Dagblaðið Vísir - DV - 10.10.1997, Blaðsíða 12

Dagblaðið Vísir - DV - 10.10.1997, Blaðsíða 12
*26 lyndbönd FÖSTUDAGUR 10. OKTÓBER 1997 The People vs Larry Flynt Klámkóngurinn Larry Flynt **** Larry Flynt er guðfaðir og aðaleigandi klámblaðsins Hustler, sem er sennilega eitt af þeim svæsnustu sem seld eru í bókabúðum hér á landi. Þessi mynd rekur æviferil hans, uppgang hans i klámiðnaðinum og sam- band hans við eiginkonu sína, en leggur þó mesta áherslu á baráttu hans fyrir máifrelsi sinu og stöðugum málaferlum. Myndin kemst að þeirri niðurstöðu að hömlur á klámi séu aðfór að tjáningarfrelsinu. Boð- skapurinn er umdeilanlegur en mjög umhugsunarverð- ur og settur fram á vitrænan og sannfærandi hátt. Þá er persónusköpun með besta móti í myndinni og leik- aramir góðir. Woody Harrelson er frábær í sínu hlutverki en best er Court- ney Love, sem vinnur leiksigur í hlutverki Althea Flynt og verður því ógeðslegri og aumkunarverðari sem lengra líður á myndina og persóna hennar sekkur dýpra í eiturlyfjafikn. Aðalkostur myndarinnar er þó ein- faldlega hversu skemmtileg hún er. Larry Flynt átti litríka ævi og það er afar skemmtilegt að fylgjast með uppátækjum hans. Hann gaf skít í allar viðteknar hefðir og gildi og notaði auð sinn til að koma óvinsælum skoðun- um sínum á framfæri. Hér er miskunnarlaust gert grín að hræsnisfullum siðapostulmn, sem er þarft verkefni á okkar tímum. Útgefandi: Skífan. Leikstjóri: Milos Forman. Aðalhlutverk: Woody Harrel- son, Courtney Love og Edward Norton. Bandarísk, 1996. Lengd: 124 mín. Bönnuð börnum innan 16 ára. -PJ Beavis and Butt-Head Do America: Yfirgengileg heimska Beavis og Butt-head eru holdgervingar MTV-kyn- slóðarinnar. Þeir fara endrum og eins í skólann en læra aldrei neitt þar. Allur fróðleikur þeirra kemur úr MTV. Þá dreymir um að vera eins og flotta fólkið í MTV, en eru sjálfír allt of miklir lúðar til þess. Um leið eru þeir gelgjustrákar hverra húmor gengur út á kúk- og pissbrandara og dónaleg orð. Dóp, kynlif, ofbeldi, hraðskreiðir bílar, sprengingar, hávær tón- list og yfirleitt allt það sem þeir eru mataðir á í sjón- varpinu er í miklu uppáhaldi hjá þeim, en þeir eru oftast í áhorfendahlutverkinu. í byrjun myndarinnar er þetta tekið frá þeim þegar sjónvarpinu þeirra er stolið og þeir leggja í pílagrímsfór þvers og kruss um Bandaríkin til að leita að því. Hjóna- komin Bruce Willis og Demi Moore ljá tveimur persónum raddir sínar og gera það vel, en skapari þáttanna, Mike Judge, sér um flest önnur hlutverk. Beavis og Butt-head eru snilldarleg sköpunarverk og Beavis vinnur leiksigm- undir lok myndarinnar í Hvíta húsinu. Þessi mynd er einfaldlega ein af fyndnustu myndum síðari ára. Margir hafa megnustu skömm á Beavis og Butt-head, tala um ófyndinn auiahúmor og vUja meina að þeir séu fyrir neðan virðingu hugsandi fólks. Við þetta fólk er aðeins eitt að segja: Þið eruð lúöar! Útgefandi: ClC-myndbönd. Leikstjóri: Mike Judge. Aðalhlutverk: Beavis og Butt-head. Bandarísk, 1996. Lengd: 82 min. Bönnuð innan 12 ára. -PJ StarTrek First Contact Star Trek 2b ** Oft em góðar hugmyndir mjólkaðar vel í kvik- myndaiðnaðinum og nokkrar framhaldsmyndir gerð- ar, yfirleitt því lélegri sem rómverski tölustafurinn fær hærra gUdi. Fyrir ca 30 árum hófu Star Trek