Dagblaðið Vísir - DV - 27.11.1997, Blaðsíða 16

Dagblaðið Vísir - DV - 27.11.1997, Blaðsíða 16
16 FIMMTUDAGUR 27. NÓVEMBER 1997 FIMMTUDAGUR 27. NÓVEMBER 1997 25 Iþróttir íþróttir 1-1, 4-1, 8-3, 11-5, 15-9, 19-19, (20-10), 25-11, 25-15, 29-16, 32-20. Mörk KA: Karim Yala 8, Sævar Ámason 6, Jóhann G. Jóhannsson 4, Kári Jónsson 3, Sverrir Bjöms- son 3, Vladimir Goldin 3/1, Halldór 2/1, Þorvaldur Þorvaldsson 1, Jónatan Magnússon 1, Sigtryggur Albertsson 1. Varin skot: Sigtryggur Alberts- son 18/1, Hermann Karlsson 2. Mörk Víkings: Rögnvaldur Johnsen 6/3, Birgir Sigurðsson 4, Níels Carl Carlsson 3, Kristján Ágústsson 2, Karl Grönvold 2, Dav- or Kovalcevic 2/1, Maxim Trúfan 1. Varin skot: Birkir ívar Guð- mundsson 15/1, Júlíus Amarsson 2. Brottvísanir: KA 8 min., Vík- ingur 6 mín. Dómarar: Þorlákur Kjartansson og Einar Sveinsson. Áhorfendur: Um 300. Maður leiksins: Karim Yala. Átti að öllu leyti mjög góðan leik. Ferð á leikinn Man. Utd-Arsenal Feröaskrifstofan Úrval-Útsýn ætlar að efna til hópferðar á stór- leik Manchester United og Arsenal í ensku úrvalsdeildinni i knattspymu sem fram fer á Old Trafford sunnudaginn 15. mars. Knattspymuáhugamenn ættu þama að fá mikið fyrir aurana enda örugglega einn af úrslita- leikjum deildarinnar. Allar nánari upplýsingar um ferðina eru hjá Lúðvík í Úrvali- Útsýn í s. 569-9300. MEISTARADEILDIN B-riöill: Feyenoord-Juventus .........2-0 1-0 Julio Cruz (66.), 2-0 Julio Cruz (88). Man. Utd 4 4 0 0 11-4 12 Juventus 5 3 0 2 11-8 9 Feyenoord 5 2 0 3 7-10 6 Kosice 4 0 0 4 2-9 0 C-riöill: Barcelona-Newcastle.........1-0 1-0 Giovanni (17.) Kiev 4 3 10 12-3 10 PSV 4 2 11 6-5 7 Newcastle 5 113 5-8 4 Barcelona 5 113 5-12 4 E-riöill: Besiktas-Bayem Múnchen . . . 0-2 0-1 Jancker (5.), 0-2 Helmer (31.) Gautaborg-Paris SG..........0-1 0-1 Rabesandratana (87.) Bayem 5 4 0 1 13-5 12 Paris SG 5 3 0 2 9-9 9 Besiktas 5 2 0 3 5-7 6 Gautaborg 5 1 0 4 3-9 3 F-riöill: Mónakó-Sporting Lissabon . . 3-2 0-1 Miguel (30.), 0-2 Oceano (38.), 1-2 Trezeguet (65.), 2-2 Henry (75.), 3-2 Henry (90.) Lierse-Leverkusen...........0-2 0-1 Emerson (54.), 0-2 Kirsten (66.) Mónakó 5 4 0 1 13-6 12 Leverkusen 5 4 0 1 9-5 12 Sporting 5 113 7-10 4 Lierse 5 0 1 4 2-10 1 Bartova mæt- ir í Höllina Nú er ljóst að Daniela Bar- tova, fyrrverandi heims- og Evr- ópumethafi í stangarstökki kvenna, mun keppa á Stórmóti ÍR í Laugardalshöll í janúar. Hún hefur lýst því yfir að hún ætli að setja heimsmet í Höll- inni. Emma George frá Ástralíu kemst ekki á mótið. -SK Víkingar ekki öfundsverðir - er þeir töpuöu fyrir KA, 32-20 DV, Akureyri: KA hafði hreint ótrúlega yfir- burði gegn afar slökum Víkingum er liðin mættust i frestuðum leik í Nissandeildinni í handknattleik í gærkvöld. KA hafði yfir í leikhléi, 20-10, og segir sú staða meira en mörg orð. KA-menn mættu mjög ákveðnir til leiks og hreinlega „átu“ gestina strax í byrjun og komust í 14-6. I síðari hálfleik kom lið Víkings til leiksins greinilega með það að markmiði að