Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 25.11.1997, Qupperneq 12

Dagblaðið Vísir - DV - 25.11.1997, Qupperneq 12
12 ÞRIÐJUDAGUR 25. NÓVEMBER 1997 Útgáfufélag: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF. Stjórnarformaður og útgáfustjóri: SVEINN R. EYJÓLFSSON Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: EYJÓLFUR SVEINSSON Ritstjórar: JÓNAS KRISTJÁNSSON OG ÖSSUR SKARPHÉÐINSSON Fréttastjórar: JÓNAS HARALDSSON OG ELÍN HIRST Auglýsingastjóri: PÁLL ÞORSTEINSSON Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar, blaðaafgreiðsla, áskrift: ÞVERHOLTI11,105 RVlK, SÍMI: 550 5000 FAX: Auglýsingar: 550 5727 - RITSTJÓRN: 550 5020 - Aðrar deildir: 550 5999 GRÆN númer: Auglýsingar: 800 5550. Áskrift: 800 5777 Stafræn útgáfa: Heimasfða: http://www.skyrr.is/dv/ Ritstjórn: dvritst@centrum.is - Auglýsingar: dvaugl@centrum.is. - Dreifing: dvdreif@centrum.is AKUREYRI: Strandgata 25, sími: 462 5013, blaðam.: 462 6613, fax: 4611605 Setning og umbrot: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF. Filmu- og plötugerð: ISAFOLDARPRENTSMIÐJA HF. - Prentun: ÁRVAKUR HF. Áskriftarverð á mánuði 1800 kr. m. vsk. Lausasöluverð 160 kr. m. vsk., Helgarblaö 220 kr. m. vsk. DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins f stafrænu formi og f gagnabönkum án endurgjalds. Hin nýja undirstétt Vörukerrur viðskiptavina við kassana í matvöruverzl- unum á föstudögum benda margar hverjar ekki til, að innkaup séu vel grunduð á öllum bæjum. í kerrunum ægir saman rándýru ruslfæði, tilbúnum verksmiðjurétt- um, lituðu sykurvatni og alls óþörfu dóti. Þetta vekur blendnar tiifinningar. Annars vegar er ánægjulegt, að þjóðin skuli vera orðin svo rík, að fjöldi manns getur verzlað í blindni. Hins vegar er eftirsjá í lífskjörunum, sem fara forgörðum, þegar þúsundkaUam- ir fjúka fyrir lítið í föstudagsinnkaupum. Óþægilegust er vitundin um, að fólk kýs eins og það kaupir. Það heldur sig við mikið auglýstar vörur og tek- ur svo sem ekki neina afstöðu til innihaldsins. Töluverð- ur hluti þjóðarinnar hagar sér eins og viljalaust rekald, hvort sem er við kjörkassa eða búðarkassa. Framleiðendur vöru og þjónustu á borð við stjómmál hafa náð vaxandi tökum á sölutækni, en vamargeta þeirra, sem standa handan kassans, hefur ekki aukizt að sama skapi. Enda er svo sem ekki krafizt menntunar og reynslu til að vera neytendur og kjósendur. í matvörubúðum em framleiðendur famir að kaupa hillupláss og staðsetningu í hillum. Þeir sjá jafhvel um að raða í hillumar, sem þeir „eiga“. Það er ekki veltan, sem kallar á hillupláss og staðsetningu, heldur er það hilluplássið og staðsetningin, sem kallar á veltuna. Innan um bílstjóra frá framleiðendum em fulltrúar annarra matvörubúða að skrá verð, svo að tryggt sé, að búðimar séu ekki að keppa í verði, heldur haldist á nokkum veginn sama róli. Sárafáir matvörukaupmenn á íslandi bjóða raunverulega samkeppni í vöruverði. Á síðustu árum hafa verið slípaðar aðferðir til að fá fólk til að halda tryggð við tegundir vöm og þjónustu, framleiðendur og kaupmenn, burtséð frá því, hvemig verð og gæði þróast í umhverfinu. Þúsundir manna eru uppteknar af því að safna til tryggðarverðlauna. Toppurinn á sölutækni nútímans felst í, að kaupend- ur eru fengnir til að ganga um stræti og torg skrýddir vörumerkjum, sem þeir kaupa dýrum dómum. Þannig fá framleiðendur og seljendur merkjavöru ókeypis auglýs- ingu ofan á yfirverðið, sem jafhan er á slíkri vöm. í gamla daga hafði vara og þjónusta innihald, sem leiddi til ímyndar hennar. Nú á tímum hefur ímyndin hins vegar öðlazt sjálfstætt líf án tillits til innihalds. Um ímyndina hefur risið fræðigrein, sem menntar markaðs- fólk til að spila á veikar vamir neytenda. Sameiginlegt einkenni neytenda og raunar kjósenda er, að þeir taka ekki saman höndum til vamar. Sumpart vita þeir ekki betur, sumpart nenna þeir ekkert