Dagblaðið Vísir - DV - 23.12.1997, Síða 8
8
ÞRIÐJUDAGUR 23. DESEMBER 1997
Útlönd
Stuttar fréttir i>v
Nauðlending í Bangladesh:
89 björguðust
Grace Kelly í
sjálfsmorðs-
söfnuði
Grace Kelly, prinsessa af
Mónakó, var leynilegur félagi í
sértrúarsöfnuðinum Hof sólar-
innar. Þetta er fullyrt í breskri
heimildar-
mynd sem
bráðlega verð-
ur sýnd. í
myndinni er
greint frá því
að Grace hafi
fengið vígslu,
tengda kyn-
ferðislegum athöfnum, nokkrum
mánuðum áöur en hún lést í
september 1982.
Sértrúarsöfnuðurinn varð
heimsfrægur 1994 þegar 69 félag-
ar hans í Evrópu og N-Ameríku
frömdu fjöldasjálfsmorö að því
er virtist. Nú er verið aö rann-
saka hvort um morð hafi verið
að ræða. í heimildarmyndinni er
greint frá því að Grace hafi gefið
söfnuöinum aö minnsta kosti
rúmlega hálfan milljarð ís-
lenskra króna áður en hún lést.
Breska blaöið Sunday Times
greinir frá því aö upplýsingam-
ar um aöild Grace að sértrúar-
söfnuðinum séu komnar frá næt-
urklúbbseiganda sem fullyröir
að hann hafi starfað fyrir leið-
toga safnaðarins í 15 ár. Hann
segir að í upphafí hafi Grace
greitt leiðtoganum fé. Hann hafi
síðan orðið of gráðugur og þá
hafi hún hótað að koma upp um
hann.
Súkkulaði er
gott fyrir
líkamann
Nú þarf maður ekki lengur að
gleypa í sig jólakonfektið í
laumi. Sífellt fleiri sérfræðing-
ar fullyröa að súkkulaði sé gott
fyrir líkamann. En það er samt
ekki ástæða til að úða góðgætinu
í sig.
„Lítill biti af dökku súkkulaði
hressir mann jafnmikið og tíu
stórir bitar af ljósu súkkulaði,"
segir Stephan Rössner, prófessor
á Huddingesjúkrahúsinu í
Stokkhólmi, í viðtali við sænska
blaðið Dagens Nyheter.
í ljósu, feitu mjólkursúkkulaði
er kakómassinn 7 til 15 prósent.
Nú þykir æskilegt aö massinn
sé 30 til 70 prósent. Súkkulaði-
fiklarnir segja að dökkt
súkkulaði sé hollara þar sem það
sé ekki jafn feitt og ljóst.
Stephan Rössner segir ástæðu
fyrir þá sem ráða sjúklingum
sínum frá að borða súkkulaði til
að skipta um skoðun. „Vísinda-
legar kannanir sýna að jafhvel
unglingar með sykursýki geta
fengið sér súkkulaðimola án
þess að það hafi áhrif á blóðsyk-
urinn. Það getur verið mikil-
vægt að þeir fái stöku sinnum
tilbreytingu frá eplinu og brauð-
sneiðinni."
í dökku súkkulaði eru fen-
ólefni eins og í rauðvíni sem
verndar líkamann fyrir hjarta-
sjúkdómum.
Neitar að
syngja fyrir
páfann á Kúbu
Þrátt fyrir þrýsting frá Páfa-
garöi neitar söngkonan Gloria
Estefan, sem er fædd á Kúbu, að
syngja fyrir Jóhannes Pál II.
páfa við messu
á Kúbu í janú-
ar. Ástæðan er
fyrirlitning
söngkonunnar
á stjórn Fidels
Kastrós, að því
er eiginmaður
Gloriu og um-
boösmaður, Emilio Estefan,
greinir frá. Hann segir að þau
muni aldrei syngja á Kúbu á
meðan stjórn Kastrós sé við
völd. Reuter
„Ég hélt að þetta væri mín sið-
asta stund en komst svo að þvi að ég
var á lífi. Þetta er kraftaverk," sagði
einn þeirra áttatíu og níu sem voru
um borð í innaríkisflugvél frá Bim-
an Bangladesh Airlines flugfélaginu
sem nauðlenti á akri nálægt bænum
Sylhet í gærkvöld, Mikil þoka var er
atvikið átti sér stað. Vélin, sem var
af gerðinni Fokker F-28, var á leið
frá höfuðborginni Dhaka og ætlaði
að lenda í Sylhet.
