Dagblaðið Vísir - DV - 07.11.1997, Síða 9
FÖSTUDAGUR 7. NÓVEMBER 1997
hljómplMu
X-Press 2 - Late Night Sessions:
Mögnuð stemning ★★★★
Breiðskífan Late Night
Session er nýjasta afurð út-
gáfufyrirtækisins Open sem er
rekið á vegum súperklúbbsins
Ministry of Sound í London.
Þetta er tvöfaldur diskur, stút-
fullur af rólegheitalögum til að
skella á fóninn þegar fer að
rökkva. Það eru X-Press 2 sem
skeyta hér saman léttri hou-
setónlist og mögnuðum stemn-
ingarlögiun svo að úr verður
mikið og gott „chill“. X-Press 2
hópurinn gefur líka út tónlist
undir nafninu Ballistic
Brothers og Black Science Orchestra. Eitt alflottasta lagið á Late
Night Session er einmitt útgáfa þeirra á slagaranum A Love Supr-
eme. Þó Late Night Session sé í rólegri kantinum eru samt taktar til
staðar á henni sem keyra hana vel í gegn. Það eru þeir Rocky, Dies-
el og Ashley Beedle sem mynda X-Press 2 hópinn. Þetta eru allt vel
þekktir upptökustjórar, tónlistarmenn og plötusnúðar sem hafa getið
sér nafns með því að þeyta skífum í dansklúbbum um allan heim auk
þess sem þeir eru öflugir í útgáfú á eigin tónlist. Á Late Night Session
setja þeir saman lög sem eru leikin undir lokunartíma Ministry of
Sound klúbbsins. Þar sem sá tími sem breskir skemmtistaðir mega
vera opnir er talsvert rýmri en hér á landi hefur það orðið venja þar
að leika rólegri danstónlist við sólarupprás þegar fólk fer að tygja sig
heim. Þannig er fyrri diskurinn ákjósanlegur milli 4 og 5 að nóttu til
en sá seinni milli 6 og 7. Umræðan um rýmri opnun skemmtistaða
hér á landi hefur talsvert verið uppi á yfirborðinu upp á síðkastið. Ef
þeir fengju að vera lengur opnir væri Late Night Session örugglega
lausnin á miðbæjarvandamálinu.
Jón Atli Jónasson
Primal Scream - Echo dek:
íuppskurð ★★★
Primal Scream ganga nú í
annað sinn í samstarf við gúrú
dub- tónlistar, Adrian Sher-
wood, en síðast áttu þeir félagar
samstarf í fyrra með plötunni
Scream Team and the Big Man
Meet Barmy Army. Nýja platan
nefnist Echo dek og er endur-
hljóðblöndun á nokkrum laga
Vanishing Point.
Adrian Sherwood hefur starf-
að í 15 ár við „mix“ á verkum
hljómsveita á borð við Suns of
Arqa, Stone Roses, Depeche
Mode, Nine Inch Nails, Ministry og Living Colour. Sherwood stofn-
aði fyrirtækið On-U Sound Records fyrir sautján árum sem hefur
komið á framfæri heilum her af fónk-, rokk- og reggae-hljómsveitum
og líka gefið út um 100 plötur í gegnum tíðina.
Á fyrri hluta ferils Sherwood gætti mikilla áhrifa reggae-tónlistar
sem setti mikið mark á þær plötur sem hann endurhljóðblandaði. Á
seinni árum hefur dregið úr þessum reggae- tón og Sherwood hefur
skapað einstakan blæ á verkum síðustu ára. Echo dek er þar engin
undantekning. Sherwood hefur nánast gert lög Primal Scream að ein-
hverju allt öðru, hér er einfaldlega um nýtt verk að ræða og sjálfum
finnst mér að hér sé komið listform í líkingu við popplist sjötta ára-
tugarins þar sem einstakir hlutir úr iðnaði eða myndlist eru teknir
og endurskapaðir á nýjan leik.
Hér er heldur engin samkeppni eða samanburður við aðra house-
tónlist því Sherwood hefur þvílíka sérstöðu að mínu mati að slíkt
kæmi ekki til greina. Echo dek er þung. En Echo dek er líka þrælgóð
eftir nokkra hlustun og léttist að sama skapi.
Páll Svansson
*CHOQEH
0
Pixies - Death to the Pixies:
Partíplata ★★★
Dauði Pixies var kannski
óumflýjanlegur árið 1991 og því
miður verður tímanum ekki
snúið, en endurvakning er
löngu tímabær. Hér er á ferðinni
sveit sem tryllti hvert fram-
haldsskólapartíið á fætur öðru
og mun gera svo á ný með út-
komu þessarar ágætu safnplötu,
sem inniheldur brot af þvi besta
sem sveitin gaf út á ferli sem
stóð frá 1987. Að vísu vantar eitt-
hvað á plötuna og alveg öruggt
að einhverjir aðdáendur sveitar-
innar segi lögin sín vanta, en til þess eru aðdáendur víst og nokkuð ljóst
að engar breiðskífur seldust ef „best of ‘ plötur segðu allt sem segja þarf.
„Hittararnir" sem plötuna prýða eru meðal annars Here Comes Your
Man, Debaser, Bone Machine, Gigantic, Where Is My Mind? og Monkey
Gone to Heaven auk 11 annarra sem ættu að gefa góðan rokkundirtón i
hvaða partí sem er, rifja upp nokkrar minningar og búa til nýjar.
