Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 03.10.1997, Qupperneq 12

Dagblaðið Vísir - DV - 03.10.1997, Qupperneq 12
30 tyndbönd FÖSTUDAGUR 3. OKTÓBER 1997 JL>V MYNDBAIiDA Top Gun ofei Tóm leiðindi * Þessi mynd sló rækilega í gegn og varð ein af mest sóttu myndum ársins 1986. Hún varð jafnframt stökkpallur fyrir marga af leikurunum í henni og má þar nefna Tom Cruise og Val Kilmer, sem vöktu þama rækilega athygli á sér og em stórstjömur í dag. Myndin fjallar um flugkappa sem valdir em í Top Gun- skólann, en aðeins þeir allra bestu fá að komast þar að og fljúga fullkomnustu orrustuþotum flug- hersins. Tom Cmise leikur einn slíkan sem á við nokkur vandamál að etja. Hann hefur heldur villtan persónuleika sem rekst á við agann í skólanum, hann er ástfanginn af einum yfirmanna sinna og á þar að auki við einhverja pabbakomplexa að stríða. Eftir mikla samkeppni við leiðindagaurinn Val Kilmer nær hann að leysa öll vandamálin og sýna öllum hvað hann er mikil hetja í smá-alvörubardaga við vonda Rússa á MIG- ormstuþotum í restina. Þetta er heimskt, óspennandi, ófyndið og leiðinlegt í alla staði. Leikararnir eru hver öðrum lúðalegri, en lang- skástur er Anthony Edwards (nördalegi læknirinn í ER). Að þetta skuli hafa verið feykilega vinsæl mynd fyllir mig þunglyndistilfinningu. Útgefandi: ClC-myndbönd. Leikstjóri: Tony Scott. Aöalhlutverk: Tom Cruise og Kelly McGillis. Bandarísk, 1986. Lengd: 105 mín. Öllum leyfð. -PJ Blood and Wine Svikráð ** €lr Vínkaupmaðurinn Alex Gates rænir ásamt þjófh- um Victor Spansky hálsfesti frá einum af viðskipta- vinum sínum. Meiningin er að selja hálsfestina, stinga af með viðhaldinu og skilja konu sína og stjúp- son eftir. Áður en honum tekst ætlunarverk sitt lend- ir hann í hörkurifrildi við konu sína sem endar með því að hún rotar hann með skörungi. Þegar hann vaknar em konan, stjúpsonurinn og hálsfestin á bak og burt. Hér hefur verið meiningin að byggja upp „rafrnagnaða" spennu og átakamikil samskipti, þar sem persónumar sitja á svikráðum hverjar um aðr- ar og enginn getur treyst samstarfsmönnum sínum. Sögufléttan er því miður of einfeldningsleg og fyrirsjáanleg og myndin missir því alveg marks sem spennumynd. Það sem gerir myndina þolanlega eru leikar- amir. Jennifer Lopez nær að vísu ekki að sýna mikið í hlutverki við- haldsins, en Judy Davis og Stephen Dorff standa sig vel og sérstaklega er gaman að samleik Jack Nicholson og Michael Caine i hlutverkum gömlu skúrkanna. Útgefandi: Myndform. Leikstjóri: Bob Rafelson. Aöalhlutverk: Jack Nichol- son, Stephen Dorff, Jennifer Lopez, Judy Davis og Michael Caine. Banda- rísk, 1996. Lengd: 100 mín. Bönnuð innan 16 ára. -PJ Sunchaser Andlegt ferðalag ** Blood & Wine Woody Harrelson leikur ungan lækni á frama- braut, sem er rænt af ungum krimma, sem er að deyja úr krabbameini. Ræninginn ætlar sér að komast á stað í Arizona þar sem töfralæknir Nava- hóa hefur sagt að sé að finna töfravatn sem geti læknað hvaða mein sem er. Þessir tveir ólíku ein- staklingar mynda smám saman með sér vináttu- samband og að lokum er það læknirinn sem hjálp- ar sjúklingnum síðustu sporin, þegar hann er orð- inn of veikburða til að bjarga sér sjálfúr. Þar með leggur læknirinn líf sitt i hættu og eyðileggur framavonir