Dagblaðið Vísir - DV - 07.11.1997, Blaðsíða 11
FÖSTUDAGUR 7. NÓVEMBER 1997
%n!ist
hápuntki þegar gervallur salurinn
tók undir af lífs og sálar kröftum í
laginu Fatlafól. Eftir vel heppnaða
tónleika bauð Megas svo góða nótt.
Einfari í tónlist
Ef Geirmundur Valtýsson er kon-
ungur sveiflunnar þá er Megas sam-
nefnari fyrir allt hitt - þetta
skemmtilega sem enginn þorir al-
mennilega að tala um nema hann
sjálfur. Megas hefur í gegnum tíðina
unnið sér sess í hugum almennings
sem einfari í tónlist. Það er í sjálfu
sér ekki svo fráleitt að kalla hann
einfara. Það er á færi afar fárra tón-
listarmanna að halda manni hug-
fóngnum í tvo klukkutíma með að-
eins kassagítar sér til aðstoðar. Meg-
as hefur fetað slóð sem ekki er fjöl-
farin. Textar hans eru oft á tíðum
beint af götum Reykjavíkur og fjalla
um það sem gerist þegar rökkva tek-
ur og dularfullir menn með plastpoka
fara á stjá. Á miðvikudagskvöldið
sýndi hann allar sinar bestu hliðar á
tónleikum sem eiga eftir að lifa í
minningu þeirra sem á hlýddu. ÖU
helstu verk meistarans eru nú loks
fáanleg á geisladiskum sem verður
að teljast gott framtak þar sem fjölda
margir hafa ekki átt kost á því að
nálgast plötur hans lengi. -jaj
Súrefni
Síðastliðið miðvikudagskvöld hélt
meistari Megas tónleika í Tíarnar-
bíói á vegum Listafélags Mennta-
skólans í Reykjavík. Vart þarf að
taka fram að fullt var út úr dyrum á
tónleikunum enda er það ekki oft
sem þessi ástsælasti tónlistarmaður
þjóðarinnar heldur tónleika. Um
áttaleytið hóf hljómsveitin Sigurrós
að greiða úr mismiklum sálarflækj-
um áhorfenda með seiðandi, takt-
fastri tónlist og undurfagurri
falsetturödd Jóns Þórs, söngvara Sig-
ur Rósar. Tónlist Sigur Rósar á eng-
an sinn líka hérlendis. Enda linnti
fagnaðarlátunum seint eftir hið frá-
bæra uppklappslag þeirra, Sól, þar
sem trommusett og fiðlubogi voru
meðal hinna látnu. Á eftir Sigur Rós
steig Megas á svið með kassagítar-
inn einan að vopni og lék gömul og
ný lög í tæpa tvo tíma, meðal annars
lög af nýjustu breiðskifú sinni, Fláa
veröld. Áhorfendur nutu til fulinustu
Tónlist Sigur Rósar á engan sinn líka hérlendis, enda linnti fagnaðarlátun-
um seint eftir hið frábæra uppklappslag þeirra, Sól.
gamalla perla á borð við Undir rós fengu áhorfendur smjörþeflnn af
og Litlir sætir strákar. Samhliða því nýju efhi Megasar. Kvöldið náði svo
- ekki setið auðum höndum
Teknósveitin Súrefni hefur nú
lokið upptökum á nýrri breið-
skífu sem kemur út fyrir jólin.
Lagið Disco hefur átt miklum vin-
sældum að fagna upp á síðkastið
og nú er nýtt lag þeirra félaganna,
sem heitir You Can X, farið að
hljóma í útvarpi. Bæði lögin eru á
væntanlegri breiðskífu og remix
af þeim sem fjöllistahópurinn Gus
Gus á heiðurinn af. Súrefni hefur
ekki setið auðum höndum upp á
síðkastið og nú fyrir skemmstu
hitaði sveitin upp fyrir Wiseguys
á tónleikum hennar í Tunglinu og
á Akureyri. Súrefni virðast ætla
að verða fastur gestur á Wall of
Sound- kvöldum vetrarins þar
sem þeir félagar rnrmu koma til
með að hita upp fyrir Les Ryt-
hmes Digitales á tónleikum þeirra
seinna í mánuðinum. Súrefni er
ekki óvant því að hita upp fyrir
erlendar hljómsveitir og má þar
nefna Drum Club, Propellerheads,
Bentley Rhythm Ace, Andy We-
atherall og fleiri. Það er hið ný-
stofnaða útgáfufyrirtæki Dennis
sem gefur út disk Súrefnis.
Subterranean
í dag kemur út fyrsta breiðskífa
hip hop-hljómsveitarinnar Subterr-
anean. Hún er búin að starfa saman
í rúmt ár og á rætur sínar að rekja
til Svíþjóðar. Meðlimir hennar eru
fjórir talsins: Maggi (Maxie), Kalli
(Charlie D.), Ragna (Cel 7) og Frew
- fyrsta breiðskífan í dag
(Balck Fist) sem er sænskur.
Nýja breiðskífan ber nafnið
Central Magnetizm og inniheldur
tólf ný lög frá sveitinni. Stíll hljóm-
sveitarinnar er talsvert frábrugðinn
Quarashi sem er mun rokkaðri og
harðari í sínu rappi á meðan
Subterranean er meira undir áhrif-
um frá hip hoppi af gamla skólan-
um. í dag, samhliða útgáfu plötunn-
ar, verður opnuð heimasíða hljóm-
sveitarinnar og er slóðin inn á hana
http://subta.innn.com.
Papar á írlandi
Hljómsveitin Papar leik-
ur á skemmtistaðnum ír-
landi um helgina.
Sixties á Feita
dvergnum
Hljómsveitin Sixties leik-
ur á veitingastaðnum
Feita dvergnum í kvöld.
Annað kvöld leikur Rún-
ar Júlíusson þar.
Mannakorn á
Dalvík
Hljómsveitin Mannakorn
leikur fyrir gesti Café
Menningar á Dalvík um
helgina.
heldur uppi stemningu á
leikstofunni.
Síddegistón-
leikar Hins
hússins
Hljómsveitin Port spilar
á síðdegistónleikum Hins
hússins í dag, kl. 17.
Skítamórall og
Helgi Björns-
son
Hljómsveitin Skítamórall
og söngvarinn Helgi
Björnsson halda uppi
fjörinu á fyrsta sveita-
balli vetrarins í Miðgarði
annað kvöld.
I hvítum sokk-
um
Hljómsveitin í hvítum
sokkum leikur á Kringlu-
kránni um helgina. Ómar
Diðriksson trúbador
Kaffi Akureyri
Einn besti söngvari og
hljómborðsleikari Ástral-
íu, Glen Valentine,
skemmtir gestum Kaffis
Akureyrar um helgina.