Dagblaðið Vísir - DV - 30.09.1997, Side 8

Dagblaðið Vísir - DV - 30.09.1997, Side 8
8 ÞRIÐJUDAGUR 30. SEPTEMBER 1997 Útlönd Flokksþing breska Verkamannaflokksins hófst í gær: Flokksmenn höfnuðu helsta ráðgjafa Blairs Tony Blair, forsætisráðherra Bretlands, nýtur þvílíkra vinsælda meðal landsmanna sinna að leiðtog- ar gömlu Sovétblokkarinnar hefðu ekki fúlsað við. Hann heldur líka jafn styrkri hönd um stjórnvölinn og þeir og upplausnin í breska íhaldsflokknum þýðir að stjómar- andstaða hans er jafn bitlaus og þeirra. En þegar Blair ávarpar flokks- þing Verkamannaflokksins í Brighton í dag, verður hann fyrsti leiðtogi flokksins til að gera það sem forsætisráðherra frá árinu 1978. Ein helstu skilaboð hans til þingfulltrúa verða að vera nú ekki of góðir með sig. Samkvæmt nýjustu skoðanakönn- unum nýtur Blair stuðnings 93 pró- senta þjóðarinnar. Ráðgjafar hans Tony Blair, forsætisráðherra Bret- lands, glaður og reifur í Brighton. sögðu að hann vildi nýta sér þann meðbyr sem Verkamannaflokkur- inn fékk í kosningunum 1. maí og sem hann hefur notið síðan í að leggja grunninn að öðru fimm ára valdatímabili. Þeir sögöu að Blair myndi leggja línurnar fyrir umfangsmiklar um- bætur á bresku samfélagi sem tæki heilan áratug að hrinda í fram- kvæmd. Blair mun hvetja til þess að efnahagslíf Bretlands verði nútíma- vætt svo hægt sé að nýta sköpunar- gleði bresku þjóðarinnar til fulln- ustu. Flokksþingið hófst með miklum látum í gær þegar flokkurinn setti sér það markmið að útrýma at- vinnuleysi á næstu öld. Þessar heitstrengingar Gordons Browns fjármálaráðherra féllu hins vegar í skuggann af óvæntu áfalli sem Blair varð fyrir þegar náinn samverkamaður hans náði ekki kjöri í framkvæmdastjórn flokksins. Peter Mandelson, sem gegnir ráð- herraembættis án ráðuneytis, tap- aði fyrir vinstrisinnaða þingmann- inum Ken Livingstone. Mikil fagnaðarlæti kváðu við í þingsalnum þegar tilkynnt var um að Mandelson hefði tapað. Mörgum flokksfélögum af gamla skólanum er í nöp við hann, þykir hann of sleip- úr í samskiptum sínum við fjöl- miðla. Brown sagði í ræðu sinni í gær, eins og Blair mun gera í dag, að Verkamannaflokkurinn væri stað- ráðinn í að nútímavæða efnahagslíf- ið, menntakerfið og velferðarríkið til að binda enda á fátækt. Reuter Lögreglumenn vopnaöir rifflum reyna aö stööva hundruö fórnarlamba hvirfilvinds sem gekk yfir Bangladesh á sunnudaginn. Fólkiö óö vatniö í von um aö fá hjálparmeöul en var stöövaö er þyria Hasina forsætisráöherra lenti á Char Burhanuddineyju. Aö minnsta kosti 51 lét lífið í hvirfilvindinum og þúsundir misstu heimili sín. Símamynd Reuter. Noregur: Ráðleysi í Schengenmálinu DV, Ósló: Ráðleysi ríkir við samninga- boröið hjá væntanlegum stjórnar- flokkum í Noregi vegna Scheng- ensamstarfsins við Evrópusam- bandið. Þrir flokkar ætla að mynda stjórn og eru allir á móti Schengen. Stjórnarflokkarnir væntanlegu eru í þeirri leiðu stöðu að mikill meirihluti er fyrir Schengen á nýju Stórþingi og Schengenmálið gæti fellt stjómina þegar á fyrstu lífdögum hennar. Ætlunin er að ganga frá samningum um Schengen í haust og nú vilja verð- andi stjórnarflokkar að beðið verði eftir því hvort Danir verða með. Segi Danir nei er málið leyst fyrir Norðmenn því þá geti þeir bara gert eins og Danir án þess að hafa ákveðið nokkuð sjálfir. Búist er við að ný stjóm veröi tilbúin 13. október. Núverandi stjórn Verkamannaflokksins vinnur að Schengenaðild og í gær sagði Godal utanrikisráðherra að ekki væri hægt að hætta við aðild nú. -GK k Friöarviöræður um Miöausturlönd í gang á ný: ísraelar reiðubúnir að ræða stöðvun landnáms ísraelsmenn og Palestínumenn samþykktu í gær að taka upp á ný viðræður um frið í Miðausturlönd- um. í kjölfar fundar með David Levy, utanríkisráðherra ísraels, og Mahmoud Abbas, einum helsta