sínar til að hjálpa einstaklingi, sem hann hafði megnustu skömm á nokkrum dögum áðm-. Spekin í myndinni er fremur fotluð og eiginlega að mestu út í hött, en hins vegar er nokkuð gaman að fylgj- ast með þessum ólikindalegu aðstæðum og þá sérstaklega hvernig læknirinn spjarar sig í ókunnugri veröld og hvernig persóna hans tek- ur breytingum í gegnum myndina. Woody Harrelson er hörkuleikari og Jon Seda stendur sig einnig ágætlega þótt persóna hans verði reyndar stundum svolítið klisjukennd. Útgefandi: Warner-myndir. Leikstjóri: Michael Cimino. Aðalhlutverk: Woody Harrelson og Jon Seda. Bandarísk, 1996. Lengd: 117 mín. Bönnuð innan 12 ára. ____ -PJ The English Patient Ljóðræn ástarsaga **** í gömlu klaustri á Ítalíu annast hjúkrunarkona deyjandi sjúkling. Einnig dveljast þar indverskur sprengjuleitarmaður og kanadískur þjófur sem sinn- ir sérverkefnum fyrir herinn. Sjúklingurinn ber ekk- ert nafn, þar sem hann hefur misst minnið, en smám saman fær áhorfandinn að kynnast sögu hans. Þessi mynd rúllaði upp síðustu óskarsverðlaunahátíð og nældi sér í níu styttur, þar á meðal fyrir bestu mynd. Hún er byggð á samnefndri bók eftir Michael Onda- atje og hefur mun ákveðnari söguþráð en bókin. Það er hins vegar ekki söguþráðurinn sem skiptir meg- inmáli, heldur andrúmsloftið sem myndin skapar, persónusköpun og ljóðræn myndbrot. Enda er myndin afar falleg. Kikmyndatakan er frá- bær og kemur heillandi landslagi vel til skila. Persónusköpun er afar vönduð og allar persónumar eru áhugaverðar. Aðeins einn leikaranna, Juliette Binoche, fékk óskar, en allir sýna þeir góðan leik. Sérstaklega fannst mér Naveen Andrews túlka sitt hlutverk vel en auðvitað klikka stórleikaramir Ralph Fiennes, Willem Dafoe og Kristin Scott Thomas ekki. Myndin skilur kannski ekki mikið eftir sig en hún er fallegt lista- verk sem hægt er að njóta í rúmlega tvær og hálfa klukkustund. Útgefandi: Skífan. Leikstjóri: Anthony Minghella. Aðalhlutverk: Ralph Fienn- es, Juliette Binoche, Witlem Dafoe og Kristin Scott Thomas. Bandarísk, 1996. Lengd: 162 mín. Bönnuð innan 12 ára. -PJ € 23. til 29.september SÆTI j FYRRI VIKA VIKUR j k LISTAj l J TITILL ÚTCEF. J j TEG. 1 j 1 j 3 j 1 S j j Metro j Sia-ByRttM Snanns OUBO 2 1 i 3 j j j Jeny Mafeire Skffia j J J Drau J ■".. 3 j Hí j 1 j j Enflish Pitient j Skffaa j Praaa j 4 j 2 v. • j j j Remee + Juliet J Stífm j J | Sytata S j 4 j 5 j Micbael j j Sw-aywlkM Caaaa « i J j 1 j | Star Trelc First Ceutact J Cltmndhind vivnlJlnDVBl J Spttna 1 7 5 j 5 J j |. Ghest aad the Darkness ClC-ayaákiad J J Sptau S j S 2 } 7 J J Bleed and Wine J Myndftm j ' J J J Sptma J 9 j 7 j 7 J Extreme Measures j Skffaa J iuma 1« j fi j 4 J J i Supereep i Skffaa Sptma J 11 j 11 1 ♦ J J SpaceJam «■« mMmJm j mnmmpm j Caaaa » N* j- • j l j J J J J Dangereus Ground Myodftm J j Sptau 13 j 9 í fi Mars Attacks! WarntrayiÆr J J ClBll »í J 1S i 13 j í » J J She's tfae One j Skffaa j Canua J J Sptau j Sptau j 15 9 J 1 Fled Warntraynár 1« i J 17 j 9 j j j j Ransem Saa-ayndkiad J 17 j 12 j 5 j My Fellow Americans , HIMf MJIMr j Caaaa j 12 J j Ai j fi j j' j j Two Days In The Walley j j J Saa-ayndkind Sptau J J 19 j Ní j 1 j j Rebinsen Crase j Skffai j j 20 ] lfi i i g J j j j Hifih Scheel High J ' Skffta J • (jjnin