Dagblaðið Vísir - DV - 07.11.1997, Side 2
FÖSTUDAGUR 7. NÓVEMBER 1997
i ^Jkmyndir^
Háskólabíó - Sólbruni:
Maðkur í mysunni
★★★ Það er ekki oft sem
tekst að gera hlýja og
manneskjulega kvikmynd um
leið og hún er með sterkum póli-
tískum undirtón. Þetta hefur
rússneska leikstjóranum Nikita
Mikhalkov tekist í mynd sinni
Sólbruni (Burnt by the Sun) sem
er áhrifamikil kvikmynd og seg-
ir frá fjölskyldu á tímum Stalíns.
Mikhalikov gerir allt sem hann
getur til að gera yfírborð mynd-
ar sinnar sem mýkst og hjálpar
það til að myndin er látin gerast
á fógrum sumardögum þegar
náttúran skartar sínu fegursta.
Mikhalkov leikur sjálfur aðal-
hlutverkið Sergui Kotov, byltingar-
hetju frá 1917 sem allir líta upp til.
Myndin gerist 1936, Kotov er hættur
öllu stríðsbrölti og er hamingjusam-
ur fjölskyldumaður sem á unga fal-
lega konu, Maroussia, og eina dótt-
ur, Nadiu. Allt er í töstum skorðum
þegar gamall kærasti Maroussiu,
Dimitri, birtist. Það kemur fljótt í
ljós að hann er ekki ailur þar sem
hann er séður. í stað þess að njóta
hins fallega sumars breytist líf fjöl-
skyldunnar. Dimitri er ekkert að
leyna aðdáun sinni á Maroussiu
sem enn ber tilfinningar til hans.
Nadiu þykir Dimitri einnig ákaflega
spennandi en Kotov sér í honum
hættulegan óvin, ekki um hyfli fjöl-
skyldunnar eins og ætla má heldur
sér hann í honum framtíðina í ríki
Stalíns. Enda kemur í ljós að
Dimitri er fufltrúi þess lögreglu-
ríkis sem koma skal.
Það eru mörg ákaflega fafleg
atriði í myndinni, eins og at-
burðir dagsins við ána. Það eru
einnig atriði sem eru beinlínis
gerö til að sýna fram á miskunn-
arleysi Stalínstímans, eins og at-
riöið á hveitiakrinum þar sem
stórt flagg með ásýnd Stalíns er
í bakgrunninum.
Mikhalkov tekst í Sólbruna
að tengja saman margbrotna
sögu, skemmtir um leið og hann
kafar í tilfinningar persónanna
sem hann er að fjalla um. Leik-
arar ná yfirleitt mjög góðum tökum
á hlutverkum sínum og oftar en
ekki kemur rússneska klassíkin í
leikbókmenntum upp í huga manns
þegar fylgst er með leik þeirra og
samtölum sín á milli.
Leikstjóri: Nikita Mikhalkov. Aðal-
hlutverk: Nikita Mikhalkov, Oleg
Menchikov, Ingeborga Dap-
kounaite og Nadua Mikhalkova.
Hilmar Karlsson
Bíóborgin - Þrettándakvöld:
Drottning eyðimerkurinnar
★★ Gamanleikur-
inn Þrettánda-
kvöld er auglýstur sem
400 ára gömul fyrir-
mynd The Adventures
of Priscilla, Queen of
the Desert (1994), To
Wong Foo, Thanks for
Everything! Julie
Newmar (1995) og The
Birdcage (1996). Og
það má vissulega sam-
sinna þeirri staðhæf-
ingu þar sem klæð-
skipti Víólu eru ein af
meginforsendum gamansins.
Twelfth Night: Or What You Wifl
er leikstýrt af Trevor Nunn sem er
einn frægasti sviðsleikstjóri Breta.