hanga á boltanum og fá ekki á sig 40 mörk í leiknum. Þrátt fyrir að vera 10 mörkum und- ir voru Víkingar sem lengst þeir máttu í sókninni og þeir máttu oft vera lengi í sókninni. Þó dæmdu dómararnir oft töf á Víkinga. Vík- ingar fóru í fýlu er mótlætið var sem mest og þar fór Davor Kovalcevic fremstur í flokki. Birkir ívar Guðmundsson, mark- vörður Víkings, var bestur Víkinga í leiknum og sá eini sem eitthvað gat. Hann varði 11 skot í fyrri hálf- leik og fékk á sig 20 mörk og það segir enn eina söguna um leikinn. Sóknarleikur KA stóð oftast yfir í aðeins nokkrar sekúndur og liðið verður ekki dæmt af þessum leik enda mótspyman engin. Karim Yala var einna bestur þeimamanna sem léku oft á tíðum vel. -gk Birgir Leifur Hafþórsson: Komst ekki áfram Birgir Leifur Hafþórsson komst ekki áfram á evrópsku mótaröðina í golfi en úrtökumótinu lauk á Spáni í gær. Birgir Leifur lék hringina fjóra á þremur höggum yfir pari, hafnaði í 68. sæti á 291 höggi. Veðurfar var óhagstætt kylfmg- um alla keppnisdagana og þurfti i tvígang að stöðva keppni vegna úr- hellis og eldinga. Birgir Leifúr var ekki á meðal 75 efstu en forsvarsmenn mótsins ákváðu að skor 40 efstu gilti en veðrið hafði þá þegar sett allt mótið úr skorðum. Birgir Leifur Hafþórsson mun ekki láta deigan sígan heldur mæta ótrauður til leiks á næsta ári og reyna við evrópsku mótaröðina að nýju. -JKS Meistaradeild Evrópu: Juventus fékk skell í Hollandi Meistararnir í Juventus gengu niður- lútir af leikvelli í gær- kvöld eftir að Feye- noord hafði unnið góð- an sigur á liðinu á heimavelli sínum, 2-0. Úrslitin koma á óvart, ekki síst fyrir þær sakir að Feye- noord hefur gengið mjög illa í deildar- keppninni í Hollandi. Við þessi úrslit vænk- aðist hagur Manchest- er United til mikUla muna eins og sést á stigatöflunni hér til hliðar. Leikmenn Mónakó gefast ekki upp fyrr en í fúlla hnefana og það sýndu þeir enn einu sinni í gærkvöld gegn Sporting Lissabon sem náði tveggja marka forskoti. Með ótrúlegri baráttu og seiglu tókst heimamönnum að jafna metin og sigur- markið leit dagsins ljós á lokasekúndum leiksins. Newcastle tapaði á heiift'avelli Barcelona í afar slökum leik þar sem ekkert gladdi aug- að nema sigurmark Brasiliumannsins Giovanni. -SK Tryggvi hefur ekki samið Tryggvi Guðmundsson, knattspymumaður úr ÍBV, er kominn til Nor- egs til viðræðna við forráöamenn norska úrvalsdeildarliðsins Tromso. Tryggvi æfði meö skoska úrvalsdeildarliöinu Aberdeen í vikunni en var ekki boðinn samningur og hélt hann til Noregs í gær. Tromsa setti sig í samband við hinn norska umboðsmann Tryggva fyrir nokkru og lýsti yflr áhuga á að fá hann í sínar raöir en Tryggvi vúdi skoða hjá öðrum félögum fyrst áður en hann gengi til viræðna við Tromso. Það er því líkur á að tveir íslenskir knattspymumenn leiki með Tromse á næsta tímabili. KR-ingurinn Hilmar Bjömsson hefur átt í viðræöum við Tromsö en hefur ekki enn skrifað undir samning. -GH Bland í poka Pétur H. Marteinsson mætti