Dagblaðið Vísir - DV - 01.10.1997, Blaðsíða 23

Dagblaðið Vísir - DV - 01.10.1997, Blaðsíða 23
MIÐVIKUDAGUR 1. OKTÓBER 1997 31 Sviðsljós < i i I I I BIFREIÐASTILLINGAR NICOLAI David Bowie í beinni útsend- ingu á Netinu Furðupopparinn hefur lengi verið á undan eign samtíð, eins og margar plötur hans frá því í gamla daga bera vitni um. Ekki vill karlinn láta það spyrjast til sín að hann fylgi ekki straumi tímans og bregði sér á Netið. Þess vegna ætlar hann að halda fyrstu tónleika sina í beinni út- sendingu á Netinu í Boston í kvöld. Tónleikarnir hefjast klukkan hálfeitt í nótt að ís- lenskum tíma. Slóðin er: www.davidbowie.com. David Bowie hefur verið á tónleikaferðalagi um Bandarík- in undanfarnar vikur. Ferðalag- ið kallar hann „Jarðarbúaferð- ina“. Viðtökur hafa hvarvetna verið mjög góðar, bæði aðdáend- anna og ekki síður gagn- rýnenda. Sumir þeirra eiga ekki nógu sterk lýsingarorð til að tjá hrifningu sína. Netverjar geta kynnt sér her- legheitin í kvöld. Leikkonan Tori Spelling fór í sitt fínasta púss á mánudagskvöld þegar hún mætti til frumsýningar á myndinni „The House of Yes“ í Hollywood. Mynd þessi er flokkuö sem sálfræðilegur gamanleikur og gerist á þakkargjörðar- hátíð þeirra Kananna. Aörir leikarar sem koma fram í myndinni eru Parker Posey, Rachael Leigh Cook og Genevieve Bujold. Símamynd Reuter Pamela bráðum með þrjá stráka í húsinu Pamela Anderson, fyrrverandi Strandvarðagella, á von á öðru bami sínu eftir þrjá mánuði. Hún veit þegar hvers kyns barnið verður og er búin að gefa því nafn. Pamela er búin að segja frá þvi að Brandon litli eigi von á bróður sem mun hljóta nafnið Dylan Jagger Lee. Hún segir að Dylan-nafnið sé ekki í höfuðið á söngvaranum Bob Dylan. Jagger-nafnið er hins vegar nafn Micks Jaggers. „Bráðum verð ég með þrjá litla drengi í húsinu, börnin mín tvö og svo Tommy,“ sagði leikkonan hlæj- andi í viðtali við erlent tímarit. Með Tommy á hún við villtan eigin- mann sinn. Pamela er nýbúin að skrifa undir sex ára samning um leik í nýjum sjónvarpsmyndaflokki. Það er því ekki öll von úti um að aðdáendur Pamelu hér á landi fái að njóta feg- urðar hennar á skjánum á ný. Karl leitar til gömlu barnfóstrunnar: Tiggy fer með Harry til Afríku Karl Bretaprins hefur persónu- lega boðið Tiggy Legge-Bourke að koma með í safaríferð til Afríku þar sem hún á að vera Harry prins til aðstoðar og skemmtunar. Áður en Díana prinsessa lést hafði hún lofað Harry syni sínum að taka hann með til Afríku í stuttu skólafríi í lok október. Karl ætlar nú að efna lof- orðið. Vilhjálmur verður ekki með þar sem hann verður önnum kafinn í Eton-skólanum. Ákvörðun Karls um að taka Tiggy, sem hætti barnfóstrustörfum hjá honum fyrr á þessu ári vegna kröfu Díönu að því að fullyrt var, staðfestir hversu mikilvægu hlut- verki hún mun gegna í uppeldi prinsanna nú þegar Díana er öll. Áður hafði Tiggy, sem prinsarnir dá og dýrka, aðeins farið með í einka- skíðaferðalög og til konungshalla eins og Balmoral. Díana var afbrýðisöm út í Tiggy vegna þess hversu prinsarnir hændust að henni. En þegar Díana lést gerði Karl strax boð eftir Tiggy og bað hana um