Þeir sem eiga allt safnið með Pixies þurfa ekki á þessari að halda,
nema þá til að geta sagst eiga allt sem gefið hefur verið út með hljóm-
sveitinni. Platan er hins vegar skyldukaup fyrir þá sem ekkert eiga með
hljómsveitinni og þá sérstaklega þá kynslóð sem ekki hefur heyrt í Pix-
ies.
Guðjón Bergmann
Breska útgáfufyrirtækið Cre-
ation, sem meðal annars gefur út
Oasis og Primal Scream, hefur
einnig á sínum snærum unga
sænska söngkonu sem heitir Idha.
Hún fór sem Aupair- stúlka til Bret-
lands árið 1993 og kynntist Andy
Bell, fyrrum liðsmanni hljómsveit-
arinnar Ride. Hann kenndi henni að
spila á gítar og hún fór að semja lög.
Aðeins nokkrum mánuðum seinna
gerði hún samning við Creation
sem gaf út hennar fyrstu breiðskífu,
Melody Inn. Árið eftir kom svo út
e.p. geislaplata með Idhu sem ber
heitið A Woman in a Man’s World.
Sá titill var ekki úr lausu lofti grip-
inn þar sem Idha er í raun eina kon-
an sem Creation gefur út. Að sögn
Alans Mcgee’s, forstjóra Creation,
er nýjasta plata Idhu ein sú erfið-
asta sem hann hefur komið nálægt
að gefa út í 13 ár. Það er sökum þess
að það tók tvö ár að finna réttan
upptökustjóra og hljóöfæraleikara
sem pössuðu inn í það sem Idha var
að reyna að gera. Idha tók nýju plöt-
una upp á aðeins fimm dögum en
var svo óánægð með hana að hún
ákvað að gera hana upp á nýtt og
það tók tíma að finna rétt fólk að
vinna með. „Ég hlustaði á upptök-
urnar og áttaði mig á því að hún var
algjörlega stíllaus,“ segir Idha.
Enska er ekki hennar móðurmál og
hún hefur ákveðnar skoðanir á
sinni textagerð. „Textarnir mínir
eru einfaldir. Það er vegna þess að
lögin eru um einfalda hluti,“ segir
hún og brosir. „Ég er ekki Morris-
ey“.
-JAJ
Vaxtarbroddur
r tóniistar
Gróskan í íslenkri tónlist hefur
aldrei verið meiri en einmitt nú. Til-
raunastarfsemi í bilskúrum, svefnher-
bergjum og æfmgahúsnæði um alla
borg er nú að skila sér á geislaplötur
með góðum árangri. Mikið er um tón-
leika og útgáfa á íslenskri tónlist hef-
ur sjálfsagt aldrei verið meiri og fjöl-
breyttari. Nýtt útgáfufyrirtæki, sem
ber nafnið Sproti, hefur nú gefið út
safnplötuna Spírur og inniheldur hún
lög með ungum og ferskum íslenskum
hljómsveitum sem koma allar sín úr
hafa gert um árabil. Að gefa út nýjar
hljómsveitir og tónlist sem ekki er
háð markaðslögmálunum sem gilda í
vinsældalistapoppi. Þau lögmál hafa
reyndar breyst á undanfórnum árum
líkt og tónlistarsmekkur nýrrar kyn-
slóðar sem ekki lætur sér nægja
fjöldaframleiddar poppdægurflugur.
Ætlunin er að fara um landið með
þær hljómsveitir sem eiga lag á Spír-
um í þeim tilgangi að kynna þær bet-
ur fyrir fólki úti á landsbyggðinni.
Meginuppistaðan á Spírum er rokk en
hverri áttinni. Á Spírum er að finna
lög með Stjörnukisa, Vínyl, Emmet,
Bang Gang, 200 þúsund naglbítum,
Tristian og Port.
Markmið Sprota er að gefa út metn-
aðarfyllra efni og fullnægja þeirri þörf
sem er fyrir framsæknari tónlist á
markaðnum. Sproti ætlar að kynna
hljómsveitir sínar á erlendum mark-
aði og er vafalítið pláss fyrir fleiri ís-
lenskar hljómsveitir þar. Sproti mun
koma til með að þjóna sama tilgangi
og óháðu útgáfufyrirtækin erlendis
það var þó ekki með ráðum gert. Þar
á bæ eru menn opnir fyrir danstónlist
enda hefur sú tónlistarstefna fest sig
tryggilega í sessi hér á landi. Það er
ljóst að tímarnir eru að breytast og
verður forvitnilegt að sjá hvert fram-
haldið verður. Af annarri útgáfu
Sprota í ár má nefna nýja breiðskífu
hljómsveitarinnar Maus sem ber heit-
ið Lof mér að falla að þínu eyra. Það
er án efa ein besta plata þeirra Maus-
ara til þessa. Maus heldur útgáfutón-
leika sína þann 13. þessa mánaðar í
Þjóðleikhúskjallaranum. Roger
O’Donnel, hljómborðsleikari The
Cm-e, mun koma fram með Maus á út-
gáfutónleikunum en hann leikur á
hljómborð í velflestum lögum á nýju
plötunni.
-JAJ
2.
3.
Black Gold of the Sun
Nu Yorican Soul
Somewhere
Vision
Get Another Plan (rmx)
Abstract Truth
Polson/Proteln
Marc Green
Spellbound
Deep Ink
7.
8.
9.
Sacre Francais (mixes)
Dimitri from Paris
The Groove
Global Communication
og The UFC Band
*
4
The Grlnde
DJ Spen
New Chapters In Funk
Crispin J. Glover
10. Lemon Puff
Deep South