að gera í málinu og sumpart em lífskjör þeirra svo góð, að neyzluaðgát er ekki forgangsmál í lífi þeirra. Smám saman er að verða til undirstétt viljalítils fólks, sem hefur sómasamlegar tekjur, en drepur frítímann við sjónvarps- og myndbandagláp, sykurvatn og snakkpoka. Þetta em eins konar neyzluvélar, sem taka ekki sjálf- stæðan þátt í lífinu í kringum sig. Þessi stækkandi hópur bætist við þá, sem af öðrum og eldri ástæðum segja pass við lífinu. Samanlagt grefur þetta fólk undan markaðsþjóðfélaginu og lýðræðinu, því að meintar þarffr þess verða sífellt fyrirferðarmeiri í augum markaðsmanna í stjómmálum og viðskiptum. Ef skólakerfið kenndi borgaraleg fræði, þar sem nem- endur ættu kost á að sjá gegnum ímyndir stjómmála og annarrar söluvöm, mundi misvægið minnka. Jónas Kristjánsson Halldór Blöndal samgönguráðherra: Póstur og sími ekki til sölu Telurðu að Póstur og sfmi sé vef rekin stofnun í dag? .JPóstur og sími er vel rekin stofnun, þjónustan ódýr og mjög vel er fyigst með á tæknisviðinu. Það er t.d. afar ánægju- legt að ísland skuli vera fyrsta landið sem eingöngu notar starfrænt símakerft og ég legg áherslu á að Póstur og Sími er hluthafi í sæstnengnum milli Evrópu og Kanada, sem hefur opnað og mun í fram- tíðinni opna ótalda möguleika á fjar- skiptasviðinu, þannig að við getum fylgst með þeirri þróun sem er í heiminum í dag A hinn bóginn geldur Póstur og stmi óneitanlega þess í daglegum viðskiptum og markaðssetningu að vera opinber stofnun sem er rekin eftir fjárlögum. slík ákvörðun hafi áður verið lögð fyrir Alþingi. Ákvarðanataka með þessum hætti er of þung í vöfum og samræmist ekki nútíma viðskiptaháttum. Þess vegna tel ég óhjákvæmilegt að breyta rekstrar- formi Pósts og síma til þess að styrkja samkeppnisstöðu hans og starfsöryggi þess fólks sem þar vinnur. Ég legg á- herslu á að í mfnum huga kemur ekki annað til greina en að Póstur og sfmi verði áfram alfarið í eigu ríkisins.” Þú crt þá að tala um að stofnuninni verði breytt f hlutafélag f ríkiscign? .Já og ég tel að það rekstrarfonn sé ákjósanlegt, bæði fyrir rikissjóð, neyt- endur og starfsmenn Pósts og síma. Hvort sem við hugsum um Póst og síma sem stofnun eða fyrirtæki er hann ein af ___________._.____:_:______i_________— - a breytilegan rekstur. Ég tek stundun dæmi af þvt' að fáir geti hugsað sér ai það dæmi geti gengið upp til lengdar ai Landsbankinn eða Búnaðarbankinn séi reknir eftir fjárlögum frá Alþingi. Á þv er almennur skilningur að ríkisbankami verði að geta keppt ólúndrað á á frjálsur maritaði án atbeina rikisins eða Alþingi og hið sama á vitaskuld við Póst og sím vegna síaukinnar samkeppni frá innlend um og erlendum aðilum. Eriend stórfytir „Lýsti samgönguráðherra því ítrekað yfir að Póstur og sími yrði ekki seldur á meðan hann væri ráðherra," seg- ir Ögmundur og vitnar m.a. f viðtal við ráðherra í BSRB-tíðindum. Trúverðugleiki í stjórnmálum slma hf. og líklegar af- leiðingEtr hennar heldur varðandi trúverðug- leika í stjómmálum. Svo er komið að ráða- menn leyfa sér að segja eitt í dag en fram- kvæma annað á morgun og það sem meira er, þeir komast upp með það. Alltof margir fjöl- miðlamenn horfa í gegnum fingur sér þeg- ar slíkt er uppi á ten- ingnum. Næsti millileikur Ýmsar hliðar á þessu máli jaðra við að vera grátbroslegar. Þannig segir samgönguráð- herra að andóf almenn- „Allt er þetta samkvæmt erlendri forskrift. Ad taka einkavæöingar• aðferðina skref fytir skref. Aldrei of stórt í einu. í Danmörku var svipað tal uppi á sínum tíma. Nú eru yfirráð yfír danska símanum hins vegar komin til Chicago.u Kjallarinn Ögmundur Jónasson alþingismaður og form. BSRB Samgönguráð- herra hefur í nafni ríkisstj ómar innar skýrt frá þvi aö hann sé að undir- búa sölu á Pósti og síma hf. þvert á fyrri yfirlýsingar. Þegar Pósti og síma var breytt í hlutafélag á sínum tíma lýsti ráðherr- ann því ítrekað yfir