Dagblaðið Vísir - DV - 01.10.1997, Síða 15

Dagblaðið Vísir - DV - 01.10.1997, Síða 15
MIÐVIKUDAGUR 1. OKTÓBER 1997 15 Forræðisdeila - trúarbragðastríð „Augljóst er af klæðaburöi þeirra Dagbjartar og Rúnu að faðir þeirra legg- ur áherslu á að þær tilheyri Isiam," segir m.a. í grein Steinunnar. I Tyrklandi gilda ekki guðslög í réttarsölum, heldur manna, a.m.k. í Istanbúl og Ankara, þótt annað kunni að reynast á landsbyggð- inni. Tyrkland gerðist aðili að varnarbandalagi vestrænna lýð- ræðisþjóða, NATO, 1951 og hefur því orðið að laga réttarfar sitt að kröfum lýðræðisins. En Kóraninn á djúpar rætur í þjóðarsálinni og nútímahugmyndir um mannrétt- indi kvenna samrýmast illa þeim lífsstíl sem Múhameð spámaður boðaði upp úr 600 eftir Krist. Sophia Hansen hefur háð von- litla baráttu sína af aðdáunar- verðu úthaldi og þreki í sjö ár, lengi framan af óstudd af öðrum en sínum nánustu og almennings- álitinu á íslandi. Að undanförnu hafa þó íslenskir ráðamenn tekið við sér og virðast vaknaðir til vit- undar um alvöru málsins sem hlýtur að snerta grundvallaratriði í viðskiptum samherja í NATÓ. ís- lenskum stjórnvöldum ber að krefjast þess í máli Sophiu Han- sen að Tyrkir sýni fram á að rétt- arfarið i landi þeirra sé eitthvað meira en langdreginn skrípaleik- ur. Steinunn Jóhannesdóttir Enn einum þætti í skríparéttarhöldunum í Istanbúl er lokið. 24. september var Halím A1 sýknaður af ákæru mn að hafa brotið á lögbundnum rétti Sophiu Hansen til þess að umgangast dætur sínar. Sumarmánuð- ina tvo sem hún átti að fá að vera með þeim fór hann með telpurn- ar til fjalla i lítið þorp í austasta hluta Tyrk- lands. Þar var þeim haldið í „húsarrest", eins og tíðkast um kvenkynið í löndum sanntrúaðra múslíma en móður þeirra var boðið að leita þær uppi þegar þrír dagar voru eftir af tim- anum sem henni var dæmdur til umgengni við þær. Vantreysti yfirvöldum Sophia Hansen afþakkaði boðið. Hún sagðist vantreysta yfirvöldum til þess að tryggja öryggi sitt. Hún óttaðist með öðrum orðum að ver- ið væri að bjóða henni að ganga í opinn dauðann. Ef til vill var rangt af henni að láta ekki á það reyna. Kannski hefði verið opnuð rifa á húsdyr afa og ömmu telpnanna á elleftu stundu og hún fengið að segja hæ og bæ við bömin sín. Halím A1 hefði þar með talist standa við sinn hluta sáttmál- ans. Ef til vill hefði hann ekki opnað og þar með orðið brot- legur í n-ta sinn. Og hverju hefði það breytt? Þriðji möguleikinn er sá að þorpsbúar hefðu gripið til sinna ráða og grýtt þessa óþægilegu konu til bana. Við þekkjum þá refsingu úr Biblíunni og jafn- vel yngri bókmennt- um en nú á dögum eru það helst ofstæk- isfullir múslímar sem brúka hana til að gera út af við konur sem ekki semja sig að siðum samfélagsins. Réttarfar og trúarbrögö Það er varla hægt að skilja þessa frægu forræðisdeilu öðru vísi en gera sér grein fyrir þeim trúarlegu undirtónum sem lita hana og ólíkar réttarfarshug- myndir þjóðanna tveggja sem að baki standa. Tyrkir eru múslímar, íslend- ingar kristnir. Augljóst er af klæðaburði þeirra Dagbjartar og Rúnu að faðir þeirra leggur áherslu á að þær tilheyri Islam. Það er nóg til að vekja óhug vest- rænna kynsystra Sophiu Hansen, enda era engin trúarbrögð í heim- inum jafn mikil ógn við frelsi, sjálfstæði og líf kvenna og Islam eins og það er praktíserað af heit- trúarmönnum í æ fleiri löndum. Kjallarinn Steinunn Jóhannesdóttir rithöfundur „íslenskum stjórnvöldum ber að krefjast þess í máli Sophiu Han- sen að Tyrkir sýni fram á að rétt- arfarið í landi þeirra sé eitthvað meira en langdreginn skrípaleik- ur.