Dagblaðið Vísir - DV - 03.10.1997, Blaðsíða 9

Dagblaðið Vísir - DV - 03.10.1997, Blaðsíða 9
FÖSTUDAGUR 3. OKTÓBER 1997 HLJÓMPLMU Ýmsir flytjendur - Megasarlög Megnið í flokki meistarans ★★★ Flestir aðdáendur Megasar myndu líklega segja aðskilnað verka hans og flutnings ómögulegan, jafnvel til ónýtis. Við áheyrn þessarar plötu yrðu þeir hinir sömu að viðurkenna að Megas hefði jafhvel „meikað það“ sem laga- og textasmiður eingöngu. Platan Megasarlög hefur að geyma 14 tón- og textasmíðar „meist- arans“ í útsetningum nýrrar kynslóðar tónlistarmanna. Útgáfa plötunn- ar er frábært framtak sem sýnir enn eina hliðina á þessum alhliða lista- manni. Útsetningarnar eru að vísu misjafnar, en þegar á heildina er lit- ið er þessi plata jathgóð viðbót í Megasarsafnið og hún er góð byrjun á hinu sama. Jóhann Jóhannsson er atkvæðamesti útsetjari safnsins. Hann útset- ur ljúfmannlega fyrir Pál Óskar lagið Sennilega það siðasta (sem vík- ingurinn mælti um eða eftir dauða sinn) og fyrir Emilíönu Torrini lag- ið Tvær stjörnur, sem bæði breyta hrjúfu yfirbragði „meistarans“ í yndisfagrar laglínur og má segja að í raun séu þama á ferðinni hjarta- bræðandi popplög. Jóhann útsetur Paradísarfuglinn fyrir Funkstrasse ágætlega. Asamt Pétri Hallgrímssyni (sem útsetti einnig lag Páls Óskars) gerir Jóhann lagið „Silfurskotturnar hafa sungið fyrir mig“ að sérdeil- is grípandi popplagi í flutningi sveitar sinnar Lhooq. Magga Stína er Megas kvenþjóðarinnar og útsetur og flytur lagið Aðeins eina nótt mjög skemmtilega ásamt Valgeiri. Verðlaunin „Endurútsetning plötunnar" fara til Sölva Blöndal og félaga hans í Quarashi fyrir óskiljanleg- an Krókódílamann. í raun má segja að hér sé á ferðinni meiri endurgerð en endurútsetning Quarashi til framdráttar. Þessi unga rappsveit er nýtt afl í íslensku tónlistarlífi og við miklu að búast þegar breiðskífa lítur dagsins ljós fyrir þessi jól. Aðrar góðar útsetningar plötunnar eru t.d. útsetning Curver á laginu Mæja, Mæja (ýlfrandi gítarar og trommuheili) og útsetningar Dr. Gunna, Ó Jónson og Grjóna (pínu Urge Overkill) og PPPönk. Vonbrigði mín eru hins vegar bundin við útsetningar Kolrössu krókríðandi, Ununar og Botnleðju. Allar þrjár hljómsveitirnar völdu sér lög sem Megas toppaði í eigin flutningi og verða því miður ekki betrumbætt, allavega ekki með einfóldunum. Ástæða vonbrigðanna er einnig sú að þessar hljómsveitir hcifa allar gert frábæra hluti á eigin vegum og halda því vonandi áfram. Spáðu í mig, Heilræðavísur og Reykjavíkurnætur hefðu því mátt halda upprunalegri mynd. Stefán Ingólfsson á sérstakan heiður skilinn fyrir að halda utan um þennan hóp tónlistarmanna, en Stef- án hefur verið nefndur gúrú hins íslenska tónlistariðnaðar, jafnvel þótt hann sé jafn ósýnilegur almenningi og raun ber vitni. Mergurinn málsins er: Ekki fullkomin, en ómissandi í íslenska plötusafnið! Guðjón Bergmann Stuðmenn - Ærlegt sumarfrí Að skemmta sjálfum sér og öðrum ★*★ Það er ekkert vafamál að Stuðmenn er einhver albesta og vin- sælasta hljómsveit sem við íslendingar höfum átt. Stuðmenn er líka sú hljómsveit sem á lengstan og farsælastan feril. Eftir þá liggja mörg lög sem þegar eru orðin klassísk í íslenskri poppsögu, auk þess sem þeir léku í og gerðu vinsælustu íslensku kvikmyndina frá upphafi, Með allt á hreinu. í framvarðasveit Stuðmanna voru lengstum Egill Ólafsson, Jakob Magnússon og Valgeir Guðjónsson og voru þeir allir til staðar þegar Grái fiðringiu-inn og í góðu geimi komu