Dagblaðið Vísir - DV - 03.10.1997, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 03.10.1997, Blaðsíða 2
20 %rikmyndir FÖSTUDAGUR 3. OKTÓBER 1997 JjV Háskólabíó - Career Girls Frama hvað? iri, Leikstjórinn Mike Leigh er íslendingum að góðu kunnur, en fer- ill hans hefur verið óvenju glæsilegur. Nægir að nefha hinar margverðlaimuðu „Naked“ (1993) og „Secrets and Lies“ (1995) sem eru með því besta sem birst hefur á hvíta tjaldinu síðustu árin. „Career Girls“ olli mér þó sárum von- brigðum. Leigh er þekktur fyrir að þróa handrit í samráði við leikara og því fer venjulega lítið fyrir hefðbundinni frásagnarfléttu. Leikararnir bregðast við ólíkum aðstæðum með spuna og fyrir vikið verða samræðomar eðlilegri en gengur og gerist. Með nokkurri ein- földun má segja að styrkur Leighs felist í frábærri persónusköpun og því mikilvægt að þær manngerðir sem birtast á tjaldinu séu trúverð- ugar. í „Career Girls" heimsækir Annie (Lynda Steadman) gamla vin- konu sína, Hannah (Katrin Cartlidge) sem hún hefur ekki séð í sex ár. Endurfundirnir vekja upp minningar frá þeim tíma er þær deildu saman íbúð á skólaárunum. Sá hluti myndarinnar sem gerist í nútíð- inni gengur að stórum hluta upp. Ekki er hægt að segja hið sama um þann sem tilheyrir fortíðinni og var hann á köflum átakanlega slæm- ur. Daginn sem Annie flytur inn í íbúð Hannah er ljóst að stúlkurn- ar eru að engu leyti venjulegar. Hannah hvæsir út úr sér orðunum og stangar loftið í ýkjukenndum æsingi. Annie, sem þjáist af húðsjúk- dómi, stígur aftur á móti undirleit í ölduna. í hvert sinn sem hún opn- ar munninn skáskítur hún augunum og jarmar í angist. Túlkun Steadman og Cartlidge gengi hugsanlega upp ef myndin snerist um konur sem búa á áfangaheimili fyrir geðsjúka. Það kom mér því á óvart að Leigh skyldi velja þessa leið í lýsingu á lífi tveggja stúlkna í tækniháskóla. Þegar feitlaginn vinur þeirra, Ricky (Mark Benton), flytur inn á heimilið verða senurnar enn vandræðalegri því engu er líkara en leikaramir séu komnir í taugagrettu- og geiflukeppni. Myndin nær sér aðallega á strik í þeim senum sem greina frá end- urfundunum. Niðurlagið er þó óvenju hallærislegt, en á síðasta degi heimsóknarinnar hitta vinkonumar fyrir tilviljun þrjá af gömlu fé- lögunum á þremur mismunandi stöðum í Lundúnum. Slík misbeiting á frásagnarfléttu hefur ekki sést síðan tilfinningaskáldsagan komst úr tísku fyrir um tvö hundruð árum. Leikstjóri og handritshöfundur: Mike Leigh. Aðalhlutverk: Katrin Cart- lidge, Lynda Steadman, Kate Byers, Mark Benton og Joe Tucker. Guðni Elísson Háskólabíó - Siggi Valli á mótorhjóli Si® Valli og Sniglarnir Á undan mynd Mikes Leigh, „Career Girls", sýnir Háskólabíó ís- lensku myndina „Siggi Valli á mótorhjóli" sem leikstýrt er af Böðv- ari Bjarka Péturssyni. Myndin var eina framlag íslendinga til heim- ilda- og stuttmyndahátíðarinnar Nordisk Panorama nú í sumar og var þar sýnd sem stuttmynd. Böðvar Bjarki mótmælir þeirri skfl- greiningu og segir „Sigga Valla“ lúta lögmálum heimildamyndarinn- ar. Sú nafngift er að mínu mati vafasöm þótt aðalleikarinn, Sigurður Valgarð Jónsson, sé vissulega sá Siggi Valli sem myndin er skírð eft- ir. Frásagnarramminn er of fastmótaður og þrátt fyrir að samræðurn- ar séu ekki æfðar eru þær allar sviðsettar. Þannig glatast óvænti þátt- urinn sem er eitt af aðalsmerkjum heimildamyndarinnar þar sem frá- sögnin verður að fá að gerast sjálfkrafa, a.m.k. að