Dagblaðið Vísir - DV - 25.11.1997, Qupperneq 9
ÞRIÐJUDAGUR 25. NÓVEMBER 1997
9
Utlönd
Sænskir jafnaöarmenn í vanda:
Skilja ekki að
fólki ofbýður
DV, Malmö:
Þaö á ekki af sænskum jafnaðar-
mönnum aö ganga. Erfðaprinsessan
Mona Sahlin féll á takmarkalausri
notkun á greiðslukorti frá hinu op-
inbera. Nú spá menn Qokksleiðtog-
anum og forsætisráðherranum Gör-
an Persson falli vegna þess að hann
hefur undanfarið Qogið út og suður
á kostnað ríkisins. Reikningurinn
nemur nær 20 milljónum íslenskra
króna.
„Mistök Perssons eru að hann
skhur ekki hvað þetta er viðkvæmt
mál. Það er eins og jafhaðarmönn-
um æQi aldrei að lærast að skQja að
fólki ofbýður," segir blaðamaðurinn
Áke Ekdahl um Qanið í forsætisráð-
herranum.
Og nú fara kosningar í hönd, jafn-
aðarmenn standa höllum fæti og
mega síst við áburði um hroka og
eyðslusemi. Umrædd mistök Pers-
sons eru að hann leigði haustið 1996
þotu th að fara á fund í New York.
Reikningurinn hljóðaði upp á 6,5
miUjónir íslenskra króna. í júlí í
sumar fóru Persson og frú til
Malaga á Spáni í leiguþotu. Reikn-
ingurinn 1,2 miiljónir íslenskra
króna. Og nú í október þurfti Pers-
son enn til New York i leiguvél og
ríkið borgaði 10 milljónir íslenskra
króna fyrir ferðina.
í Svíþjóð er það dómgreindarleysi
Perssons sem vekur mesta athygli.
Útgjöldin setja ríkið ekki á hausinn
en jafnaðarmenn eru öðrum fremur
fulltrúar vinnandi fólks í landinu.
Undanfarin ár hefur sænsk alþýða
búið við þröngan kost vegna að-
halds í ríkisútgjöldum og viðvar-
andi atvinnuleysis. Á meðan er al-
þýðumaðurinn Persson á ferð og
Qugi um heiminn á kostnað rikisins
og virðist alblindur á siðleysi gerða
sinna.
í Malmö stóð einu sinni vagga
verkalýðshreyfmgarinnar. Þar voru
stórfyrirtæki á borð við skipasmiðj-
ur Kochums og þar óx Göran Pers-
son úr grasi. Hann ku enn eiga
heima við Ferensveginn en gömlum
jafnaðarmönnum finnst sem leið-
togi þeirra hafi gleymt uppruna sin-
um og slegist í hóp með þotuliðinu.
Nú hefur sænskri þingneftid ver-
ið falið að rannsaka ferðir Perssons
síðustu árin. Grunur leikur á að
hann hafi oft sameinað opinberar
heimsóknir og fjölskylduferðir og í
það minnsta einu sinni lá leiðin um
ísland. -GK
Kötturinn Humphrey, sem var heimilisköttur í Downingstræti, skoöar hér
gullfisk á nýja heimilinu sfnu. Sfmamynd Reuter
Humphrey var
ekki skotinn
Skrifstofa Tonys Blairs, forsætis-
ráðherra BreQands, fékk i gær
blaðaljósmyndara tQ að taka mynd
af keftinum Humphrey á nýjum
dvalarstað hans. Nauðsynlegt þótti
að kveða niður orðróm um að
Humphrey, sem var villiköttur en
fékk inni í forsætisráðherrabú-
staðnum fyrir átta árum, hefði ver-
ið tekinn af lífi.
TQ að bæta ímynd forsætisráð-
herrahjónanna gaf Cherie Blair, eig-
inkona Tonys, meira að segja út yf-
irlýsingu þess efnis að sér hefði
þótti leitt þegar Humphrey Qutti frá
Downingstræti 10.
