Dagblaðið Vísir - DV - 07.11.1997, Blaðsíða 12

Dagblaðið Vísir - DV - 07.11.1997, Blaðsíða 12
26 ntyndbönd MYNDBAHDA & 'Xtt The Saínt: Þunnur þrettándi Gamli kunninginn okkar, Dýrlingurinn, er hér dubbaður upp í Hollywood-stórmynd, hvorki meira né minna. Reyndar er lítið eftir af upprunalega dýr- lingnum nema nafnið en það er nú bara eins og gengur og gerist. Hann er hér moldríkur ofurþjófur með samvisku sem samþykkir að stela formúlu af vísindamanni nokkrum. Vísindamaðurinn reynist vera íðilíbgur kona og hann verður ástfanginn. Vondur karl í Rússlandi ætlar að nota formúluna til að ná þar völdum og gera Rússland að hern- aðarlegu stórveldi á ný. Söguþráðurinn og reyndar öll atburðarásin í myndinni og hegðun persónanna er með því bjánalegra sem sést í mynd- um af þessari stærðargráðu. Hún er of heimskuleg til að vera spennandi og tekur sig of alvarlega til að vera fyndin. Hasarinn er þar að auki í linara lagi. Persónurnar eru óspennandi og leikaramir misjafnir. Skást- ur er Val Kilmer i aðalhlutverkinu og hann fær að leika sér með ýmiss konar dulargervi sem framkalla nokkrar kómiskar senur. Þetta bjargar annars vonlausri mynd um eina stjömu hjá mér. Útgefandi CIC myndbönd. Leikstjóri Phillip Noyce. Aðalhlutverk: Val Kil- mer og Elisabeth Shue. Bandarísk, 1997. Lengd 118 mín. Bönnuð innan 12 ára. -PJ The Last Days of Frankie fhe Fly: 'Sl Hefnd ** W Frankie the Fly er vesælasti smákrimminn í geng- inu. Hann er sá sem aflir hæðast að og níðast á. Hann dreymir um að losna undan yflrráðum yfir- manns síns, Sal, og fær í því skyni kfámmyndaleik- stjóra til að gera með sér kvikmynd eftir eigin hand- riti og ætlar að fá klámmyndaleikkonuna Margaret (sem hann er ástfanginn af) í aðalhlutverkið. Sal kemst á snoðir um fyrirætlanir hans og neyðir hann til að horfa á meðan hann pyntar og niðurlægir leik- stjórann og Margaret. Þá er Frankie nóg boðið og hann hyggur á hefndir. Söguþráðurinn í myndinni er athyglisverður en einhvern veginn er ekki unnið nógu vel úr honum og það vantar svolítið meiri léttleika í myndina til að gera hana nógu skemmtilega. Leikararnir eru misjafnir. Michael Madsen og Dennis Hopper eru í sínum föstu rullum og hvorki betri né verri en vanalega. Daryl Hannah er eiginlega alltof gömul til að vera trú- verðug í klámdrottningarhlutverkinu en Kiefer Sutherland á góða spretti sem leikstjórinn þótt hann hafl stundum farið yflr strikið í ofleik. Skemmtilegastur er Dayton Callie i hlutverki bófans sem er næstráð- andi Sal í genginu. Það er margt athyglisvert í myndinni en betur má ef duga skal. Útgefandi Skífan. Leikstjóri Peter Markle. Aðalhlutverk: Dennis Hopper, Kiefer Sutherland, Daryl Hannah og Michael Madsen. Bandarísk, 1996. Lengd 92 mín. Bönnuð innan 16 ára. -PJ Scream: **★* Hryllilega fyndin Allt fer á annan endann og margir liggja undir grun þegar eitursnjall raðmorðingi fer að herja á ró- lyndislegan smábæ. Hann gerir morðin að eins kon- ar leik þar sem fróðleikur um hryllingsmyndir er það helsta sem kemur að gagni. Ekki var laust við að myndin minnti mig á Clueless en í báðum mynd- um var tiltölulega staðlað og klisjukennt kvik- myndaform tekið fjrir