Dagblaðið Vísir - DV - 03.10.1997, Side 3
FÖSTUDAGUR 3. OKTÓBER 1997
L
kvikmyndir
Regnboginn:
Allir segja að ég elski þig
Háskólabíó og Bíóhöllin:
í dag frumsýnir Regnboginn grín-
og söngvamyndina Everyone Says I
Love You sem fengið hefur þýðing-
una Allir segja að ég elski þig. Við
sögu koma margir af frægustu leik-
urum nútímans, meðal annars
Drew Barrymore, Alan Alda, Goldie
Hawn, Woody Allen, Tim Roth, Jul-
ia Roberts og Lukas Haas.
Myndin er eitt af meistaraverk-
um Woodys Allens en hann bæði
skrifaði handritið og leikstýrir
verkinu. Myndin fjallar á gaman-
saman hátt um óvenjulega stórfjöl-
skyldu sem býr í austurhluta New
York. Fylgst er með tilfmningalífi
fjölskyldumeðlima sem tekur mikl-
um breytingum á stuttum tíma og
ástamálin eru jafn mörg og þau eru
fjölbreytileg.
Þetta er í fyrsta sinn sem Allen
leikstýrir söngleik. „Þessi mynd er
tilraunaverkefni hjá mér því ég hef
aldrei áður fengist við leikstjóm
söngleiks," segir Allen. „Sannleik-
urinn er sá að ég hugsaði aldrei um
myndina sem söngleik, heldur
miklu fremur sem gamanleik þar
sem leikaramir bæði syngja og
dansa."
Einn af aðalleikurunum í mynd-
inni, Alan Alda, segir að tími sé til
kominn fyrir Allen að fást við söng-
leik. „Tónlistin hefur alltaf verið
stór partur af kvikmyndum Woodys
Allens,“ segir Alda.
Allen tók þá ákvörðun, þegar
hann réð leikara í hlutverk, að gera
engar kröfur um söng- og danshæfi-
leika. „Fyrir mig skipti það mestu
máli að leikararnir í myndinni
væm gæddir leikhæfileikum. Hvað
dansinn og sönginn áhrærir skipti
það mig mestu máli að fólk gæti lagt
sannar tilfinningar í þau atriði,
ekki að það gæti sýnt fram á at-
vinnumannslega takta,“ segir Allen.
Ekki er að efa að Allen veit hvað
hann er að tala um. Hann er meðal
virtari og reyndari leikstjóra í
Bandarikjunum og þessi mynd er sú
26. í röðinni hjá honum.
-ÍS
Woody Allen fæst I fyrsta sinn við söngleik.
Goldie Hawn og Alan Alda eru meðal aðalleikaranna í myndinni.
Háskólabíó og Bíóhöllin taka til
sýningar stórmyndina Eldfjallið
(Volcano) í dag. í aðalhlutverkum
í myndinni eru Tommy Lee Jones,
Anne Heche, Gaby Hoffman, Don
Cheadle og Keith David.
Eldfjallið er örugglega forvitni-
leg mynd fyrir Islendinga sem
margir hverjir þekkja þennan ógn-
vald af eigin raun. I þessari mynd
er stórborg ógnað af eldfjalli og því
ekkert ósvipaðar aðstæður og þær
sem Vestmannaeyingar þurftu að
glíma við. í myndinni er þó hraun-
straumurinn mun skaðvænlegri
en sá sem lagði hálfa byggðina í
Vestmannaeyjum í rúst.
Handritshöfundur myndarinnar
Volcano er Jerome D. Armstrong.
Armstrong fékk hugmyndina þeg-
ar hann las jarðfræðigrein í tíma-
ritinu Scientific American. Þar
var fjallað um þær skelfilegu af-
leiðingar sem geta orðið þegar
hraungos hefst vegna hreyfinga á
milli tveggja meginlandsplatna. í
greininni var gert ráð fyrir að
hraungos gæti hafist í stórborg-
inni Los Angeles en eins og allir
vita, stendur hún á þannig svæði.
í hamfarakvikmyndum sögunn-
ar fram til þessa hefur stórslysin
yfirleitt verið að rekja til mistaka
mannskepnunnar. í myndinni Ju-
rassic Park var það fikt mann-
skepnunnar við klónun lífvera, í
Tovering Inferno var það græðgin
sem var orsök hamfaranna, í Pos-
eidon Adventure voru það mann-
leg mistök við smíði skips, í
Westworld voru það tæknileg mis-
Það er ekkert grín aö lenda í aöstæöum sem þessum i miöri stórborg.
tök og svo mætti lengi telja. í
myndinni Volcano gegnir öðru
máli. Þar lendir mannskepnan í
hrikalegum aðstæðum sem hún
getur ekkert gert að. Lögð er
áhersla á að sýna hvernig persón-
ur bregðast við í aðstæðum sem
þessum og hve sjálfsbjargarvið-
leitnin er rík.
Stjama aðalleikarans i mynd-
inni, Tommy Lee Jones, skín
skært um þessar myndir. Hann
var í öðru aðalhlutverkanna í
myndinni sem fékk mestu aðsókn-
ina á þessu ári, Men in Black.
Meðal annarra frægra mynda
kappans eru The Fugitive, JFK,
Love Story, Under Siege, Batman
Forever og Natural Bom Killers.
