Dagblaðið Vísir - DV - 01.10.1997, Qupperneq 28
36
MIÐVIKUDAGUR 1. OKTÓBER 1997
Kommar
eða aftur-
haldsmenn
„Sá sem hefur hátt um að það
sé rangt og ósiðlegt að ríkir verði
forríkir og forríkir ofsaríkir
meðan hagur þeirra sem lakast
eru settir versnar enn - þeir fá
að heita kommar eða afturhalds-
menn á víxl.“
Árni Bergmann rithöfundur,
ÍDV.
Andhverfa
jafnréttismála
„Starfsemi kærunefndar jafn-
réttismála hefur verið að snúast
upp í andhverfu sína og hún er
orðin varðhundur kerfísins í
stað þess að vernda hagsmuni
einstaklingsins, einkum
kvenna."
Vildís K. Guðmundsson versl-
unarmaður, í Morgunblaðinu.
Ummæli
Grátbiðjandi stjórnvöld
„Það var eingöngu fyrir
gunguskap, þröngsýni og skort á
nýjum hugsunarhætti að íslensk
stjórnvöld köstuðu sér fyrir fæt-
ur Bandarikjamanna og grát-
báðu þá um að hafa herinn hér
áfram.“
Heimir Már Pétursson, fram-
kvæmdastjóri Alþýðubanda-
lagsins, í Degi-Tímanum.
Prakkarar og hrekkja-
lómar á ritvellinum
„Helst er ég fráhverfur því, að
taka upp þá siðfræði prakkara og
hrekkjalóma á ritvellinum, að
fara út fyrir málefnið og veitast
að persónu og list þeirra sem ég
deili við í skrifum minum.“
Bragi Ásgeirsson myndlist-
argagnrýnandi, í DV.
Myrkur er ákvaröaö sól og sjón-
baug.
Myrkur
Myrkur í stjörnufræðilegum
skilningi (stjörnumyrkur) telst
þegar sólmiðja er 18° eða meira
undir sjónbaug. Er þá himinninn
aldimmur yfir athugunarstað,
þannig að stjömur af 6. birtustigi
sjást í hvirfilpunkti í góðu
skyggni. í siglingafræði telst
myrkur (siglingamyrkur) þegar
sól er 12° eða meira undir sjón-
baug, en þá sést hafsbrún óglöggt
eða ekki. Almannamyrkur telst
þegar sól er 6° eða meira undir
sjónbaug. Er þá svo skuggsýnt að
venjuleg útistörf verða ekki unn-
in án ljósa. Á íslandi verður ekki
stjörnumyrkur frá 6. apríl til 6.
septemher eða þar um bil.
Blessuð veröldin
Sól- og tunglmyrkvi
Myrkvi er það fyrirbæri þegar
einhver himinhnöttur skyggir á
annan hnött séð frá hinum
þriðja. í sólmyrkva gengur tungl
fyrir sól séð frá jörðu. Almyrkvi
verður aðeins á afmörkuðu
svæði þar sem skuggi tunglsins
fellur á jörðina. í tunglmyrkva
gengur jörð fyrir sól séð frá
tungli. Sá hluti jarðskuggans,
þar sem sól er almyrkvuð nefnist
alskuggi (umbra) en ytri hlutinn,
þar sem nokkuð af sólinni nær
að skína, nefnist hálfskuggi (pen-
umbra). Stjömumyrkvi er einnig
til, það er þegar einhver hnöttur
(venjulega tunglið) gengur fyrir
stjömu sem sést frá jörðu.
Gengið á Esju
Nýverið var Esjudagurinn.
Fjöldi manns lagði leið sína á Esju
og gekk upp á fjallið eftir þekktum
gönguleiðum. Einnig var efnt til
hlaups upp á toppinn fyrir þá
allra hörðustu og voru það margir
sem létu hafa sig í þá þrekraun.
Flestum sér þó nægja að rölta í ró-
legheitum.
Umhverfi
Esjan er einhver vinsælasta
gönguferð sem Reykvikingar taka
sér fyrir hendur og hefur frést af
einum gönguhópi sem hefur það á
stefnuskrá sinni yfir sumarmán-
uðina að ganga á fjallið einu sinni
í viku. Stutt er frá borginni að rót-
um fjallsins og þar er hægt að
velja um leiðir sem sýndar eru á
kortinu hér til hliðar. Þó farið sé
að hausta er enn vel fært á Esjuna
í góðu veðri og ef það er einhver
sem gengur sér til heilsubótar og
hefur ekki gengið á Esjuna i sum-
ar ætti hann að láta verða að því
sem fyrst.
Hrólfur Guðmundsson:
Ferðaþjónusta í miklum
vexti á Ströndum
DV, Hólmavík:
„Við höfum reynt að láta gestum
okkar líða eins vel og hægt er við
þessar aðstæður, þeir geti verið eins
frjálsir með sitt og nokkur kostur er
og þeir helst kjósa. Komið og líka
farið á þeim tíma sem þeim hentar
best, eldað og verið út af fyrir sig ef
þeir það kjósa. Þetta hefur gefist
mjög vel því hjá okkur dvelur oft
fólk sem þarf að sæta lagi til að
komast yflr Steingrímsfjarðarheið-
ina að vetrinum eða hefur komið .
yfir hana og er orðið of seint fyrir
til að halda í suðurátt það kvöldið.