“ Ný þjónustumiðstöð fyrir aldraða Á undanförnum misseram hef- ur Reykjavíkurborg gert fjölda samninga við hin ýmsu félagasam- tök um að þau annist rekstur í umboði borgarinnar er tengist þjónustu við félagsmenn þeirra. Nýlega var gerður slíkur samning- ur við Félag eldri borgara um rekstur þjónustumiðstöðvar fyrir aldraða á Þorragötu í tengslum við fjölbýlishúsin fyrir aldraða við Þorragötu nr. 5, 7 og 9. Var þar með brotið í blað í rekstri þjón- ustumiðstöðva fyrir aldraða Reyk- víkinga. I samningum felst að Fé- lag eldri borgara tekur að sér að reka félags- og tómsundastarf fyrir félagsmenn sína og aðra eldri borgara í húsnæði sem Reykjavik- urborg leggur til við Þorragötu. Reykjavíkurborg rekur 15 þjón- ustumiðstöðvar og þjónustusel víðs vegar um borgina og er Þorragatan 16. slíka miðstöðin. í þeim fer fram öflugt félags- og tómstundastarf fyrir aldraða auk þess sem ýmiss konar þjónusta er á boðstólum. Rekstur í höndum Félags eldri borgara Vil ég nú gera stuttlega grein fyrir efnisatriðum samkomulags- ins við Félag eldri borgara. Til reksturs starfseminnar telst annars veg- ar rekstur fé- lags- og tóm- stundastarfs og hins vegar rekst- ur húsnæðis, þ.e. rafmagn, hiti, ræsting og ófyrirséð til- fallandi viðhald, sbr. 5. gr. þessa samnings. Félagsmálastofnun Reykjavík- urborgar, öldranarþjónustudeild, greiðir Félagi eldri borgara i Reykjavík framlag til reksturs starfseminnar. Framlag þetta er ákveðið við gerð fjárhagsáætlunar hverju sinni. Gert er ráð fyrir að fram- lag borgarinnar greiðist út ársfjórð- ungslega fyrirfram með jöfnum greiðsl- um i fyrsta sinn við gildistöku samn- ingsins. Við skipulag starfseminnar skal Félag eldri borgara leitast við að hafa samráð við íbúa fjölbýlishússins við Þorragötu 5, 7 og 9 og aðra notendur þjónustunnar. Skip- uð hefur verið sér- stök stjórn með fimm fulltrúum, þremur frá Félagi eldri borgara, ein- um frá félagsmálaráði Reykjavík- ur og einum frá stjóm húsfélags- ins við Þorragötu 5, 7 og 9. Stjóm- in fylgir eftir framkvæmd samn- ingsins. í samningnum er kveðið á um að árlega skuli Félag eldri borgara í Reykjavík senda Félagsmála- stofnun Reykjavíkurborgar, öldr- unarþjónustudeild, skýrslu með upplýsingum um starfsemina, ein- staka þætti hennar, þátttöku o.fl. Félags- málastofnun Reykja- víkurborgar, öldrunar- þjónustudeild, fer jafn- framt yfir ársreikn- inga vegna starfsem- innar á Þorragötu 32, þá er þeir liggja fyrir. Gildistími samnings- ins er frá 1. september 1997 og til loka árs 1998. Tækifæri fyrir aldraða Eins og fyrr sagði þá er hér farið inn á nýja braut í rekstri þjón- ustumiðstöðvar fyrir aldraða. Vonandi reynist það til þess faúið að efla og bæta það starf sem framundan er í hinni nýju þjónustumiðstöð á Þorragötu 16. Að mínu mati mun samningurinn gefa eldri