Dagblaðið Vísir - DV - 30.09.1997, Qupperneq 32
**
(§
ÍC3
36
ÞRIÐJUDAGUR 30. SEPTEMBER 1997
Reykvíkinga
í borgarstjórn
„Af hverju fáum við ekki að
kjósa Reykvíkinga í borgar-
stjórnina okkar lengur? Svarið
er einfalt: Borgin er undirlögð af
sveitamönnum í hamingjuleit á
gúmmískóm... Senn líður að því
að stjómmálaflokkar bjóða ekki
fram í Reykjavík heldur átthaga-
félög sveitamanna."
Ásgeir Hannes Eiríksson, í
Degi-Tímanum.
Tollverðir
með vasaljós
„Ekki er nóg með að tollvörð-
um væri stórfækkað heldur eru
þeim ekki fengin önnur verkfæri
til starfans en vasaljós og tvö
skrúfjárn og mega helst ekki
starfa eftir að skyggja tekur.“
Sigurður A. Magnússon rithöf-
undur, í DV.
Ummæli
Skúrkur eða hetja
„Þetta er alltaf sama sagan,
maður er annaðhvort skúrkur
eða hetja og það er ekkert þar á
milli."
Bergsveinn Bergsveinsson
landsliðsmarkvörður, í DV.
Stuðningur innan-
hússmanna
„Það stefndi fljótt í að valið
myndi standa á milli mín og El-
ínar Hirst og eftir að það varð
ljóst fullyrði ég að ég hafl haft
eindreginn stuðning manna hér
innanhúss."
Helgi H. Jónsson, fréttastjóri
Sjónvarps.
Ávallt er mikið um að vera þegar
nýtt ár gengur í garð.
Tímatal
Þótt enn séu margs konar
tímatöl í notkun, samanber tíma-
tal gyðinga og tímatal mú-
hameðstrúarmanna, hafa flestar
þjóðir sameinast um gregorí-
anska tímatalið sem innleitt var
af Gregoríusi páfa 13. árið 1582.
Tímatalið er arftaki þess júl-
íanska sem Júlíus Cæsar kom á í
Rómaveldi árið 46 f.Kr. Nöfn
mánaðanna og lengd þeirra virð-
ast hafa haldist óbreytt frá dög-
um Cæsars. Febrúar var þá tal-
inn síðasti mánuður ársins og
hlaupársdeginum bætt við hann.
Meðallengd júlíanska ársins var
36554 dagar, sem er 11 mínútum
og 14 sekúndum lengra en hvar-
fárið eða árstíðaárið. Þetta leiddi
til skekkju sem sífellt jókst
þannig að á 16. öld voru jafndæg-
ur orðin nálægt 11. mars í stað
21. mars.
Blessuð veröldin
Með gregoríanska tímatalinu
voru þá felldir niður 10 dagar svo
að í stað 5. október 1582 kom 15.
október. Jafnframt var sú breyt-
ing gerð að aðeins fjórða hvert ár
var hlaupár. Með þessu varð
meðallengd gregoríanska ársins
365,2425 dagar sem skakkar
minna en degi á 3000 árum frá
hinu náttúrlega ári (hvarfárinu).
Gregoríanska tímatalið var
tekið upp á mismunandi tímum í
hinum ýmsu löndum. Á íslandi
var það lögleitt árið 1700 og kom
þá 28. nóvember i stað 17. nóvem-
ber.
Gunnar Pálmi Pétursson, íslandsmeistari í rallakstri:
Sumarfríið fer í að
fara á torfærukeppni
„Ég hef notað sama bílinn
óbreyttan í 9 ár. Þetta var í upphafi
Ford-herjeppi, árgerð 1942, þá löngu
afskráður, sem var uppistaðan í
rallíbílinn ásamt hlutum úr mörg-
um tegundum bíla,“ segir Gunnar
Pálmi Pétursson á Höfn, islands- og
heimsmeistari í torfærukeppni sér-
útbúinna götubíla. Gunnar hefur nú
tvö ár í röð náð þessum eftirsóknar-
verða titli og hann segir það mark-
mið sitt að vinna þessa titla næsta
ár og þá eignast farandverðlauna-
gripina. Gunnar á nú þegar um 40
verðlaunagripi fyrir torfærukeppn-
ir og er helmingur þeirra fyrstu
verðlaun.
„Draumurinn er að fara meira til
útlanda að keppa en ég hef farið
þrisvar og keppt í Hollandi, Frakk-
landi og Belgíu," segir Gunnar.