að koma og hugga Harry og Vilhjálm. Síðan hefur hún verið til taks til að hjálpa þeim að vinna úr sorginni. Sumir segja að enginn þekki þá eins vel og Tiggy. Carmen Electra, nýjasta gellan í Strandvörðum, var einu sinni með Prince: Aukablað Miðvikudaginn 15. október mun aukablað um hús og húsbúnað fylgja DV. Meðal efnis: Að gera upp gömul hús Að byggja eigið hús Innréttingar Vinnuaðstaða Öryggi á heimilinu Látið híbýlin blómstra Híbýlaþróun Tíska í húsbúnaði Lýsing Gluggatjöld Allt um flutninga Þeim sem luma á skemmtilegum hugmyndum eða vilja koma á framfæri efni í blaðið er bent á að hafa samband við Sesselju Traustadóttur, blaðamann DV, hið fyrsta í síma 550 5819, bréfsími 550 5020. Þeir auglýsendur, sem hafa áhuga á að auglýsa í þessu aukablaði, hafi samband við Selmu Rut Magnúsdóttir, auglýsingadeild DV, hið fyrsta í síma 550 5720. Vinsamlegast athugið að síðasti skiladagur auglýsinga í þetta aukablað er fimmtudagurinn 9. október. Kærastinn var á hærri hælum og fékk sparkið Strandvarðagellan Carmen El- ectra, sem kom í staðinn fyrir yflr- geUuna Pamelu Anderson, sagði kærastanum upp af því að hann gekk á hærri hælum en hún. Kannski ekki skrítið þar sem kærastinn var enginn annar en dvergpopparinn Prince. Prince er vanur að ganga á fimmtán sentímetra hælum. Þannig tókst honum að kíkja yfir kollinn á Carmen. Annað var upp á teningnum þeg- ar kappinn fór úr skónum. Þá var Carmen hvorki meira né minna en fímm sentímetrum hærri. Og það getur engin kona með sjálfsvirð- ingu liðið. „Það versta sem getur komið fyr- ir mann er að þurfa að fara frá ein- hverjum sem maður elskar, ekki vegna einhvers sem hann hefur gert af sér, heldur sjálfs manns vegna,“ segir Carmen. Leiðir þeirra Carmenar og Prince lágu saman árið 1992. Þá sá hann hana dansa á næturklúbbi. Hann sendi flugvél eftir henni og fékk hana til að dansa fyrir sig ein- an í stórhýsi sínu í Minneapolis. Þá varð ekki aftur snúið. Prince jós í Carmen peningum, fékk hana til að syngja inn á plötu og þar fram eftir götunum. Platan seldist ekkert og skömmu siðar heyrði ástarsamband þeirra sög- unni til. í opinskáu viðtali við breskt slúðurblað segist Carmen hafa ver- ið vitlaus í stráka frá fyrstu tíð. „Ég fæddist vitlaus í stráka. Ég man vel eftir að hafa daðrað við þá í leikskólanum. Ég reyndi að lemja þá í klessu. Carmen Electra er verður arftaki Pamelu Anderson. Þannig fór ég nú að,“ segir Car- men. Nú ber hún sig aðeins öðruvísi að. Að vísu stekkur hún enn á strákana. Ekki til að lemja þá, heldur til að draga þá í bólið. „Um leið og ég fæ símanúmerið þeirra stekk ég á þá,“ segir Carmen. Nýja strandvarðagellan er karl- mannslaus þessa stundina. Hún er þó að líta í kringum sig. Vinir henn- ar vara þó við að erfítt sé að gera henni til hæfís í svefnherberginu. „Ég er ekki bara vandlát," segir Carmen. „Þegar ástin er annars veg- ar er ég vön því besta sem völ er á. Ég ætlast til að karlinn sé fullur sjálfstrausts, kynþokkafullur og leiftrandi. Og hann verður að kunna að gleðja konu.“ Hún bætir við að útlitið skipti ekki höfuðmáli.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.