á fyrstu æfingu Hammarby fyrir næsta tíma- bil í sænsku knattspymunni síðasta mánudag, Sviunum til mikillar ánægju, en eins og fram hefur komið eru líkur á aö hann fari til enska liðs- ins Middlesbrough. Pétur Björn Jónsson var líka mætt- ur en hann er sem kunnugt er geng- inn til liðs við Hammarby frá Leiftri. Til aðgreiningar frá nafna sinum kalla Svíamir hann Pétur 2. Harald Martin Brattbakk er á leið frá norsku meisturunum Rosenborg til Celtic í Skotlandi fyrir um 300 miiljónir króna. Herrakvöld KR verður haldið í fé- lagsheimili KR annað kvöld. Húsið veröur opnað klukkan 19. Ræðu- maður kvöldins er Össur Skarphéð- insson og veislustjóri er Atli Eðvalds- son. Colin Montgomerie átti glæsilegasta teighögg ársins á evrópsku mótaröð- inni. Hann notaði 3-jám í höggið á 18. holu gegn Scott Hoch i Ryder-bikam- um. Umreett högg Montgomerie var um 300 metra langt, sveif yfir mörg tré og hafnaði á besta stað á miðri braut. „Þetta er besta högg mitt á ferlinum," sagði Montgomerie i gær. Antoine Sibierski, leikmaður með Auxerre, á yfir höfði sér 18 mánaða keppnisbann vegna ólöglegs lyflaáts. Hann er fjórði franski knattspymu- maðurinn sem fellur á lyijaprófi á stuttum tíma. Mehmet Scholl, leikmaður Bayem Múnchen hitti föður sinn í fyrsta skipti í 19 ár á dögunum. Scholl á tyrkneskan foður og þýska móður sem skildu 1977. Ronaldo veröur ekki með Inter Mil- an er liðiö leikur gegn Vicenza i ítölsku knattspymunni um næstu helgi. Ronaldo er meiddur á hné og verður frá i viku, mun styttri tíma en búist var við. Reykjavikurborg hefur ákveðið að festa kaup á 600 fermetrum af nýjum gúmmimottum sem hlaupið og stokk- ið verður á þegar Stórmót ÍR fer fram i Höllinni i janúar. Stórmót ÍR tókst frábærlega vel i ár og greinilegt er að bestu frjálsíþrótta- menn heims em tilbúnir að koma til íslans og keppa. Það cetti aó vera hverjum manni ljóst að sárlega vantar stórt íþróttahús þar sem hægt yrði að bjóöa upp á góða að- stöðu til stórra frjálsíþróttamóta. Stór- huga og djarfír ÍR-ingar eiga hrós skil- ið en ýmsir aðrir hafa og virðast ætla að halda áfram að draga lappimar. EVROPUKEPPNI 4. riöill: Slóvakía-Þýskaland .........18-28 Noregur-Spánn...............28-25 Þýskaland 5 3 1 1 114-98 7 Spánn 5 2 1 2 132-117 5 Noregur 5 2 0 3 116-127 4 Slóvakía 5 2 0 3 123-143 4 5. riöill: Pólland-Danmörk . .... 19-22 Ungverjaland-Svíþjóð . .... 28-24 Ungveijal. 5 4 1 0 124-107 9 Svlþjóð 5 3 0 2 125-116 6 Danmörk 5 2 1 2 107-111 5 Pólland 5 0 0 5 105-127 0 skorar er ísland tapaði naumlega fyrir Hollandi íslensku landsliðsmennimir í körfuknattleik sátu eftir með sárt ennið eftir að hafa beðið ósig- ur fyrir Hollendingum, 83-87, í fyrsta leik sínum í undankeppni Evrópumóts landsliða í Laugar- dalshöllinni í gær. Islendingar voru inni í leikn- um allan timann og meö smáheppni hefði sigur- inn getað fallið þeim í skaut. Þegar ein mlnúta var eftir og Hollendingar með forystu, 33-84, vann Herbert Arnarson boltann í vöminni. íslendingar