Þar er sögð saga eineggja tvíbura-
systkina, Víólu (Imogen Stubbs)
og Sebastians (Steven Mackin-
tosh), en leiðir þeirra skilur þegar
skip þeirra ferst undan ströndum
fllyríu. Víóla er þess fúllviss að
bróðir hennar hafi farist. Hún dul-
býr sig sem karlmaöur og gengur í
þjónustu hertogans Orsiníó (Toby
Stevens). Hertoginn er ástfanginn af
hefðarkonunni Ólivíu (Helena Bon-
ham Carter) og sendir „sveininn"
Víólu í bónorðsferð til Ólivíu. Ekki
tekst betur til en svo að Ólivía verð-
ur ástfangin af Víólu sem hún telur
karlmann og hertoginn finnur til
ósæmilegra kennda í návist þessa
unga aðstoðarmanns. Þegar Sebasti-
an birtist svo í Illyriu fer cfllt á ann-
Wikmvnþahátíp
í
an endann því að systkinin eru svo
lík að ekki er hægt að þekkja þau í
sundur.
Þetta er ærslafullur gamanleikur
um fall oflátunga þar sem ekkert er
sem sýnist. Á tímum Shakespeares
hefðu klæðskiptin verið enn kostu-
legri þar sem konur léku ekki í leik-
húsi ensku endurreisnarinnar. í
hlutverki Víólu hefðu samtímaá-
horfendur séð ungan mann sem lék
konu sem þóttist vera
maður. í lestri á leik-
ritinu gengur þetta
allt upp. Ekki er erfitt
að trúa því að þau
Víóla og Sebastian séu
svo lík að undrum
sæti. í uppsetningu
verksins er slíkt erfiö-
ara og sérstaklega í
kvikmynd þar sem öll
smáatriði eru margföl-
duð. Þannig reyna
senumar þar sem
Stubbs og Mackintosh
er ruglað saman verulega á vilja
áhorfandans til þess að samþykkja
hina listrænu blekkingu. Á heildina
séð er Twelfth Night átakalítil
mynd og þótt flestir leikaramir
standi sig vel skilur myndin lítið
eftir. Verstur þótti mér Ben
Kingsley í hlutverki Feste, en
Richard E. Grant (Sir Andrew
Aguecheek) og Nigel Hawthorne
(Malvolio) stóðu sig ágætum. Enda
er sá þáttur leikritsins sem gerist
heima hjá Ólivíu fyndnasti hluti
myndarinnar.
Leikstjóri: Trevor Nunn. Helstu
hlutverk: Helena Bonham Carter,
Richard E. Grant, Nigel Haw-
thorne, Ben Kingsley, Mel Smith
og Imogen Stubbs.
Guðni Elísson
Stjörnubíó - Snerting:
Hversdagsleg kraftaverk
^.JL^ Touch er byggð á skáld-
sögu Elmore Leonards og
fjallar um ungan mann, Juvenal
(Skeet Ulrich), sem er kraftaverka-
heilari. Ekki nóg með það heldur
blæðir honum úr krossfestingarsár-
um krists. Bill Hifl (Christopher
Walken) er fjárglæframaður og fyrr-
verandi safnaðarstjóri og grípur
strax tækifærið til að græða á fyrir-
bærinu. Til þess að nálgast Juvenal
sendir hann fyrrverandi samstarfs-
konu sína, Lynn (Bridget Fonda), til
að ná taki á drengnum en þau verða
óvart ástfangin upp fyrir haus og
raglast þá málin heldur. Inn í þetta
blandast svo leiðtogi annars trúar-
hóps (Tom Amold) sem er í aftur-
haldssamari kantinum og vill snúa
aftur til fomeskju í trúmálum („No
sex before marriage" og þar fram
eftir götunum) og telur hæfileika
Juvenals geta stuðlaö að afturhvarfi
þessu. Juvenal sjálfur vill hins veg-
ar sem minnst með allt þetta hafa,
hann vill bara fá aö vera venjulegur
maður og virðist ekki alveg vita
hvað hann eigi að gera við þessa
hæfileika sína. Touch er greinilega
beint gegn trúarofstæki af sérhverju
tagi og tekst vel að koma þeim boð-
skap á framfæri. Lokasenunni, þar
sem Juvenal endar í sjónvarpsvið-
tali, er greinilega ætlað að draga
saman það sem höfundurinn vill
koma á framfæri og gerir það vel og
tekst að sigla fram hjá þeim yfir-
þyrmandi dramatíseringum sem
slíkum skila-
boðum fylgja
iðulega. Er þar
ekki síst að
þakka góðum
leik þar sem
valin mann-
eskja er í
hverju rúmi.
