Dagblaðið Vísir - DV - 30.09.1997, Side 2

Dagblaðið Vísir - DV - 30.09.1997, Side 2
2 ÞRIÐJUDAGUR 30. SEPTEMBER 1997 Fréttír Aðalmeðferð „Hollendingsmálsins" i Héraðsdómi Reykjavíkur: Höfuðpaurinn játaði - konurnar neita og gangrýna harölega einangrunarvist á Litla-Hrauni Höfuðpaurinn í „Hollendingsmálinu", Albart Jan van Houten, sést hér í fylgd fangavarða á leið úr Héraðsdómi Reykjavíkur í gær. Hollendingurinn viðurkenndi þá sakargiftir við aðalmeðferð málsins fyrir dómi. DV-mynd E.Ól Tveir sakbomingar i Hollendings- málinu svokallaða viðurkenndu sak- argiftir við skýrslutökur í Héraðs- dómi Reykjavíkur í gærmorgun. Konurnar tvær, sem ákærðar eru, neituðu hins vegar sakargiftum fyrir dómi. Fimmti sakborningur verður leiddur fyrir dóminn á miðvikudag. Sakbomingarnir fimm eru ákærð- ir fyrir innflutning, kaup og sölu á miklu af fíkniefnum sem komu til landsins með tveimur sendingum á síðasta ári. Þrír íslendingar eru ákærðir, þau Rúnar K. Óskarsson, 56 ára, Ásgeir E. Þóröarson, 47 ára, og Lára D. Sigurðardóttir, 36 ára, og hollenska parið Albart Jan van Ho- uten, 56 ára, og Carla Wolff, 51 árs. Albart planlagði Albart er gefið að sök að hafa lagt á ráðin og skipulagt innflutning fikniefna hingaö til lands í félagi við nafngreint fólk í Hollandi og hér á landi. Sigurður Gísli Gíslason sak- sóknari spurði Albart hvenær skipu- lagningin hefði hafist. „f ágúst 1996, en áður var reynt að finna fólk til að fara með efnin til ís- lands. Ég hafði heyrt að það væri áhugi á íslandi að taka á móti fikni- efnum. Ég skipulagði þetta ekki einn. Kunningi minn í Hollandi átti efnin. Ég átti síðan að fá borgað þeg- ar ég kæmi aftur til Hollands. Ég átti að fá prósentur af sölunni," svaraði Albart. Þegar Sigurður Gísli Gíslason sak- sóknari spurði hversu mikið hann hefði átt að fá í sinn hlut svaraði Al- bart: „Það var talað um 10 þúsund gyllini (um 360 þúsund ísl. krónur) fyrir hverja ferð.“ Fíkniefni í Norrænu Albart sagðist hafa ekið austur til Seyðisfjarðar ásamt meðákærðu Láru í því skyni að taka á móti Citroén-bifreið sem kom með Nor- rænu í september 1996. í bifreiðinni var falið mikið af flkniefnum, 15 kíló af hassi, 3 kíló af amfetamíni og 500-600 e-töflur. Albart kvaðst hafa tekið á móti bílnum með efnunum og ekið honum til Reykjavíkur. Hann neitaði þó að um hefði verið að ræða 3 kíló af amfetamíni eins og ákæran hljóðar upp á, taldi að aðeins hefði verið um eitt og hálft kíló af efninu að ræða. Albart viðurkenndi að hafa farið með bílinn og fikniefnin að Birki- teigi 24 í Keflavík 4. september. Þar hefði hann selt meðákærða, Ásgeiri, 2 kíló af hassinu fyrir a.m.k. 640 þús- und krónur. Albart sagðist hafa sama dag flutt efnin að öðru leyti til Reykjavikur og þar selt Ásgeiri 1 kíló af amfetamininu 5. og 6. septem- ber fyrir 1,2 milljónir króna. Hann viðurkenndi aö hafa síðar í þeim mánuði afhent meðákærðu, Rúnari og Láru, það sem þá var eftir af efn- unum til söludreifingar og geymslu. Desemberferöin Albart viðurkenndi enn fremur að hafa í fyrri hluta desember á síðasta ári skipulagt innflutning á tæpum 10 kílóum af hassi til íslands. Hann sagðist hafa aflað efnisins í Hollandi og lagt fram fé til að standa straum af ferðakostnaði. 