Dagblaðið Vísir - DV - 10.10.1997, Blaðsíða 11
FÖSTUDAGUR 10. OKTÓBER 1997
hónlist
Hljómsveitin Quarashi er að
gefa út sína fyrstu breiðskífu á
mánudaginn og af því tilefni fékk
ég Sölva Blöndal f viðtal til að
upplýsa alþjóð um stuttan feril
þessarar stórgóðu og vinsælu
hljómsveitar.
Hljómsveitin er skipuð fjórum
ungum mönnum, þeim Sölva Blön-
dal sem forritar og trommar, auk
þess að semja öll lögin, Steinari
Orra sem rappar, Höskuldi Ólafs-
syni sem syngur og rappar og að
síðustu Richard sem er DJ sveitar-
innar.
Nafn sveitarinnar varð til þegar
Steini rappari bjó í Bandaríkjunum
og þarlendum félögum hans þótti
erfitt að bera nafnið fram. Hann var
því kallaður Quarashi sem Sölvi
segir mér að sé í rauninni eftimafn
Múhameðs spámanns. Það var vorið
1996 sem sveitin var stofnuð af
Sölva og Steina. Þeir tóku þetta
mátulega alvarlega, að sögn Sölva,
tóku upp rapp og trommutakta en
ákváðu síðan að vinna að smáskíf-
unni Switchdance sem kom út fyrir
jólin sama ár. Það var þá sem Hösk-
uldur og Richard slógust í hópinn.
Engir stjörnudraumar
Switchdance var gefin út í 500
eintökum sem öll seldust upp á
Hljómsveitin Quarashi
er að gefa út sína
fyrstu breiöskífu á
mánudaginn.
DV-mynd ÞÖK
augabragði. „Við vissum ekki hvað
var eiginlega að gerast og fengum
hálfgert taugaáfall," segir Sölvi. Nú
er þetta orðin eins konar cultplata
og ég veit til þess að það var verið
að selja hana á sjö þúsund kall!“
Þrátt fyrir þessi viðbrögð voru með-
limir Quarashi með fæturna á jörð-
inni. „Við vorum og erum ekki með
neina poppstjörnudrauma, við vinn-
um bara okkar hluti og sjáum hvað
gerist næst,“ segir Sölvi.
Þegar reynt er að skilgreina tón-
list Quarashi kemur margt upp í
hugann því ásamt hip-hopi eru
greinileg áhrif rokks og fonks í tón-
smíðunum, „hip- hop í harðari kant-
inum,“ segir Sölvi. „Rokk-hop gætu
sumir kallað það en þetta gæti allt
saman breyst þegar nýja platan
kemur út. Þar er til dæmis aö finna
fyrsta íslenska rapplagið! Við lögð-
um mikinn metnað í að hafa eitt lag
á íslensku, sérstaklega fyrir okkur
sjálfa, því það er mikið atriði fyrir
okkur. Eins og Björk komst svo
skemmtilega að orði þá er ekki
hægt að tala útlensku við íslend-
inga! En þegar við vorum að byrja í
sveitinni var ætlunin að gera hip-
hop og einu fyrirmyndimar voru
erlendis frá. Þangað sóttum við líka
það að gera texta á ensku, þó svo að
við stefnum að því að gera meira af
íslenskum textum í framtíðinni."
Fyrsti rapparinn
Um stefnuvalda hér heima og er-
lendis segir Sölvi: „Við erum mjög
ólíkir innbyrðis varðandi tónlistar-
smekk en samt held ég að Public
Enemy gangi yfir okkur alla. Per-
sónulega get ég síðan sagt að ég leiti
alltaf í íslenskt pönk, og þá sérstak-
lega Ham, og Einar Örn tel ég vera
fyrsta rapparann á íslandi. Þó að ég
nefni Public Enemy erum við ekki
pólitískir eins og þeir.“ Þeir Hösk-
uldur og Steinar sjá nær alfarið um
textana og Sölvi segir að eins og
aðrir rapptextar fjalli þeir um dag-
legt líf, það sem maður fæst við
dagsdaglega, án þess að verið sé að
velta sér upp úr stórum spuming-
um, þó að ádeilu sé að finna inn á
milli.
