Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 30.09.1997, Qupperneq 23

Dagblaðið Vísir - DV - 30.09.1997, Qupperneq 23
ÞRIÐJUDAGUR 30. SEPTEMBER 1997 «p 27 I>V Hveravellir: Fleiri koma - færri gista DV, Fljótum: „Það er mikill fjöldi búinn að fara hér um í sumar en gistinætur verða þó eitthvað færri en 1996 - gætu orð- ið í kringum fimm þúsund. Það virðist færast í vöxt að fólk sem fer hér um stansi 1-3 tíma. Kanni stað- inn en haldi svo áfram,“ sagði Mart- einn Heiðarsson, skálavörður Ferðafélags Islands á Hveravöllum, við DV. Marteinn, sem annast vörslu ásamt Ingibjörgu Eiríksdóttur, lét vel af sumrinu á Kili. Sagði að færri útlendingar hefðu verið á ferðinni í sumar en undanfarin ár. Einkum vantaði Þjóðverja og Frakka. Engu að síður væri þorri gestanna erlend- ir ferðamenn, ýmist í skipulögðum hópferðum eða á eigin farartækjum. „Þeim þykir hverasvæðið hér merkilegt og svo eru jöklarnir skammt frá. Andstæðm-nar i náttúr- unni blasa við og margir útlendingar reika um þetta svæði. Finnst þetta stórkostlegt umhverfl. Ég er búinn að aka erlendum ferðamönnum nán- ast um allt land. Margir hafa sagst öfunda okkur íslendinga af þessari fjölbreytilegu náttúru sem allir geta gengið um og skoðað nánast að vild. Það er mikill munur á stórborgum Evrópu og litla torfkofanum hér sunn- Ingibjörg og Marteinn við laugina á Hveravöllum, an við. Þangað fara flestir sem stansa á annað borð. Sumir rölta jafnvel að byrgi Fjalla-Eyvindar og Höllu, vestan við hverasvæðið, ekki síst þeir sem eitthvað hafa lesið og heyrt um sögu þeirra," sagði Marteinn. -ÖÞ Fréttir Ólafsfjöröur: Algjör óvissa með framboð S-listans DV Akureyri: „Það er alveg ljóst að ég mun ekki leiða framboð S-listans í kosningunum á næsta ári því ég er að flytja úr bænum á vordög- um,“ segir Jónína B. Óskarsdótt- ir, bæjarfulltrúi S-listans á Ólafs- firði. S-listinn varð til í kosningun- um 1994, fyrst og fremst í kring- um Jónínu sem áður hafði setið í bæjarstjórn fyrir H-lista vinstrimanna. Listinn fékk 118 atkvæði sem nægði til að koma Jónínu að og listinn fékk odda- aðstöðu þar sem sjálfstæðismenn og vinstrimenn fengu báðh' 3 bæjarfulltrúa kjöma. Að loknum kosningvmum gekk S-listinn til meirihlutasamstarfs við Sjálf- stæðisflokkinn. „Það liggur ekki fyrir hvort S- listi um betri bæ býður fram aft- ur, það er verið að ræða ýmsa möguleika en það liggur engin ákvörðun fyrir,“ segir Jónína B. Óskarsdóttir, en Ríkharður Sig- urðsson, sem skipaði 2. sætiö í kosningunum 1994, er fluttur frá Ólafsfirði. -gk i Varmahlíð: Tvær akreinar á Húseyjarkvísl Unniö viö uppslátt á vestari brúarstöplinum við Húseyjarkvísl. DV-mynd Örn DV, Fljótum: í byrjun ágúst hófst bygging nýrr- ar brúar yfir Húseyjarkvísl við Varmahlíð. Verkið hófst með þvi að sett var bráðabirgðabrú örskammt frá þeirri gömlu enda fer nánast öll umferð milli Reykjavíkursvæðisins og Norðurlands þarna um. Gamla brúin, sem byggð var 1959, var brotin niður og sú nýja síðan byggð á sama stað. Hún verð- ur öll úr steinsteypu, 26 metrar á lengd og 11,50 á breidd. Auk 2ja akreina verður á henni gangbraut, aðskilin með handriði. Kostnaður við brúarsmíðina er áætlaður 35 milljónir króna. Það er brúarvinnuflokkur Guð- mundar Sigurðssonar frá Hvamms- tanga sem vinnur að byggingu brú- arinnar og gengur verkið sam- kvæmt áætlun. Slegið