Dagblaðið Vísir - DV - 10.10.1997, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 10.10.1997, Blaðsíða 4
FÖSTUDAGUR 10. OKTÓBER 1997 JJí"V Islenska leik- húsið er eitt þriggja leikhúsa sem frumsýna verk sín um helgina. íslenska leikhúsið mun frumsýna nýtt íslenskt verk á morgun. Verkið ber heitið Draumsólir vekja mig. Höf- undur og leik- stjóri verksins er Þórarinn Ey- tjörö. Þetta er þriðja leikstjórn- arverkefni Þór- arins fyrir ís- lenska leikhús- ið. Hann á einnig að baki fjölda annarra leikstjórnar- verkefna. Hann leikstýrði m.a. Hinu ljúfa lífi sem nú er sýnt í Borgarleikhús- inu. Draumsólir vekja mig er byggt á skáld- verkum Gyrðis Elíassonar. Verkið er unnið upp úr þremur bókum Gyrðis: Svef- hjólinu, Gangandi íkoma og Bréf- bátarigningunni. Auk þess hefur höfundur verksins sótt efnivið í ljóð og smásögur Gyrðis. Með þeim hætti reynir höfundurinn að spanna saman hina ólíku heima verksins. Höfundur búninga er Linda B. Árnadóttir. Hún er mörgum íslend- ingum kunn því hún sigraði í al- þjóðlegri fatahönnun- arkeppni á vegum Smirnoff árið 1995. Linda hefur verið búsett í París síð- astliðin tvö ár þar sem hún hef- ur verið við nám og störf. Auk þess hefur hún unnið fyrir fjöld- ann allan af öðram leikhópum og við myndbönd fjöllista- hópsins Gus-gus. Frumsýningin á Draumsólunum hefst kl. 17 á morgun í Hafn- arfjaröarleikhúsinu á Vesturgötu 11 í Hafnarfirði. glm Draumsólir vekja mig eftir Þórarin Eyfjörð. íjölbreyttan hugmyndaheim skáld- verkanna. Tónlistin skipar stóran þátt í verkinu. Hjálmar H. Ragnarsson tónskáld samdi tónlistina fyrir sýn- inguna og um flutning hennar sér finnski harmoníkuleikarmn Tatu KantomEia. Hlutverk hljóðfæraleikarans er ekki einungis að spila undir í sýn- ingunni heldur leiðir hann áhorf- endur í gegnum söguna og tengir Þórarir Eyfjörö. T . -s V- Verk eftir Birgittu Silverhielm. Listahópurinn Target Listahópurinn Target mun opna sýningu í Norræna húsinu á morg- un kl. 15. Targethópurinn samanstendur af sjö ungum listamönnum frá Islandi, Sviþjóð, Noregi og Danmörku. Þeir heita Birgitta Silverhielm, Brynhild Bye, Magnea Ásmundsdóttir, María Friberg, John Öyvind Eggersbö, Sol- veig Birna Stefánsdóttir og Tor- björn Skaarild. Listamennimir hafa búið saman í listamiðstöðinni í Straumi við Hafnai-fjörð undan- farna tvo mánuði. Þar hafa þeir unnið að þessarri sýningu sem mun einnig verða haldin í Stokkhólmi, Ósló og Þrándheimi. Verkefniö er styrkt af Norrænu ráðherranefndinni og Stokkhólms- borg sem verður lista- og menning- arborg Evrópu 1998. Ævintýrablær á verkum Gyrðis Þórarinn Eyfjörð er bæði handritshöfundur og leikstjóri verksins Draumsólir vekja mig. Aðspurður um af hverju hann hafi valið að skrifa leikverk byggt á verkum Gyrðis Elías- sonar segir hann: „Verk Gyröis hafa á sér mjög sérstakan ævin- týrablæ. Textinn er mjög sér- stakur og myndrænn. Mig lang- aði einfaldlega að prófa að vinna með texta Gyrðis á leik- sviðinu." Þórarinn seglr verkið vera hugsaö fyrir alla fullorðna en ekki neinn ákveðinn hóp. „Ég vona að verkið geti staðið eitt og sér og fólk geti notið þess þótt það þekki ekki verk Gyrðis. Hins vegar vona ég einnig að að- dáendur verka Gyrðis mæti á sýninguna og fái þar innsýn inn í verk hans.“ Eins og áður sagði er Þórar- inn bæði höfundur handrits og leikstjóri verksins. „Það mæðir óneitanlega mikið á manni þessa dagana og sólarhringur- inn er alltof stuttur. í sjálfstæð- um atvinnuleikhúsum eins og íslenska leikhúsinu vinna fáar hendur öll verkin þannig að álagið er óneitanlega mikið.“ Aðspuröur um hvort það geti ekki verið faglega erfitt að vera bæði handritshöfundur og leik- stjóri svarar Þórarinn því neit- andi og segir: „í raun og veru má segja að ég leggi fram hand- ritið sem eins konar tillögu að verkinu. Síðan er það í stöðugri endurskoðun við vinnslu verks- ins og það er mikil samvinna milli min og annarra sem koma að verkinu, s.s. leikara og tón- skálds.“ En hvað tekur við eftir frum- sýningu Draumsólanna? „Ég er með nokkrar hugmyndir á teikniborðinu en núna ætla ég að eyða meiri tíma með fjöl- skyldunni sem hefur litið séð af mér að undanfornu. Samt sem áður hefur vinnan við þetta verk verið mikið og skemmti- legt ævintýri." -glm 1» utn helgina_______________________________________________ Islenska leikhúsið: Draumsólir vekja mig

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.