Ulrich er bæði
sætur og sann-
færandi sem
dálítið ráðvillt-
ur en áberandi
hreinskiptinn
(bamalegur?)
strákur og
Arnold er sér-
lega skemmti-
legur sem of-
stækisfullur auli. Touch er ánægju-
leg mynd sem tekur á óvenju heil-
brigðan hátt á fyrirbæri sem er jafh-
eldfimt og það er varasamt.
Leikstjóri og handrit Paul
Schrader. Aðalhlutverk: Bridget
Fonda, Skeet Ulrich, Tom Amold og
Christopher Walken.
Úlfhildur Dagsdóttir
Robin Williams leikur lögfræöinginn Dale Putley sem hefur verið svo lengi
örvæntingarfullur aö hann er farinn aö njöta þess.
Sam-bíóin sýna Fathers' Day:
Tveir pabbar
- einn sonur
Robin Williams og Billy Crystal,
sem leika aðalhlutverkin í Fathers’
Day, sem Sam-bíóin frumsýna i dag,
eiga það sameiginlegt að vera ekki
aðeins tveir af fyndnustu leikuram
vestanhafs, heldur era þeir báðir
taldir með skemmtilegri mönnum í
einkalífinu. í Fathers’ Day leika
þeir tvo ólíka einstaklinga sem
verða hvor á vegi annars á óvænt-
an hátt.
Colette (Nastassja Kinski) er fal-
leg kona með fortíð. Fyrir sautján
áram átti hún í ástarævintýri með
Jack Lawrence (Billy Crystal). Þeg-
£ir þau slitu samvistum var það með
samþykki beggja og hafa þau verið
vinir síðan. Colette á son, Scott, sem
nú hefur horfið að heima. Hún snýr
sér til Jacks og segir honum að það
sé mjög líklegt að hann sé sonur
hans. Hann samþykkir það ekki.
Colette snýr sér því að Dale Putley
(Robin Williams) sem hún hafði
einnig átt í ástarsambandi við
fyrir sautján árum og tilkynn-
ir honum að Scott sé að öll-
um líkindum sonur hans.
Dale, sem er einstæðingur,
verður yfir sig hrifinn og
er ákveðinn i að hafa upp
á stráknum. Á meðan hef-
ur Dale sannfærst um að
það sé skylda hans að leita
uppi „son“ sinn og hefur
eigin eftirgrennslan. Það
líður því ekki á löngu áður
en Dale
og Jack
rekast
hvor á annan og komast að því að
þeir era báðir að leita að syni og að
það er sami sonurinn.
Leikstjóri Fathers’ Day er Ivan
Reitman sem á að baki nokkra vel
heppnaðar gamanmyndir. Reitman
hefúr jöfiium höndum starfað sem
ffamleiðandi og leikstjóri og rekur
sitt eigið fyrirtæki, Northem Lights
Entertainment, sem á síðasta ári
sendi frá sér Space Jam og Howard
Stem’s Private Parts. Meðal kvik-
mynda sem Reitman hefur leikstýrt
má nefna Ghostbuster-myndirnar
tvær, Kindergarten Cop, Twins og
Dave.
Reitman fæddist í Tékkóslóvakiu.
Hann var fjögurra ára þegar fjöl-
skyldan flúði undan kommúnista-
stjórninni til Kanada. Þar gekk
hann menntaveginn og valdi
snemma kvikmyndagerð sem sitt
aðalfag. Meðan á námi stóð í
McMaster University kynntist hann
ungum jafnaldra, Dan
Aykroyd. Þeir hófu
samstarf sem hefúr
haldist síðan.
Næsta mynd Reit-
mans er 6 Days/7
Nights, róman-
tísk gamanmynd
með Harrison
Ford í aðalhlut-
verki. -HK
Biliy Crystal leikur lögfræöinginn Jack Lawrence sem hefur nóg af öllu
nema þolinmæöi.