Dagblaðið Vísir - DV - 23.12.1997, Side 2

Dagblaðið Vísir - DV - 23.12.1997, Side 2
2 ÞRIÐJUDAGUR 23. DESEMBER 1997 Fréttir Stuttar fréttir i>v Franklín Steiner fer í fangelsi í dag - var ósáttur við að hefja afplánun daginn fyrir jólahátíðina Franklln K. Steiner mun að lík- indum hefja fangelsisafplánun í dag, Þorláksmessu. Hann á að mæta í Ráðherrahrókeringar: Óbreytt hjá Fram- sókn Yfirlýsing Davíðs Oddssonar forsætisráðherra um að hann hyggist stokka upp í ráöherraliði Sjáifstæðisflokksins viröist hafa komið framsóknarmönnum í opna skjöldu og lokað á þær óformlegu umræður um breytingar á ráð- herraliði flokksins sem þar hafa farið fram undanfarið. Heimildir DV, hafðar eftir háttsettum þing- manni Framsóknarflokksins, segja aö litlar líkur séu nú á að Guðmundur Bjamason umhverf- isráðherra hverfi til annarra starfa og þar af leiðandi sé mjög ólíklegt að nokkrar breytingar verði á ráöherraliði Framsóknar. Samkvæmt þessu munu fram- sóknarmenn leita eftir öðrum seðlabankastjóraefnum en Guð- mundi. Sá ráðherra Framsóknar sem undir hvaö mestri ágjöf hefur stað- ið, Ingibjörg Pálmadóttir heilbrigð- isráðherra er heldur ekki á útleið. Er það álit byggt á þeirri kenningu að hún standi í raun of veikt til að hægt sé að hrófla við henni. Því verði hún flutt um set verði litið á það sem „sönnun“ þess að sú gagn- rýni sem hún hefúr setiö undir eigi við rök að styöjast. Það er eftirtektarvert að þeir þingmenn Framsóknar sem helst eru taldir koma til álita sem ráö- herraefni í framtíðinni eru þau Valgerður Sverrisdóttir og Guðni Ágústsson. Hjálmar Ámason er einnig talinn koma til greina. Siv Friðleifsdóttir er hins vegar, sam- kvæmt sömu heimildum, sögð úti 1 kuldanum. Af ofantöldum vonbiðlum er Valgeröur talin standa sterkust að vígi, hún kemur úr sterku kjör- dæmi, er kona og er talin vel hæf. -phh Hegningarhúsið í dag - á þann stað þar sem fangar hefja ávallt úttekt á refsingum sínum, burtséð frá hvert þeir verða síðan sendir til „lang- tímaafplánunar". Engu að síður má búast við aö Franklín fari á Litla- Hraun eftir hátíðar. Þegar Fangelsismálastofnun boð- aði Franklín í síðustu viku mót- mælti hann tímasetningunni - dag- inn fyrir jólahátíðina. Hann ætti einnig eftir að gera ráðstafanir til að freista þess að tryggja velferð fiölskyldu sinnar. Sakborningurinn er að fara að af- plána 20 mánaða fangelsisdóm sem Hæstiréttur kvaö upp yfir honum fyrir fíkniefnamisferli. Fái hann reynslulausn að loknum tveimur þriðju af úttektinni - eins og gert er ráð fyrir með fanga sem afplána refsingu fyrir alvarleg fikniefnabrot Þegar Fangelsismálastofnun boö- aöi Franklín Steiner f sföustu viku mótmælti hann tfmasetníngunni - daginn fyrir jólahátföina. - verður hann laus um mánaðamót- in janúar/febrúar 1999. Ákæra á hendur vitni Frank- líns? Samkvæmt heimildum DV í gær mvm karlmaður, sem bar vitni í máli Franklíns, að líkindum verða ákærður á næstunni. í réttarhöld- unum yfir Franklín kvaðst maður- inn eiga megnið af þeim efrium sem fúndust heima hjá Franklín. Dóm- stólar töldu framburð hans hins vegar markleysu og var Franklín sakfelldur fyrir eignarhald á þeim. Sakargiftir í væntanlegri ákæru á hendur vitninu munu felast í röng- um framburði fyrir dómi. Ekki ligg- ur fyrir hvort efni veröa til að ákæra Franklín sérstaklega fyrir hlutdeild að röngum framburði. -Ótt Kostnaður við Þjóðminjasafnið 700 milljónir Samin hefur veriö áætlun um heildarkostnaö vegna uppbyggingar á húsakosti Þjóöminjasafns (slands viö Suöurgötu. Áætlaöur heildarkostnaöur er 700 milljónir króna, þar af er fyrsti áfangi áætlaður 430 milljónir. Gert er ráö fyrir aö verklegar framkvæmdir viö fyrsta áfanga hefjist 1. september 1998 og aö safniö veröi opnaö aö nýju hlnn 17. júní áriö 2000. Hér sjást, frá vinstri: Páll Skúlason háskólarektor, Björn Bjarnason menntamálaráöherra og Sturla Böbvarsson, formaöur Þjóöminjasafnsnefndar, undirrita samninginn. DV-mynd S Hástökk forsætisráðherra: Davíð Oddsson í öðru sæti Litlar breytinar hafa orðið á bók- sölulistanum síðan í síðustu viku. Hástökkvari vikunnar er án efa Davíð Oddsson því smásagnasafn hans, Nokkrir góðir dagar án Guð- nýjar, er nú í öðru sæti listans en var í því sjöunda í síðustu viku. Bókin um Bert og baðstrandagell- umar