geystust í sóknina og áttu góða möguleika að komast yfir en skot Guðmund- ar Bragason- ar 35 sekúnd- um fyrir leikslok dansaði á körfuhringn- um en fór ekki niður. Hollending- arnir náðu frákastinu og fengu dæmd tvö vítaskot þeg- ar 15 sekúnd- ur vom eftir sem bæði rötuðu rétta leið. Eini möguleikinn í stöðunni var því að skora úr 3ja stiga skoti og það kom í hlut Guð- mundar Bragasonar að reyna það en skot hans geigaði og Hollendingamir gátu fagnað naumum sigri. íslenska liðið fékk óskabyrjun í leiknum. Her- bert Amarson kom því á sporið með þvi að skora fyrstu körfu leiksins og hann fór á kostum á upp- Einkunnagjöf DV Herbert Arnarson, Teitur Örlygsson og Guðmundur Bragason. Hermann Hauksson Guðjón Skúlason = Frábær = Mjög góður = Góður og hafskafla leiksins. íslendingar náðu fljótlega 10 stiga forystu og Hollendingarnir vissu vart hvaðan á sig stóð veðrið. En með risana tvo und- ir körfunni, þá Geert Hammink og Mike Nahar, náðu Hollendingamar áttum á ný og jöfnuðu met- in. Allur leikur Hollendinganna snerist um að koma boltanum á þá tvo og af skiljanlegum ástæð- um áttu íslensku varnarmennimir í erfiðleikum með þá, enda meira en hausnum minni en þeir. En stórskyttur íslenska liðsins, Teitur, Herbert og Guðjón, fundu allir fjölina sína í fyrri hálfleik og skomðu samtals sjö 3ja stiga körfur. í síðari hálfleik voru skyttumar þrjár í strangri gæslu og sérstaklega Teitur sem náði að- eins að skora 3 stig í hálfleiknum. En þrátt fyrir það átti íslenska liðið í fullu tré við það hollenska enda var baráttan mjög góð og það var synd að hún skyldi ekki skila sigri. Herbert Amarson lék best i íslenska liðinu. Hann var með góða nýtingu og hefur tekið gríðar- legum framfóram frá því hann hélt út í atvinnu- mennskuna. Guðmundur Bragason og Teitur Ör- lygsson áttu einnig góðan leik. Guðmundur var ekki öfundsverður að þurfa að glima við risana í hollenska liðinu undir körfunni en stóð sig engu siður vel gegn þeim og Teitur var virkilega heit- ur í fyrri hálfleik. Hermann Hauksson kom sterk- ur upp í síðari hálfleik og Guðjón Skúlason skil- aði góöum fyrri hálfleik. Maður hefði viljað fá meira út úr þeim Fali Harðarsyni og Jóni Ámari enda vora þeir of ragir við að skjóta og brjótast inn í vörn Hollendinganna. Nýliðinn Friðrik Stef- ánsson var eðlilega nokkuö taugaóstyrkur en komst engu að síður vel frá sinu. í heildina séð var margt jákvætt í leik íslenska liðsins og það eitt að eiga góða möguleika á að innbyrða sigur gegn jafnsterku liði og Hollending- ar era með segir okkur að íslenskur körfubolti er á uppleið og landsliðsmennirnir eiga hrós skilið fyrir góða frammistöðu. -GH Herbert Arnarson lék best í íslenska liöinu gegn Hollendingum og hér skorar hann góöa körfu. Allt íslenska liöiö lék vel og var mjög nálægt sigri gegn sterku liöi Hollands. DV-mynd Brynjar Gauti Jón Kr. Gíslason og Guðmundur Bragason: „Nálægt sigri“ „Þetta var ágætis leikur en heppnin var ekki á okkar bandi. Karakterinn var