sjón- varpsþættirnir göngu sína og hafa síðan getið af sér þrjár viðbótarseríur og aUs átta myndir. Fyrstu sex myndimar vora með upphaflega genginu en nú eru þeir orðnir of gamlir og þreyttir. First Contact er sem sagt önnur myndin með næstu kynslóð Star Trek-leikara. Myndin ber upprana sinum vitni. Hún er mjög heimskuleg og Ula leikin og i raun aðeins upphafinn sjónvarpsþáttur, teygður upp í kvikmyndalengd og hlaðinn ágætmn tæknibreUum. Mynd- in er þó ekki tóm leiðindi, því hún er oft ansi brosleg, sérstaklega þegar bjartsýnisstUlinn og góðmennskan keyra úr hófi. Allir leikarar era léleg- ir en vert er að geta skipstjórans Patrick Stewart, sem er verðugur arftaki WUliam Shatner og toppar hann eiginlega með því að vera enn eUUegri og enn lélegri leikari. Tryggð trekkaranna við þetta rasl er aðdáunarverð (eöa aumkunarverð sé maður í þannig skapi). Útgefandi: ClC-myndbönd. Leikstjóri: Jonathan Frakes. Aðalhlutverk: Patrick Stewart, Jonathan Frakes, Brent Spiner, Alice Krige, o.fl. Banda- rísk, 1996. Lengd: 106 mín. Bönnuð innan 12 ára. -PJ Dangerous Ground: .. Ice Cube í hefndarhug Ice Cube vakti á sér athygli með leik sínum í Boyz in the Hood, en hefur gengið upp og ofan að koma sér á framfæri síðan. í Dangerous Ground er hann með puttana í framleiðslunni og ræður sjálfan sig tU aö leika aðalhlutverkið, Vusi. Vusi er s-afrískur að upp- runa en hefur búið í Bandaríkjunum frá unglingsaldri. Hann snýr aftur tU að vera viðstaddur útfór fóður sins og kemst þá að því að bróðir hans er týndur. Hann hefur leit að honum og kemst að því að hann var Uæktur í eiturlyfjaviðskipti í Jóhannesarborg. Myndin er annars vegar að reyna að vera töff spennumynd og hins vegar að koma háleitum boðskap á framfæri. Boðskapurinn er aUt of grunnhygg- inn og barnalegur tU að koma að nokkru gagni og leikararnir era of lúða- legir, eða kannski undir stjóm of lins leikstjóra, tU að vera töff. Þar fer fremstur í flokki topplúðinn Ice Cube í sínu versta hlutverki tU þessa og rétt á eftir kemur semUúðinn Ving Rhames í hlutverki eiturlyfjabarónsins. Elizabeth Hurley er varla með, en aukaleikaramir era síður pinlegir. Útgefandi: Myndform. Leikstjóri: Darrell Roodt. Aðalhlutverk: lce Cube og Elizabeth Huriey. Bandarísk, 1996. Lengd: 90 mín. Bönnuð innan 16 ára. -PJ Myndbandalisti vikunnar /- rte 23. til 29.september SÆTIj i 1 j 2 j j 3 j j 4 j 5 j j 6 j J - ) 7 ) j S j j 4 J FYRRI VIKA Kí { VIKIIR jáLI J J J J J J J J J J J 1 J J J J J J J J J J J 13 14 13 15 J 14 j 1S j 12 17 1S J 20 19 15 20 { Ai TA) j j j j j Sfcffaa ) WnMrajiA’ J Cm TITILL Englisb Patient Vepis Vicatíen Metre ierry Maguire Remee + Juliet Star Trek: First Centact Michael Chest and the Darítness j eic-flvndHae j Spmm Bloed and Wine ÚTGEF. J TEG Skffa Skffta QtanAM J *----- eiwTBjwwwwe epwiiw 19 j j j 9 j j j j s j j j Extnme Meatures j j j Skffts j J SfMU ) 11 j j Rý j j 1 j j CaspenA Spirrted Be{ÍDiii{ j j Skta j Caua 12 j j j 19 j j j 5 j j j Supercop j j j Skta J J SpMM J 19 SpaceJam Mars Attacks! She's the Ooe Dansereas Greond My Fellev Americans High Scheel Higti Fled Winur Bijndjr j Gaua Waraer aijradir j Caaua SkSaa Mjadfana j Sptaaa Wara*r aiyaaGr j Gaaua Skffaa Wamarnvadr j Spaaaa Það kemur fáum á óvart að óskarsverðlaunamyndin The Eng- lish Patient