á Alþingi, á fundum og í fjöl- miðlum að ekki stæði til að selja fyrirtækið. í viðtali við Halldór Blöndal í BSRB-tiðindum í september 1995 lýsti samgönguráð- herra því ítrekað yfir að Póstur og sími yrði ekki seld- ur á meðan hann væri ráðherra. „Ég legg áherslu á að í mínum huga kem- ur ekki annað til greina en að Póst- ur og sími verði áfram alfariö í eigu ríkisins," sagði ráðherrann m.a. í viðtalinu. Nú bregður hins vegar svo við að hann segir að hlutafélagavæð- ingin hafi aðeins verið miilileikur, undanfari sölunnar. Við þetta gerast ýmsar spum- ingar áleitnar, ekki einvörðungu varðandi einkavæðingu Pósts og ings gegn gjaldskrárhækkununum að undanfömu megi túlka sem kröfu um að fyrirtækið verði selt. Ætli hið gagnstæða sé ekki nær sanni. Almenningi blöskrar hækk- anirnar og vill nýta sér að stofn- unin er í almannaeign. Þess vegna em fulltrúar almennings, sem fara með vald yfir stofnuninni, beðnir um að grípa í taumana. Halldór Blöndal hefur hins vegar, væntan- lega eftir miklum djúpsálfræðileg- um leiðum, fúndið það út að í raun vilji almenningur engu ráða held- ur afsala sér yfirráðum yfir þess- ari starfsemi og færa hana í hend- ur nýjum eignaraðilum. Og hveijir skyldu þeir verða? ís- lenskir, segir ráðherrann og sver og sárt við leggur að hann vilji að fyrirtækið verði íslenskt um alla framtíð. Og erum við þá komin aö næsta millileik ríkisstjómarinnar gagnvart þjóðinni. Nú þarf að sannfæra hana um að eignarhald- ið fari ekki úr landi. Erlend forskrift Allt er þetta samkvæmt erlendri forskrift. Að taka einkavæðingar- ferðina skref fyrir skref. Aldrei of stórt í einu. í Danmörku var svip- að tal uppi á sínum tíma. Nú em yfirráð yfir danska simanum hins vegar komin til Chicago. Þar eru höfuðstöðvar fyrirtækisins Ameritec sem hefur fengið meiri- hlutayfirráð í stjóm danska sim- ans en alls hafa bandarískir eign- araðilar meirihlutaeign í fyrirtæk- inu. Til Bandarikjanna fer nú arður- inn, og þar verða ákvarðanir tekn- ar um verðlag og fyrirkomulag þjónustunnar í framtíðinni. Ætla má að svipað verði uppi á teningn- um með íslensku símþjónustuna ef þjónar markaðsaflanna munu áfram ráða hér för. Ögmundur Jónasson. Skoðanir annarra Verðmæti brottkastsins „Þegar kannað var fyrir nokkrum árum hvað þetta brottkast væri mikið var giskað á að það næmi um 50 þús. tonnum á ári. Síðan mun það hafa stór- aukist og margir telja að það sé ekki minnna en 100 þús. tonn á ári. Ef við deilum í þetta með fólksfjölda og dagatölunni 365 kemur út merkileg tala. Það reyn- ist vera éitt kílógramm af fiski á dag fyrir hvem ís- lending, yngri sem eldri. Þetta er engin smáræðis lífsbjörg." Páll Bergþórsson í Lesbók Mbl. 22. nóv. Fyrirlitining á flokkakerfinu „Ég fyrirlít flokkakerfið og hef sífellt lagt til at- lögu við það. Bandalagi jafnaðarmanna tókst að vísu ekki að brjóta það upp. Tilraunin rann út í sandinn en hugmyndimar og minningamar lifa.... Ég á mér þann draum í pólitíkinni að hér verði til stór jafnað- armannaflokkur. Ég vinn með þeim sem vilja vinna að því markmiði. Ef ég kemst að þeirri niðurstöðu að ég geri það best með þvi að ganga í Alþýðuflokk- inn þá mun ég gera það.“ Agúst Einarsson i Degi 22. nóv. Útgerðin og auðlindagjaldið „í kvótakerfi standa útgerðarmenn frammi fyrir tveimur valkostum. Annar er að stunda veiðar og ná inn þeim hagnaði sem hlýst af spamaði vegna kvóta- kerfisins. Hinn er að selja kvótann. Ef seinni kostur- inn er valinn, þá vaknar sú spuming hversu hátt verð á að mkka fyrir sölu af þessu tagi. Til að svara því veröur að bera valkostina tvo saman. Annars vegar að róa og taka sjálfur inn hagnaðinn; hins veg- ar að selja kvótann og snúa sér að öðmm verkefh- um. Það segir sig sjálft að ef kvótaverðið er lægra en hagnaðurinn af því að veiða, þá mun enginn selja.“ Vilhjálmur Wiium í Mbl. 23. nóv.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.