Dagblaðið Vísir - DV - 30.09.1997, Page 30

Dagblaðið Vísir - DV - 30.09.1997, Page 30
34 ÞRIÐJUDAGUR 30. SEPTEMBER 1997 Afmæli Magnús H. Magnússon Magnús Helgi Magnússon, fyrrv. félags-, heilbrigðis- og tryggingaráð- herra, Sléttuvegi 13, Reykjavík, er sjötíu og fimm ára 1 dag. Starfsferill Magnús fæddist í Vestmannaeyj- um, lauk gagnfræðaprófi í MR 1938, prófi frá Loftskeytaskólanum 1946, simvirkjaprófi 1948 og stundaði framhaldsnám hjá Pósti og síma. Magnús var sjómaður 1937-42, m.a. á norsku farskipi fyrstu stríðs- árin, var bílstjóri 1942-45, loft- skeytamaður á togara 1946 og síðar, vann í radíótæknideild Pósts og síma frá 1946, var verkstjóri þar 1950-53, yfirverkstjóri 1953-56, stöðvarstjóri Pósts og síma í Vest- mannaeyjum 1956-66, 1975-78 og 1983-87, bæjarstjóri í Eyjum 1966-75, alþm. Suðurlandskjördæm- is 1978-83, félags-, heilbrigðis- og tryggingaráðherra 1978-80 og sam- gönguráðherra 1979-80. Magnús var formaður Byggingar- samvinnufélags símamanna 1954-56, sat í yfirskattanefnd Vest- mannaeyja 1957-62, í stjóm Spari- sjóðs Vestmannaeyja 1957-78, bæjar- fulltrúi í Vestmannaeyjum 1962-82, i framkvæmdastjórn Branabótafélags íslands frá 1966 og stjómarfor- maður 1980-81, í flokk- stjórn Alþýðuflokksins frá 1964 og varaformaður flokksins 1980-84. Fjölskylda Magnús kvæntist 23.10. 1943 Guðbjörgu Guð- laugsdóttur, f. 22.9. 1918, d. 24.2. 1977, veitinga- konu. Þau skildu. Magnús kvæntist 24.11. 1951 Filippíu Mörtu Guðrúnu Bjömsdóttur, f. 15.11. 1926, d. 24.8. 1989, talsímakonu. Hún var dóttir Bjöms Bjömssonar og k.h., Ingveld- ar Ólínu Hermannsdóttur. Börn Magnúsar og Guðbjargar eru Magnús, f. 18.5. 1944, fram- kvæmdastjóri; Guðlaugur Ægir, f. 19.5.1947, verslunarstjóri. Böm Magnúsar og Mörtu eru Sig- ríður, f. 8.2.1950, meinatæknir; Páll, f. 17.6. 1954, fréttastjóri Stöðvar 2; Bjöm Ingi, f. 18.4. 1962, tölvufræð- ingur; Helga Bryndís, f. 2.5. 1964. Systkini Magnúsar: Sveinn, f. 15.11. 1919, d. 1.4. 1989, loftskeyta- maður hjá Veðurstofu ís- lands; Hermann, f. 12.7. 1921, d. 4.8. 1996, stöðar- stjóri Pósts og síma á Sel- fossi; Páll, f. 27.9. 1924, fórst í flugslysi í Englandi 12.4. 1951, flug- maður; María, f. 14.6. 1927, fyrrv. kaupmaður í Reykjavík. Foreldrar Magnúsar vora Magnús Helgason, f. 8.9. 1896, d. 10.10. 1976, gjald- keri í Reykjavík, og k.h., Magnína J. Sveinsdóttir, f. 24.11. 1897, d. 17.10. 1982, húsmóð- ir. Ætt Magnús var sonur Helga, b. og smiðs í Húsatóftum í Grindavík Þórðarsonar, b. á Króki Jónssonar. Móðir Þórðar var Sólveig, systir Jóns, langafa Halldórs Laxness. Sól- veig var dóttir Þórðar, hreppstjóra í Bakkarholti Jónssonar, og Ingveld- ar, systur Gísla, langafa Vilborgar, ömmu Vigdísar forseta. Ingveldur var dóttir Guðna, ættföður Reykja- kotsættarinnar Jónssonar. Móðir Helga var Guðný Helgadóttir, b. á Læk í Ölfusi Runólfssonar, og Ólafar Sigurðardóttur, b. á Hrauni Þorgrímssonar, b. í Ranakoti Bergs- sonar, ættfóður Bergsættar Stur- laugssonar. Móðir Magnúsar var Herdís, syst- ir Margrétar, ömmu Ellerts B. Schram, forseta ÍSl. Herdís var dótt- ir Magnúsar, b. á Litlalandi Magn- ússonar, b. á