Dagblaðið Vísir - DV - 30.09.1997, Page 9

Dagblaðið Vísir - DV - 30.09.1997, Page 9
ÞRIÐJUDAGUR 30. SEPTEMBER 1997 9 Utlönd Emma Bonino handtekin í Kabúl: Varö hrædd við vopnaða lögreglu Jacques Santer, forseti fram- kvæmdastjórnar Evrópusambands- ins, ESB, kvaðst í gær harma aö Emma Bonino, sem fer með mann- réttindamál framkvæmdastjómar- innar, skyldi vera handtekin í Kab- úl í Afganistan i gærmorgun. Áður hafði talsmaður framkvæmdastjóm- arinnar greint frá því að Bonino hefði borist afsökun frá stjóm Tale- bana í Afganistan vegna handtök- unnar. Vopnaðir lögreglumenn handtóku í gærmorgun Bonino og 18 manna fylgdarlið hennar þar sem þau vora í heimsókn á sjúkrahúsi. Var hin- um handteknu gefið að sök að hafa tekiö myndir af konum en það er bannað samkvæmt reglugerðum Talebana. Bonino tjáði fréttamönnum að hún hefði orðið hrædd þar sem lög- reglumennimir hefðu verið vopnað- ir og beint Kalashnikovrifflum að þeim. Að sögn Bonino gaf handtak- Emma Bonino heldur aftur til Afganistan t dag. Símamynd Reuter. an henni innsýn í hvað almenning- ur í Afganistan þarf að ganga í gegnum daglega. Talebanar hafa lokað skólum fyrir stúlkur og bann- að konum að starfa utan heimilis. Konur mega ekki fara út úr húsi án þess að vera með blæju. Talsmaður Bonino sagði að frétta- mönnunum, sem hefðu verið í fylgd með henni, hefði verið ókunnugt um bann við myndatökum. Þeir hefðu hætt að taka myndir um leið og þeir voru beðnir um það. Eftir að Bonino hafði verið sleppt hélt hún á fund aðstoðarutanríkis- ráðherra Afganistans, Stanakzai, sem bað hana afsökunar. Bonino kvaðst ekki hafa í hyggju að hætta fjárhagsaðstoð við Afganistan vegna handtökunnar. Hún hélt til Pakistan í gærdag en heldur aftur til norðurhluta Afganistan I dag þar sem hún mun heimsækja bæ sem er á valdi stjóm- arandstæðinga .Reuter Bill Gates, forstjóri Microsoft-hugbúnaðarfyrirtækisins og ríkasti maður Bandaríkjanna, að minnsta kosti, er loksins fluttur inn í glæsivillu sína í úthverfi Seattle í Washingtonfylki. Húsið, sem er mörg þúsund fermetrar aö stærð, var sjö ár í smíðum. Þar ætlar Gates að búa ásamt konu sinni og einu barni. í húsinu er m.a. 20 sæta kvikmyndasalur og 30 bíla bílskúr. Fjölskyldan ætlar aðallega að halda til í 20 herbergja hluta hússins. Símamynd Reuter Rannsóknin á banaslysi Díönu prinsessu: Hraðakstri og áfengi fremur um að kenna Franska lögreglan segir að svo virðist sem hraðakstur og áfengis- neysla hafi fremur valdið umferðar- slysinu sem Díana prinsessa lét líf- ið í en ljósmyndaramir sem vora að elta bílinn hennar. Rannsóknaraðilar hafa þó ekki enn útilokað að annar bíll hafi átt þátt í slysinu hinn 31. ágúst þegar Mercedes-hifreið Díönu rakst á steinsteyptan stólpa í veggöngum í París. „í þessu slysi koma við sögu tvær helstu ástæður umferðarslysa í Frakklandi, áfengi og hraði,“ sagði heimildarmaður sem þekkir vel til rannsóknarinnar en vildi ekki láta nafns síns getið. Rannsókncirdómararnir sem stjóma rannsókninni á banaslysinu fyrirskipuðu í gær að farið skyldi með klessta Mercedes-bifreiðina á slysstaðinn í gærkvöldi til að hægt væri að rannsaka hvernig slysið átti sér staö. Hervé Stéphan rannsóknardóm- £uri var í göngunum undir Alma- torgi í fimm klukkustundir, ásamt tugum embættismcmna og rann- sóknarmanna. Þar könnuðu þeir hvemig undið bílflakið kemur heim og saman við vísbendingar sem þeg- ar hefur verið safnað. Stéphcm fór af slysstaðnum um klukkan eitt eftir miðnætti