Dagblaðið Vísir - DV - 01.10.1997, Síða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 01.10.1997, Síða 10
10 mennÍM MIÐVIKUDAGUR 1. OKTÓBER 1997 Listaklúbbur fyrir alla Nýtt starfsár Listaklúbbs Leikhúskjallarans hefst á mánudaginn kemur, 6. októ- ber. „Klúbburinn á sér dálítið sérstæða sögu,“ segir fram- kvæmdastjóri hans, Sigríður Margrét Guðmundsdóttir. „Jón Leifs stofnaði Listamanna- klúbbinn í Þjóðleikhúskjallar- anum 1956, nýkominn frá Par- ís, af því að hann vildi innleiða hér menningarlíf Parísarborg- ar. Ég er viss um að honum þætti gaman að sjá öll kaffihús- in sem hafa sprottið upp a und- anfömum áram! En klúbbur Jóns var aðallega ætlaður lista- mönnum til að þeir gætu hist og rætt sín mál. Okkar klúbbur er fyrir alla.“ Hugmyndina að klúbbnum áttu eiginlega leikarar Þjóð- leikhússins sem oft sitja uppi með heilmikið efni sem þeir hafa viðað að sér í sambandi við sýningar. Þá vantaði stað fyrir litlar uppákomur. Svo stofnaði Ámi Ibsen ásamt fleir- um Ljóðleikhúsið sem kom saman á mánudagskvöldum í Kjallaranum, og þá var staður- inn fundinn. Smám saman fjölgaði uppákomum af ýmsu tagi þar uns svo kom að Lista- klúbburinn var formlega stofn- aður 3. janúar 1994. Dagskrárnar hafa sumar verið tengdar sýningum í Þjóð- leikhúsinu en flestar eru sjálf- stæðar. „Ýmist leitum við til listamanna eða listamenn bjóða okkur efni,“ segir Sigríð- ur Margrét. „Skilyrðið er að dagskrámar hafi ekki verið fluttar annars staðar, og hug- myndin er sú að þær verði að- eins þetta eina kvöld. Einstaka sinnum hafa þær verið endurteknar og stund um fluttar annað og sýndar áfram þar.“ Ein dagskrá fyrir jól, 17. nóvember, verður tengd leikhúsinu. Hún heitir „Á Sigríöur Margrét Guömundsdóttir: Auövelt aö fá gott fólk til aö koma fram. DV-mynd GVA mörkum þessa heims og annars" og fjallar um lffið og dauðann. Hún er hugsuð út frá sýning- unni á Grandavegi 7 - þó að það sé draugagang- ur i fleiri verkum á sviði Þjóðleikhússins í vet- ur, til dæmis Hamlet og Fiðlaranum á þakinu. Eftir jól verður dagskrá sérstaklega tengd Hamlet. Hróðurinn berst víða Alltaf koma fleiri og fleiri er- lendir gestir í klúbbinn. Sá fyrsti sprengir reyndar kjallar- ann og verður fluttur upp á stóra sviðið mánudagskvöldið 20. október. Það er danska leik- konan Ghita Norby sem kemur með tríó með sér og flytur dag- skrá sem er byggð á verkum H. C. Andersens. Algengt er að listamenn sem eru á leið milli Evrópu og Bandaríkjanna stoppi hér og bjóði Listaklúbbnum krafta sína. Franska söngkonan Machon syngur frönsk alþýðu- lög í ekta kaffihúsahefð 27. októher. Viku seinna koma tíu ungir listamenn víðsvegar að úr Evrópu með eins konar sjónhverfingaleikhús. „Við höfum alltaf reynt að hafa dagskrána fjölbreytta," segir Sigríður Margrét, „og við byrjum á nýstárlegum tónleik- um með kvennahljómsveitinni Ótukt. Hún hefur vakið athygli fyrir skemmtilega tónlist og líf- lega sviðsframkomu - enda er Kolrassan krókríðandi Elíza María Geirsdóttir í hópnum." í nóvember verður dagskrá um Jón Þórarinsson tónskáld. Sveinn Einarsson kemur með Bandamenn sína sem leiklesa Belialsþátt eftir Sebastian Wild sem var þýddur á íslensku fyrstur erlendra leikþátta um 1630.1. desember verða Fjölnis- menn hinir nýju með dagskrá. 