og klisjumar látnar vinna fyrir grínið í myndunum. Þessi mynd gengur þó enn lengra en Clueless því hér tala persónurnar beinlín- is um klisjurnar eins og þær séu persónur í mynd (sem þær auðvitað eru). Ekki skemmir fyrir að Wes Craven hefur fengið heilan her af ágætisleikurum af yngri kynslóðinni sem greinilega hefur skemmt sér vel. Að öðrum ólöstuðum fannst mér Matthew Lillard taka sig best út. Síðasti hálftíminn í myndinni býður upp á einhverja skemmtilegustu klisjufléttu sem ég hef orðið vitni að og löngu eftir að myndinni lauk var ég enn að glotta yflr henni. Það mætti kalla þessa mynd hryllingsmynd en hún er í rauninni ekkert sér- staklega hrollvekjandi. Hún er hins vegar fyrirtaks grínmynd. Útgefandi Skífan. Leikstjóri Wes Craven. Aðalhlutverk: Neve Campbell o.m.fl. Bandarísk, 1996. Lengd 117 mín. Bönnuð innan 16 ára. -PJ Joyride: Lík í skottinu ★ Myndin gerist mestöll á subbulegu móteli. Þrjú ungmenni ræna bíl eins gestanna í fyllirísrugli en bregður i brún þegar þau finna lík í skottinu. I ljós kemur að eigandi bílsins, kona sém kallar sig bara Smith, er þrautþjálfaður atvinnumorðingi og vill fá bílinn sinn í hvelli áður en lögreglan kemst á slóð hennar. Sagan býður upp á stílfærða ofbeldismynd með svölum persónum en kemst aldrei á skrið. Hug- myndin er ágæt en handritið er illa skrifað og barna- legt. Leikararnir eru allir með afbrigðum slappir nema perlan Benicio Del Toro, sem leikur rannsókn- arlögreglumann, en hann fær aöeins örfáar línur. Hann lífgar þó upp á atburðarásina þá sjaldan hann er í mynd. Wilson Cruz, sem leikur hommann í My So-Called Life. er í einu hlutverkanna og er álíka léleg- ur og flestir aðrir. Myndin er að mestu leyti heimskuleg, fyrirsjáanleg og leiðinleg og sérstaklega er endirinn aumkunarverður. Útgefandi Skífan. Leikstjóri Quinton Peeples. Aðalhlutverk: Tobey Maguire, Amy Hathaway, Wilson Cruz og Christina Naify. Bandarísk, 1996. Lengd 91 mín. Bönnuð innan 16 ára. -PJ FÖSTUDAGUR 7. NÓVEMBER 1997 T>V ndalisti vikunnar ■ • SÆTI 21. til 27.október FYRRI { VIKUR ! VIKA ÁLISTAÍ TITILL UTCEF. TEG. i : 2 ) 2 ]. Saint, The J ClC-myndbönd Spenna 2 Ný í SUHHflB 1 il ] Scream j i Skífan Spenna 3 ; 1 i 2 1 L j Donnie Brasco i Sam-myndbönd Spenna 4 People VS. Larry Flynt 3 j Fools Rush In ■MÉBHÉÍMHÉlí 5 Vegas Vacation Skífan 1 Gaman Skifan j Gaman Warner myndir Gaman 7 l 6 3 ) Smilla's Sense of Snow 1 Sam-myndbönd Spenna 8 i J 7 3 Relic J J Háskélabíó j j Spenna 9 : 12 2 Pallbearer, The Skrfan Gaman io: 10 , j Beavis and Butt-Head Do America j j J ClC-myndbönd J . Gaman ii : 9 6 0 English Patient Skifan j Drama 12 J J 8 3 J J Crash J J Myndform Spenna 13: 11 8 Metro J Sam-myndbönd j Spenna »j; 14 r - - -v--' 2 If These Walls Could Talk j Háskólabíó Drama 15 i 18 2 Frankie The Fly Skifan 1 J Skífan J Spenna 16 i J 13 j 10 Jerry Maguire J J Drama 17: 15 5 { CasperzA Spirited Beginning J Skífan Gaman 18 ! J n 1 2 J J j 1 Love You, 1 Love You Not j j J Skrfan J j Drama 19 i 16 10 Ghost and the Darkness j ClC-myndbönd j Spenna 20 ; Ný 1 Steal Big, Steal Little \ Sam-myndbönd j Spenna Donnie Brasco stoppaði stutt viö í efsta sæti list- ans, Dýrðlingurinn