að stað- artíma. Hann ræddi ekki við frétta- menn sem var haldið frá rannsókn- inni. Tugir lögregluþjóna héldu for- vitnum vegfarendum einnig í skefj- um á meðan sérfræðingar tóku ljós- myndir og gerðu alls kyns mæling- ar. Embættismenn segja að Bretum og Frökkum miöi áleiðis í rannsókn sinni á slysinu. Reuter Kinnock vill refsa fullum ökumönnum Neil Kinnock, yflrmaður sam- göngumála í framkvæmdastjóm Evrópusambandsins, ætlar aö gera enn eina tilraun til að fá samþykktar nýjar og harð- ari takmark- anir við ölv- unarakstri. Aðildarriki ESB höfnuðu tillögu fram- kvæmda- stjómarinnar árið 1988 um að hámarksáfengismagn í blóði bílstjóra mætti aðeins vera 0,5 grömm í lítra. Þá vora ríkin á því að hvert þeirra um sig ættu aö ákveða hvaða reglur þau settu um akstur undir áhrifum áfengis. Kinnock vonar hins vegar að andrúmsloftið hafl breyst nægi- lega mikið til að fá stjómvöld í löndunum til að fallast á sam- ræmdar reglur innan ESB. Þriðju hver hjón í ESB skilja Nærri þriðja hvert hjónaband í löndum Evrópusambandsins mun enda með skilnaði ef svo heldur fram sem horflr. Þetta kemur fram í skýrslu sem var birt í gær. Ellefu prósent hjónabanda í löndum Evrópu enduöu með skilnaði áriö 1970 en sú tala var komin í 30 prósent árið 1995. Þá kemur það einnig fram í skýrslu hagstofú ESB að þegnar aðildarlandanna era ekki eins duglegir við að gifta sig og áður var. Aðgerða gegn gróðurhúsa- áhrifum er þörf Náttúravemdarsamtökin World Wide Fund for Nature (WWF) hvöttu ríkisstjórnir og iðnrekendur í gær til að grípa þegar í stað til aðgerða gegn gróðurhúsaáhrifunum. Að öðr- um kosti væri stórslys yfirvof- andi. í skýrslu sem samtökin hafa sent frá sér kemur fram aö með- alhiti á yfirborði jarðar hafl stig- ið mikið að undanfómu. „Hlýjustu fimm árin frá því mælingar hófur um heim allan á miðri 19. öld hafa öll komið á þessum áratug og 1995 það hlýjasta til þessa,“ segja forráða- menn WWF. í nýrri skoðanakönnun sem gerö var í Bandaríkjunum kem- ur fram að nærri þrír af hverj- um fjórum Bandaríkjamönnum telja að hitastig hafi hækkaö eða muni fara hækkandi og flestir líta á það sem alvarlega ógn. Liani skrifar endurminningar með hjartanu Dimitra Liani, ekkja Andreas- ar Papandreous, fyrrum forsæt- isráðherra Grikklands, baðst í gær afsökunar á hæfileikaleysi sínu sem rit- höfúndar þeg- ar hún kynnti ástríðu- þrangnar end- urminningar um líf sitt með Papandreou. „Ég er eng- inn rithöfund- ur, hvað þá ævisöguritari. Þessi bók er aðeins skrifuð með hjart- anu, hún er játning sálarmnar," segir í bókinni. Endurminningabók konunnar sem Grikkir kölluðu Mimi fjall- ar um ástina, samsæriskenning- ar, hneykslismál, hamingjuna og fleira á bersöglan hátt. Reuter Ecojet Bleksprautuhylki og áfyllingar • Apple, Canon, • Epson og • Hewlet Packard prentara. • ISO-9002 aæSavottun á framleiöslu. Mjög hagstætt verð. j. nsTvniDssoN hf. Shipholti 33 105 Reykjovík Slmi 533 3535 skrifstofutækjum Ljósritunarvél SHARP Z810 • 8 eintök á mínútu • Fast frumritaborS • Stækkun - minnkun 70%-141% • 250 blaða framhlaSinn pappírsbakki • Ljósmyndastilling • Tóner sparnaðarstilling 84.900;- k Ljósritunarvélar verb frá 39.900,- Sjóðvél SHARP ER-A150 Fjórir vöruflokkar, stækkanlegt Þrjú sjálfvirk virSisaukaskatts- þrep Hreyfanlegur skjár/turn fyrir viSskiptavini Sérstaklega fyrirferðalítil sjóSvél 26.900,s-r'm/vsk 9.890,- Strimlareiknivélar verb frá 3.590,-

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.