Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 30.09.1997, Qupperneq 3

Dagblaðið Vísir - DV - 30.09.1997, Qupperneq 3
ÞRIÐJUDAGUR 30. SEPTEMBER 1997 3 Fréttir Rafveita Akureyrar 75 ára: . " DV, Akranesi: Þegar listi yfir söluhæstu plötur í Englandi var birtur í gærmorg- un kom í ljós að Homogenic, plata Bjarkar, er í fjórða sæti aðeins viku eftir að hún kom út sem var þann 22. september. I efsta sæti eru Oasis með Be Here now. í öðru sæti var Oce Colour Scene með Marchin Alrea- dy og í þriðja sæti Finley Qyaye með Maverick a Strike. Síðan kemur Björk í því fjórða með Homogenic. Þetta er glæsilegur árangur hjá Björk og sýnir og sannar að þeir dómar sem hún hefur fengið fyrir plötuna hafa skOað sér inn á topp- lista í Bretlandi. DVÓ Akureyri: Mengunar- valdar bættir DV, Akureyri: Bæjarráð Akureyrar hefur rætt um mengun í bænum og var sérstaklega rætt um þrjú fyrir- tæki, Krossanesverksmiðjuna, malbikunarstöðina á Glerárdal sem er í eigu Akureyrarbæjar og kjötreykingu Kjarnafæðis við Fjölnisgötu. Eins og skýrt hefur verið frá í DV stendur nú yfir uppsetning nýrra tækja í Krossanesverk- smiðjunni sem eiga að fækka verulega þeim dögum sem Akur- eyringar finna ólykt frá verk- smiðjunni og lyktin verður mun minni þá daga sem hún finnst á annað borð. Á fundi bæjarráðs Akureyrar kom fram að samþykkt hefur ver- ið að setja upp rykhreinsibúnað i malbikunarstöðinni áður en starf- semi hennar hefst næsta vor. Þá kom einnig fram að eigendur Kjarnafæðis hafa frest til 15. nóv- ember til að vinna að úrbótum.-gk Hægl að lækka rafmagnsverð um 15% á jafnmörgum árum Homo- genic í 4. sæti DV, Aknreyri: „Staða Rafveitunnar er nokkuð góð. Okkur hefur tekist að halda mjög lágu raforkuverði en þó rek- ið fyrirtækið með mátulegum hagnaði, framkvæmdir hafa verið miklar, mikil endurbygging á dreifikerfi og miklar endurbætur til að tryggja öruggari rekstur og meira afhendingaröryggi á raf- orku i bænum,“ segir Svanbjörn Sigurðsson, rafveitustjóri Rafveitu Akureyrar, sem á 75 ára afmæli í dag. Svanbjörn segir að síðustu 10 ár hafi verið mikið framkvæmda- timabil hjá Rafveitu Akureyrar. Dreifikerfið hafi verið endumýjað og styrkt gífurlega. Háspennu- dreifikerfið hafi verið styrkt og hringtengt til að auka flutnings- getu og auka afhendingaröryggi. Afl aðveitustöðvar 2 hafi verið tvö- faldað og nýr 25 MVA spennir keyptur fyrir aðveitustöð 1 auk þess sem ákveðið hafi verið að kaupa annan jafnstóran spenni svo eitthvað sé nefnt af fjárfesting- um og framkvæmdum síðustu ára. „Raforkukerfi Rafveitunnar hef- ur verið endurbyggt og bætt veru- lega á undanfórnum árum og við þykjumst sjá lygnari sjó framund- an hvað varðar rekstur og nauð- synlegar fjárfcstingar. Við höfum gert langtímaáætlun sem byggð er á framkvæmdum undanfarinna ára, nánar til tekið rekstrarlíkan fyrir 21 árs tímabil sem nær yfir árin 1990-2010,“ segir Svanbjörn. Hann segir að útkoman úr því rekstrarlíkani hafi sýnt að hægt hafi verið að lækka rafmagnsverð um 15% á 15 árum og þegar hafi stór hluti þeirrar lækkunar átt sér stað. „Raforkuverð á Akureyri á undanförnum áratugum hefur ávallt verið með því lægsta í land- inu og oft á tíðum það lægsta. Ég vona að svo megi verða á komandi árum,“ segir Svanbjörn. Rafveita Akureyrar er með opið hús fyrir bæjarbúa í dag til klukkan 19 að Þórustíg 4. -gk lcgacv Subaru Legacy 4WD sjálfskiptur með sidrifi og sérstakri spólvörn kr. 2.366.000.- Ingvar Helgason hf. Sœvarhöfda 2 Simi 525 8000

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.