11. desember kom hann til íslands í félagi við meðá- kærðu, Cörlu Wolff. Tollverðir á Keflavíkurflugvelli fundu tæp 10 kíló af hassi í farangri Cörlu við komuna til landsins. Albart sagði aö Carla hefði ekki vitað af fíkniefnunum. Hann sagði að taska með efnunum í hefði óvart lent á hennar nafni á flugvellinum í Lúxemborg. Albart sagðist hafa móttekið samtals um 3 milljónir króna fyrir fikniefnin í báðum ferðunum. Hann sagði að Rúnar hefði verið búinn að borga 800-900 þúsund krónur fyrirfram, eða einn þriðja af kaupverði alls efn- isins. Samstarf viö lögregluna Eftir að Albart var handtekinn 11. desember bauðst hann til samvinnu við lögregluna. Daginn eftir fór hann með pakka til Rúnars á hótel við Barónsstíg i Reykjavík. í pakkanum áttu að vera 6 kíló af hassi sem Rún- ar ætlaði að kaupa. í pakkanum var hins vegar gerviefni sem lögregla hafði sett í. stað hassefnisins. Refsiramminn fyrir brot þau sem Al- bart er ákærður fyrir er um 10 ára fangelsi. Hins vegar má búast við að Nýtt útspil í pólitíkinni í Hafnarfirði: Samstaða verður til Samstaða, sem er ætlað að vinna að framboði fyrir bæjar- stjórnarkosningarnar næsta vor, verður stofnuð í Hafnarfirði á næstu dögum. Undirbúningur er langt á veg kominn og eru þeir sem mest hafa unniö að stofnun Samstöðu sannfærðir um að boðið verði fram í kosn- ingunum næsta vor. Það eru félagar í Alþýðu- flokki, Alþýðubandalagi og fleiri sem vinna að undirbúningi fyrir Samstöðu. Viðmælandi DV segir að ástandið í stjórnmálunum í Hafnarfirði sé með þeim hætti að nauðsyn sé að jafnaöar- og fé- lagshyggjufólk finni sér sameig- inlegan vettvang þegar ljóst er orðið að ekki verður af sameig- inlegu framboði Alþýðubanda- lags og Alþýðuflokks. Ekkert hefur gengið i þeim viðræðum þar sem Alþýðubandalagsmenn geta ekki hugsað sér að ræða af alvöru við krata meðan þeir eiga aðild aö meirihlutasam- starfi sem Alþýðubandalagið er alfarið á móti. Með stofnun Samstöðu er stefnt að því að brúa þá gjá sem greinilega er á milli þeirra afla sem marga dreymdi um að ættu góða samvinnu og myndu bjóða fram saman næsta vor. Viðmælandi DV segir mikinn hug vera í fólki þrátt fyrir aö meirihluti bæjarfulltrúa Al- þýðuflokks hafi ekki viljað slita núverandi meirihlutasamstarfi. Þegar spurt var hvort menn væru bjartsýnir á að þeim tæk- ist að mynda samstöðu um væntanlega Samstöðu og að tæk- ist að bjóða fram, var svarið: „Það verður gert.