Litlar breytingar eru á efstu sætum myndbandalistans bessa vikuna. Það helsta er að English Patient kemur ný inn á listann i og fer beint i þriðja sæti. Myndin Ghost and the Darkness, sem var i fimmta sæti i siðustu viku, dettur hins vegar út af listanum og er nú i sjöunda sæti. Myndin Jerry Maguire vinn- ur sig upp um eitt sæti og er nú í öðru sæti. Romeo + Juliet fellur um eitt sæti i pað fjórða og það sama er að segja um Michael, sem nú er i timmta sæti listans. Vert er að minnast á My Fellow Americans með þeim Jack Lemmon, Dan Aykroyd og James Garner í aðalhlutverkum. Þetta er gamanmynd um tvo forseta Bandaríkjanna sem snúa bökum saman gegn nú- verandi torseta. Metro Eddie Murphy og Michael Rapport Samningamaöurinn sjálfumglaði, Scott Ropert, hefur gert það að sérgrein sinni að semja við ræningja og gíslatökumenn. Fram til þessa hefur gengið nokkuð vel hjá Scott. En hæfileikar og tungulipurð nægja ekki til að koma hon- um út úr þeim vand- ræðum þegar geðveik- ur morðingi tekur unn- ustu Scotts í gíslingu. Við þennan mann er ekkert hægt að tala og Scott verður að grípa til annarra ráða. Jerry Maguire Tom Cruise og Cuba Gooding Jr. Jerry (Cruise) starfar hjá mnboðsfyr- irtæki og er sérfræð- ingur í að búa tO stjömur úr efnúegum íþróttamönnum. Einn daginn tekur hann upp á þvi aö fara að efast um siðgæðið innan fyr- irtækisins. Þetta hefur þau áhrif að hann er rekinn. Einn skjólstæð- inga hans, ruðnings- kappi, vill hafa hann áfram. Jerry ákveður að gera hann að stjörnu og sanna fyrir sér og öðrum að hann hafi rétt fyrir sér. English Patient Ralf Fiennes, Juliette Bin- oche, Kristin Scott Thom- as og Willem Dafoe Undir lok síöari heimsstyrjaldarinnar leita nokkrar stríðshrjáð- ar manneskjur skjóls í gömlu klaustri í Toskana- héraði á Ítalíu. Allar leit- ast þær við að græða sár sin og finna frið, hver á sinn hátt Við hverfum aftur til fortíðar, kynn- umst sandbreiðum Sa- hara-eyðimerkurinnar, þar sem nokkrir menn vinna að þvi að kort- leggja svæðið og finna merka staði. í öllum hit- anum og ringulreiðinni kviknar ást sem á eftir aö hafa afdrifaríkar afleið- ingar. Þungamiðja mynd- arinnar er þó alltaf enski sjúklingurinn, dularfúll- ur og óþekkjanlegur. Romeo + Juliet Claire Danes og Le- onardo DiCaprio í Verona Beach gnæfa tveir skýjakijúf- ar ofar öllum húsum. Þessi stórhýsi tilheyra tveimur fjölskyldum og þær hafa um árabfi eld- að grátt silfur og hafa þau átök leitt til þess að yngra fólkið í fjöl- skyldunni hefur stofn- að gengi til að heija hvert á annað. t við- leitni sirrni til að stilla til friðar hefur verið ákveðið að halda grímuball þar sem fjöl- skyldumar koma sam- an. t þessari veislu hittir hinn ungi Romeo hina heillandi Júlíu í fyrsta sinn. Michael John Travolta, Andie McDowell og John Hurt Sögusagnir þess efn- is að erkiengfilinn Michael sé staddur á bóndabæ í Iowaríki í Bandarikjunum verða til þess að blaðamaður, englasérfræðingur og hundur fara á staðinn til að semja uppsláttar- frétt. Á leiðinni eru all- ir sannfærðir um að þetta sé ekkert annað en gabb en það breytist er þau hitta Michael (Travolta). Hann er fiðraður mjög á bakinu og framleiðir krafta- verk í bunum ásamt því að ganga í störf Amors.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.