Fyrr í þessum mánuði tilkynnti
skrifstofa forsætisráðuneytisins að
kötturinn væri ekki heift heftsu og
hefði verið boðið að dvelja hjá ríkis-
starfsmanni. Þingmaður íhalds-
Qokksins lýsti því yfir á sunnudag-
inn að hann teldi að kötturinn hefði
verið skotinn. Reuter
Kosningar hjá Bosníu-Serbum:
Harðlínumenn á niðurleið
Harðlinumenn meðal Bosníu-
Serba töpuðu nokkru fylgi og
misstu hugsanlega þingmeirihluta
siim í kosningunum sem fram fóru
í serbneska lýðveldinu í Bosníu um
helgina, ef marka má bráðabirgða-
niðurstöður.
Ríkisstjómir Bandaríkjanna og
Evrópulanda hvöttu tfi að kosning-
arnar yrðu haldnar. Með því vQdu
þær að yfirráð harðlínumanna yrðu
brotin á bak aftur tQ að hægt væri
að framfylgja gerðum friðarsamn-
ingunum. Vesturlönd hafa stutt
Bfijönu Plavsic, forseta Bosníu-
Serba, í baráttu henncir gegn harð-
línumönnum sem enn fylgja Radov-
an Karadzic, meintum striðsglæpa-
manni, að málum.
Enn er eftir að telja atkvæði frá af-
skekktum hémðum og atkvæði Qótta-
manna sem búa erlendis. Reuter
Síðustu ár hefur skátahreyfingin selt sígrcen
eðaltré, í hcesta gceðafiokki og prýða þau nú
mörg hundruð íslensk heimili.
/ 0 ára ábyrgð
10 stcerðir, 90 - 370 cm
i* Stálfótur fylgir
** Ekkert barr að ryksuga
;* Truflar ekki stofublómin
;*■ Eldtraust
Þarf ekki að vökva
**■ íslenskar leiðbeiningar
i* Traustur söluaðili
** Skynsamleg fjárfesting
BANDALAG ÍSLENSKRA SKÁTA
| VAXTALAUST LAN
Bjóðum þessa bíla á vaxtalausum
■J lánum til 36 mánaða
MMC Lancer GLX, árg.
‘89. Þú greiöir kr. 13.600
á mánuði.
M. Benz 230, E árg. ‘84.
Þú greiðir kr. 18.000
á mánuði.
Lada Samara árg. ‘91.
Þú greiðir kr. 4.900 á
mánuði.
VW Golf CL, árg. ‘86.
Þú greiðir 9.700
á mánuði.
Peugeot 405 árg. ‘91.
Þú greiðir kr. 15.500
á mánuði.
MMC Colt GLX, árg. ‘87.
Þú greiðir kr. 7.000
á mánuði.
Subaru E-12 árg. '91.
Þú greiðirkr. 12.500
á mánuði.
Mazda 626 árg. ‘87.
Þú greiðir kr. 9.500
á mánuði.
Mazda 323 árg. ‘87.
Þú greiðir kr. 8.000
á mánuði.
Peugeot 309 GT árg. ‘87.
Þú greiðir kr. 8.900
á mánuði.
Range Rover árg. ‘81.
Þú greiðir kr. 13.900
á mánuði.
Cherokee Laredo árg.
‘87. Þú greiðir kr. 22.000
á mánuði.
Subaru 1800 stw,. árg.
‘88. Þú greiðir kr. 13.600
á mánuði.
Mazda 323 árg. ‘93.
Þú greiðir kr. 19.000
á mánuði.
LÍTTU Á GREIÐSLUKJÖRIN,
HVERGI BETRI LÁN TIL 36 MÁN.
ENGIR VEXTIR. ENGIN ÚTBORG-
UN
NYBYLAVEGUR 2
SÍMI 554 2600
Ford Bronco arg. ‘85.
Þú greiðir kr. 15.000
á mánuði.
Skoda Forman árg. ‘93.
Þú greiðir kr. 9.800
á mánuði.
Dodge Aries árg. ‘87.
Þú greiðir kr. 8.800
á mánuði.
Chrysler New Yorker, árg.
‘84. Þú greiðir kr. 19.000
á mánuði.
Opiö virka daga 9-18 og laugardaga 12-16