Dagblaðið Vísir - DV - 01.10.1997, Blaðsíða 24
32
MIÐVIKUDAGUR 1. OKTÓBER 1997 JLj’V
ikvikmyndir
Konur, leikkonur, geimverur
í Contact leikur Jodie Foster
konu umkringda körlum, sem þarf
að berjast fyrir tilverurétti sínum,
svona ekki ósvipað og hún væri
geimvera sem brotlent hefði á jörð-
inni og þyrfti að sanna mannkyninu
tilvist sína. Ellie Arroway er kona
mitt í orðræðu vísindanna, kona
sem á yfirborðinu samþykkir lög-
mál raunvísinda en afneitar þeim
undir niðri með óbilandi trú sinni
á, og þörf sinni fyrir eitthvað sem er
röklaust og ósannanlegt, svo sem
tilvist geimvera. Þetta er ekki í
fyrsta sinni sem Foster leikur hlut-
verk þarsem staða hennar sem kona
er mikilvægur þáttur í myndinni,
en hlutverk hennar sem FBI lög-
reglukonan Clarice
Starling í mynd
Jonathan Demmes
The Silence of the
Lambs (1991), var
hafið til skýjanna
sem dæmi um auk-
ið jafnrétti kvenna
og breytt viðhorf í
þeim málum. Á
hinn bóginn þótti
myndin bera vott
um hatur á sam-
kynhneigðum og
tóku bandarísk
samtök þeirra sig
til og opinberuðu
samkynhneigð
Fosters (án hennar
samþykkis eða við-
urkenningar) sem mótmæli við
þátttöku hennar í myndinni. Nú
þegar lesbíur eru orðnar að hálf-
gerðu tískufyrirbæri þykir kyn-
hneigð Foster ekki eins mikið til-
tökumál, en eftir stendur þónokkur
efasemd um kvennapólitík þá sem
þöglu lömbin hafa upp á að bjóða.
Kvenfrelsi það sem þar er iðkað
kemur nefhUega dálítið spánskt fyr-
ir sjónir með tilliti til stöðu persónu
Fosters innan myndarinnar. Sterl-
ing kemst áfram, ekki á því að vera
kona heldur á þvi að vera meira
karlmenni en karlmennimir. Hún
er kynlaus fremur en kvenkyns og
er sú hugsun dregin skýrt fram i
andstæðunni sem sett er upp milli
hennar og fómarlambanna, þarsem
hún er grönn og stælt og næstum
karlmannleg, með sinn sérþjálfaða
lögreglulíkama meðan þær konur
sem drepnar eru af Buffalo Bill em
þéttvaxnéir og kvenlegar, og vinna
hefðbundin kvennastörf, svo sem
saumaskap. Meðan Sterling er ein
af strákunum og sigrast þessvegna á
Bill, em þær fómarlömb kvenleika
síns.
í Contact er kvenleiki Arroway
hinsvegar dreginn fram á jákvæðan
hátt. Sem kona er staða hennar inn-
an raunvísindanna ekki eins rig-
bundin lögmálum þeirra og hún er
sú eina sem hefur rétt á og getur
vingast við geimverumar. Hún skil-
ur þær betur og á auðveldara með
að trúa á þær, af því að hún er eins
og þær, alltaf dálítið utan (karla-
)samfélagsins, eins og kemur skýrt
fram þegar fyrrverandi yfirmaður
hennar og höfuðandstæðingur yfir-
tekur verkefni hennar eftir að sam-
bandið hefúr komist á, sambandið
sem hann neitaði alltaf að trúa á
(enda deyr hann verðskuldað). Aðal-
hjálparmaður hennar er líka eins-
konar geimvera, hinn dauðsjúki
auðjöfur S.R. Hadden (John Hurt)
sem býr í flugvél og að lokum í
geimstöð, því hann þolir ekki við á
jörðinni.