var upp fyrir undirstöðuveggjum á þurru þannig að aðstaða var allgóð. Tíðarfar hef- ur verið mjög gott til þessa. Verklok eru áætluð um miðjan nóvember. Þá verður umferð hleypt á þetta nýja mannvirki. Guðmundur, sem verið hefur með brúarvinnuflokk í liðlega tvo ára- tugi, sagði að nú væru þeir ekki síð- ur í að breikka einbreiðar brýr. Á því væri full þörf, ekki síst á þjóð- vegi nr. 1. Á Norðurlandi væri enn nokkuð um slíkar brýr, ekki síst í Húnavatnssýslunum þar sem um- ferðarþungi væri mikUl. -ÖÞ Alþýðubandalagið á Akureyri: Sigríður segir ekkert Fjallakvik- myndahátíð í dag og á morgun stendur Skátabúðin fyrir Banff-íjallakvik- myndahátið í Háskólabíói. Sýndar eru u.þ.b. 20 bestu fjalla- og ævintýrakvikmyndir heims en þær hlutu allar verð- laun á síðustu Banff-fjallakvik- myndahátíð. Hátíðin er haldin í nóvember á hverju ári. Viðfangs- efni myndanna er fjallamennska og spennuíþróttir, eins og straumkajaksiglingar, háfjalla- og klettaklifur og margt fleira. Sýningar hefjast klukkan 21 í kvöld og annað kvöld. Skátabúðin hefur milligöngu fyrir hátíðina og er það í tilefni af 50 ára afmælisári hennar. I tengsl- um við hátíðina munu nokkur val- in fyrirtæki á sviði ferða- og úti- vistar kynna starfsemi sína í and- dyri Háskólabíós. Auk þess verða Everestfaramir með sýningu á búnaði sínum. -RR DV, Akureyri: „Ég mun tilkynna það á aðal- fundi Alþýðubandalagsins hér í bænum, sem haldinn verður á næst- unni, hvort ég gef kost á mér til framboðs í bæjarstjómarkosningun- um á næsta ári. Þangað til segi ég ekki orð um það mál,“ segir Sigríð- ur Stefánsdóttir, bæjarfulltrúi Al- þýðubandalagsins á Akureyri, sem verið hefur oddviti Alþýðubanda- lagsins í bæjarstjórn undanfarin kjörtímabil. Eins og fram hefur komið hafa fulltrúar A-flokkanna á Akureyri og fulltrúar Kvennalistans átt í við- ræðum að undanfórnu um sameig- inlegt framboð í kosningunum á næsta ári. Sigríður segir að niður- staða þeirra viðræðna verði að liggja fyrir innan tveggja vikna. „Það verður að fara að skýrast hvort halda á þessum viðræðum áfram eða ekki. Mér finnst hafa þok- ast í ýmsum málum en það em þó ákveðnir erfiðleikar einnig. Það er erfiðara þegar flokkar, sem eiga að- ild að svona viðræðum, em bæði í meiri- og minnihluta í bæjarstjóm og það er líka eðlilegt að það taki tíma að ræða hvemig fólk snýr sér í því að raða á lista og fleira þess háttar," segir Sigríður. Fullvist má telja að Gísli Bragi Hjartarson, bæjarfulltrúi Alþýðu- flokksins, gefi ekki kost á sér til framboðs, hvorki fyrir Alþýðuflokk- inn né sameiginlegt framboð, og hann hefur ekki tekið þátt í þeim viðræðum um sameiginlegt fram- boð sem fram hafa farið. -gk JEPPADEKK Amerísk gæöaframleiösla Courser Radial AWT Courser OTD Radial LT Courser Steel Radial Staðgr.verð frá kr. 205/75R 15 8.560 215/75R15 9.210 225/75R 15 9.880 235/75R15 10.015 30x9,50R 15 10.775 31x10,50R 15 11.995 32x11,50R 15 14.395 33x12,50R 15 14.850 245/75R16 13.120 265/75 R 16 13.500 33x12,50R 16,5 15.380 'CWlflUV* Smiðjuvegi 32-34 Hjólbarðar, nýir og sólaðir, send- "jtmMkf Sími 544 5000 um gegn girókröfu um land allt Hagstœð kjör Ef sama smáauglýsingin er birt undir 2 dálkum sama dag er afsláttur af annarri auglýsingunni. aW miltí him. 'lh* Smðauglýsingar 550 5000

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.