haföi betur gegn mafíumyndinni og einnig táningahrollvekjunni Scream sem kemur æðandi inn á listann og fer beint í annað sætiö. Að öðru leyti eru engar nýjar myndir á listanum fyrir utan Steal Big, Steal Little sem er í 20. sæti. Er um að ræða nýja mynd með Andy Garcia í hlutverki ólíkra tvíbura sem eiga von á miklum arfi þegar fóst- urmóðir þeirra deyr. Annar er vel innrættur og bíður þess sem veröa vill en hinn hefur þegar veðsett arf- inn og liggur á að fá peningana. Á myndinni eru Skeet Urich og Neve Campell í hlutverkum sínum í Scream þar sem leikstjóri er Wes Craven sem fræg- ur varð þegar hann leikstýrði fyrstu Álmstrætis- myndinni. The Saint Aðalhlutverk: Val Kilmer og Elisa- beth Shue. í dag er Simon Templar orðinn meistaraþjófur, snill- ingur í að dulbúa sig og vinna öll þau hættulegu verk sem honum eru falin. Markmið hans er að safna 50 milljón doll- urum inn á leyni- reikning sinn. Um leið og þeirri tölu er náð sest hann í helg- an stein. Og verkefn- ið, sem hann þarf að leysa til að fylla þessa tölu, er að stela vísindaformúlu sem ung vísindakona hef- ur fundið upp og á eftir að leiða af sér byltingu í orkumál- um heimsins. Scream Courtney Cox og Neve Campell Sidney á við fleiri vandamál að glíma en flestir aðrir tán- ingar. Móðir hennar var myrt fyrir einu ári, faðir hennar er í viðskiptaferð og unnusti hennar þrýstir á hana að koma með sér í rúm- ið í fyrsta sinn. Það er ekki á bætandi að morðingi tekur að valda skelfingu í bænum. Notar hann senur úr þekktum spennumyndum til að ginna fórnarlömb sín í dauðagildru og á lögreglustjórinn á staðnum í hinum mestu erfiðleikum með að fá botn í til- gang morðingjans. Donnie Brasco Aðalhlutverk: Al Pacino og Johnny Depp. Myndin er byggð á sannri sögu alríkis- lögreglumanns sem komst inn fyrir raðir æðstu manna í mafí- unni og villti á sér heimildir um þriggja ára skeið. Eftir því sem tíminn leið og hann kynntist hin- um nýju „starfsfélög- um“ sínum betur urðu skilin milli laga og glæpa óljósari í augum hans. Þetta hafði veruleg áhrif á allt hans líf, enda erfitt að vera FBI- maður, eiginmaður, faðir og vinur mafi- unnar. People vs. Larry Flynt Woody Harrelson og Courtney Love Myndin fjallar um Larry Flynt, hinn umdeilda útgefanda Hustlers. Þegar blað- ið kom út í fyrsta skipti upphófust strax háværar raddir um að slíkt blað ætti að banna. Flynt neyddist til að hefja baráttu sína fyrir lífi blaðsins, prentfrels- inu og tjáningarfrels- inu í hvaða mynd sem var. Málið fór alla leið fyrir hæsta- rétt Bandaríkjanna og aðstæðurnar urðu til þess að Flynt var talinn síðasti kross- fari síns tíma. Fools Rush in Salma Hayek og Matthew Perry Ungur maður frá New York, Alex Whitman, hittir hina fögru Isabel í Las Vegas. Þau eyða einni nótt saman og halda svo til síns heima. Þeg- ar Isabel birtist dag einn á þröskuldin- um hjá Alex og til- kynnir honum að hún sé ófrísk verð- ur hann hinn glað- asti og vill ólmur giftast henni. Isabel samþykkir það en það er annað að elska og þekkja hvort annað eins og hinir ungu elskend- m- eiga fljótlega eft- ir að komast að.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.