Lagasmíðar Quarashi hefur Sölvi
séð um aleinn en oft á tíðum fær
hann aðra hljóðfæraleika til liðs við
sig til að spila bassalínu eða þvíum-
líkt. „Ég er bara einn heima og
sampla og forrita og þegar heildar-
mynd er svo komin á lagið er það
sett á kassettu og rappararnir Steini
og Höskuldur taka við.“
Ný plata
Um nýju plötuna segir Sölvi:
„Hún er alveg frábær, ég segi það al-
veg óhræddur. Þetta er sextán laga
plata og það var ekki beint létt verk
að klára svo stóra plötu. Það var
ekki fyrr en ég kom heim, eftir að
búið var að mixa plötuna og ég spil-
aði masterdiskinn, sem ég gerði
mér grein fyrir að við höfðum gert
frábæra plötu!“ Og undirritaður
tekur undir það eftir að hafa hlust-
að á nýja diskinn hjá Quarashi. Hér
er á ferðinni frábært verk hjá þeim
félögum.
-ps
Pottþétt 9:
Tvær og hálf
klukkustund af
tónlist
Stundum er talað um að fá mik-
ið fyrir peninginn og óhætt er að
segja að þeir sem verða sér úti um
Pottþétt 9 fá mikið fyrir sinn snúð.
Á tveimur geislaplötum eru hvorki
meira né minna en þrjátíu og níu
lög þar sem fjölbreytain er í fyrir-
úmi í vali laga sem þó öll eru ætl-
uð ungu kynslóðinni. Bæði er um
um að ræða íslensk og erlend lög.
íslensku lögin eru nánast alveg ný
af nálinni og meöal flytjenda má
nefna Greifana, Móu, Land og syni,
Ny danska, Maus og Helga Bjöms-
son sem er einn á báti i þetta
skipti.
Erlendu lögin eru flestöll þekkt >'
og hafa risið hátt á vinsældalistum
úti um allan heim að undanfómu.
Ætta allir að geta fundið sitt uppá-
haldslag. Meðal hljómsveita sem
eiga lag á Pottþétt 9 eru Radiohead,
Oasis, Steel Pulse og Texas. Einnig
eiga söngkonumar Maria Montell,
Diana King, Shola Ama og Paula
Colem allar eiga lög á plötunni. Af
þessari upptalningu má því sjá að
hægt er að haída uppi heilu sam-
kvæmi bara með því að setja Popp-
þétt 9 í spilarann. -HK
Wall of Sound
Plötufyrirtækið Wall of Sound
hefur getið sér gott orð fyrir ferska
danstónlist. Nú stendur fyrirtækið
fyrir danskvöldum í höfuöborgum
víðs vegar um heiminn og um helg-
ina verður fyrirtækið hér á landi.
í kvöld verður danstónlist í fé-
lagsmiðstöðinni Fjörgyn frá
20.30-23.30 og í Tunglinu frá mið-
nætti til klukkan þrjú.
Annað kvöld veröur síðan dans-
kvöld í Dynheimum á Akureyri.
Þar er aldurstakmark 16 ár. Næsta
kvöld verður haldið um miðjan
nóvember. -HI
Reggae on lce norður
í kvöld fer hljómsveitin Reggae on Ice
norður til Akureyrar og mun spila í
SjaUanum. Heyrst hefur að hljómsveitin
taki með sér leynigest og muni hann
taka nokkur lög með sveitinni.
Reggae on lce verður fyrir norðan um
helglna.
Lífvera á Höfn
Hljómsveitin Lífvera spilar á Víkinni,
Höfh í Homafirði, í kvöld og annað
kvöld. Hljómsveitina skipa Ragnar Grét-
arsson, söngvari og bassaleikari, Sigurð-
m- Jakobsson sem spilar á trommur og
Haraldur Gunnlaugsson á gítar.
DJ Birdie
í kvöld og annað kvöld verður DJ
Birdie með diskótek á Kaffi Amsterdam.
8-villt á írlandi
Hljómsveitin 8-villt spilar á írlandi í
Kringlunni í kvöld. Annað kvöld spilar
hljómsveitin á herrakvöldi hestamanna-
félagsins Fáks í félagsheimilinu í Víði-
dalnum.
Ari Jóns og Upplyfting
í kvöld og annað kvöld spila Ari Jóns-
son og Upplyfting á Danshúsinu í Glæsi-
bæ.
Dægurlagahljómsveit Ey-
jólfs Kristjánssonar
Hin síkáta dægurlagahljómsveit Eyj-
ólfs Kristjánssonar mun leika fyrir dansi
á Ráðhúskaffi á Akureyri i kvöld og ann-
að kvöld. Hljómsveitina skipa, auk Eyj-
ólfs, þeir Örvar Aðalsteinsson, Ingi
Gunnar Jóhannsson og Bergsteinn Björg-
úlfsson.
Danshljómsveit Eyjólfs Kristjáns-
sonar verður á Ráðhúskaffi á Akur-
eyri.
Kirsuber á Gauknum
Hljómsveitin Kirsuber leikur á Gauki
á Stöng i kvöld og annað kvöld.