Dagblaðið Vísir - DV - 30.09.1997, Síða 5
ÞRIÐJUDAGUR 30. SEPTEMBER 1997
5
DV
Fréttir
Miöborgin hættuleg
í Bandaríkjunum myndum við rýma svæðið að næturlagi, segir lögreglumaður frá Flórída
Alvarlegar líkamsárásir
í miðborginni
1997
September
- Árásarmaður stakk tvær stúlkur með hnífi
í Hafnarstræti. Önnur slasaöist lífshættulega
September
- Ráöist á mann í Lækjargötu og honum veittir
alvarlegir áverkar.
Apríl
- Tveir piltar réðust á mann I Austurstræti. Annar
þeirra kastaði múrsteini í höfuð fórnarlambsins
sem hlaut mjög alvarlega höfuðáverka.
1996
September
- Ráðist á ungan mann á Ingólfstorgi.
Hann slasaðist alvarlega.
ÁgÚSt
- Nokkrir piltar réðust hrottalega á unga stúlku í
Hafnarstræti. Stúlkan slapp betur en á horföist
meö minni háttar áverka.
- á undanförnum 13 mánuðum -
rnsa
Miðborg Reykjavíkur er hættulegur
staður að næturlagi. Þar verða margar
hættulegar líkamsárásir, sérstaklega
um helgar þegar hundruð og jafhvel
þúsundir ölvaðra manna flykkjast um
götur miðborgarinnar.
Nýjasta alvarlega líkamsárásin af
mörgum í miðborginni var fyrir rúmri
viku. Maður vopnaður hnífl stakk tvær
stúlkur sem voru þar á gangi. Önnur
þeirra fékk hnífstungu í hjartað og
særðist lífshættulega. Rúmri viku áður
var ráðist á mann í Lækjargötu og slas-
aðist hann alvarlega. Fyrr á þessu ári
réðust tveir piltar á mann í Austur-
stræti og kastaði annar þeirra múr-
steini í höfúð mannsins. Fómarlambið
hlaut mjög alvarlega höfuðáverka. Hér
eru nefndar nokkrar alvarlegustu árás-
imar á þessu ári en fjöldinn allur af
minni háttar líkamsárásum og pústr-
um verður á þessum stað nánast um
hvetja einustu helgi.
Það er skrítið til þess að hugsa að á
sama tíma og þetta hættuástand er í
hjarta Reykjavíkur er hægt að ganga af-
slappaður um flestar miðborgir í Evrópu og
Bandaríkjunum án þess að eiga á hættu að verða
fyrir árásum og líkamstjóni. í kringum þinghús
og aðrar virtar byggingar og staði í erlendum
stórborgum er ekki fjöldinn allur af ölvuðu fólki
á ferli að næturlagi eins og í Reykjavík um helg-
ar. Þar er ekki boðið upp á þetta hættulega
ástand.
Myndum rýma svæöiö
Bandaríski rannsóknarlögreglumaðurinn Gary
Steinberg frá Flórída, var á eftirlitsferð um mið-
borgina aðfaranótt laugardags. Honum var
greinilega mjög bmgðið að sjá bæði ölvaða ung-
linga og fúilorðna í hundraðatali í miðborginni.
„Við sæjum ekki þessa stöðu í Bandaríkjunum.
Þar myndum við rýma svæðið. Við gæfúm aldrei
svona mörgu ölvuðu fólki færi á að safhast sam-
an á götunni. Þetta skapar
hættuástand. Unglingar
jafnt sem fullorðnir ættu á
hættu að vera kærðir,“ sagði
Gary við blaðamann DV sem
var með í for.
Boöiö upp á vandamál
Geir Jón Þórisson aðstoð-
aryflrlögregluþjónn segir að
boðið sé upp á þetta vandamál í miðborginni.
„Það em 80-90 vínveitingahús á litlu svæði
sem taka um 11 þúsund manns. Er nokkuð skrít-
ið þótt eitthvað gerist þegar allur fjöldinn kemur
út á sama tíma? Það er stóra
vandamálið. Að mínu mati
þarf að dreifa lokunartíman-
um betur. Fólki er boðið
hingað í fjörið og eðlilega
dregur þetta fólk að. Það er
hreinlega boðið upp á þetta
hættulega ástand,“ segir
Geir Jón.
Aðspurður hvort löggæslu
sé ábótavant segist Geir Jón telja að
svo sé ekki. „Áður vom lögreglumenn
á röltinu í miðborginni og innan um
fjöldann. Það bauð upp á ákveðna
hættu því það virtist ögra mörgum og
það var oft ráðist á lögregluna. Nú höf-
um við lögreglumenn í bílum hér á
svæðinu. Þeir fylgjast með álengdar og
skerast i leikinn ef eitthvað gerist.