góð- ur og baráttan fin en því miður tókst okkur ekki að vinna og það voru mikil von- brigði. Þetta voru sterkir menn sem ég var að glíma við en ég held að við höfúm stað- ið okkur þokkalega gegn þeim. 3ja stiga skotin gengu ágætlega en ég hefði kannski viljað sjá meiri keyrslu," sagði Guðmundur Bragason fyrirliði. „Ég er auðvitað vonsvikinn að tapa þessu en við vorum mjög nálægt því að vinna hann. í heildina getum við verið ánægðir með okkar leik og það voru allir að leggja sig fram. Mér fannst við vera að gera réttu hlutina gegn þessu liði og litlu stóru strák- arnir okkar voru að beijast alveg á fullu. Sóknarleikurinn var ekki eins beittur í síð- ari hálfleik og í þeim fyrri enda voru skyttumar okkar í strangari gæslu. Þessi leik- ur gefur okkur byr undir báða vængi upp á framhaldið. Það verða allir leikimir erf- iðir og fram undan er geysilega strembinn leikur gegn Eistum," sagði Jón Kr. -GH ENGLAND Úrvalsdeildin: Chelsea-Everton .............2-0 Dennis Wise skoraði fyrra mark Chelsea úr vitaspymu á 80. mínútu og Gianfranco Zola bætti öðru viö úr vítaspyrnu á 90. mínútu. Slaven Bilic, Everton, fékk að líta rauða spjaldið. 1. deild: Middlesbrough-Nott. Forest . . 0-0 3. deild: Chester-Swansea..............2-0 Enski bikarinn: Solihull-Darlington..........3-3 (Eftir framlengingu) „Eins og glæpamenn“ - leikmenn og þjálfari Júgóslava æfir vegna klúðursins ísland (44)83 Holland (43) 87 2-0, 8-6, 16-6, 17-17, 31-29, 35-39, 40-41, (44-43), 47-43, 51-51,70-69, 75-75, 79-79, 81-80, 81-84, 83-84, 83-87. Stig Islands: Herbert Amarson 19, Teitur Örlygsson 18, Guðjón Skúlason 16, Hermann Hauksson 15, Falur Harðarson 3, Friðrik Stefáns- son 2. Stig Hollands: Geert Hammink 33, Mike Nahan 21, De Valde 12, Mario Bennes 8, VirgU Ormskerk 6, Bas de Voogd 4, Cees van Rootselaar 3. Vamarfráköst: ísland 11, Hol- land 9. Sóknarfráköst: ísland 8, HoUand 2. 3ja stiga körfur: Island 21/10, HoUand 4/7. Vítanýting: tsland 13/11, HoUand 16/21. Dómarar: Frá Júgóslavíu og Lúx- emborg. Slakir og sýndu okkar mönnum aUs enga miskunn. Áhorfendur: Um 1000. Maður leiksins: Herbert Amar- son. Lék mjög vel allan leiktím- ann. Herbert og Teitur: „Grátlegt" „Það var alveg grát- legt að tapa þessu svona. Þeir voru orðn- ir drullutaugaveiklað- ir og þeir gátu bara leitað á einn stað, það er stóra mennina. Á pappírunum áttum við ekki að geta unnið þetta lið og með smá- heppni hefði það getað gerst. Mig langaði svo rosalega aö fara til Belgíu og geta sagt fé- lögum mínum frá því að við hefðum unnið Holland. En við lögð- um okkur 110% fram og það var virkilega gaman að taka þátt i leiknum," sagði Her- bert Amarson, besti maður íslenska liðs- „Viss vonbrigöi“ „Við fengum ágætis möguleika til að jafna leikinn en því miður gekk það ekki. Þetta var barátta út í gegn við þessa stóru leik- menn þeirra og ef þeir skoruðu ekki brutum við á þeim. Það voru viss vonbrigði að geta ekki varist þessu bet- ur því við vissum hvað þeir ætluðu að gera. Við