8. desember verður lesið úr nokkrum úrvalsbókum á jóla- markaði og síðasta dagskráin verður með jólasöngvum undir stjórn Margrétar Pálmadóttur. - Nokkuð að lokum, Sigríður Margrét? „Ég var að koma heim eftir heilt ár í burtu og Þómnn Sigurðardóttir passaði klúbbinn fyr- ir mig á meðan. Þaö er gaman að sjá hvað hann hefur vaxið undir hennar stjórn. Hann er orð- inn fastur í sessi og það verður alltaf auðveld- ara að fá gott fólk til að koma fram.“ Saga af fólki í dag kem- ur út hjá Reykja- nesbæ annað bindi af Sögu Keflavíkur eftir Bjarna Guðmarsson sagnfræðing. Fýrsta bindið sem kom út 1992 náði til ársins 1890 og í þessu bindi er þráður- inn rakinn áfram til 1920. „Þetta er spennandi tímabil í sög- unni því þarna er lagður grunnurinn að nútímanum, að bænum eins og hann er núna,“ segir Bjami. „Bærinn óx hratt og á þessum árum varð þar bæði atvinnubylting og lífskjarabylt- ing.“ - Kom eitthvað á óvart? „Já, ótal margt. Mest munaði um að ég komst í heillegt bréfasafn selstöðu- verslunarinnar á staðnum og gat séð á því nákvæmlega hvernig svoleiðis verslun gekk fyrir sig. Þama voru bréf frá fulltrúum þar sem þeir segja frá skiptum sínum við bændur og líka bréf frá bændum þar sem þeir biðja blessaðan faktorinn að lána sér nú svolítið bankabygg til vors ... Þama var sem sé hægt að skoða báðar hliðar á málunum. Þessu bindi lýkur svo þeg- ar H.P. Duus selur eignir sínar í Kefla- vík og selstöðuöldinni lýkur. 1 Keflavík er öflugt byggðasafn og bæði þar og með hjálp forstöðumanns þess komst ég líka í heilmikið af einkabréfum og dagbókum. Það eru heimildir fyrir hjartastööina ffernur en vitsmunina og þær heilluðu mig. Með hjálp þeirra gerist ég svo djarfúr að reyna að segja söguna frá sjónar- hóli fólksins í bænum - segja frá heim- ilisháttum, félagslffi og öðram sam- skiptum fólks. Þetta er í rauninni mik- il hversdagssaga, enda er ég að skrifa fyrir almenning en ekki fyrir háskólasamfélag. Ég reyni að sýna nútímalesendum hvernig fólk á þessum liðna tíma leysti vandamál sem Bjarni Guömarsson - skrifar fyrir hjartastööina ekki síöur en vits- munina. DV-mynd Pjetur menn standa líka frammi fyrir núna. Hvemig kom fólk þaki yfir höfuðið á sér til dæmis, hvernig voru hús byggð og hvemig klauf fólk fjárhagslega að byggja yfir sig. Samfé- lagið var svo allt öðmvísi, allt aðrir verslunarhættir, minni þjónusta. Sparisjóður kom snemma á öldinni í Keflavik og það munaði mikið um hann. Þetta er saga af fólki fremur en saga fyrirtækja og stofhana. Einstak- lingar verða tákn fyrir hópinn, og samfélagið er svo þröngt að sömu per- sónurnar skjóta upp kollinum hvað eftir annað. Þetta er fólk af öUu tagi, kaupmenn, útgerðarmenn, læknar, prestar, sprúttarar og gúttemplarar, tónlistarmenn, áhugaleikarar, bmna- liðsmenn, símastúlkur og krakkar á skólabekk." Næsta bindi af Sögu Keflavíkur verður hið síðasta að sinni og mun ná tU 1949 þegar Keflavík varð bær. „Menn eru feimnir við að fara nær nútímanum," segir Bjami. „Það er erfitt að skrifa sögu þar sem margir lifa enn þá til frásagnar. Tíminn á eft- ir að vinsa úr það sem skiptir máli. En kannski má líka kaUa það rag- mennsku!" Bókin er prýdd fjölda ljósmynda og skýringarteikninga og grafa sem Bjarni gerir sjálfur. AUt umbrot var í höndum hans líka svo að bókin er „höfundarverk" í fleiri en einum skUningi. Aðspurður sagðist Bjami ekki binda sig nákvæmlega við Keflavík ef því væri að skipta. „Ég læt ekki hreppamörk eyðUeggja fyrir mér góða sögu.