Hrauni Magnússonar, hreppstjóra í Þorlákshöfn Beinteins- sonar, b. þar Ingimundarsonar, b. í Hólum, bróður Þorgríms í Rana- koti. Móðir Magnúsar á Litlalandi var Jórunn, langamma Steindórs bílakóngs, afa Geirs Haarde alþm.. Móðir Herdísar var Aldís; systir Guðnýjar á Króki. Magnína var dóttir Sveins, b. í Engidal í Skutulsfirði, bróður Jóns, fóður Guðmundar, kaupfélagsstjóra á Sveinseyri. Sveinn var sonur Ólafs staupa, í Kambsnesi, bróður Málfríðar, langömmu Bjarna, afa Þrastar Ámasonar stórmeistara. Ólafur var sonur Guðmundar, b. á Eiði í Hestfirði og í Kambsnesi Eg- ilssonar. Magnús tekur á móti vinum og vandamönnum í þjónustuselinu, Sléttuvegi 11-13, í dag, kl. 17.-19. Magnús H. Magnússon. Gunnar Ingi Birgisson Gunnar Ingi Birgisson verkfræð- ingur, Austurgerði 9, Kópavogi, er fimmtugur í dag. Starfsferill Gunnar fæddist í Reykjavík og ólst þar upp og í Fljótshlíðinni. Hann lauk stúdentsprófi frá MR 1972, prófi i byggingarverkfræði frá HÍ 1977, M.Sc.-prófi í byggingarverk- fræði frá Heriot-Waa University í Edinborg 1978 og Ph.D.-prófi í bygg- ingarverkfræði frá University of Missouri 1983. Á sínum unglingsáram og náms- áram stundaði Gunnar sjómennsku, vann við línulagnir og var í vega- vinnu. Gunnar var verkfræðingur hjá Norðurverki hf. og fleiri verktökum við undirbúning Hitaveitu Akureyr- ar 1977, við rannsóknarstörf í Her- iot-Watt University 1978-79, verk- fræðingur hjá Hönnun hf. í Reykja- vík 1979-80 og hefur verið með eigin verktakarekstur frá 1978 og er fram- kvæmdastjóri Klæðningar ehf. Þá var Gunnar kennari við verkfræði- deild HÍ 1983-93. Gunnar sat í stjóm Verktakasam- bands íslands 1985-91 og var for- maður þess 1986-91, sat í fram- kvæmdastjóri VSÍ 1985-92 og varfor- maður VSÍ 1989-92, stjómarformað- ur LÍN frá 1992, oddviti sjálfstæðis- manna í Kópavogi frá 1990, formað- ur bæjarráðs Kópavogsbæjar frá 1990, hefur verið formaður ýmissa nefnda á vegum bæjarfélagsins og var varaþingmaður fyrir Sjálfstæð- isflokkinn í Reykjaneskjördæmi 1991-95. Fjölskylda Gunnar kvæntist 29.12. 1973 Vig- dísi Karlsdóttur, f. 27.5.1948, sjúkra- liða. Hún er dóttir Karls Þorláks- sonar sem er látinn, og Brynleifar Eysteinsdóttur. Dætur Gunnars og Vigdisar era Brynhildur, f. 19.1. 1968, hönnuður í Kópavogi en maður hennar er Guð- jón Guðmundsson; Auð- björg Agnes, f. 16.1. 1976, nemi í hjúkrunarfræði við HÍ og nemi í Söng- skóla Reykjavíkur, í for- eldrahúsum. Hálfsystkini Gunnars, sammæðra, era Þórarinn Sigurðsson, f. 26.4. 1950, tölvunarfræðingur í Hafn- arfirði; Kristinn H. Gunn- arsson, f. 19.8. 1952, alþm. í Bolungarvík; Sigrún Gunnarsdóttir, f. 7.9. 1954, kennari í Reykjavík; Karl Gunnarsson, f. 26.9. 1955, fram- kvæmdastjóri í Bolungarvík; Guð- rún Gunnarsdóttir, f. 6.10. 1957, hjúkrunarfræðingur i Vestmanna- eyjum; Katrín Gunnarsdóttir, f. 21.9. 1959, húsmóðir á Álftanesi; Haf- steinn Gunnarsson, f. 22.8. 1965, líf- fræðingur í Garðabæ. Hálfsystkini Gunnars, samfeðra, era Diana Þórðardóttir, f. 29.6.1944; Anna Fanney Birgisdóttir, f. 1.6. 1947; Pétur Birgisson, f. 29.10.1951; Jónína Birgis- dóttir Blöndal, f. 9.1. 