samningamanni Palestínumanna, tilkynnti Madeleine Albright, utan- ríkisráðherra Bandaríkjanna, að friðarnefndir deiluaðilanna myndu hittast á ný í Miðausturlöndum í næstu viku. Albright greindi einnig frá þvi að ísraelskir og palestínskir embættis- menn myndu koma til fundar í Washington eftir tvær vikur. Friðarviðræður milli ísraels- manna og Palestínumanna hafa legið niðri síðan í mars er ísraelsk yfirvöld ákváðu að hrinda í fram- kvæmd áætlun um smíði íbúða fyr- ir gyöinga í arabíska hiuta Jerúsal- em. ísraelsmenn segja það forgangs- Benjamin Netanyahu, forsætisráö- herra ísraels, vakti reiöi landnema í gær. Sfmamynd Reuter. verkefni hjá Palestínumönnum að uppræta starfsemi íslamskra öfga- samtaka eins og þeirra sem stóðu að baki sjáifsmorðsárásunum í Jer- úsalem í sumar og haust. Palest- inumenn segja þetta fyrirslátt til að geta slegið á frest samkomulagi um að láta af hendi land. Talsmaður Benjamins Netanya- hus, forsætisráðherra ísraels, sagði í gær að ísraelar væru reiðubúnir að ræða tímabundna stöðvun frekara landnáms. Þessi yfirlýsing forsætisráðherrans varð tilefni mótmæla frá ísraelskum landnem- um. Segjast þeir ætla að ræða við bandamenn sína í samsteypustjórn Netanyahus til þess að koma í veg fyrir að landnám verði stöðvað. í síðustu viku tilkynnti Netanya- hu að hann myndi láta reisa hundr- uð nýrra heimila fyrir gyðinga á Vesturbakkanum og öðrum her- teknum svæðum. Reuter Stuttar fréttir i>v Aðstoð til Indónesíu Áströlsk stjómvöld ætla aö gefa Indónesum lyf og lækninga- tæki vegna hinnar miklu meng- unar sem þar hefur verið af völd- um skógarelda. Öryggi í fyrirrúmi Lionel Jospin, forsætisráð- herra Frakklands, sagði í gær að öryggi fransks almennings ætti að vera i fyrirrúmi þeg- ar stefna landsins gagn- vart Alsír væri ákveðin. Alsírskir bók- stafstrúarmenn sem berjast gegn þarlendum stjórnvöldum hafa staðið fyrir mannskæðum sprengjutilræðum í Frakklandi. Hraðar hendur í Mir Geimfarar um borð í geim- skutlunni Atlantis og geimstöð- inni Mir hafa haft snör handtök við að flytja birgðir í geimstöð- ina og eru nú á undan áætlun. 30 fórust í eldi Þrjátiu vistmenn á stofnun fýrir vangefin böm og fullorðna í Chile létu lífið þegar eldur kom upp í húsinu í gær. Valið í kviðdóm Byrjað er að velja kviðdóm- endur fyrir réttarhöldin yfir Terry Nichols sem er ákærður fyrir sprengjutilræöið í Okla- homaborg fyrir rúmum tveimur árum. Illa útleikin lík Þrjú illa útleikin lík sem fund- ust í útjaðri Mexíkóborgar gætu tengst dauða þriggja ungmenna sem, að sögn ættingja, létust í gæslu lögreglunnar. Jeltsín skammar þingið Borís Jeltsín tók rússneska þingið, þar sem kommúnistar ráða ríkjum, á beiniö í gær fyrir að tefja framgang laga- frumvarpa ríkisstjórnar- innar og gaf til kynna að þol- inmæði hans væri senn á þrotum. Kanar og Frakkar deila Bandaríkjamenn og Frakkar em komnir í hár saman vegna stórs samnings sem franska olíu- félagið Total gerði við íran, í trássi við viðskiptabann Banda- ríkjanna. Kallað á norðanmenn Utanríkisráðherra Suður- Kóreu hefur hvatt stjórnvöld í Norður-Kóreu til að taka þátt í fjórhliða friðarviðræðum. Meira atvinnuleysi Atvinnuleysi í Frakklandi jókst 1 síðasta mánuði og er nú 12,5 prósent af mannafla. Sprengjur til Kinshasa Sprengjur, sem varpað var I bardögum í Brazzaville, höfuð- borg Kongólýðveldisins, urðu sautján að bana í Kinshasa, höf- uðborg gamla Saírs, sem er hin- um megin árinnar. Órétti beittir Mesut Yilmaz, forsætisráð- herra Tyrklands, sagði í gær að það væri bæði ósanngjamt og mistök að halda Tyrkj- um utan við Evrópusam- bandið. Yilmaz lét orð í þá vem falla á fundi meö þýskum iðn- rekendum. Ráðherrann hittir Helmut Kohl Þýskalandskanslara í dag og mun væntanlega færa þetta í tal við hann. Reuter

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.