borgur- um tækifæri til að móta starfið eftir eigin þörfum og óskum, því félagið er svo sannarlega með höndina á púlsinum í eigin hópi. Vonandi reynist þetta fyrirkomu- lag vel og öllum til hagsbóta. Guðrún Ögmundsdóttir „Félagsmálastofnun Reykjavíkur- borgar, öldrunarþjónustudeild, greiðir Félagi eldri borgara í Reykjavík framlag til reksturs starfseminnar. Framlag þetta er ákveðið við gerð fjárhagsáætlun• ar hverju sinni.u Kjallarinn Guðrún Ögmundsdóttir form. félagsmálaráðs Reykjavíkurborgar Með og á móti Er miðborg Reykjavíkur hættuleg að næturlagi? Gary Steinberg, bandarískur rann- sóknarlögreglu- maður, sem kynnti sór löggæslu í Reykjavík. Hættuástand „Mér fannst ástandið í miðborg- inni ekki gott. Þetta er alla vega ólíkt því sem ég á að venjast í Bandaríkjun- um, sérstaklega hve margir ölv- aðir unglingar voru á ferli. Þar myndum við ekki sjá þessa stöðu. Við gæf- um aldrei svona mörgu ölvuðu fólki færi á að safnast saman á götunni. Það skapar hættu- ástand. Það þarf ekkert mikið að gerast og þá getur allt farið úr böndunum enda hund- ruð manna á ferli og margir ef ekki flestir ölvaðir. í Bandaríkjun- um myndum við rýma svæðið. Fullorðnir jafnt sem unglingar ættu á hættu að vera kærðir. í Bandaríkjunum lendum viö aðal- lega í vandræðum með ölvað fólk í menntaskólapartíum í heimahús- um. Lögregla þarf oft að hafa af- skipti af svoleiðis samkomum. Þetta ástand í miðborginni skapar Reykjavíkurlögreglunni vissulega erfiðleika. Eins og íslenskir lög- reglumenn hafa sagt mér þá er boöið upp á þessi vandræði með fjölmörgum vínveitingastöðum í miðborginni sem laða fólk að.“ Ekkert hættulegri en aðrir staðir „Það yrði borgarastrið ef lög- reglan ætlaði sér að rýma mið- borgina. Það er hugsunarháttur sem ekki geng- ur hér á íslandi. Þannig aðgerðir sjáum við í lög- regluríkjum en eiga auðvitað ekki að sjást hér á landi. Miðborgin er ekkert hættu- legri en aðrir staðir í borg- inni. Það eru vandræði og slagsmál í partíum í heimahúsum um alla borg. Ég tel ekkert meiri líkur á því að verða slasaður eða jafnvel drepinn í mið- borginni en annars staðar í borg- inni. Mér finnst gott að lögreglan heldur sig í vissri fjarlægð og gríp- ur síðan inn í ef eitthvað fer úr- skeiðis, Mér finnst þaö góðar og skynsamlegar aðgerðir. Ég er sam- mála að það skapar hættu að hleypa öllum út af vínveitingahús- um á sama tíma. Það ætti aö leyfa eigendmn vínveitingahúsa að ráða hvenær opið er. Það þarf að hætta öllum þessum boðum og bönnum og gerá þetta sveigjanlegra. Ef ungt fólk ætlar að skemmta sér þá mun það gera það. Borgaryfirvöld verða að grípa þarna inn í með því að keppa við þetta með einhverj- um hætti. Hvað með félagsmið- stöðvar í hverfunum. Er ekki hægt að gera eitthvað fyrir unglingana þar í stað þess að þeir flykkist all- ir í miðborgina? Gera eitthvað skemmtilegra annars staðar og dreifa hópunum í stað þess að láta þá alla safnast fyrir í miðborg- inni.“ -RR Kjallarahöfundar Athygli kjallarahöfunda er vakin á því aö ekki er tekið viö greinum í blaöið nema þær ber- ist á stafrænu formi, þ.e. á tölvu- diski eða á netinu. Netfang ritsfjómar er: dvritst@centrum.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.