Dagblaðið Vísir - DV - 07.11.1997, Blaðsíða 3
FÖSTUDAGUR 7. NÓVEMBER 1997
Höéu-
handritshöfundur
Vinsælasta kvikmyndin I
Bandaríkjunum síðustu þrjár
vikur hefur verið táningahryll
ingurinn I Know What You
Did last Summer. Henni hef-
ur verið líkt við Scream sem
varð feikivinsæl. Það þarf
varla að koma neinum á óvart
samlíkingin því sami handrits-
höfundur er að báðum mynd-
unum, Kevin Wifliamson sem
dag er harðastur handritshöf-
unda í Hollywood. Næsta
mynd sem hann skrifar hand-
rit að er Scream 2 sem frum-
sýnd verður 12. desember og
gert er ráð fyrir því að hún
verði óhemjuvinsæl.
Átta kvikmynda samn-
ingur
Miramax Films hefur nú
tryggt sér Kevin Williamson o
gert við hann átta mynda
samning og er tahð að Willi-
amson fái í sinn hlut 20 millj-
ón dollara fyrir vinnu sína
auk prósenta. Inn í samningn-
um er að hann skrifi handrit
að Scream 3 og fái að leikstýra
fýrstu myndinni sem verður
Killing Mrs. Tingle, gaman-
samur þriiler sem hann að
sjálfsögðu skrifar einnig hand-
rit að.
Brnce Willis í Armageddon
Leikstjórinn Michael Bay
sló í gegn með tveimur mynd-
um, Bad Boys og The Rock.
Hann er nú að sfjóma stór-
slysamyndinni Armageddon
og áætlar að ljúka tökum í jan-
úar. í myndinni segir frá því
þegar risaloftsteinn stefnir í
átt til jarðar. í
er Brace Wiilis, Wiil Patton,
Liv Taylor og Billy Bob
Thomton.
Vinsælasta kvikmynd í
Japan frá upphafi
Otrúlegar vinsældir jap-
önsku teiknimyndarinnar
Vofuprinsessan á heimaslóðum
hafa gert það að verkum að
hún er orðin vinsælasta kvik-
mynd sem sýnd hefúr verið í
Japan frá upphafi og kom hún
ET úr þvi heiðurssæti. Um
mánaðamótin var aðgöngu-
miðasala að myndinni komin í
80,4 milljón dollara en tekjur
af ET vora 80,2 miiljónir. Vofú-
prinsessan gerist á miðöldum
þar sem maðurinn, dýr og ver-
ur úr öðram heimi beijast um
völdin. Dótturfyrirtæki Walt
Disneys hefúr fengið réttinn á
að dreifa myndinni fyrir utan
Japan.
Kvikmyndirum Miles
Davis og Brian Wilson
Kvikmyndaframleiðandinn
Marvin Worth, sem meðal ann
ars framleiddi Malcolm X og
Lenny, hefur tryggt sér réttinn
til að kvikmynda ævisögu
Miles Davis og er allt komið á
fúllt við undirbúninginn. Col-
umbia mun framleiða mynd-
ina. Worth hefúr fengið hand-
ritshöfúndinn Reggie Rock
Blythewood (Get on the Bus)
til að skrifa handritið. Þess má
geta að áður en Worth tók að
framleiða kvikmyndir sá hann
um djasstónleikahald svo hann
getur með réttu sagt að hann
þekki djassheiminn. Wort er
einnig að undir-
búa kvikmynd um ævi
annars tónlistarmanns,
Brians Wilsons úr Beach
Griffin Dunne mun
leikstýra þeirri mynd.
Thomas Devoe (George Clooney) og Julia Kelly (Nicole Kidman) sleppa oft naumlega þegar að þeim er hert.
Háskólabiö og Laugarásbíó sýna The Peacemaker:
Kjarnorkusprengja í
höndum hryðjuverkamanna
The Peacemaker, sem frumsýnd
verður í dag, er fyrsta kvikmyndin
sem kemur frá nýja stórfyrirtækinu
í kvikmyndabransanum,
Dreamworks Pictures. Hefúr mynd-
in verið að gera það gott í Banda-
ríkjunum að undanfómu þótt engin
metaðsókn hafi verið að henni. The
Peacemaker, sem er spennu-
mynd, fjallar um þá hættu-
legu kreppu sem kemur upp'
þegar hryðjuverkamenn ná und-
ir sig kjarnorkuvopnum.
