, sem búinn er að
rokka nánast stanslaust i hátt i
þrjátiu ár, er ekki eins hrifmn af
rokkinu og hann var. Joel lýsti
þessu yfir í opinskáu viðtali í
nýjasta hefti tímaritsins Rolling
Stone. „Ég byrjaöi aö læra sigiida
tónlist þegar ég var fjögiu-ra ára.
þegar ég varð síöan 13 ára veiddi
rokkið mig síðan í net sitt. Ég hef
átt í ástríöufullu sambandi við
rokkið. En nú er ég oröinn 48 ára
og það er ansi gamalt," segir Joel í
viötalinu.
Það nýjasta sem frá honum hef-
ur komið er Greatest Hits III sem
er safndiskur með bestu Jögum
seinustu platna Joels. Hann til-
kynnti nýlega að hann væri hætt-
ur að skrifa popptónlist, aö
minnsta kosti í bili, og einbeita sér
að klassískum útsetningum. „Ég
vii ekki vera rokkstjarna. Ég vil
vera listamaður,“ sagði Joel.
Joel, sem er frægur fyrir mörg
lög á borð viö Tell Her About lt,
Uptown Girl, My Life og Just the
Way You Are svo einhver séu
nefnd, segir að hann sé ekki sá
eini á þessum aldri sem sé oröinn
þreyttur á þessari sömu gömlu for-
múlu sem popptónlistin sé orðin.
„Þetta er gegnumgangandi í öllu
poppi. Fólki líkar ekki það sem
það heyrir og kaupir það því
ekki.“ -HI