Dagblaðið Vísir - DV - 01.10.1997, Page 8
8
MIÐVIKUDAGUR 1. OKTÓBER 1997
Útlönd
Stofnandi Ham-
as laus úr ísra-
elsku fangelsi
Ahmed Yassin sjeik, stofnandi
og andlegur leiðtogi Hamas-
skærnliðahreyíingarinnar, kom
til Jórdaníu í morgun eftir að
ísraelsk stjómvöld höfðu látið
hann lausan úr fangelsi. Yassin
hafði verið dæmdur til ævilangr-
ar tugthúsvistar.
„Þetta er ánægjuleg stund fyr-
ir okkur öll,“ sagði Hussein
Jórdaníukonungur í viðtali við
jórdanska ríkissjónvarpið.
Konungur hafði hvatt ísraela
til að sleppa klerkinum, sem
gengur ekki heill til skógar.
Yassinn var fluttur rakleiðis á
stærsta sjúkrahúsið í Amman,
höfuöborg Jórdaníu.
Palestínumenn fordæmdu
flutning Yassins til Jórdaníu og
sögðu hann jafnast á við nauð-
ungarflutninga. Háttsettur mað-
ur innan Hamas sagöi í Amman
aö Yassin vildi fara til heima-
stjórnarsvæðis Palestínumanna
á Gaza.
Mannát í
Norður-Kóreu
Norður-Kóreumenn eru svo
aðframkomnir af hungri sumir
hverjir að þeir hafa tekið upp
mannát til að deyja ekki. Þá hafa
yfirvöld tekið fólk af lífi fyrir aö
selja mannakjöt. Þetta kemur
fram í blaðinu South China
Moming Post í morgun og var
haft eftir landflótta liðsforingja.
Reuter
20 þúsund mótmæla í Belgrad:
Lögregla réðist
á göngumenn
Óeirðalögregla í Belgrad í Serbíu
réðist í gær á 20 þúsund mótmæl-
endur sem reyndu að efna til mót-
mælagöngu vegna skyndilegs
brottreksturs Zorans Djindjics úr
embætti borgarstjóra.
Stjórnarandstöðuflokkar í Serbíu
hvöttu í gær almenning til að fara
í daglegar mótmælagöngur og
krefjast nýrra kosninga í kjölfar
brottreksturs Djindjics og yfir-
manna óháðrar sjónvarpsstöðvar.
Djindjic var fyrsti borgarstjóri
Belgrad í hálfa öld sem ekki var
kommúnisti.
Það var bandalag fyrrum banda-
manns Djindjics, Vuks Draskovics,
Sósíalistaflokksins og hins öfga-
sinnaða þjóðernisflokks Vojislavs
Seseljs sem felldi borgarstjórnina.
Bandalagið rak einnig stjórn
óháðrar sjónvarpsstöðvar.
Nokkrum klukkustundum eftir
brottvikninguna var útsendari
Milosevics, fráfarandi forseti
Serbíu, orðinn yfirmaður á sjón-
varpsstöðinni og í kvöldfréttunum
var ekki minnst á mótmælagöng-
una í gærkvöld með einu orði.
Meðal göngumanna gætti andúðar
í garð Draskovics. Flokkur Dra-
skovics var einn þriggja flokka
stjórnarandstöðuhreyfingarinnar
Zajedno sem stóð fyrir mótmælum
hundruða þúsunda síðastliðinn vet-
ur. Zajedno þvingaði stjórnina til
að samþykkja að Djindjic yrði gerð-
ur að borgarstjóra. Sambandið
milli Djindjics og Draskovics hefur
alltaf verið slæmt. Deilt var um
hvort stjórnarandstaðan ætti að
taka þátt í þing- og forsetakosning-
unum í Serbíu. Draskovic kaus að
taka þátt en hinir ekki. Sósíalista-
flokkur Milosevics fékk ekki meiri-
hluta og varð að hefja samvinnu
með Draskovic og Seselj.
Reuter
Tvær ár í Gvatemala flæddu yfir bakka sína í gær og er taliö að hafstraumurinn El Nino eigi þar sök á. Þessum ágæta
manni tókst að bjarga að minnsta kosti einni lítilli hænu og einum skó þegar flæddi inn á heimili hans.
Vinningshafar í litaleik Krakkaklúbbs
DV og Kjöríss
10 Kjörís-bolir ásamt
: Atli Hrafn Lárusson Beck
| Pálmar Jónsson
: Kristján Þór Gunnarsson
Hulda Björg Elfarsdóttir
Lísa Rún Arngrímsdóttir
Ragnar Hansen
Alma Björk Ragnarsdóttir
Óskar Elías Sigurðsson
Guöríður Jónsdóttir
Vilfríður Hrefna Hrafnsdóttir
10 aukavinningar: ávísun á
tvo græna Hlunka
Berglind Ólafsdóttir nr. 11122
Eyrún Reynisdóttir nr. 12127
Anna Björg Guðjónsdóttir nr. 1041
Heiða Osk nr. 8370
Aron Davíð nr. 8371
Sigrún Elva Ólafsdóttir nr. 11812
Björg Ósk Gunnarsdóttir nr. 10432
Haraldur Bjarni nr. 6192
Guðmundur Sigurðsson nr. 6726
Kristín Lind Magnúsdóttir nr. 1671
Hlunka-ávísun.
nr. 11461
nr. 6632
nr. 2542
nr. 9211
nr. 2204
nr. 4631
nr. 6825
nr. 5950
nr. 11593
nr. 6637
Framtíðarsýn Tonys Blairs:
Flokksmenn og
blööin ánægð
Tony Blair, forsætisráðherra
Bretlands, lofaði á flokksþingi
Verkamannaflokksins í gær að
skapa nýtt umhyggjusamt samfélag
og hlaut fyrir það mikið lof, bæði
meðal flokksmanna og fjölmiðla.