út 1983 og 1985, en af þessum tveimur plötum eru lög tekin á Ærlegt sumarfrí sem nýkomin er út. I tilefni útkomunnar komu Stuðmenn saman eft- ir fimm ára hlé, hljóðrituðu eitt lag og léku á einum dansleik og fóru síðan aftur í frí. Ærlegt sumarfrí er heiti plötunnar og er einnig heiti á því eina lagi sem nýtt er á plötunni. Aldrei þessu vant er ekki um frumsmíð að ræða, heldur hafa þeir félagar dustað rykið af gamla smellinum Old Devil Moon, hafa að fyrirmynd vinsæla útsetningu Louis Prima og Keely Smith á þessu lagi og eru Egill Ólafsson og Ragnhildur Gisladóttir í hlut- verkum þeirra. Oftast hafa Stuðmenn gert betur og er satt best að segja lítill veigur í þeim í þessu lagi. Á Ærlegt sumarfrí eru lög sem þjóðin þekkir, eins og Það jafnast ekkert á við jazz, Segðu mér satt, Búkalú, Ástardúett, íslenskir karlmenn, Blindfullur og Úti i Eyjum, allt stórskemmtileg lög sem yfirleitt hafa elst vel. Þama er einnig að finna lög sem hafa lítið heyrst, en eru einnig ágæt laga- og textasmíð. Er þar eftirminnilegast gott lag Valgeirs Guðjónssonar, Bréf til Báru, og hið stórskemmtilega Úfó. Þess má geta að gestatrommari á Bréf til Báru er enginn annar en Vinnie (Vince) Colaiuta, sem heillaði áhorfendur í Laugardalshöllinni þegar hann spilaði með Sting í sumar. í heild er Ærlegt sumarfrí góð skemmtun, textarnir eru leiftrandi af húmor, söngur góður og lögin mörg hver sérlega vel samin. Hilmar Karlsson Björk - Homogenic Eigi skal festast ★★★★ Framsækni, dirfska og hugmyndaauðgi einkenna þessa nýjustu plötu Bjarkar öðru fremur. Á köflmn má meira að segja fúllyrða að hún áreiti hlustandann þegar allt ætlar um koll að keyra, hvort held- ur sem er rödd söngkonunnar, torkennilegur ómstriður skarkali hljóðgervilsins eða firnahraður ásláttur trommuvélarinnar. Homogenic er engin partíplata, tónlistin eins fjarri okkar landlæga sjúddirarirei eins og hægt er að komast. (Sú spuming vaknar reynd- ar I þessari andránni hvort það sé kannski vort landlæga sjúddirari- rei með viðeigandi metnaðarleysi sem sé að drepa íslenska dægurtón- list. Sköpunin hafi verið lögð á hilluna fyrir fullt og fast hjá þorra tón- listarmanna.) Björk vinnur auðheyrilega að því hörðum höndum að festast ekki í neinu fari sem velgengni platnanna Debut og Post hefði auðveldlega getað skapað. Fyrir vikið verður uppskeran ennþá bragð- meiri en ella hefði orðið. Lögin á Homogenic eru vitaskuld misaðgengileg. Pluto og All Is Full of Love eru tormeltust. Bachelor- ette á áreiðanlega eftir að hafna á smáskífu áður en langt um líður, enda aðgengilegasta lag plötunnar. Björk valdi Jóga sem fyrsta smáskífulag Homogenic, alls ekki sísta kostinn, en óneitanlega minnir valið á það þegar Mark Knopfler átti kvölina og völina er platan Love over Gold kom út. Jóga venst hins vegar vel eins og Private Investigations forðum og ekki spillir vandað myndband sem gefur til kynna að Björk eigi langt í land með að rífa þjóðerniskenndina úr hjarta sér. Til undantekninga heyrir að fjallað sé um umbúðir platna í umsögnum DV og þá helst ef þær þykja sér- lega hraklega unnar. Frágangur umbúða plötunnar Homogenic er hins vegar til einstakrar fyrirmyndar, raunar listhönnun á því sviði. Ásgeir Tómasson _________aj tónlist 27 Mariah Carey - vinsælasta söngkona áratugarins Nýjasta plata bandarísku söng- konunnar Mariah Carey heitir Butt- erfly og kom út fyrr i haust. Nokkru fyrir útkomuna var byrjað að ræða um að ekki stæðu eingöngu yfir stórbreytingar í einkalífi söngkon- unnar. Hún væri einnig að feta sig inn á nýja stigu í tónlistinni. „Það held ég að sé nú nokkuð orð- um aukið," sagði hún þegar nýja platan var kynnt á blaðamanna- fundi i New York á dögunum. „Mér finnst ég alls ekki vera að skipta um stil og vil ekki að fólk haldi að ég sé að færa mig yfir á vinstri kantinn ef því finnst að ég hafi haldið mig á þeim hægri til þessa.