Dagblaðið Vísir - DV - 30.09.1997, Side 4
4
ÞRIÐJUDAGUR 30. SEPTEMBER 1997
Fréttir
Sjávarútvegsháskólinn i Tromsö:
Aðsókn íslendinga hrunið
- segir Magnús Þór Hafsteinsson kennari
DV, Tromsö
„Þaö verður að segjast eins og er
að aðsókn íslendinga að skólanum
hefur hrunið á undanfórnum
árum,“ segir Magnús Þór Hafsteins-
son, kennari í veiðarfæratækni við
Sjávarútvegsháskólann í Trömsö,
vegna þeirrar fækkunar sem orðið
hefur á íslenskum nemum við skól-
ann.
Magnús Þór segir að þetta skjóti
skökku við og sérstaklega í ljósi
þess að metaðsókn sé að skólanum
meðal Norðmanna. Hann segist hafa
ákveðnar skýringar á ástæðum þess
að íslendingar sækist ekki lengur
eftir skólavist.
„Hluti ástæðunnar er sá að há-
skólanám í sjávarútvegsfræðum
býðst nú á íslandi. Hér er víðtækara
nám og miklu rótgrónari skóli en
boðið er upp á heima á íslandi
þannig að ég tel mjög varhugavert
að íslendingar stundi þetta ein-
göngu á íslandi. Islenskur sjávarút-
vegur er að verða alþjóðlegur og því
mikilsvert að fá til starfa fólk sem
hefur víðtæka menntun og
reynslu," segir Magnús og bætir við
að einnig hafi kreppuhljóð í íslensk-
um sjávarútvegi latt ungt fólk til
mennta í greininni.
Magnús segir að nú stundi aðeins
7 íslendingar nám við skólann og
engin formleg umsókn nýnema hafi
borist frá íslandi í haust. Hann seg-
ir að um 30 íslendingar hafi útskrif-
ast frá skólanum frá upphafi. Hann
segir að um 10 prósent allra sjávar-
útvegsfræðinga frá skólanum séu ís-
lendingar sem sýni þá miklu aösókn
sem verið hafi frá íslandi.
„Mörgum þessara íslendinga hef-
ur gengið vel úti i atvinnulífinu sem
hlýtur að teljast vera mælikvarði á
Magnús Þór Hafsteinsson, kennari við Sjávarutvegsháskolann í Tromsö.
gott nám. Mjög margir íslendingar
hafa byrjað nám en ekki tekið form-
legt lokapróf og þeir hafa einnig
gert það gott. Það hefur raunar ver-
ið vandi skólans að nemendur hafa
verið það eftirsóttir í atvinnulífmu
að þeir hafa verið hrifsaðir frá námi
með safaríkum tilboðum," segir
hann.
Magnús segir skólayfirvöld hafa
miklar áhyggjur af því hve mikið
hefur dregið úr aðsókn íslendinga
og þau hafi reynt að sporna gegn
því.
„íslendingar hafa almennt sýnt
mjög góðan námsárangur og hafa
sett skemmtilegan svip og ferskan
blæ á skólann. Það hefur verið
reynt að auglýsa eftir nýnemum að
heiman en slíkt hefur því miður
engan árangur horið,“ segir Magn-
ús. -rt
Lánasjóðurinn vinnur
gegn námsmönnum
- segja nemendur í Trömsö
DV; Tromsö:
„Lánasjóðurinn viður-
kennir að þetta nám taki 5 ár.
Það tekur nemendur hálft
annað ár að ljúka sínu loka-
verkefhi en til þess er ekki
tekið tillit. Það þýðir að loka-
sprettinn verða nemendur að
fjármagna sjálflr og það er
mörgum mjög erfitt. Það er
jafnframt ljóst að til þess að
ná í nauðsynlega sérþekk-
ingu í sinu fagi þurfa menn
að ljúka sérverkefninu," seg-
ir Kjartan Ólafsson, nemandi
við Sjávarútvegsháskólann, í
samtali við DV. Hann og aðr-
ir þeir íslensku nemendur
við skólann tóku í sama
streng og þeir sögðu Lána-
sjóðinn beinlinis vinna gegn
Kjartan Ólafsson, nemandi viö Sjávarútvegshá-
skólann. DV-mynd Reynir Traustason
því að mönnum væri kleift að
stunda nám við skólann. „Sú
stefna sem er uppi hjá Lánasjóði
íslenskra námsmanna, aö refsa
mönnum sem vinna með því að
lækka lán til þeirra, verður til þess
að mjög erfitt er fyrir íslenska
námsmenn 1 Noregi að framíleyta
sér. Ef það er rétt skilið að mark-
mið manna sé að nemendur geti
framfleytt sér þá er ljóst að þeir ná
því alls ekki fram með núwerandi
reglum,“ segir Kjartan.
