Dagblaðið Vísir - DV - 01.10.1997, Page 12

Dagblaðið Vísir - DV - 01.10.1997, Page 12
12 MIÐVIKUDAGUR 1. OKTÓBER 1997 Spurningin Spilaröu í happdrættum? Guðrún Finnsdóttir: Nei, það geri ég ekki. Eyjólfur Elíasson matreiðslu- nemi: Já, stundum. Sigríður Helgadóttir guðfræði- nemi: Já, ég spila í happdrætti Há- skólans. Bjöm Stefánsson bifvélavirki: Já, bæði í lottó og happdrætti Háskól- ans. Anna Nordal danskennari: Nei, aldrei. Þröstur Pálmason prentsmiður: Ekki neitt. Lesendur Stéttabaráttan Kastalar nútímans (skýjakljúfar) eru eins og kústsköft upp úr ruslahaug ..., segir m.a. í bréfinu. Magnús Einarsson rithöf. skrifar: í þjóðfélaginu ríkir mikil stétta- barátta. Hefðbundin skipting er há- stétt, lágstétt og millistétt. í gegnum sögima má rekja að hástéttin hefur ráðið, lágstéttin unnið verkin en millistéttin verið í hlutverki þeirra sem borða molana sem falla af borði hástéttarinnar. Hástétt og lágstétt töldu sig skap- aðar af guði en millistéttin hefur engan guð nema sjálfa sig. Það var einkenni hástéttar að hugsa ekki, að- eins að njóta þess besta. Lágstéttar- innar að vinna og dreyma. Millistétt- arinnar að hugsa og þakka það sjálfri sér. Draumamir skipta öllu máli því þeir eru innra ljósið. Lágstéttin opin- beraði þessa drauma í stórfenglegum listaverkum sem hástéttin elskaði. Samvinna lágstéttar og hástéttar var oft góð, en millistéttin, sem leit ein- ungis á sjálfa sig, átti sér ekkert nema raunveruleikann, firrtan draumum. Nú er millistéttin komin í yfir- gnæfandi meirihluta i vestrænum heimi og hefur rakað saman brauð- inu af borðum hástéttarinnar. Hún stjórnar á bak við tjöldin. En hún er flatneskjustétt og reglur hennar rúmast innan þeirrar víddar sem hægt er að sanna. Hinar stéttirnar verða sífellt fámennari og valda- minni. Listir nútímans eru orðnar eins hversdagslegar og mögulegt er. Nefna má að það er nóg fyrir IKEA- húsgögn að standa í galleríi til að valda straumhvörfum í listaheimin- um. Kastalar nútímans (skýjakljú- far) eru eins og kústsköft upp úr ruslahaug ef litið er til hinna gömlu kastala fyrri tíma sem eru fallegir með skóga og jarðrækt umhverfis. - Stórborgarumhverfi nýju kastalanna er malbik, ryk, sót, verslanir og bíl- ar. Byggðar eru margar og stórar kirkjur sem látnar eru líta út sem „listaverk", en þær eru flestar for- Ijótar og eru fámennar, því að guð er óþarfur fyrir millistéttina, sem sér guð í útliti kirkjunnar. Stíll milli- stéttarinnar er að hafa yfirborðið fal- legt en tómt að innan. Allt skal vera eftir norminu (uppáhaldshugtak millistéttarinnar). Guð og náttúran eru helstu ógn- valdarnir. Þeim verður ekki stjórnað og kannski er það versta að geta ekki reiknað ógnvaldana út í fram- tíðarspám tölvanna. Við erum í raun komin aftan að sjálfum okkur þar sem við upphaflega vorum hirðingj- ar sem tilbáðum guð og náttúruna. Vesturlönd verða fljótlega komin í þrot hvað auðlindir snertir. Og nú er lag fyrir hina ráðandi millistétt að hirða Austrið af lágstéttinni. - Hvað ætli gerist þá? Fréttastofan frestar brosinu Magnús Guðmundss. skrifar: Þrátt fyrir yfirlýsingu hins nýja fréttastjóra Ríkissjónvarpsins um að hann og starfslið hans megi brosa meira, virðist brosinu ætla að seinka eitthvað. Enn hefur a.m.k. hvorki lifnað yfir fréttunum á þess- um ríkismiðli né andlitum frétta- manna. - Auðvitað er það ekki hlut- leysinu samkvæmt að ráða stólpa framsóknarmann í stöðu frétta- stjóra á Ríkissjónvarpinu. Ekki ber fyrrum fréttastjóri Sjón- varps, Yngvi Hrafn Jónsson, hinum nýja fréttastjóra vel söguna í bók sinni „Og þá flaug hrafninn". Segist m.a. hafa þurft að berjast blóðugri baráttu við þennan næstæðsta starfsmann sinn, sem hafi ágirnst starf hans og reynt að grafa undan yfirmanni sínum (Yngva Hrafni, þá- verandi fréttastjóra). - Enn fremur lýsir Yngvi Hrafn hinum nýja fréttastjóra í bók sinni sem manni sem hann taldi skjalfestar sannanir fyrir að hefði beint eða óbeint mis- notað fréttatíma Sjónvarpsins. Ekki eru þetta nú lofsverðar mn- sagnir. Það verður líklega bið á því að Sjónvarpið hafi frumkvæði að því að grafast fyrir Um spillinguna í stjómsýslunni, verði fréttastjórinn nýi trúr kerfinu. Og enginn segir mér að stjórnsýslunni sé ekki í lófa lagið að láta kippa einni og einni frétt undan eða fyrirskipa „mildi- lega“ meðferð á þeim helstu málum sem hrjá stjómsýsluna um þessar mundir, þ.