1953; Ragnar Birgisson Blöndal, f. 16.7. 1954; Maria Birgisdóttir Blön- dal, f. 26.6. 1959; Sigurður Birgisson Blöndal, f. 12.11. 1960; Birgir Birgis- son Blöndal, f. 19.10.1962. Foreldrar Gunnars: Birg- ir Guðmundsson, f. 19.5. 1922, d. 17.2. 1962, mat- sveinn í Garðabæ, og Auðbjörg Brynjólfsdóttir, f. 1.11.1929, húsmóðir i Garðabæ. Auðbjörg er gift Gunnari H. Kristinssyni, verkfræðingi og hita- veitustjóra. Birgir var kvæntur Valdísi Valde- marsdóttur. Gunnar og Vigdís taka á móti ætt- ingjum og vinum í Félagsheimili Kópvogs, föstudaginn 3.10. milli kl. 20.00 og 22.00. Gunnar Ingi Birgisson. Guðbjörg Lilja Guðmundsdóttir Guðbjörg Lilja Guð- mundsdóttir, Kleppsvegi 2, Reykjavík, er sjötug í dag. Starfsferill Guðbjörg Lilja fæddist í Reykjavík, ólst þar upp og hefur alla tíð búið þar. Hún lauk hefðbundinni skólagöngu og hefur lagt stund á nám í erlendum tungumálum. Guðbjörg hóf snemma verslunarrekstur með eig- inmanni sínum og hefur stundað verslunarrekstur síðan. Guðbjörg söng í mörg ár með Samkór Reykjavíkur, undir stjóm Róberts Abrahams og fór með kóm- um i söngferð um öll Norðurlöndin. Hún hefur lengi starfað í bindindis- hreyfingunni og verið virkur félagi í Sam-Frímúrarareglunnar á Islandi í tæp fjörutíu ár. Fjölskylda Guðbjörg giftist 23.6. 1945 Krist- jáni Páli Sigfússyni, f. 4.3.1921, kaupmanni frá Isafirði. Foreldrar hans vora hjónin María Anna Krist- jánsdóttir og Sigfús Guðfinnsson, skipstjóri á ísafirði, en þau era bæði látin. Börn Guðbjargar og Kristjáns era Bragi G. Kristjánsson f. 22.12. 1944, kaupmaður og bóndi, kvæntur Emu Ei- ríksdóttur; María Anna Kristjánsdóttir f. 25.12. 1948, starfar hjá Flugleið- um, búsett í Reykjavík, gift Jesus Sigfúsi M. Potenciano menntaskóla- kennara. Böm Braga og Emu era Áshildur Bragadóttir f. 12.2. 1966, stjómmála- fræðingur, gift Björgvini Snæ- bjömssyni arkitekt og eiga þau tvær dætur; Kristján Páll Bragason f. 19.8. 1968, master í evrópskum vinnumarkaðsfræðum en sambýlis- kona hans er Margrét Leósdóttir, læknanemi i H.Í.; Styrmir Þór Bragason f. 22.9. 1970, master í banka- og stjórmálafræðum en sam- býliskona hans er Heiða Lára Aðal- steinsdóttir, master í almanna- tengslum; Guðbjörg Lilja Bragadótt- ir f. 1.2.1979, nemi í menntadeild V.í. Sonur Maríu Önnu og Jesus Sig- fúsar er Kristján Jesus Potenciano f. 22.10. 1993. Systkini Guðbjargar era: Ólafur Byron f. 6.8. 1925, d. 5.2. 1984; Jó- hann Ingi f. 3.2. 1929, d. 30.6. 1995; Margrét Erla f. 7.7.1932; Sigmundur Birgir f. 24.1.1939; Guðrún Hanna f. 13.12. 1945. Foreldrar Guðbjargar voru hjón- in Guðmundur Jóhannsson, f. 24.6. 1905, d. 12.6. 1973, vélstjóri, og Bríet Ólafsdóttir, f. 11.12. 1906, d. 4.5. 