“ íslensk kirkjuklæði Á morgun kl. 17 verður annar fyrir- lesturinn í fyrirlestraröð Þjóðminja- safnsins í tengslum við sýninguna Kirkja og kirkjuskrúð. Þá ætlar Elsa E. Guðjónsson, fyrrverandi deildarstjóri, að tala um íslensk kirkjuklæði á mið- öldum, meðal annars um altarisklæðin Islensku sem em einstök í sinni röð. Að fyrirlestri loknum gefst fólki tækifæri til að skoða sýninguna þar sem margir þjóðardýrgripir íslendinga og Norðmanna em saman komnir auk kirkjulíkana, stórra og smárra. Sú kvalda ást „Glitrandi fallegur prósi sýnir hvernig hamingjan myndar mótvægi við tómleikann," segir gagnrýnandi Svenska dagbladet um skáldsögu Guð- bergs Bergssonar, Sú kvalda ást sem hugarfylgsnin geyma. Hún kom út í Svíþjóð fyrir skömmu í þýðingu Inge Knutsson og hefur fengið umsagnir í öllum helstu blöðum landsins, lang- flestar lofsamlegar. „Með þessari skáldsögu hefur Guð- bergur skapað nútímaverk, hliðstætt leikriti Strindbergs um fröken Júlíu,“ segir í Nörrköp- ings tidningar, „og líkt og hjá Strind- berg er það sá and- lega efnisminni sem er hinn sterk- ari.“..þegar upp er staðið eru það aöeins verstu lunt- ar sem ekki verða fyrir áhrifum af sögunni," segir einn gagnrýnandi, og annar segir að frásögnin sé óneit- anlega ögrandi í hreinskilni sinni G^öbergur Bergs- og dirfsku. „Þrátt fyrir íjarstæðu- kennt hljómfallið og þann sérstaka stakk sem henni er skorinn er þetta mikil skáldsaga um ástina," segir enn einn. í Dagens nyheter kveður við nokkuð annan tón. Gagnrýnandi þess telur söguna vera móðgun við lífið. „Guð- bergur Bergsson hefur samið ástar- sögu sem trúir ekki á ástina og hann gætir þess í leiðinni að hafna öllum formum hennar, meira að segja þeirri samkynhneigð sem hann virðist þó trúa á í upphafi. Það er vissulega óvenjulegt. Lesandanum mun að minnsta kosti ekki standa á sama um bókina." Sú kvalda ást sem hugarfylgsnin geyma kom út hér heima 1993 og var tilnefnd til íslensku bókmenntaverð- launanna. Skáldsagan Svanurinn, sem hlaut þau verðlaun, hefur einnig kom- ið út á sænsku og hlotið miklar vin- sældir. Hún er að koma út I kilju þar í landi um þessar mundir. Garðar Thor fær styrk Garöar Thor Cortes hlaut nýlega styrk til söngnáms úr Minningarsjóði Guðlaugar B. Pálsdóttur. Garðar lauk burtfararprófi frá Söngskólanum í Reykjavik í vor sem leið og er á leið til framhaldsnáms í Vínarborg. Sjóðurinn var I stofnaður 1986 til La minningar um Guð- ’’ laugu Björgu Páls- dóttur sem lést af | slysförum það ár. Markmið sjóðsins er að styrkja tónleika- hald Kórs Langholts- kirkju og efnilega söngvara til frekara | náms. Garðar Thor er vel þekktur þótt ungur Gathar Thor “ á sé. Meðal annars lék uppe ' hann Nonna í fjöl- þjóölegum sjónvarpsþáttum sem gerðir voru um söguhetjur Nonnabókanna og lék og söng í söngleiknum West Side Story í Þjóðleikhúsinu 1995. Hann er af tónlistarfólki kominn og á ekki langt að sækja sönghæfileikana og sjarm- ann, sonur Garðars Cortes, söngvara og óperustjóra, og Krystynu Cortes pí- anóleikara. Umsjón Silja Aðalsteinsdóttir

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.