Það á hins vegar eftii' að koma í ljós
hvort flokksmenn fallast á þær erf-
iðu ákvarðanir sem eru fram und-
an.
Blair varaði flokksmenn við að
falla í gi-yfju sjálfsánægju og sagði
að markmið sitt væri að sitja við
völd annað fimm ára kjörtímabil til
að hrinda stefnumálum sínum um
nýtt samfélag byggt á samkennd í
ffamkvæmd.
Flokksmenn fögnuðu mjög ræðu
hans, fyrstu ræðu leiðtoga Verka-
mannaflokksins sem forsætisráð-
herra í 19 ár.
„Forsætisráðherra fólksins veitir
okkur von,“ sagði í leiðara æsi-
blaðsins Sun í morgun. Times var-
aði hins vegar við því að ekki hefði
enn reynt á Blair. Reuter
Hart vegið að
Thorbjörn Jagland
DV, Ósló:
Hart er nú vegið að Thorbjöm
Jagland, formanni norska Verka-
mannaflokksins. Margir flokksfélag-
ar segja að klúður í nýafstöönum
kosningum sé öðra fremur honum
að kenna og æ fleiri telja tíma kom-
inn til að skipta um formann.
Jagland er kennt um að hafa sett
atkvæðatöluna 36,9 prósent sem
skilyrði fyrir áframhaldandi stjórn-
arsetu. Ef hann hefði sleppt því
hefði stjórnin haldið velli. Þá er
honum kennt um að hafa valið Carl
I. Hagen sem sérlegan óvin sinn án
þess að ganga nokkru sinni í skrokk
á honum vegna meints kynþáttahat-
urs.
Hagen er raunar sá sem mest
hlær að óförum Jaglands. í norska
Dagblaðinu mælir hann með því að
Jagland verði velt úr formannsstóli
og Jens Stoltenberg fjármálaráö-
herra settur í hans stað. Hagen lofar
meira að segja að styðja ríkisstjórn
undir forsæti Stoltenbergs.
-GK
Stuttar fréttir i>v
Misskilningur í lofti
Hugsanlegt er talið að mis-
skilningur milli flugumferðar-
stjóra og flugmanna indónesísku
farþegaflugvélarinnar hafl vald-
ið flugslysinu sem var 234 að
bana í síðustu viku.
Albright skilur ekki
Madeleine Albright, utanríkis-
ráðherra Bandaríkjanna, sagði í
gær að sér
fyndist óskilj-
anlegt að
Frakkar átt-
uðu sig ekki á
að viðskipti
við írani gætu
skaðaö til-
raunir Vestur-
veldanna til að fá írönsk stjórn-
völd til að breyta stefnu sinni.
Falsaður kostnaður
Ástralska ríkisstjórnin er í
vondum málum þessa dagana
vegna falsaðs ferðakostnaðar
ráöherra.
Frítt í strætó og metró
Ókeypis er í almenningsfarar-
tæki í París í dag vegna
ákvörðunar yfirvalda um að
banna umferð helmings allra
einkabíla í borginni. Ástæðan er
mikil mengun í París að undan-
förnu.
Senditæki tekin
Fi'iðargæslusveitir NATO
tóku við stjórninni á tveimur
sjónvarpssendum í serbneska
lýðveldinu í Bosníu í morgun og
stöðvuðu útsendingar bæði út-
varps og sjónvarps.
Bonino vill þrýsting
Emma Bonino, sem fer með
mannúðarmál innan fram-
kvæmda-
stjórnar ESB,
lauk þriggja
daga heim-
sókn sinni til
Afganistans í
gær með heim-
sókn til bæjar
á valdi stjóm-
arandstæðinga. Hún sagöi að
heimsóknin hefði sannfært sig
um að beita ætti Talebana, sem
ráða ríkjum í Afganistan, aukn-
um þrýstingi.
Vilja í ESB
Flestir Svisslendingar vilja að
land þeirra gangi í Evrópusam-
bandið, ef marka má skoðana-
könnun sem birtist 1 blaðinu
Blick í gær.
Super Puma í gagnið
Ákveðið er að taka norsku
Super Puma-þyrlurnar aftur í
notkun eftir ítarlega rannsókn.
Skipt hefur verið um ýmsa vélar-
hluta og reglrn- um flugið hertar.
Mannskæð flóð á Spáni
Fjórir hafa látið lífið og eins
er saknað eftir flóð á Suður-
Spáni. Flóðin hafa meðal annars
verið við Alicante og í Valencia.
Enn barist við elda
Slökkviliðsmenn í Malasíu
berjast enn við skógareldana
sem valdið hafa hættulegri
mengun.
Vara írani við
Bandarísk yfirvöld vöruðu í
gær írani við því að flugvélar
þeirra gætu orðið skotnar niður
virtu þeir ekki flugbann yfir suð-
urhluta íraks.
Fordæma fjöldamorð
Mary Robinson, nýr yfirmaður
mannréttindamála hjá Sam-
einuðu þjóðun-
um, og Kofi
Annan, fram-
kvæmdastjóri
samtakanna,
fordæma
fjöldamorðin í
Alsír. Robin-
son hvatti
þjóðir heims til að tjá sig um
fjöldamorðin þrátt fyrir mótmæli
stjórnvalda í Alsír. Reuter