Dagblaðið Vísir - DV - 10.10.1997, Page 5

Dagblaðið Vísir - DV - 10.10.1997, Page 5
JDV FÖSTUDAGUR 10. OKTÓBER 1997 19 ir~* um helgina ** * Leikfélag Akureyrar frumsýnir í kvöld á Renniverkstæðinu við Strandgötu leikrit Jökuls Jakobs- sonar, Hart í bak. Leikritið er næst- fyrsta leikrit Jökuls sem sett var á svið en það var frumsýnt hjá Leikfé- lagi Reykjavíkur í nóvember árið 1962. Á frumsýningu LA í kvöld verða því liðin tæp 35 ár frá því þetta leikrit skipaði Jökli á bekk með fremstu leikritaskáldum ís- lendinga. Sýningar Leikfélags Reykjavíkur á Hart í bak urðu 205 talsins á þrem- ur leikárum og sagan um Jónatan strandkaptein, Áróru spákonu, dótt- ur hans, og strákinn Láka, auk Ár- dísar, stúlkunnar ungu að austan, er enn jafnhrifandi og hún var fyrir 35 árum. Texti Jökuls er leiftrandi íyndinn og hnitmiðaður en undir hnittinni er sár broddur sem gæðir leikrit hans sönnu lífi. „Sviðið er húsaport í Vesturbænum nálægt höfninni" eins og segir í lýsingu Jökuls á sviðsmynd leikritsins Hart í bak. í hrörlegu húsi á þessum slóðum búa aðalpersónur leikritsins og berjast við að lifa þrátt fyrir brogaða fortíð. Árdís, unga stúlkan að austan, kem- ur eins og hlýr sólargeisli inn í kaldranalegan heim Láka Áróru- sonar og Finnbjörn skransali berst við að ná valdi á æskuástinni sinni, Áróru Jónatansdóttur. Stígur skó- smiður og trúboði er nágranni Áróru og Jónatans. Honum er vel ljóst hve blóðhiti Áróru er mikið vatn á myllu safnaðar hans en sjálf- ur óttast hann ástríður spákonunn- ar svo að samskipti þeirra verða á köflum hin kátlegustu. Pétur kenn- ari gegnir einnig mikilvægu hlut- verki í mósaíkmyndinni sem Jökull dregur upp af lífi persóna sinna, Halldór Gylfason og Marta Nordal í hlutverkum Láka og Árdísar. mynd sem ns hæst í lokaatriði leik- björg Thoroddsen verður i hlut- verki Áróru spákonu, dóttur hans. Halldór Gylfason, nýútskrifaður úr Leiklistarskóla íslands, fer með hlutverk Láka og Marta Nordal leik- ur Árdísi. ! öðrum hlutverkum eru Hákon Waage, Þráinn Karlsson, Marinó Þorsteinsson, Agnes Þor- leifsdóttir, Eva Signý Bergs og Ólaf- ur Sveinsson. Leikstjóri er Eyvind- ur Erlendsson, Halhnundur Krist- insson gerir leikmynd í samvinnu við leikstjórann og Jóhann Bjami Pálmason hannar lýsingu. -gk ntsins. er það Sigurður Hallmarsson sem I sýningu Leikfélags Akureyrar leikur Jónatan skipstjóra og Guð- Ástarsaga úr fjöllunum Brúöubíllinn gleöur yngstu kynslóöina. Brúðubíllinn í Gerðubergi Nú stendur yfir í Menningar- miðstöðinni Gerðubergi ljós- myndasýning norrænna bama sem ber heitið Að skapa í og með náttúrunni. Sýningunni lýkur um helgina og af því tilefni verða ýms- ar uppákomur fyrir börn. Börnun- um gefst kostur á að byggja sitt eigið umhverfislistaverk auk þess sem Brúðubillinn kemur í heim- sókn. Á veggjum Gerðubergs verða til sýnis gamlir kunningjar úr Brúðubílnum og Stundinni okkar. Auk þess verða sýnd. leikritin í Dúskalandi og Bimm-bamm. Sýn- ingarnar verða á morgun og á sunnudaginn. Báðar sýningarnar hefjast kl. 14. Miðaverð er 500 krónur. í leikritunum koma fram yfir fimmtíu brúður af öllum stærðum og gerðum, allt frá litlum hanska- brúðum upp í stórar brúður sem leikararnir klæðast. Þar má m.a. nefna trúðinn, Dúsk, refinn, úlfinn, krókódílinn, vatnahestinn Rósa og marga fleiri. Ekki má gleyma Lilla litla apa sem alltaf vill vera með. Sýningin tekur eina og hálfa klukkustund. Hvort leik- rit fyrir sig inniheldur litla leik- þætti, söng og sögur. Það er gleðin sem ræður ríkjum á sýningum BrúðubUsins en þar er einnig ýmislegt fróðlegt að sjá. -glm Möguleikhúsið við Hlemm sýnir á sunnudaginn kl. 15 barnaleikritið Ástarsögu úr fjöllunum. Það mun vera 155. sýning á leikritinu sem hefur verið sýnt í leik- og grunn- skólum landsins að undan- fómu. Leikritið er byggt á sam- nefndri sögu Guðrúnar Helga- dóttur. Þar segir frá tröllskessunni Flumbru, strákunum hennar átta og ást- inni í fjöllunum. Þetta er einnig saga af landinu okkar og leyndardómum þess. I leik- ritinu fléttast saman leikur leikara og leikbrúða auk þess sem tónlist skipar veglegan sess. Sýningin er ætluð böm- um á aldrinum tveggja til sjö ára. Leikstjóri er Stefán Sturla Sigurjónsson. HLín Agnars- dóttir hannaði leikmynd. Björn Heimir Viðarsson samdi tónlistina og söngtextar eru eftir Pétur Eggerz. Leikar- ar em Pétur Eggerz og Mar- grét Kr. Pétursdóttir. -glm Þessi brúöa er ekki beint frýnileg. SCÍRSCI IRSKI PUB f € V R Ó P U Kringlunni 4 Föstudags- ojj; laugardagskvöld 10. otr 1 1. okt. östudairs tugardagskvöld KARMA liiukasalir fast k igdii jyrir allai iififuikonmi s..s ajma’lisvcisliti og fyrirlcstra. l'antit) i siina SS.S •/6(>'/

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.