1988, húsmóðir. Ætt Guðmundur var sonur Jóhanns, verslunarmanns á Eyrarhakka, bróður Eggerts, afa Eggerts G. Þor- steinssonar, Þorsteins fiskimála- stjóra, og langafi Þorsteins Eggerts- sonar textahöfundar, og Gunnars Arnar myndlistarmanns. Jóhann var sonur Gísla, b. í Steinskoti Gislasonar og Gróu Eggertsdóttur frá Haga í Holtum. Móðir Gróu var Þorbjörg Brandsdóttir af Víkings- lækjarætt. Móðir Guðmundar var Ingibjörg Rögnvaldsdóttir frá Ásum i Hrepp- um. Móðir Ingibjargar var Guðbjörg systir Guðrúnar ömmu Vilhjálms frá Skáholti. Guðbjörg var dóttir Guðmundar, b. á Löngumýri í Hreppum, bróður Ögmundar frá Tungufelli, foður Salvarar langömmu Tómasar Guðmundsson- ar Reykjavíkurskálds, en Salvör var einnig amma Bjarna langafa Errós og amma Salvarar, langömmu Bjöms Th. Bjömssonar. Bríet var dóttir Ólafs sjómanns frá Króki á Álftanesi Þorvarðarson- ar, b. á Hliði Jónssonar, b. á Sogni Ásbjörnssonar. Móðir Þorvarðar var Sólveig Þórðardóttir, systir Ein- ars á Þurá, langafa Vals Gíslasonar leikara, foður Vals bankastjóra. Móðir Ólafs var Birgit, systir Hall- dórs, afa Halldórs Laxness. Birgit var dóttir Jóns, b. á Núpum, bróður Sólveigar og Einars. Móðir Bríetar var Guðbjörg Guð- mundsdóttir, Magnússonar sjó- manns frá Norðurkoti í Vogum. Móðir Guðbjargar var Birget systir Guðmundar afa Ingveldar ömmu Ragnars Kjartanssonar leikara og leikritahöfundar. Birget var dóttir Ólafs b. i Hvammi í Ölfusi Ásbjöms- sonar og Inghildar Þóðardóttur, systur Solveigar, Einars og Jóns. Móðir Inghildar var Ingveldur syst- ir Gísla langafa Vilborgar ömmu Vigdísar, fyrrverandi forseta ís- lands. Ingveldur var dóttir Guðna ættfoður Reykjakotsættarinnar Jónssonar. Hjónin era að heiman. Guðbjörg Lilja Guömundsdóttir. DV Til hamingju með afmælið 30. september 80 ára____________________ Alie Rita ísólfsson, Furagerði 1, Reykjavík. Njáll Bjamason, Víðivöllum 2, Akureyri. Sigurbjörg Vigfúsdóttir, Hombrekku, Ólafsfirði. 75 ára Baldur Sigurðsson, Fellsmúla 22, Reykjavík. 70 ára Guðbjörg Eyvindsdóttir, Bræðraborgarstíg 9, Reykjavík. Anton Gunnarsson, Álfhólsvegi 83, Kópavogi. Margrét Hermannsdóttir, Flyðragranda 16, Reykjavík. Halldór Jónsson, Túngötu 47, Eyrarbakka. Matthías Ólafsson, Laugamesvegi 64, Reykjavík. María P. J. Poulsen, Hraunbrún 40, Hafnarfirði. Guðberg E. Haraldsson, Árskógum 8, Reykjavík. Hann er í útlöndum. 60 ára Guðni Marelsson, Hátúni 6 B, Reykjavík. Olga Kristín Jónsdóttir, Hlíðargötu 8, Neskaupstað. Ólafur Jóhannsson, Klukkubergi 23, Hafnarfirði. Birgir Stefánsson, Gunnarssundi 6, Hafnarfirði. Hann er að heiman. 50 ára Björgvin Arngrimsson, Holtagerði 4, Kópavogi. Svandis Ottósdóttir, Háholti 12, Hafnarfirði. Trausti Hallsteinsson, Hlíðarvegi 17, Kópavogi. Einar Bergsson, Stafiiesvegi 2, Sandgerði. Steindór Pétursson, Brekkubæ 3, Reykjavik. Ámý Helgadóttir, Melási 7, Garðabæ. María Olgeirsdóttir, Reyrengi 4, Reykjavík. 40 ára Jens Ágúst Andersen, Grenimel 15, Reykjavík. Kristín Dóra Karlsdóttir, Aðaltúni 12, Mosfellsbæ. Þórður Sveinsson, Suðurgötu 21, Akranesi. Alexander G. Eðvardsson, Eyktarási 8, Reykjavík. Guðmundur Ó. Svavarsson, Lækjargötu 34 E, Hafnarfirði. Jóhann Valur Jóhannsson, Aðalstræti 77 A, Patreksfirði. Sigurður Reynisson, Suðurási 26, Reykjavík. Þorsteinn Pálmarsson, Heiðargerði 48, Reykjavík. Jónas Rafn Lilliendahl, Þrastarima 6, Selfossi. Haraldur Eggertsson, Svalbarði 9, Hafnarfirði. Sigríður Halldórsdóttir, Reynihvammi 19, Kópavogi. Indriði Rósenbergsson, Hraunbæ 188, Reykjavík.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.