Þetta nýja skipulag hefur gefist mun
betur. Stefnt er að því að setja upp eft-
irlitsmyndavélar i miðborginni og
tölvunefnd hefúr samþykkt það. Þær
geta séð margt sem við sjáum ekki, t.d.
upptök skrílsláta eða árása. Þessar eft-
irlitsvélar em notaðar af löggæsluyfir-
völdum viða erlendis og hafa gefið mjög
góða raun. Þá er líka í athugun að setja
óeinkennisklædda lögreglumenn í mið-
borgina til að fylgjast með og skerast í
leikinn ef með þarf. Við höfum reynt að
fjarlægja sem flesta undir lögaldri en ef
við ætluðum að dreifa öllum mannflöld-
anum með vaidi, yrði þá ekki talað um
lögregluríki?" sagði Geir Jón.
Hvar eru foreldrarnir?
Gary Steinberg var mjög hissa á hve margir
unglingar vom ölvaðir og sagðist hann aldrei
hafa séð annað eins. „Hvar em foreldrar þessara
bama? Vita þeir ekki hvað er að gerast og hvar
bömin þeirra eru stödd?" spurði bandaríski lög-
reglumaðurinn vantrúaður.
Hann hneykslaðist einnig á framferði ungs
manns sem pissaði á Alþingishúsið. Ef maður-
inn hefði verið handtekinn fengi hann 5 þúsund
króna sekt fyrir þá óvirðingu sem hann sýndi.
Gary sagði að maðurinn hefði fengið mun
þyngri refsingu í Bandaríkjunum fyrir slíka
framkomu.
Fréttaljós
Róbert Róbertsson
IRenault Laguna stw. 2000
'97, ssk., 5 d., grænn, ek. 18
þús. km. Verð 1.890 þús.
■ Hyundai Elantra GLS 1600
® '97, ssk., 4 d., grænn, ek. 13
þús. km. Verð 1.340 þús.
| Hyundai Sonata V-6 3000
'94, ssk., 4 d., brúnn, ek. 92
þús. km, airbag, ABS, cru-
ise control, cd. Verð 1.360
þús.
IRenault Mégane RT 1600
'97, ssk., 5 d., grænn, elc. 2i
þús. km. Verð 1.340 þús.
■ BMW 316i Touring '93, 5 g.,
® 5 d., grænn, ek. 94 þús. km,
ABS, álfelgur. Verð 1.590
þús.
■ Jeep Grand Cherokee
“ Laredo 4000 '94, ssk., vín-
rauður, ek. 34 þús. km. Verð
2.870 þús.
■ BMW 525ÍX Touring , '94,
s ssk., 5 d., vínrauður, ek. 53
þús. km, 4x4, ABS. Verð
2.980 þús.
| MMC Lancer GLX 1500 '90,
“ 5 g„ 5 d., brúnn, ek. 119 þús.
km. Verð 530 þús.
j| Hyundai Scoupé turbo '94,
“ 5 g., hvítur, ek. 78 þús. km.
Verð 790 þús.
B Hyundai Accent GLS 1500
L '95, 5 g„ 4 d„ grænn, ek. 14
þús. km. Verð 930 þús.
ISubaru Legacy stw 1800 '90,
ssk„ 5 d„ ljósblár, ek. 171 þús.
Verð 690 þús.
■ Toyota Carina E 2000 '93,
“ ssk„ 5 d„ hvítur, ek. 84 þús.
km. Verð 1.190 þús.
Aðrir bílar
á skrá
Toyota Hilux SR5 2400 '96, 5
g„ 4 d„ grænn, ek. 33 þús. km.
Verð 2.480 þús.
Mazda 323 GLX 1500 '87, 4 g„
4 d„ svartur, ek. 114 þús. km.
Verð 240 þús.
Renault Nevada 4x4 2000 '91,
5 g„ 5 d„ grár, ek. 69 þús. km.
Verð 850 þús.
Peugeot 205 1100 '95, 5 g„ 5
d„ rauður, ek. 53 þús. km.
Verð 640 þús.
Renault Twingo 1200 '95, 5
g„ 3 d„ bleikur, ek. 49 þús.
km. Verð 690 þús.
Lada Samara 1300 '95, 5 g„ 5
d„ rauður, ek. 22 þús. km.
Verð 390 þús.
Toyota HiAce 4x4 2400 '91, 5
g„ 5 d„ blár, ek. 165 þus. km.
Verð 990 þús.
Hyundai Sonata 2000 '93, ssk„
4 d, grænn, ek. 77 þús. km.
Verð 950 þús.
Toyota HiLux double cab,
dísil '90, 33" dekk, hús, 4 d„
hvítur, ek. 90 þús. km. Verð
1.280 þús.
Renault Mégane RN 1400 '97,
5 g„ 4 d„ rauður, ek. 24 þús.
km. Verð 1.180 þús.
Greiðslukjör
til allt að
4 ara
NOTAÐIR BÍLAR
SUÐURLANDSBRAUT12
SÍMI: 575 1200
BEINN SÍMI 575 1230