Þá dvelja hér oft starfsmenn opin-
berra fyrirtækja, eins og Pósts og
síma, sem hafa óreglulegan vinnu-
tíma. Þetta hefur allt gengið fyrir
sig án árekstra og allt verið í lagi og
þess vegna erum við mjög ánægð og
vonum að gestir okkar séu það
einnig," segir Hrólfur Guðmunds-
son, Borgabraut 4 á Hólmavík, en
þau hjónin, Nanna Magnúsdóttir og
hann, hafa rekið þar gistiaðstöðu
allt frá árinu 1990 en í litlum mæli
fyrstu árin. Fyrir rúmum tveimur
árum réðust þau í þá framkvæmd
að láta breyta húsinu í þeim til-
gangi að skapa með því aukið rými
og betri aðstöðu til móttöku ferða-
manna. Húsið
var á tveimur
hæðum auk
óhentugrar ris-
hæðar sem var til
lítilla eða nánast
engra nota. Þak-
inu var lyft, sem
kallað er, og
vandaðri gistiað-
stöðu komið upp
með sérinngangi.
Fyrir var þá frá-
gengin neðsta
hæðin til gesta-
móttöku. Nú er
því í húsinu 21
gestarúm auk
nokkurs svefn-
pokapláss.
Hrólfur segir
að þau hjón geti
ekki merkt annað
en að vantað hafi
stað þar sem fólk
getur séð um sig
sjálft, það sem
vill það. Úr þeirri
Hrólfur Guðmundsson.
Maður dagsins
augljósu þörf hafi þau hjón viljað
bæta og fmna ekki annað en að það
líki vel. Með þetta sama í huga festu
þau því kaup á 49 fermetra húsi sem
flutt var í heilu lagi sunnan úr
Svínadal við
Akranes og settu
það niður i fógr-
um skógarjaðri
við minni Þið-
riksvalladals,
skammt sunnan
Hólmavíkur.
Húsið er með öll-
um nútímaþæg-
indum og kostaði
2,8 milljónir.
Nokkur viðbótar-
kostnaður var
við niðursetn-
ingu og frágang.
Það hefur fyrir
nokkru verið
opnað fyrir dval-
argesti og getur
fólk fengið það til
styttri eða lengri
dvalar eftir ósk-
um hvers og eins.
Þar er nægilegt
rými fyrir tvær
samhuga fjöl-
skyldur og hefur
áhugi verið nægur síðan opnað var.
Dvöl yfir vetrartímann ætti að vera
fólki þar þægileg og auðsótt mál
verði eftir leitað,“ segir Hrólfur.
-GF
Myndgátan
Foreldrafundur
Valur og IR, sem hér sjást ieika,
veröa bæöi í eldlínunni í kvöld.
Tíu leikir í
handboltanum
Handboltinn verður í sviðs-
ljósinu í kvöld en þá verða leikn-
ir sex leikir í úrvalsdeild karla
og fjórir leikir í 1. deild kvenna.
Handboltinn hefur farið vel af
stað hjá körlunum og leikir yfir-
leitt verið jafnir og er erfitt að
spá um hverjir verða íslands-
meistarar í ár. í kvöld leika
Stjarnan-KA í Ásgarði í Garða-
bæ, Fram-HK í Framhúsinu,
Fh-ÍR i Kaplakrika, Breiðablik-
Haukar í Smáranum, Valur-Vík-
ingur í Valsheimilinu og
ÍBV-UMFA í Vestmannaeyjum.
Þrír fyrstnefndu leikirnir hefjast
kl. 20.30 en hinir þrír kl. 20.
Iþróttir
f 1. deild kvenna leika Stjarn-
an- Valur í Ásgarði,
Fram-Grótta/KR í Framhúsinu,
FH-Víkingur leika í Kaplakrika
og Haukar-ÍBV leika í Strandgöt-
unni. Allir leikirnir hefjast kl.
18.30.
Bridge
4 AKD5
V ÁK107
4 Á8
4 842
4 8642
«4 5
♦ KDG10743
* 5
N
109
63
96
ÁDG10976
* G73
* DG9842
* 52
* K3
Austur Suður Vestur Norður
Sheehan Pomfrey Rose Hugget
3 4 pass 5 4 dobl
pass 5 «4 6 4 6 «4
p/h
Spilið kom fyrir i landsliðskeppni
í Bretlandi og Sheehan og Rose
þurftu nauðsynlega að hækka sig til
að eiga möguleika á landsliðssæti.
Rose heyrði félaga sinn opna á
þremur laufum, en hindrun þeirra á
þriðja sagnstigi lofaði góðum lit
með a.m.k. 2 af þremur efstu. Rose
var fljótur að lyfta i 5 lauf á einspil-
ið og lét ekki þar við sitja og sagði 6
lauf við 5 hjörtum suðurs. Norður
taldi næsta víst að suður ætti eitt
eða ekkert lauf og sagði því 6 hjörtu.
Honum var illa brugðið þegar vöm-
in byrjaöi á því að taka slag á lauf-
ás og trompa síðan laufkóng suðurs.
ísak Öm Sigurðsson
Breska hókaforlagið Batsford gaf
í septembermánuði út fjórar nýjar
bridgebækur. Það eru bækurnar
Secrets of Success eftir Tony Forr-
ester, Basic Defence eftir Freddie
North, Step by Step: Preempts eftir
Alan Mould og The Times Book of
Bridge eftir Robert Sheehan. Þessar
bækur eru allar eflaust eigulegar,
enda eftir vel þekkta bridgehöfunda.
Robert Sheehan, höfundur bókar-
innar The Times Book of Bridge, til-
einkar hana félaga sínum, Irving
Rose, sem lést langt fyrir aldur fram
á síðasta ári, aðeins 58 ára að aldri.
Sheehan birtir meðal annars þetta
spil í minningu Rose, en þar fór
Rose á kostum í sögnum í vestur-
sætinu. Lesendur ættu aðeins að
skoða hendi vesturs í upphafi og
þróun sagna. Austur var gjafari og
NS á hættu:
<
i
i
I
1
í
í
í
i
I
4
1