Myndin byrjar á kjamorku-,
sprengingu í Rússlandi sem í fyrstu
virðist hafa verið slys. Til að kanna
málið nánar er fenginn kjarneðlis-
fræðingurinn dr. Julia Kelly (Nicole
Kidman). Hún ásamt aðstoðarmönn-
um sínum kemst að því að spreng-
ingin var ekkert stórslys heldur
skipulögð sprenging hryðjuverka-
manna. Á meðan hún er að komast
að þessu er bandarískur herforingi,
Thomas Devoe (George Clooney),
einnig að vinna að málinu og hann
kemst að sömu niðurstöðu og að
kjamorkusprengjan hafi verið
sprengd til þess eins að fela slóð
hiyðjuverkamanna sem hafa stolið
kjamorkusprengjum úr forðabúri
fyrrum Sovétríkjanna. Devoe og
Kelly sameina krafta sína í að kom-
ast til botns í þessu máli og stofna
lífi sínu um leið í hættu.
Auk þeirra Nicole Kidman og Ge-
orge Clooney leikin' stórt hlutverk í
myndinni Armin Mueller-Stahl,
sem fékk óskarstilnefningu fyrr á
þessu ári fyrir
faðir
David
Helfgotts
í Shine.
Leikstjóri er
Mimi Leder, sem
er að leikstýra
kvikmynd í fyrsta
sinn. Það er ör-
uggt að þeir
Steven Spielberg
og félagar í
Draumasmiðjunni hafa mikla trú á
Leder úr því þeir réðu hana til að
leikstýra fyrstu stóm mynd fyrir-
tækisins. Paramoimt virðist hafa
sömu trú á henni því hún er þessa
dagana að leikstýra stórslysamynd-
inni Deep Impact sem er á vegum
Paramount. Mimi vakti fyrst at-
hygli þegar hún fékk
emmyverðlaunin fyrir
leikstjórn á einstaka
þáttmn í ER-sjón-
varpsseríunni vin-
sælu. Síðan hefur
hún verið einn af
framleiðendum
seríunnar,
þannig að hún
og George Cloo-
ney þekkjast
vel. Mimi
Leder er uppal-
in i New York
og hóf störf í
kvikmyndum
og sjónvarpi
sem kvik-
myndatökum-
aður. -HK
George Clooney leikur herforingja í leit að
hryðjuverkamönnum.
Háskólabíó - Hógvær hetja:
Blekkingavefur
. . . Hetja Un héros trs discret
A A A er í orðsins fyllstu merk-
ingu hógvær. Albert
Dehousse (Mathieu Kassovitz) er
andspymuhetja sem segir engum
frægðarsögu sína ótilneyddur og þó
standa allir á öndinni þegar hann
minnist á raunir sínar úr stríðinu.
Albert hefur líka ástæðu til þess að
vera hógvær því allar sögur hans
era hreinn uppspuni.
Un héros trs discret er í gervi
heimildarmyndar og rekur sögu Al-
berts frá æsku fram til þess sem
hann er orðinn háttsettur foringi í
franska hemum. Sem bam dreymir
hann um hetjudáðir á vígvellinum
en þegar stríðið skellur á verður
hann að láta sér lynda að sitja
heima. Árið 1944 yfirgefur hann eig-
inkonu sína og heldur til Parísar.
Við stríðslok kemur hann sér smám
saman inn í innsta hring and-
spymuhreyfingarinnar án þess að
hafa nokkru sinni hleypt af skoti og
svo fer að hann er sendur til Þýska-
lands til þess að finna þá óvini
franska ríkisins sem sigla undir
fölsku flaggi (og vegabréfi). Al-
bert er besti maður sem hugsast
gæti í starfið af þeirri einfóldu
ástæðu að hann hefur í mörg ár
þóst vera annar en hann í raun
og vem er.
Mathieu Kassovitz er frábær í
hiutverki Alberts og er þetta enn
ein skrautfjöðrin í hatt þessa
franska listamanns sem leikstýrði
Hatri (La Haine) árið 1995. Un héros
trs discret er kostuleg grinmynd þar
/IKMYNÞAHATIP
sem ekkert er sem sýnist og ég mæli
eindregið með henni. Þó er rétt að
benda á að til þess að geta notið
myndarinnar verða kvikmynda-
hússgestir að skilja frönsku eða
geta lesið Norðurlandamál.
Leikstjóri: Jacques Audiard. Aðal-
hlutverk: Mathieu Kassovitz,
Anouk Grinberg, Sandrine Kiberla-
in, Jean- Louis Trintignant, Albert
Dupontel og Nadia Barentin.
