Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 23.12.1997, Qupperneq 6

Dagblaðið Vísir - DV - 23.12.1997, Qupperneq 6
6 Neytendur á hátíðarborð Jólasteikin bragðast alltaf betur ef fallega er lagt á borð og natni lögð í umbúnað borðhaldsins. Þeir Sverrir Friðriksson og Ágúst Reyn- isson, framreiðslunemar á Hótel Sögu, lögðu á borð fyrir lesendur DV og gefa forsmekkinn að því hvemig maður lætur sér líða vel yfir borðhaldinu. Blómabúð Reykja- vikur sá um skreytingar á borðun- um. Jólaborðið Þegar þeir lögðu á borð fyrir að- fangadagskvöld gerðu þeir ráð fyrir þríréttaðri máltíð. í forrétt er grill- aður humar með ristuðu brauði og hvítvíni. Einkum mæltu þeir með San Cerre, sem er franskt, frekar þurrt hvítvín frá 1995. Rjúpur eru aðalrétturinn og rauðvín með þeim Wolf Blass, Presidents Selection frá Ástralíu. Það er kröftugt og vel kryddað vín. Ris a l’amande er síð- an í eftirrétt og að sjálfsögðu er lög- uð kirsuberjasósa út á hrísgrjóna- veisluna. Auk þessa er rétt að gera ráð fyrir að fólk drekki vatn með matnum og eru vatnsglösin borin á borð eftir að fólk er sest við borðið. Nýársfagnaðurinn Það sem einkennir borðhaldið í kringum áramótin er meiri léttleiki og gleði. Þá er helst borið fram freyðivín með matnum en það geng- ur í raun með öllum mat. Sverrir og Ágúst gerðu ráð fyrir fimm rétta máltíð og þrenns konar víni með matnum. Fýrst á að snæða kjúkl- ingalifur og renna henni niður með Ponsardin sem er þurrt freyðivín. Næst er það rjúpuseyði og sami drykkur teygaður með. Því næst er borinn fram ofnsteiktur lax og Chablis Premier cru sem er þurrt hvítvín. Aðalrétturinn er ofnsteikt- ur lambahryggur og bakaðar kart- öflur. Með lambinu mæla Sverrir og Ágúst með Chateau Canternerle, sem er kröftugt og bragðmikið rauð- vín og hentar einkar vel með lamba- kjöti. Sverrir Friðriksson og Ágúst Reynisson, framreiðslunemar á Hótel Sögu, sáu um að leggja á borð fyrir lesendur DV. Jólastjarna heitir brotið á servíettunni á jólahátíðarborðinu. Herrajakkinn þykir einkar glæsilegt brot á nýársborðinu. Ris a l’amande með kirsuberjasósu - fyrir 6 Grauturinn: 11 mjólk 125 g hrísgrjón í graut örlítið salt 5 dl þeyttur rjómi 1 vanillustöng 2-3 msk. sykur 150 g afhýddar möndlur mandarínubátar Sjóðið grautinn við vægan hita þar til grjónin eru fullsoðin. Látið hann síðan kólna. Kljúfið vanillu- stöngina í tvennt, takið komin inn- an úr stönginni og blandið þeim saman við ijómann. Þeytið rjómann næstum til fulls. Blandið þá köldum grautnum saman við og bætið sykrinum út í eftir smekk. Brytjið möndlumar gróft og blandið helm- ingnum saman við grautinn. Skreytið með afganginum af möndl- unum og mandarínubátunum. Kirsuberjasósa 1 krukka af steinlausum kirsu- berjum, 370 g 1 tsk. maisenamjöl 2 msk. vatn Hitið kirsuberin upp í safanum. Hrærið maisenamjölið út í kalt vatn og jafnið út í sósunni. Berið sósuna fram volga með hrísgrjónagrautn- um. Þessi danski siður að borða ris a l’amande er vinsæll hér á landi. Margir vilja aðeins hafa eina möndlu í grautnum og fylgja henni möndlu- verðlaun. Það getur sannarlega stytt aðfangadag í hugum margra bama ef möndlugrauturinn er snæddur á há- degi aðfangadags og þess gætt að verðlaunin séu einhvers konar af- þreying, spil eða eitthvað í þá veru. Þá fær ungviðið eitthvað til að dreifa huganum fram eftir degi. Þarf að skila? í kjölfar úthlutunar jólagjafanna þurfa margir að skipta á innihaldi pakkanna. Um slík vöruskipti gilda ákveðnar reglur sem neytendur ættu að þekkja. Ef vara er gölluö ber seljandi ábyrgð á vörunni í eitt ár frá því að kaupin voru gerð. Hann hefur rétt á að gera við vör- una en takist það ekki verður hann að afhenda kaupandanum aðra sam- bærilega vöru. Ef það er ekki mögu- legt ber seljandanum skylda til að endurgreiða vöruna. Kaupandinn á samkvæmt lögunum ekki að bera kostnað vegna gallaðrar vöru og þarf ekki að sætta sig við að taka inneignamótu frá versluninni. Ógallaðar vörur Kaupmenn þurfa ekki að taka við ógallaðri vöra og láta aðra í skipt- um. Hins vegar eru það