Kjartan segir möguleika til þess
að stunda sambærilegt nám á Is-
landi vera enga. Háskólinn á Ak-
ureyri og í Reykjavík væru að
vísu með sömu grunnkennslu en
aðstaða nemenda til að sérhæfa
sig í einstökum greinum væri
ekki til staðar eins og hún gerist í
Tromsö. -rt
Elvar Hallfreðsson, Guömundur Agnarsson og Róbert Ásgeirsson eru allir
nemendur viö Sjávarútvegsháskólann í Tromsö. Þeir segja sambærilegt
nám ekki bjóöast á íslandi. Hér eru þeir ásamt Magnúsi Þór Hafsteinssyni
kennara. DV-myndir Reynir Traustason
Dagfari
Bandaríkjamaður í löggæslunámi
Islenska lögreglan hefur fengið
til sín bandarískan lögreglumann í
heimsókn. Sá heitir Gary Stein-
berg og er frá Flórída. Sjálfsagt hin
vænsti maður. Eftir þvi sem fréttir
herma mun þessi lögreglumaður
fenginn hingað til að kynna starfs-
bræðrum sínum hérlendum hvem-
ig meðhöndla skuli afbrotamenn og
þá einkum unglinga. Hann hefur
haldið námskeið fyrir löggumar
hér heima um það hvemig lesa
megi í veggjakrot, en kenning hans
er sú að veggjakrotið sé notað sem
skilaboð á milli þeirra hópa sem
kalla sig gengi og eru hinir stríð-
andi aðilar undirheimanna.
Er ekki að efa að lögreglulið
Reykjavíkur hafi margt lært af
þessum upplýsingum bandaríska
sérfræðingsins og muni hér eftir
afla sér frekari menntunar og
þekkingar á táknmáli veggjakrots í
undirgöngum og vegamótum hinna
stríðandi fylkinga. En svo er hin
hliðin á málinu.
Herra Steinberg hefur öðlast
mikla reynslu af dvöl sinni hér á
landi. Steinberg kemur frá Flórída
þar sem morð og aðrir venjulegir
og hverdagslegir glæpir eru dag-
legt brauð.
En bandariski lögregluvarðstjór-
inn er allsendis óviðbúinn þegar
kemur að því séríslenska fyrirbæri
að kljást við ölvaða unglinga. Og
hann rekur upp stór augu þegar
hann sér mannhafið í miðborg
Reykjavíkur að næturlagi um helg-
ar. Slíkar uppákomur eru fram-
andi fyrir bandariska lögreglu-
menn og Steinberg segir að hann
mundi aldrei leyfa slíkan mann-
söfnuð á einum og sama staönum.
Þeir mundu loka svæðinu í Banda-
rikjunum, dreifa fólkinu og koma í
veg fyrir að unglingar og fullorðið
ölvað fólk þvældist um miðbæinn
með sama hætti og hér tíðkast.
DV greinir frá því í gær að blað-
ið hafi fengið að slást í fór með
Steinberg og íslenskum lögreglu-
mönnum á eftirlitsferð þeirra um
miðbæinn aðfaranótt laugardags-
ins síðasta. Það var upplifun fyrir
Steinberg og kallar hann þó ekki
allt ömmu sina. Það sem Steinberg
áttar sig ekki á er að lögreglan í
Reykjavík ræður fullkomlega við
þetta ástand, vegna þess að í stað-
inn fyrir að vandamálin dreifist
um alla borg, eins og Steinberg
mælir með, safnar íslenska kerfið
öllum vandamálunum fyrir á einn
stað, sem auðveldar mjög alla lög-
gæslu fyrir vikið. Það er helst að
löggan þurfi að skreppa upp í
kirkjugarð stöku sinnum til að
stugga við ástarpörum sem eru að
gera það í rigningunni og þannig
tókst íslensku lögreglumönnunum
að finna að minnsta kosti eitt par í
gamla kirkjugarðinum til að sýna
herra Steinberg íslenskan glæp í
verki. Ástarparið hætti snarlega i
samförunum þegar lögreglusveitin
og blaðamaður og ljósmyndari birt-
ust á staðnum til að abbast upp á
þau. Enn fremur kom þessi sama
lögreglusveit í fylgd með ljósmynd-
ara að ungum manni sem pissaði
utan í þinghúsið. Þetta voru
stærstu glæpirnir þessa nóttina og
ekki er að efa að Steinberg hefur i
hrifist mjög af röggsemi kollega
sinna hér uppi á íslandi.
Þeir stöðvuðu ástarleikinn í
miðjum klíðum og stöðvuðu unga
manninn í miðri bunu, þar sem
hann stóð og framdi glæpinn utan
í þinghúsinu. Og svo heimsóttu
þeir athvarfið í ÍR-húsinu þar sem
Bandaríkjamaðurinn fékk að sjá
hvernig íslenskir unglingar líta út
þegar þeir eru fullir. Segið svo að i
það sé ekki gagn að svona heim-
sóknum!
Dagfari I