Guðni Elisson
Íkvikmyndir
Faceoff
í þessari nýju mynd sinni skapar Woo
spennuhasar sem jafnframt því a6 vera vel
skorðaður í bandarísku kvikmyndasam-
hengi ber stíl og hæfni Woos fagurt vitni.
Travolta og Cage eru þarna í súperformi;
sérstaklega er gaman aö sjá Travolta sanna
sig þarna enn og aftur og aö öllu leyti er val-
inn maöur I hverju rúmi. -úd
Lady and the Tramp ***ý
Þessi klassíska teiknimynd segir frá tíkinni
Laföi og flæklngsrakka sem viö skulum
kalla Snata. Hún er saklaus og fögur, hann
kankvís þorpari meö hjarta úr gulii. Þegar
Laföi lendir í ræsinu tekur Snati hana upp á
arma sína (ef hundar geta slíkt). Rómantík-
in blómstrar og þau lenda i ýmsum ævintýr-
um. -GE
Everyone Says I Love You
Myndin sækir í dans- og söngva-***
myndir fjórða áratugarins og þótt dansatriö-
in séu misjöfn aö gæöum eru sum þeirra
frábær. Myndin stenst ekki samanburö viö
það besta sem Allen hefur sent frá sér en
atllr aðdáendur Allens ættu þó aö sjá hana.
Leikararnir eru ferskir og slagararnir standa
ávallt fyrir sínu. -GE
Perlur og svín ***
Fyndin mynd um hjön sem kunna ekki aö
baka en kaupa bakari og son þeirra sem
selur rússneskum sjómönnum Lödur. Óskar
Jðnasson hefur einstaklega skemmtilegan
húmor sem kemst vel til skila og í leiöinni
kemur hann við kaunin á landanum. Ólafla
Hrönn Jónsdóttir og Jóhann Sigurðarson
eru eftirminnilegí hiutverkum hjónanna.-HK
Með fullri reisn ***
Eftir að hafa hneykslast upp f háls (og veröa
létt skelkaöir líka) á hinum íturvöxnu fata-
fellunum The Chippendales, uppgötva þeir
félagar Gaz (Robert Carlyle) og Dave (Mark
Addy) aö þaö aö fækka fötum uppi á sviöi
er hið aröbærasta athæfi. Þaö er varla
hægt að hugsa sér betri ávísun upp á
skemmtun en svona sögu, og svo sannar-
lega skilaöi myndin þvi grini sem hún lofaöi,
meö fullri reisn. -úd
Contact ***
Jodie Foster er konan sem féll tll stjarnanna
í þessari geim(veru)mynd um trú og tilverur.
Leikstjóra er mikið i mun að greina sig frá
tæknibrelluþungum og fantasipfullum geim-
myndum og skapa i staöinn raunsæja og
vitræna mynd en smáfantasía heföi veriö
holl og góö og létt aðeins á öllu dramanu. í
heildina er Contact sterk og skemmtileg
mynd af því einfalda en samt viðtæka atviki
sem samband vlö verur utan úr geimi hlýtur
aö vera. -úd
Men in Black ***
í MIB er eins og yfirfærslan úr teiknimynda-
sögu í kvikmynd sé aldrei fullfrágengin og
kemur þetta sérstaklega niður á „plottinu".
Áherslan er slik á húmor og stíl aö sjálfur
hasarinn verður út undan og I raun virkar
MIB meira sem grínmynd en hasar. En þrátt
fyrir alla galla er fiessi mynd ómissandl fyr-
ir alla þá sem láta sér ekkert mannlegt
óviðkomandi. -úd
Breakdown *★*
Sakamálamynd sem kemur á óvart, góð
saga meö myndrænni frásögn um mann
sem verður fyrir því að eiginkona hans
hverfur, í bókstaflegri merkingu orðsins.
Seinni hlutinn er ákaflega spennandi og
hraður. Jonathan Mostow er leikstjóri og
handritshöfundur sem vert er aö fýlgjast
meö. -HK
Bean ***
Af Bean má hafa bestu skemmtun. 1
henni eru margar óborganlegar senur
sem ég heföi kosiö aö sjá fléttaöar sam-
an af meiri kostgæfni. -GE
AirForceOne ***
Harrison Ford er trúveröugur forseti Banda-
rikjanna, hvort sem hann setur sig i spor
stjórnmálamannsins eöa iýrrum Vietnam-
hetju, i spennumynd sem er hröö og býöur
upp á góð atriði. Brotalamir í handriti ásamt
klisjukenndum persónum velkja hana þó til
muna. -HK