„Þetta var sitt hvert dæmið í hverju
landi, akstur i snjó, kappakstur og
spilkeppni, gott sýnishorn af því
sem er í gangi, og þetta gekk vel, ég
lenti í fyrsta sæti í snjó- og
kappakstrinum og fimmta sæti í
spílkeppninni. Götubíla-ralll er orð-
in vinsæl íþrótt erlendis og við
fáum miklu meiri
umfjöllun síðan
Eurosport-sjón-
varpsstöðin fór
að sjónvarpa frá
okkar keppnum,
en það er með
þessa íþrótt eins
og margar aðrar,
það vantar pen-
inga til að geta
staðið betur að
þessu. Ég vil að
bæjaryfirvöld
hér, lögregla og
aðrir sem hafa
með unglinga-
málefni að gera
sameinist um að
koma upp æf-
ingasvæði þar
sem ungir öku-
menn og þeir
sem eru að læra
á bíl geti æft sig
og fengið útrás
og ég er þess fullviss að það bæri
góðan árangur og skilaði betri öku-
mönnum.“
Gunnar Pálmi Pétursson.
Maður dagsins
Eiginkona Gunn-
ars, Sigurborg
Svavarsdóttir, og
börnin þeirra
þrjú styðja hann
dyggilega i rall-
íþróttinni og eru
það aðalsumarfrí
Ijölskydunnar að
fara á torfæru-
keppni. Um tóm-
stundirnar sagði
Gunnar að þær
væru alltof fáar
en skemmtilegast
fmnst honum að
vera með fjöl-
skyldunni að
ferðast um landið
og óbyggðirnar
heilluðu þau og
vonandi kæmu
tækifæri til að
sinna því áhuga-
máli betur.
Gunnar, sem er
bifvélavirkjameistari, hefur í mörg
ár rekið vélaverkstæði á Höfn.
-Júlía Imsland
Fellir dýr með skotum Myndgátan hér aö ofan lýsir nafnorði.
Blásarakvintett Reykjavíkur mun
skemmta Selfyssingum í kvöld.
Blásara-
kvintettinn og
Margrét
Bóasdóttir
Tónleikar hafa verið hvert
þriðjudagskvöld í Selfosskirkju
undanfamar vikurnar og verður
svo enn tvo næstu þriðjudaga. í
kvöld gefst kostur á að heyra þá
vinsælu listamenn sem skipa
Blásarakvintett Reykjavíkur.
Með þeim. syngur Margrét Bóas-
dóttir í tveimur verkum.
í sumar hefur Blásarakvintett-
inn farið í tvær tónleikaferðir til
útlanda, leikið í BBC og er nú að
koma frá Ástralíu. Margrét var í
Þýskalandi síðastliðinn vetur og
sumar og söng þar á fjölmörgum
tónleikum. Meðal höfunda sem
verk eiga á tónleikum þessum
eru: J. Sweelinck, Jón Hlöðver
Áskelsson, W.A. Mozart, J.S
Bach og Hándel, en eftir hann
verður leikin Vatnasvítan.
Tónleikar
Tónleikar þessir, sem hefjast
kl. 20.30, eru sérstaklega styrktir
af Selfossbæ í tilefni 50 ára af-
mælis sveitarfélagsins og er að-
gangur ókeypis.
Bubbi í Sandgerði
Bubbi Morthens heldur áfram
tónleikaferð sinni og leikur í
kvöld í Samkomuhúsinu I Sand-
gerði. Tónleikamir hefjast kl. 21.
Á morgun verður Bubbi svo á
Eyrarbakka.
Bridge
í bridgedálki gærdagsins var
greint frá spili sem orðið er 40 ára
gamalt og hafði birst í fyrsta hefti
tímaritsins Bridge sem gefið var út
á ámnum 1957-59. Hér er annað
spiladæmi úr þeim blöðum, úr nóv-
emberhefti timaritsins 1957. Ólafur
H. Ólafsson, sem þá var spilafélagi
Agnars Jörgensen, hins kunna
keppnisstjóra, sýndi snilldartakta í
úrspilinu á einu grandi í tvímenn-
ingskeppni. Norður var gjafari og
allir utan hættu:
é 954
* G6
* G52
* D10975
4 KG8
«4 ÁD109
-f 1083
4 642
* ÁD62
•0 7432
* ÁD4
* ÁG
Norður Austur Suður Vestur
pass pass 1 grand p/h
Vestur átti út og ákvað að spila út
fjórða hæsta spili i tígli. Ólafúr var
ekki lengi að spila spilið, setti tvist-
inn úr blindum, austur setti tíuna
og Ólafur ásinn! Þvínæst lagði hann
niður laufásinn og spilaði laufgosa.
Vestur var eðlilega gmnlaus um
hættuna, drap á kónginn og spilaði
lágum tígli á „sannaða" drottningu
austurs. Vestur varð ekki lítið hissa
þegar tígulgosinn í blindum átti
slaginn, en Ólafur renndi nú niður
ffíslögum í laufi og til þess að snúa
hnífnum enn meir í sárinu, þá svín-
aði hann spaðadrottningunni til
þess að fá 8 slagi. Það hefði þó dug-
að Ólafi að fá 7 slagi, því allir sagn-
hafar í einu grandi á suðurspilin
fóm ýmist einn eða tvo niður.
ísak Öm Sigurðsson
4 1073
V K85
♦ K976
4 K83