skuli fara í efsta sæti myndbandalistans þessa vik- una. Þetta er sú kvikmynd sem sló hvað eftirminnilegast í gegn á síðasta ári og var sigurvegarinn á síðustu óskarsverð- launahátíð. Það vekur aftur á móti athygli aö Vegas Vacation skuli fara beint í annað sæti, aðallega vegna þess að mynd þessi fór aldrei í kvikmyndahús hér á landi þótt hún hafi gert það ágætt vestan hafs. Yfirleitt hafa þær myndir sem eru í efstu sætum myndbandalistans verið sýndar í kvikmyndahús- um og má ætla að það sé einsdæmi aö kvikmynd sem ekki hefur verið sýnd í bíóum höfuöborgarinnar fari svona hátt í fyrstu viku sinni á myndbandalistanum. Á myndinni eru Chevy Chase og Randy Quaid í hlutverkum sínum í Vegas Vacation. English Pati- ent Ralf Fiennes og Kristin Scott Thomas. Undir lok síðari heims- styrjaldarinnar leita nokkrar stríðshrjáðar manneskjur skjóls í gömlu klaustri í Toskana- héraði á Ítalíu. Allar leit- ast þær við að græða sár sín og finna frið, hver á sinn hátt. Við hverfum aftur til fortíðar, kynn- umst sandbreiðum Sa- hara-eyðimerkurinnar þar sem nokkrir menn vinna að því að kortleggja svæðið og finna merka staði. í öllum hitanum og ringulreiðinni kviknar ást sem á eftir að hafa af- drifaríkar afleiöingar. Þungamiðja myndarinnar er þó alltaf enski sjúkling- urinn, dularfullur og óþekkjanlegur. 54 ” « ' ' Va catioN ■r) Vegas Vacation Chevy Chase og Beverly D'Angelo Þegar Clark Griswold skipuleggur sumarleyfl gerir hann sér grein fyr- ir öllum þeim smáatrið- um sem upp kunna að koma og nú skal halda til Las Vegas. En ein- hvem veginn er það svo að Griswold fjölskyldan dregur að sér óvænta hluti. Clark gat til dæm- is ekki séð það íyrir að fjölskyldumeðlimirnir myndu umhverfast og brátt verður spumingin sú hvort fjölskyldan get- ur nokkum tímann horf- ið aftur til fyrra lífs. i :i i ii + 2íf ■ y Metro Eddie Murphy og Michael Rapport Samningamaðurinn sjálfumglaði, Scott Ropert, hefur gert það að sérgrein sinni að semja við ræningja og gísla- tökumenn. Fram til þessa hefur gengið nokk- uð vel hjá Scott. En hæfi- leikar og tungulipurð nægja ekki til að koma honum út úr þeim vand- ræðum þegar geðveikiu- morðingi tekur unnustu Scotts í gíslingu. Við þennan mann er ekkert hægt að tala og Scott verður aö grípa til ann- arra ráða. Jerry Maguire Tom Cruise og Cuba Gooding jr. Jerry (Cmise) starfar hjá mnboðsfyrirtæki og er sérfræðingur í að búa til stjömur úr efnilegum íþróttamönnum. Einn daginn tekur hann upp á því að fara að efast um siðgæðið innan fyrirtæk- isins. Þetta hefur þau áhrif að hann er rekinn. Einn skjólstæðinga hans, ruðningskappi, vill hafa hann áfram. Jerry ákveður að gera hann að stjömu og sanna fyrir sér og öðrum að hann hafi rétt fyrir sér. Romeo Juliet Claire Danes og Le- onardo DiCaprio. t Verona Beach gnæfa tveir skýjakljúfar ofar öllum húsum. Þessi stór- hýsi tilheyra tveimur flölskyldum og þær hafa um árabil eldað grátt silfur og hafa þau átök leitt til þess að yngra fólkið í fjölskyldunni hefur stofnað gengi til að herja hvert á annað. í viðleitni sinni til að stilla til friðar hefur ver- ið ákveðið að halda grímuball þar sem fjöl- skyldumar koma saman. í þessari veislu hittir hinn ungi Romeo hina heillandi Júlíu i fyrsta sinn.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.