Volcano er í leikstjórn Micks
Jacksons en eftir hann eru mynd-
ir eins og Clean Slate, L.A. Story,
Bodyguard og Chattahoochee.
-ÍS
JA
iijij-j'jj
Face off -kidrk
I þessari nýju mynd slnni skapar Woo
spennuhasar sem jafnframt því aö vera vel
skorðaöur í bandarfsku kvikmyndasam-
hengl ber stíl og haefni Woos fagurt vltni.
Travolta og Cage eru þarna í súperformi;
sérstaklega er gaman aö sjá Travolta sanna
sig þarna enn og aftur og að öllu leyti er val-
inn maöur í hverju rúmi. -úd
When We Were Kings***^
Frábær lýsing á einum mesta hnefaleika-
kappa sem uppi hefur veriö, Muhammad
Ali, og síöasta störa einvíglnu hans fyrir tutt-
ugu og þremur árum. Sem heimildarmynd
skákar hún flestum sams konar myndum
um íþröttir um leiö og hún er pólitisk og
mannleg. -HK
Lady and the Tramp **^
Þessi klassíska teiknimynd segir frá tikinni
Laföi og flækingsrakka sem viö skulum
kalla Snata. Hún er saklaus og fögur, hann
kankvís þorpari meö hjarta úr guili. Þegar
Lafðl iendir í ræsinu tekur Snati hana upp á
arma sina (ef hundar geta slíkt). Rómantík-
in blómstrar og þau lenda! ýmsum ævintýr-
um. -OE
Breakdown kkrk
Sakamálamynd sem kemur á óvart, góö
saga meö myndrænni frásögn um mann
sem verður fyrir þvi aö eiginkona hans
hverfur í bókstaflegri merkingu orðsins.
Seinni hlutinn er ákaflega spennandi og
hraður. Jonathan Mostow er leikstjóri og
handritshöfundur sem vert er aö fylgjast
meö. -HK
Morðsaaa ★★★
Mynd Reynis Dddssonar, Morðsaga, ergerö
fyrir tíma kvikmyndasjóös, áöur en íslensk
kvikmyndagerð varð að veruleika. Þrátt fyrir
ákveöin ellimörk er þaö ótrúlegt hvaö mynd-
in hefur haldiö sér vel og tekst á köflum að
skapa magnaö andrúmsloft. Morösaga er
gersamlega ómissandl sem sögulegt mó-
ment í ísienskri kvikmynda- og menningar-
sögu og það þarf engum aö leiöast í þess-
ar 90 mínútur sem hún varir. -úd
Tveir á nippinu ★*★
Handritiö er skemmtilega skrifaö og Robb-
ins og Lawrence ná samleik sem hefur
myndina langt yfir þá meöalmennsku sem
einkennir fjölmarga þá dóma sem ég las
um hana. Eg er haldinn þeirri sérvisku aö
telja gamanmynd góöa ef hún er fyndin.-GE
Blossi ★★★
Blossi sýnir og sannar að ekki bara Júlíus
Kemp heldur íslensk kvikmyndagerð í helld
sinni hefur komið langan veg síöan eftir
Veggfóður. Samræðurnar rúlluöu vel í meö-
förum þeirra Páls Banine og Þóru Dungal
sem, þrátt fyrir reynsluleysi, voru með ein-
dæmum sannfærandi og skemmtileg sem
dálítið ráðvillt ungnienni. -ÚD
Horfinn heimur: Jurassic
Park: ★★★
Eftir frekar hæga byrjun, þar sem mikill tlmi
fer í útskýringar, tekur Horfinn heimur vel
viö sér þegar komið er i návígi viö grameðl-
ur, snareðlur og aðrar fornar eölur. Sagan er
greinileg framhaldssaga, þar sem litið er
um nýjar hugmyndir, en af sinni alkunnu
sniild og fagmennsku tekst Steven Spiek
berg að skapa ögnvekjandi skemmtun sem
fær stundum hárln til að rísa. -HK
Men in Black ★★★
I MIB er eins og yfirfærslan úr teiknimynda-
sögu i kvikmynd sé aldrei fullfrágengin og
kemur þetta sérstaklega niður á plottinu.
Áherslan er slík á húmor og stíl að sjálfur
hasarinn veröur útundan og i raun virkar
MIB meira sem grinmynd en hasar. En þrátt
fyrir alla galla er þessi mynd ómissandi fyr-
ir alla þá sem láta sér ekkert mannlegt
óviökomandl. -úd
Bean ★★★
Af Bean má hafa bestu skemmtun. I henni
eru margar óborganlegar senur sem ég
heföi kosið að sjá fléttaöar saman af meiri
kostgæfni. -GE
Lífsháski kki,
í fjölbýlishúsi býr borgarbúlnn oft í einangr-
uöu en nánu samlífi viö fólk sem hann
hvorki þekkir né vill kynnast. Myndir líkar
Lífsháska leggja áherslu á þessa einangrun
meö því aö færa aðalhetjuna í annarlegt
umhverfi og neyða hana til þess aö laga sig
aö þessu litla samfélagi. Lífsháski vísar
skemmtilega í hefðina og leikararnir eru
sannfærandi í óvenjulegum hiutverkum.-GE
Eldfjallið