“ -sme Vytautas Landsbergis, forseti litháíska þingsins, kom í fjögurra daga opin- bera heimsókn hingaö til lands í gær ásamt föruneyti. Ólafur G. Einarsson, forseti Alþingis, tók á móti Landsbergis í Leifsstöö og fór vel á meö þeim. í gærkvöldi bauö Davíö Oddsson forsætisráðherra Landsbergis til einka- kvöldveröar í sumarbústaö forsætisráöherra. I dag tekur forseti íslands á móti honum á Bessastööum og einnig mun hann skoöa Þjóðminjasafn ís- lands. DV-mynd Ægir Már þar sem hann var samvinnuþýður mildi það dóminn en spumingin er hversu mikið. Ásgeir E. Þórðarson viðurkenndi allar sakargiftir fyrir dómnum, þ.e. að hafa keypt 2 kíló af hassi af Al- bart og síðar 1 kíló af amfetamíni af sama manni. Hann sagðist hafa selt verulegan hluta efnisins tveimur nafngreindum mönnum á 2500 til 3300 krónur hvert gramm. Konurnar neita Carla Wolff neitaði alfarið að hafa vitað um fikniefnin. Hún kvaðst hafa verið fylgdarkóna Albarts og aðeins langað til að ferðast með honum. Lára kvaðst ekki hafa vitað að hún væri að flytja fíkniefni með Albart en viðurkenndi að hafa haft efnin í vörslu sinni í neyð. Hún neitaði að hafa selt efhin eða afhent þau til söludreifmgar. Albart og báðar kon- umar drógu allar fyrri yfirlýsingar sinar úr lögregluskýrslum til baka á þeim forsendum að þau hefðu verið þungt haldin í 3ja mánaða einangr- unarvist á Litla-Hrauni. Gagnrýndu þau emangrunarvistina harðlega fyrir dómnum. Rúnar K. Óskarsson verður leidd- ur fyrir dóminn á miðvikudag. Hann er ákærður fyrir að hafa móttekið og keypt mikið af fikniefnunum sem um ræöir. Þá eiga mörg vitni eftir að gefa skýrslu fyrir dómnum vegna málsins. Stuttar fréttir Þrír hætta Þrír af sjö borgarfulltrúum Sjálf- stæðisflokks gefa ekki kost á sér í prófkjör flokksins. Sextán taka þátt í prófkjörinu, tíu karlar og sex konur. Hert lög fyrir samræði Umboðsmaður bama hefúr lagt til að lágmarksrefsing fyrir að hafa samræði við böm yngri en sextán ára verði eins árs fangelsi og þá burtséð frá aldri þess sem á sam- ræði við bamið. Umboðsmaður bama vill einnig að engu skipti hvort samræðið fari fram með vilja bamsins eða ekki. Drukknaði við Benidorm Jónas Björnsson, 39 ára Reykvík- ingur, drukknaði við strönd Benidorm á Spáni á sunnudag. Morgunblaðið greindi ffá. Heiðursprófessor í Kína Ingvar Birgir Friðleifsson, for- stöðumaður Jarðhitaskólans, hefur verið kjörinn heiðursprófessor við Jarðfræðistofnun akademiu Kína. Kratar fordæma Finn Framkvæmdastjórn ungra jafn- aðarmanna fordæmir skipan Finns Ingólfssonar viðskiptaráðherra vegna skipana hans i bankaráð rík- isbankanna. Þeir segja suma banka- ráðsmannanna vera vanhæfa sök- um hagsmunatengsla og að skipun- in sýni hvemig stjómarflokkamir vilji ríghalda völdum í bönkunum. Verður ekki ákærður Hallvarður Einvarðsson ríkissak- sóknari hefur ákveðið að ákæra ekki þýska skipstjórann á Vikar- tindi. Héraðsdómur Reykjavikur endurgreiðir því þær ábyrgðir sem útgerðin hafði lagt ffarn vegna strands Vikartinds. Margir í sund í Kópavogi Um eitt þúsund manns sýndu áhuga á að kaup árskort að Sund- laug Kópavogs á fyrsta degi sölunn- ar. Með kortinu fýlgir aðgangur að likamsrækt 1.200 stelpur Um 1.200 stelpur mættu í Loft- kastalann i gær til að freista þess að fá hlutverk í Bugsy Malone sem sett verður upp innan skamms. -sme

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.