hluta til. Ég geri kannski of miklar kröfur til vægis, en sviðsett heimildamynd um nokkurra klukkutíma mótorhjólaferðalag eldri borgara þykir mér ekki spennandi viðfangsefni. í upphafi myndarinnar dundar Siggi Valli sér við að horfa á flug- vélar í gegnum kiki. Niðri á Ingólfstorgi hittir hann félaga úr bif- hjólasamtökunum Sniglunum sem bjóða honum á rúntinn. Siggi Valli þiggur boðiö og daginn eftir þeysir hann út úr bænum sem far- þegi á einu hjólinu. Hópurinn er sýndur í pásu á bensínstöð einhvers staðar utan við borgarmörkin og myndinni lýkur þar sem Siggi Valli situr heima hjá sér og hlustar á „Langa Sela og skuggana". Stuttmyndir (stuttar heimildamyndir?) eru erfitt form þar sem reynir á ímyndunarafl þess leikstjóra sem vill segja heildstæða sögu á þeim 10 til 20 mínútum sem venjulega fara í kynningu í kvikmynd af fullri lengd. Margir leikstjórar herða því á hinum myndrænu þátt- um og sprengja út frásagnarrammann með vísunum á táknlegu plani. „Siggi Valli“ er í alla staði raunsæisleg og Böðvar Bjarki lætur lítið reyna á formmöguleika stuttmyndarinnar. Þegar ævintýrum Sigga lýkur er ekki laust við að maöur spyrji hver tilgangurinn hafi verið. Myndataka og hljóðsetning eru til fyrirmyndar og myndin ætti að styrkja jákvæða ímynd Sniglanna sem eru eins og allir vita heiðurs- fólk. Ég gef myndinni ekki stjörnur þar sem stuttmyndir eru sjaldséðar í islenskum kvikmyndahúsum og samanburðurinn því lítill sem enginn. Leikstjórn: Böðvar Bjarki Pétursson. Adalhlutverk: Sigurður Valgarð Jóns- son, Jón Ingi Hannesson og félagar í Sniglunum. Guðni Elísson Laugarásbíó tekur til sýningar kvikmyndina 187 með úrvalsleik- aranum Samuel L. Jackson í aðcd- hlutverki. Leikstjóri kvikmyndar- innar er ekki af verri endanum, Kevin Reynolds, en hann hefur leikstýrt áður mörgum heimsfræg- um myndum. Meðal þeirra má telja myndinar Waterworld, Robin Hood; Prince of Thieves og Fand- ango, svo aðeins fáeinar séu nefnd- ar. Framleiðendur myndarinnar 187 eru Bruce Davey og Steve McEveety en þeir hafa staðið að framleiðslu á myndum eins og Braveheart, Maverick, Forever Young, Immortal Beloved, The Man without a Face og Hamlet. Söguþráðurinn í 187 er mjög for- vitnilegur. Kennarinn Trevor Garfield (Samuel L. Jackson) er frekar dæmigerður sem slíkur, gengur með þykk homspangargler- augu og klæðist jakka úr tvíd-efni. fyrir morð í Bandaríkjunum - og Trevor list ekki á blikuna. Nem- andinn sem hann hafði fellt var meðlimur í glæpagengi. Stuttu síðar, þegar Trevor er að olnboga sig í gegnum þvögu nem- enda á skólaganginum, ræðst 16 ára nemandi að honum með hníf að vopni og stingur Trevor marg- sinnis. Enginn kemur kennaran- um tfl hjálpar en fyrir eitthvert kraftaverk lifir hann árásina af. Ári síðar er Trevor farinn að vinna sem forfallakennari en er allt önnur persóna en hann áður var. Hann lifir fyrir hvern dag og er stöðugt hræddur um að hver dagur verði hans síðasti. Trevor fær langtímaverkefni, að sinna nýjum bekk og þar eru margir óstýrilátir nemendur. En á milli leynast verulega efnilegir nemend- ur og það er kennarans að ná að virkja hæfileika þeirra. Kennarinn Trevor Garfield (Samuel L. Jackson) þarf aö horfast í augu viö vandamál sem eru ekkert venjuleg. Þaö er ekkert grín aö fá upp á móti sér nemendur sem eru meölimir í glæpa- gengjum. Hann hefur brennandi áhuga á því að ná tökum á óstýrilátum nem- endum sínum. Dag einn, þegar hann skoðar