á.m. fikniefnamálin sem vindar blása nú sem ákafast inn á borð lögreglunnar og tollgæslunnar, sbr. grein Sigurðar A. Magnússonar í DV sl. mánudag. - Já, Ríkissjón- varpið er sannarlega komið í var og hættir sér áreiðanlega ekki út á opið haf aftur nema sem sporgöngu- maður, í slóð annarra fjölmiðla. Helgarlif i Reykjavik Bergþóra skrifar: Ég hef þá trú að algjört afskipta- leysi lögreglu gæti orðið lausnin á miðbæjarvandamálinu. - Hins veg- ar tel ég, að ef (og ég undirstrika orðið eO lögreglan kemur að málinu á annað borð, þá eigi hún að láta rýma svæðið. Rétt eins og bandaríski lögreglu- maðurinn segir sem fór í eftirlits- ferð með íslenskum starfsfsbræðr- um sínum sl. helgi. Svona ástand kallaði á að rýma svæðið í hans heimaborg. Svo marga unglinga ÍUÍ^fíIÍOTfÍM þjónusta allan sólarhringii Aðeins 39,90 mínútan M :'-£l - - -----|,5 , s,ma 5000 kl. 14 og 16 Helgarstemning í miöborginni aö næturlagi. - Á aö rýma svæöiö eða láta kyrrt liggja? sagðist hann raunar aldrei hafa séð. Lögreglan á ekki að láta neitt af- skiptalaust sé hún á staðnum, það er veikleikamerki. Að stjaka við einum og einum drykkjurút eða ólátabelgi og flytja hann í unglinga- athvarf? Það er engin aðgerð. Menn með fullu viti fara ekki í miðborg- ina að næturlagi. Þeir slösuðu geta sjálfum sérum kennt að meira eða minna leyti. Þarna er staður óláta- belgjanna, ekki sómakærra borgara. - En aðra hvora afstöðuna verður að taka. I>V Opinberir lífeyrissjóðir - ekki við heldur þeir Gunnar Árnason hringdi: í forystugrein Mbl. sL laugar- dag er íjallað inn lífeyrissjóðina sem séu að eflast. Að undantekn- um opinberu lífeyrissjóðunum. Þeir séu kapituli út af fyrir sig og vanti milljarðatugi upp á að þeir eigi fyrir skuldbindingum. Skattgreiðendur séu ábyrgir fyr- ir mismuninum! Nú hafl tekist samkomulag um endurskipu- lagningu lífeyrissjóðs ríkisstarfs- manna og vonir standi til að staða hans batni í framtíðinni. - Ég spyr: Er það hlutverk okkar hinna að sjá um óreiðu lífeyris- sjóða opinberra starfsmanna? Ég svara og segi: Nei, aldeilis ekki. Ferðamálaráð og Flugleiðir Sveinbjörn hringdi: Ég sá auglýsta ferðamálaráð- stefnu sem Ferðamálaráð stend- ur fyrir. Stendur ráðstefnan í tvo daga, samkvæmt auglýsingunni. Það þótti mér furðulegt að fyrri dagurinn, heill dagur, er í raun tekinn frá fyrir Flugleiðir hf. þar sem forsvarsmenn og fulltrúar félagsins ræða málin. Er Ferða- málaráð þá eifaldlega orðið eitt af Flugleiðabatteríunum? Tagl- hnýtingur Flugleiða? í stappi hjá Laugafiski Erlendur skrifar: í frétt á Stöð 2 sl. laugardags- kvöld var frétt um umsvif fyrir- tækis eins á landsbyggðinni. Fyrirtækið hét Laugafiskur sem hyggst m.a. framleiða hráefni í gæludýrafóður. Eitt innskot með frétt þessari hneykslaði mig stór- kostlega. Þarna sást maður sem stappaði með fótunum án afláts, og stóð í plastkari eða öðru íláti, þar sem líklega hefur verið um hausa eða hryggi að ræða. Varla er framleiðslan þarna með þess- um hætti, í líkingu við það sem tíðkaðist i víngerðinni hér áður fyrr, að menn tróðu á vinberjun- um. En þama stóð sem sé ein- hver í stappi hjá Laugafiski og tróð mikinn. Reykvíkinga í borgarstjórn Guðbjörg skrifar: Mikið er ég sammála honum Ásgeiri Hannesi, sem skrifaði fá- gætan pistil í Dag-Tímann sl. laugardag um síðasta Reykvík- inginn í borgarstjóm. „En eins og málin standa nú flykkjast sveitamenn í flest þingsæti Reykjavíkur og raunar í borgar- stjórn líka. Borgin er undirlögð af sveitamönnum í hamingjuleit á gúmmískóm og senn líður að því að stjómmálaflokkar bjóða sig ekki fram lengur I Reykjavík heldur átthagafélög sveita- manna," segir Ásgeir Hannes. - Því spyrja menn nú ekki lengur um borgarstjórann í Reykjavík, heldur um Reykvíkinginn í borg- arstjórn. - Já, nú er að duga eða drepast fyrir Reykvíkinga. Laugardags- opnun Sorpu Ragnar skrifar: Það er undarleg ráðstöfun hjá Sorpu (a.m.k. í vesturbæ Reykja- víkur) að opna ekki á laugardög- um fyrr en kl. 12.30. Margir eru einmitt að snyrta til hjá sér í garði eða við húslóðina og vilja koma úrgangi til Sorpu fyrir há- degi á laugardegi. En þá er lokað og bannað að skilja eftir nokkuð fyrir utan hliðið. En hvers vegna ekki að opna fyrr og loka þá þeim mun fyrr? Eða er þetta starfsmannapólitíkin? Eins og var gjaman svarað um verslun- arfólkið hér áður: fólkið þarf nú líka aö hvílast!

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.