er sem fastast í þriðja sæti listans. í fimmta og sjötta sæti list- ans eru bækur sem notið hafa stöðugra vinsælda fyrir þessi jól. Þær eru Það var rosalegt eftir Sig- urdór Sigurdórsson og Útkall TF- LÍF eftir Óttar Sveinsson. Bækur Óttars Sveinssonar hafa notið mikilla vinsælda undanfarin ár. Aðspurður um hverju hann þakki þessa velgengni segir Óttar: „Ég hef fundið sterka strauma og góðan meðbyr frá landsmönnum allt frá þvi að fyrsta „Útkallið" mitt 23. dfseml •eiösli ir án Guön; Listi 1. (1.) Veislubók H; 2. (7.) Nokkrir 3. (3.) Bert og baöi 4. (2.) Kökubók Hai 5. (4.) Þaö var rosal 6. (5.) Útkall TF-LÍF 7. (10.) Meö bros í 8. (6.) Fótspor á hlm 9. (-) Sálumessa syn 10. (-) Einar Benedik ir söluhæstu bækur istarar Argentínu , öávíö Oddsson gellurnar A. Jacobss^i ofe S. Olsson JóháfejneS' Felixson S igu rd rtfiþr s s 0 n Óttárlmhison Magnús ÓsiSttpS|3n Einar Már Guömundgisoh Ingólfur Margeirsároh'* Guöjón Friörikss®f í kom út árið 1994. Leiðin hefur verið jöfn og stöðug upp á við með allar V fiórar bækumar. Ég hef reynt að til- einka mér framsetningu á sönnum spennusögum með íslenskum sögu- hetjum þar sem lesandinn fær að lifa sig inn í atburðina. Bækumar hafa greinilega skírskotun til allrar fiölskyldunnar. Það sem hefur gefið mér mest er þegar lesendur segjast vera ánægðir - ekki bara karlar og konur heldur líka unglingar sem segjast gjarnan „stela“ bókinni frá mömmu eða pabba." Verslanir sem taka þátt í sölukönnun DV að þessu sinni em Mál og menning, Hagkaup, Bókabúð Brynjars á Sauöárkróki, Bókabúð Sigurbjöms á Egilsstöðum, Kaupfé- lag Ámesinga á Selfossi, Bókabúð Keflavíkur. -glm Áfram sjálfstæður Skorradalshreppur verður áfram sjálfstæður þar sem íbúar hans reyndust vera 52 þann 1. des. Bæði þeir sem em hlynntir og mót- fallnir sameiningu við aðra hreppa hafa flutt í og úr hreppnum til að ná íbúatölunni upp eða niður fyrir þau mörk sem lög mæla fyrir um sjálfstæð sveitarfélög. RÚV sagði frá. Björn vanhæfur Davíð Odds- son mun skipa nýjan útvarps- sfióra þar sem einn umsækj- andinn, Mark- ús Öm Antons- son, er náskyld- ur mennta- málaráðherra og ráðhera því vanhæfúr í málinu. RÚV sagði frá. Fritt í strætó Frítt er með Strætisvögnum Reykjavíkur í dag frá hádegi. SVR hvetur fólk til að nota strætisvagn- ana í dag, á mesta verslunardegi ársins, og draga þannig úr umferð- arþunga og bílastæðavanda í borg- inni. Læknamistök Bætur vegna læknamistaka era aöeins greiddar sjúklingum sem fara í mislukkaðar aðgerðir á sjúkrahúsum en ekki á einkastof- um. Tryggingayfirlæknir segir þetta mismunun. Sjónvarpið sagði frá. Séra Jón kyrr Séra Jón A. Baldvinsson, prestur í London, verð- ur ekki kallað- ur heim um áramótin eins og búist hafði verið við. Framtíö emb- ættis hans er þó enn óráðin. RÚV sagöi frá. Hafernir skotnir Fimm hafemir hafa fúndist skotnir hér á landi undanfarin ár. Ottast er aö mun fleiri hafi verið skotnir. Öminn er alfriðaður, enda hefúr hann verið i útrýmingar- hættu um árabil. Sellafield mengar Geislavirkt efiii frá endur- vinnslustöð kjamorkuúrgangs í Sellafield í Englandi verður komið í hafiö umhverfis ísland innan fárra ára. Þaö er nú þegar við Nor- egsstrendur. Efniö helmingast á 5 þúsund árum, aö sögn Stöðvar 2 Málverkafalsanir Rannsóknarlögregla gerði hús- rannsókn í gær vegna meintra málverkafalsana en talið er að allt að 200 málverk klassískra ís- lenskra málara séu í umferö, ekki síst á opinberum söfnum. RÚV sagði frá. Ný pylsubrauð Dagur segir að Einar S. Ein- arsson, forsfióri VISA, sé búinn að fá einkaleyfi á nýrri uppfinn- ingu sinni, pylsubrauði fyrir tvær pyls- ur. Ný heilbrigðisstofnun Heilbrigðisstofnunin í ísafiarðar- bæ tekur til starfa eftir áramótin en búið er að sameina sex heilbrigðis- stoöianir i eina; Fjórðungssjúkra- húsið og heilsugæslustöðina á ísa- firði, sjúkraskýlið og heilsugæslu- stöðina á Þingeyri, heilsugæslustöð- ina á Flateyri og Öldrunarstofnun Önfirðinga. Vestri segir frá. Lést í bílveltu Maðurinn, sem lést í bílveltu á Meðallandsvegi í fyrrakvöld, hét Sigurgeir Jóhannsson, 79 ára bóndi í Bakkakoti II í Meðal- landi. Sigurgeir lætur eftir sig eiginkonu, sem slasaðist talsvert í bílveltunni, son og sfiúpdóttur. t

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.