Samband Foster við geimverum-
ar minnir á annað frægt samband
geimveru og konu þarsem eru Alien
myndirnar og leikkonan Sigoumey
Weaver. Þar era geimveran og Wea-
ver andstæðingar, en reglan er sú
sama, Weaver er sú eina sem getur
sigi-ast á geimveranni þarsem hún
er sú eina sem þekkir hana og skil-
ur (og nú í væntanlegri fjórðu mynd
Species.
er hún beinlínis orðin geimversk að
hluta og sambandið því enn nán-
ara). í hinni meingölluðu en sjar-
merandi Species er geimveran bein-
línis ræktuð sem kona (á sömu for-
sendu og risaeðlurnar í Jurassic
Park voru kvenkyns, kvenkynið var
talið viðráðanlegra) og í einni af for-
mæðrum geimveramyndanna, The
Day the Earth Stood Still (1951), er
það konan sem vingast við geimver-
una í trássi við fordóma karlanna.
Málið er ljóst; konur era ekki kon-
ur, þær era geimverur.
(p.s. pant fá far með næsta skipi)
Eitt af því sem gerir Contact að
óvenjulegri geimverumynd er sú
áhersla sem lögð er á sambandið
sjálft. Geimverumyndir era yfirleitt
uppteknar af því hvað það er sem
geimveramar vilja og skiptast þá
iðulega i tvo einfalda og aðgengilega
flokka; heimsyfírráðamyndir, sem
era margar og margvíslegar, s.s.:
The Thing (1951)
The War of the Worlds (1953)
Invasion of the Body Snatchers
(1956, endurgerð 1978 og 1994)
Plan 9 from Outer Space (1956)
They Live (1988)
The Puppet Masters (1994)
Independence Day (1996)
og heimsfriðarmyndir sem eru
öllu færri, s.s.:
The Day the Earth Stood Still
(1951)
Close Encounters of the Third
Kind (1977)
Cocoon (1985)
The Abyss (1989)
fyrir utan allt Star Trek apparatið.
Mars Attacks Tim Burtons (1997)
gerir síðan stólpagrín að hvoru-
tveggja með því að láta sína drag-
drottnandi marsbúa nýta sér heims-
friðartemað, ekki til að ná heimsyf-
irráðum, heldur til að skemmta sér
í ’interaktívum’ tölvuleik við mann-
kynið. Öllu drama kastað út um
gluggann, og glottandi rauðeygðir
marsbúamir gætu ekki haft minni
áhuga á deilum karlhetja ofantal-
inna mynda um illan eða góðan til-
gang gesta utan úr geimnum. -úd
KflKMY
IMNR
Sam-bíóin - Contact
Konan sem féll til stjarnanna ***
Jodie Foster er konan
sem féll til stjamanna í
þessari tilvistarlegu
geim(vera)mynd um trú
og tilverur. Vísindakon-
an Ellie Arroway (Fost-
er) hefur helgað líf sitt
leitinni að lífi í geimn-
um og þegar hún fær
heimboð frá fjarlægri
stjömu hikar hún ekki
við að grípa tækifærið
til að breyta (al)heims-
myndinni eins og við
þekkjum hana. Leik-
stjóranum Robert Zemeckis og handritshöfundunum James V. Hart og
Michael Goldenberg er mikið í mun að aðgreina sig frá tæknibrellu-
þungum og fantasiufullum geimmyndum og skapa í staðinn raunsæa og
vitræna mynd fyrir hugsandi fólk. Þetta tekst vissulega, en ákafinn er
svo mikill að þeir kollkeyra sig á stundum; smá fantasía hefði verið holl
og góð og létt aðeins á öllu dramanu og nærvera forseta Clintons varð
fremur til þess að minnka raunsæið en að auka á það. Þrátt fyrir aðdá-
unarverðan aga og greinilegan vilja til að draga úr ofurdramatískum há-
punktum varð dramatíkin á tíðum yfirkeyrð, og skipti tilgerðarleg tón-
list Alan Silvestri þar sköpum. Þessi atriði skemmdu dálítið fyrir og
gerðu það að verkum að það sem hefði getað orðið hæsta klassa mynd
nær ekki alveg að hefja sig upp til stjamanna. Þar fyrir utan er Contact
geim(vera)myndin sem beðið hefur verið eftir.