“ Á Butterfly eru tólf lög. Tíu þeirra eru róleg. Honey heitir lagið sem var notað sem aðallag á fyrstu smáskífuna og það fór rakleiðis í efsta sæti bandaríska vinsældalist- ans þegar það kom út. Hið sama gerðist þegar hún sendi frá sér plöt- una Daydream fyrir tveimur árum. Sjö milljónir eintaka seldust af henni og þrjú lög í röð með Carey náðu þá efsta sætinu, það er að segja lögin Fantasy, One Sweet Day og Always Be My Baby. Ýmsir þekktir tónlistarmenn taka þátt í gerð plötunnar Butterfly, þeirra á meðal nokkrir kunnir úr hip hop tónlistinni, svo sem Combs, Dru Hill og liðsmenn úr Bone Thugs n’ Harmony. Upptökustjórar nýju plötunnar voru Sean „Puffy“ Combs og David Morales. Þeir sáu síðan um að endurhljóðblanda Honey fyr- ir smáskífuútgáfuna ásamt Jermaine Dupri. Mariah Carey er orðin tuttugu og sjö ára og tónlistarferillinn telst hafa staðið í sjö ár. Á þeim tíma hef- ur hún selt yfir áttatíu milljón ein- tök af plötum sínum og talsmaður útgefandans, Tommy Mottola, fram- kvæmdastjóri Sony, segir að það geri hana að vinsælustu söngkonu Mariah Carey: Lag hennar, Honey, fór beint í efsta sæti vinsældalista í Bandaríkjunum. tiunda áratugarins. Þau tvö hafa reyndar verið gift síðustu ár en til- kynntu fyrir nokkrum vikum að þau væru skilin að borði og sæng. Mottola var eigi að síður viðstaddur þegar útgáfa Butterfly var kynnt og virtist fara vel á með þeim. „Auðvitað höldum við áfram að tala saman þótt ýmislegt hafi breyst hjá okkur í einkalífinu," sagði Mar- iah Carey við það tækifæri. „Við tökumst á við það eins og fullorðið fólk.“ Myndband við lagið Honey sýnir þegar Mariah Carey sleppur á hrott ffá tveimur svartklæddum körlum og stingur sér til sunds í Karíbahaf- ið. Ýmsir hafa túlkað söguþráðinn þannig að þar sé Carey að losna frá Tommy Mottola og Sony en hún seg- ir slíka túlkun af og frá. „Mig langaði bara að fara í smá James Bond-leik í myndbandinu. Við tókum þaö upp við Puerto Rico og það er ekkert táknrænt við sögu- þráð þess. Bara ég að leika mér.“ 10. nóvember kemur út smá- skífa frá hljómsveitinni Pulp með laginu Help the Aged (hjálp- um öidruðum). Hljómsveitin ætl- ar að gefa stóran hluta ágóðans af þessu lagi til átaks sem ber sama nafn og lagið. í texta lags- ins, sem aö sjálfsögðu er samið af Jarvis Cocker, segir meðal annars að ekki eigi að setja gam- alt fólk inn á elliheimili heldur eigi að hjálpa því. Þaö sé lítið gaman fyrir þetta fólk að vera skilið eitt eftir. Betty McBride sem er einn af aðstandendum átaksins segir það mjög gott að hljómsveitin hafi hugsað til þeirra og ekki síöra að hún hafi samið lag um þetta mál. Einhver orðrómur hefur verið á kreiki um aö markaðsdeild Is- land-plötutyrirtækisins, sem gef- ur lagið út, hafi selt smáskífúna í sérstökum verslunum sem starfræktar era í tilefni af átak- inu. Aldraðir eiga að fá sérstak- an afslátt af laginu. Þetta hefur ekki fengist staðfest. Hins vegar upplýstu forsvarsmenn átaksins að Jarvis Cocker væri fyrsti listamaöurinn sem lýsti opinber- lega yfir stuðningi við átakið.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.