getum alveg örugglega lært eitt- hvað af þessum leik. Þetta tapaðist ekki á sóknarleiknum heldur réðum við ekkert við þessa stóru menn þeirra," sagði Teitur Örlygsson. -GH Iþróttafréttir eru einnig á bls. 26 HANDB0LTI DV, Belgrad: Leikmenn og þjálfari júgóslavneska handknattleikslandsliðsins eru æfir út í handknattleikssamband landsins. Liðinu var sem kunnugt er snúið heim frá London í fyrradag á leið sinni til ís- lands vegna þess að forkólfum sam- bandsins hafði láðst að útvega hópnum vegabréfsáritanir til íslands. „Ég hef ferðast um heiminn í 35 ár en aldrei upplifað annað eins. Við vor- um sendir heim eins og glæpamenn. Landslið verðskuldar ekki svona með- ferð,“ sagði Zoran Zivkovic, þjálfari Júgóslava, við dagblöð í Belgrad í gær. Þegar liðið lenti aftur í Belgrad mætti enginn frá handknattleikssam- bandinu til að taka á móti þvi, aðeins vinir og vandamenn. Með tilstyrk kaupsýslumanna, sem styrkja landslið- ið, tókst að útvega því Boeingþotu á leigu. Hún fór frá Belgrad um miöjan dag í gær og lenti í Reykjavík seint í gærkvöld. Júgóslavnesku landsliðsmennimir eru orðnir fullsaddir á slóðahætti sam- bandsins en þeir hafa nánast verið i stríði við það i hálft annað ár. Þeir sögðu í blaðaviðtölum að málið væri allt stórt hneyksli og það var einmitt orðið sem júgóslavnesku dagblöðin not- uðu í fyrirsögnum sínum í gær. -VN ÁLENGJUNNIí DAG Bland í poka Friðrik Stefánsson, KFÍ, lék vel meö íslenska landsliðinu gegn Hollandi í gærkvöld. Hann er fyrsti ísfirðingurinn til að leika með landsliði Isiands. Dómarar leiksins voru mjög harðir við íslensku leikmennina, dæmdu á þá villur í tíma og ótíma en slepptu augljósum brot- um Hollendinga. Leikur islenska landsliðsins í gærkvöld gegn Hollendingum var mikill sigur fyrir íslenskan körfuknattleik. Fram til þessa hefur landsliðiö leikið gegn frekar slökum þjóð- um og var leikurinn í gærkvöld fyrsti alvöruleikurinn í langan tíma. Landsliðsmennirnir stóðust prófið þrátt fyrir ósigurinn og ljóst er að með meiri reynslu í leikjum gegn þeim bestu gætu óvæntir hlutir gerst. Það segir í raun alla söguna að leikmenn og aðstandendur ís- lenska liðsins skuli hafa verið óánægðir með að tapa fyrir hinu sterka liði Hollands. -SK Jóhannes lagði írann Jóhannes B. Jóhannesson komst í gær í 16 manna úrslit á heimsmeistaramótinu i snóker með því að sigra írska meistar- ann Joe Canny, 5-4. Þar með er Jóhannes öruggur með verðlaun á mótinu því 16 efstu sætin eru verðlaunasæti. „Þetta var hörkuleikur því Canny komst í 3-1 og 4-2 en ég hafði þetta á endasprettinum. Ég er mjög hamingjusamur með þennan árangur sem er minn besti á ferlinum,“ sagði Jóhann- es við DV í gær. Hann átti að spila við Marco Fu frá Hong Kong í 16 manna úr- slitum nú fyrir hádegið. Fu er heimsmeistari 21 árs og yngri og er talinn besti keppandinn á mótinu. Hann hefur unnið alla leiki sína til þessa og aðeins tap- að þremur römmum samtals. -VS

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.