Handritið er vel skrifað og byggt á áhugaverðri sögu, þarsem tekist er
á við þessa grundvallarspumingu bakvið geimæði það sem heltekur nú
heimssbyggðina; eram við, og getum við verið, ein í alheiminum? Þess-
ari spumingu er siðan stillt upp við hlið spurningarinnar um trúna og
trúarbrögð og báðar era speglaðar í heimsmynd og vinnubrögðum raun-
vísinda. Þessi þrjú þungavigtaratriði era ekki aðeins gerð aðgengileg
heldur áhugaverð og hugvekjandi, auk þess sem skemmtanagildið
gleymist ekki. Ánægjan er aðallega fólgin í því hvað myndin er vel leik-
in og er valinn leikari í hverju rúmi. Jodie Foster hefur aldrei verið
betri en í þessu hlutverki einangranar og sambandsleitar og minnir
ekki lítið á gestkomandi geimvera David Bowie í mynd Nicolas Roeg,
The Man Who Fell to Earth (1976). Aðalmennimir Matthew McConaug-
hey, Tom Skerritt og James Woods skila allir sínu fagmannlega, en að
öðram ólöstuðum era það þau Angela Bassett, John Hurt og Jake Bus-
ey sem eiga eftirminnilegustu og markverðustu karakterana.
Þegar loksins kemur að tækinbrellum og tækjakosti þá er
hvorttveggja sérlega vel útlitshannað, ’sambandið’ sjálft er vel útfært og
geimskipið er einstaklega fallegur og eftirsóknarverður farkostur (sér-
staklega ef maður fær búninginn lika lánaðan). I heildina séð skilar
Contact því sem hún lofar; sterkri og skemmtilegri mynd af því einfalda
en samt víðtæka atviki sem samband við verur utan úr geimi hlýtur að
vera.
Leikstjóri: Robert Zemeckis. Handrit: James V. Hart og Michael Golden-
berg, eftir skáldsögu Carl Sagan. Aðalhlutverk: Jodie Foster, Matthew
McConaughey, James Woods, John Hurt, Tom Skerritt, Angela Bassett,
William Fichtner, Jake Busey.
Úlfhildur Dagsdóttir.
TOPP 2 0
- aðsókn dagana 26.-28. september. Tekjur í milljónum dollara og helldartekjur.
Fyrsta stórmyndin frá Draumasmiðju Spielbergs og félaga, The Peacemaker,
nær efsta sætinu af In & Out þessa vikuna, en ekki eru tölurnar sannfær-
andi, sjálfsagt hafa Draumasmiðjumenn búist við meiri aösókn. Sú mynd
sem erí þriðja sæti, Soul Food erí raun að gera það mun betur en hún var
sýnd í mun færri sýningarsölum.
Tekjur Heildartekjur
l.(-) The Peacemaker 12.311 12.311
2.(1) In & Out 11.225 30.376
3.(-) Soul Food 11.197 11.197
4.(-) The Edge 7.733 7.733
5.(2) The Game 5.015 35.810
6.(4) L.A. Confldentlal 4.422 11.574
7.(3) Wishmaster 3.134 10.846
8.(5) The Full Monty 2.752 13.999
9.(6) A Thousand Acres 1.586 5.528
10.(7) G.l. Jane 1.345 44.618
11.(9) Alr Force One 1.216 167.901
12.(8) Money Talks 1.033 38.741
13.(13) Men In Black 0.906 241.217
14.(-) My Best Friend’s Wedding 0.726 122.510
15.(14) George of the Jungle 0.668 100.849
16.(12) Consplracy Theory 0.631 73.632
17.(15) Hercules 0.569 94.992
18.(10) Fire Down Below 0.464 14.921
19.(11) Hoodlum 0.437 22.836
20.(-) Nothing to Loose 0.424 43.462