verkefnabækur nemenda sinna, sér hann töluna 187 merkta í möppu eins nemandans sem hann hafði nýlega gefið falleinkunn í stærðfræði. Talan 187 er tákntalan Einn þeirra, Benny, reynist Trevor sérlega erfiður en hann er meðlimur í glæpaklíku. Spurning- in er bara sú hvemig Trevor tekur á málum í þetta sinn, reynslunni ríkari. Er hann tilbúinn að hætta lífi sínu á ný? -ÍS Mel Gibson í Payback Nú er í óöaönn veriö aö gera þær stóru myndir sem eiga að vera sumarsmellirnir á næsta ári. Ein þeirra er sakamálmyndin Payback meö Mel Gibson í aöalhlutverki. Sá sem leikstýrir myndinni og skrifar handritiö er Brian Helgeland, flestum ókunnur, en hann skrifaöi handritiö aö kvik- mynd Curtis Hansons, L.A. Con- fidential, sem hefur undanfariö nfengið afbragðsdóma. Payback er gerð eftir skáldsögunni Hunt- er, en sú bók var einnig notuö af John Boorman þegar hann gerði Point Blank með Lee Marvin, áriö 1967. Auk Mel Gibsons leika i Payback, William Devane, Bill Duke, Maria Bello, James Coburn og David Paymer. ' : MTV í kvik- myndabrans- a ann Sjónvarþsstöðin MTV hefur fært út kvíarnar og er búiö að stofna fyrir- tækiö MTV Rlms. Ein fyrsta kvik- myndin frá þessu fyrirtæki er Elect- lon. í myndinni leikur Reese Whiter- spoon gagnfræöaskólastúlku sem fer í framboö sem formaöur nem- endafélagsins. Andstaöa frá einum kennaranum, sem Matthew Broder- ick leikur, hefur óvæntar afleiöingar. Whiterspoon, sem byrjaði feril sinn sem barnastjarna, hefur náð aö festa sig í sessi og er ein eftirsótt- asta unga leikkonan í Hollywood um þessar mundir. Hennar næsta mynd er The Magic Hour, þar sem hún leikur á móti Paul Newman og Susan Sarandon. Miklar vinsældir Bean Hin kostulega gamanmynd Bean veröur ekki frumsýnd í Bandaríkj- unum fyrr en I byrjun nóvember. Framleiðendur myndarinnar þurfa þó ekki aö hafa áhyggjur aö við- tökunum þar því viötökurnar í öör- um heimshlutum hafa veriö mjög góöar og er Mr. Bean þegar kom- in yfir 100 milljón dollara markiö í aösóknartekjur. I nokkrum lönd- um er hún mest sótta kvikmynd ársins, má nefna Noreg og Serbíu. þaö er mjög sjaldgæft aö kvikmynd sem gerö er að mestu fyrir Bandaríkjadollara skuli vera látin bíöa svona lengi þar f landi. Sjálfsagt eru menn þar hræddir um aö Bean höföi ekki eins sterkt til Bandaríkjamanna og Evrópubúa. ■ I Oskrið hærra eða Öskrið aftur Wes Craven hefur nú byrjaö tökur á framhaldi af Scream og þeir leikarar sem liföu af hildarleikinn í Scream, Neve Camþbell, Courtney Cox, Dav- id Arquette, Jamie Kennedy og Liev Schreiber leika öll f myndinni, auk þeirra bætast viö Jada Pinkett og Jerry O’Connell. Wes Craven sagöi aðspuröur aö allt heföi gengiö svo hratt aö enginn tími væri til aö finna nafn: „Eg hef stundum kallað hana Scream Louder eöa Scream Again, en þaö eru engin endanleg nöfn. Eins og er er nafniö jafn mik- iö á reiki og söguþráöurinn." Stóri Lebowski Bræðurnir Joel og Ethan Coen munu á vetrarmánuöum senda frá sér The Blg Lebowskl. í myndinni leika Jeff Bridges og John Goodman keilufé- lagana Jeff Lebowski og Walter Sobcek sem lenda í alls konar ógöngum þegar Lebowski er tekinn f misgripum fyrir milljónamæring sem heitir sama nafni. Þetta er í fyrsta sinn sem Bridges leikur fyrir þá bræö- ur en þriðja sinn sem John Goodman leikur i mynd eftir þá. Meðal annarra leikara eru John Turturro og Steve Buscemi sem báður eru nánast fasta- menn hjá þeim.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.