almenn hagsmunamál neytenda og kaup- manna að allir séu sáttir við sinn hlut og því er sterk hefð fyrir skila- þjónustu við neytendur. Flestar verslanir taka við ógölluðum vöram en þá oftast gegn kaupum á annarri vöru sem verslunin hefur upp á að bjóða eða gegn inneignamótu í versluninni. Neytendur geta hæglega haft vað- ið fyrir neðan sig og kynnt sér rétt sinn um leið og varan er keypt. Hægt er að láta geta þess á nótu hvort henni megi skila og þá með hvaða hætti. Einnig er gott að vita fyrir fram hvað skilafrestur á vör- unni er langur og hvenær skilin eiga að fara fram í síðasta lagi. Algengt er að verslanir geri fyrir- vara um að ekki sé hægt að skila vöra þegar útsala hefst í verslun- inni. Ef enginn fyrirvari er gerður á inneigarnótu af hálfu verslunarinn- ar getur hún ekki takmarkað notk- unarrétt á útsölu. Jólabækur fyrir janúarlok Bókaverslanir 1 landinu taka flestar á móti nýjum og nýlegum ógölluðum bókum eftir jólin, ef þær eru i plasti. Verð bókanna er yfir- leitt miðað við útsöluverð bókanna síðustu dagana fyrir jól. Ef ekki er tekinn út annar vamingur er gefin út inneignarnóta fyrir andvirði bó- kanna. Skil bókanna þurfa þó ekki að fara fram fyrr en undir janúar- lok, að sögn Árna Kr. Einarssonar, verslunarstjóra í Máli og menningu, en hann vill forða fólki frá þeim gríðarlega löngu biðröðum sem oft verða í búðinni vegna bókaskila dagana á milli jóla og nýárs. Um bókaskil hjá stórmörkuðun- mn Hagkaups og Bónuss hefur sú regla gilt að bók er skipt út gegn uppítöku annarrar bókar. Afgreiðslu- tíminn yfir jólin Verslanir 10-11 verða opnar kl. 10-15 á aðfangadag og verða opnar aftur á venjulegum versl- unartima annan í jólum. vofir paaM3?./ia .rs mjOAam.HiW ÞRIÐJUDAGUR 23. DESEMBER 1997 Ráðherrapels MikO spenna greip um sig meðal yngri þingmanna stjóm- arliðsins eftir að Davlð Odds- son tilkynnti að breytingar yrðu á ríkisstjóm- inni innan fárra mánaða. Daginn eftir mættu margir þeirra í þingið í sínu finasta pússi. Þing- fréttaritarar fjölmiðlanna hentu gaman að því að hægt væri að þekkja úr kandidatana á stífþússuðum skóm. Enginn sló þó út Siv Friðleifsdóttur sem mætti í nýjum pels sem færi áreiðan- lega vel við einhverja ráðherra- skrifstofuna Sálin á Mogganum Eins og greint frá í DV á miðju ári stendur fyrir dyrum uppstokkun í rikisstjórninni. Davíð staðfesti þetta loks í við- tali við Sjón- varpið um helg- ina en til- greindi ekki hverjir færu út. Það liggur fyrir að Frið- rik Sophus- son fjármála- ráðherra hættir brenndur af inn- gripum Davíðs í störf sín. Þá er nú talið líklegt að Þorsteinn Pálsson dragi sig í hlé og hverfi til annarra starfa. Ekki liggur fyrir hvað hann taki sér fyrir hendur en þó eru vísbend- ingar um að hann ætli sér rit- stjórastól á Mogganum þegar Matthías Johannessen hættir störfum fyrir aldurs sakir. Þar er vitnað til þess að hann ti- undar í viðtali í Sjómannablað- inu Víkingi aö sín „blaða- mannssál" sé á línu Moggans ... Dýrasta jólaskrautið Jólaskraut landsmanna er með ýmsum hætti og víða era miklar og veglegar skreytingar sem eflaust kosta sitt. Það er þó samdóma álit manna að ekkert bæjarfé- lag státi af dýr- ara jóla- skrauti en ísa- íjarðarbær. Það mun vera ætlun Samheija- manna að láta flaggskip sitt, Guðbjörgu BX, liggja í höfninni á ísafirði ljósum prýdda um hátíðamar. Skipið, sem hefur skipt um einkennis- stafi og er sjaldséð vestra, kem- ur í kjölfar þess að stjómarfor- maður Samheija, Kristján Þór Júlíusson, flytur alfarinn frá ísafirði... Dagur og Guðrún P. Það þótti undarlegur upp- sláttur hjá Degi um siðustu helgi þegar sagt var frá því að Guðrún Péturs- dóttir hugleiddi að taka 8. sætið á lista Sjálf- stæðisflokksins til borgar- stjórnarkosn- inga. í frétt S.dórs um þetta mál er málið sett upp með þeim hætti að um ræða. DV hafði sagt tíðindi af þessu máli i rúma viku áður en Dagur kveikti. Nú er beðið eft- ir næstu stórfrétt blaðsins. Kannski það verði að upp- stokkunar sé að vænta í ríkis- stjóminni...

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.