Greint hefur verið frá því að yfir
fimmtíu manns, þar á meðal flug-
stjórinn, hafi slasast, þar á meðal
nokkrir alvarlega.
í morgun héldu björgunarmenn
áfram að kanna hvort einhver
kynni að vera lokaður inni í flaki
vélarinnar. Lögreglumenn fullyrtu
þó að allir hefðu komist út í gær-
Skammbyssan, sem notuð var við
morðiö á Olof Palme, fyrrum forsæt-
isráðherra Svíþjóðar, var áður en
morðiö var framið í febrúar 1986
geymd í sumarbústað sprengju-
mannsins Lars Tingströms. Christ-
er Pettersson, sem grunaður er um
morðið á Palme, kom síðar til að
sækja byssuna.
Þetta eru upplýsingar sem lög-
maðurinn Pelle Svensson gaf lög-
reglunni en sprengjmnaðurinn kall-
aði hann að dánarbeði sínum til að
greina frá því sem hann vissi um
Palmemorðið. Upplýsingar lög-
mannsins eru i gögnum ríkissak-
sóknara Svíþjóðar sem hann afhenti
hæstarétti er hann fór fram á end-
urupptöku málsins gegn Pettersson.
Hæstiréttur birti í gær 1 þúsund síð-
ur úr gögnum ríkissaksóknara.
Lögmaðurinn segir að Christer
Pettersson hafi verið lífvörður
sprengjumannsins og að þeir hafi
kvöld. Sjónarvottar sögðu að hundr-
uð þorpsbúa og hermanna hefðu að-
stoðað við björgunarstörf.
Flugvallarstarfsmaður sagði að
vélin hefði gert nokkrar tilraunir til
að lenda í slæmu skyggni en ekki
tekist. Hann sagði að vélin hefði
brotnað í tvennt þegar hún maga-
lenti á akrinum. „Það er ótrúleg
heppni að ekki skyldi kvikna í vél-
inni,“ sagði flugvallarstarfsmaður-
inn.
„Við vissum að eitthvað hefði far-
ið úrskeiðis. Margir fóru að æpa og
kölluðu á Allah," sagði einn farþeg-
anna.
Rannsóknaraðilar eru nú famir
að safna saman hlutum úr flugvél-
inni frá flugfélaginu SilkAir, dóttm--
fyrirtæki Singapore Airlines, sem
hrapaði í fljót á suöurhluta
um skeið búið saman. Báðir hafi
verið þeirrar skoðunar að lífvörður
ætti að hafa vopn. Pettersson vissi
hvar hann gæti fengið lánaöa byssu.
Þess vegna hafi þeir farið saman til
klúbbeigandans og fikniefnasalans
Sigges Cedergrens.
„Tingström, sem hataöi fikniefna-
sala, sat eftir í bílnum er Christer
Pettersson fór upp til Cedergrens,“
er haft eftir lögmanninum í skýrslu
lögreglunnar. Hann segir aö
sprengjumaðurinn Tingström hafi
séð vopnið. Óljóst er hvað varð um
vopnið því samkvæmt lögmannin-
um talaði sprengjumaðurinn „í gát-
um“.
Pettersson hefur allan tímann
vísað því á bug að hann hafi notað
eða átt skotvopn.
í gögnunum kemur einnig fram
að eitt vitnanna, sem kveðst hafa
séð Christer Pettersson nálægt
morðstaðnum, hafi verið yfirheyrt
Súmötru á fostudaginn með 104 far-
þega innanborðs. Vélin var 10 mán-
aða gömul Boeing 737-300 vél sem
var í áætlunarflugi á milli
Indónesíu og Singapore þegar slysið
varð.
Þorpsbúar á Súmötru kváðust
hafa heyrt þrjár sprengingar frá
flugvélinni, tvær áður en hún hrap-
aði og eina eftir að hún kom niður.
Þorpsbúar sögðu að vængur hefði
fallið af vélinni áður en hún stakkst
í fljótið. Ekkert neyðarkall barst frá
vélinni áður en hún fórst.
Svörtu kassamir hafa enn ekki
fundist þó þeir eigi að gefa frá sér
merki í þrjátíu daga. Sérfræðingar
frá Bandaríkjunum, Ástralíu og
Bretlandi aðstoða yfirvöld
Indónesiu við leitina.
með dáleiðslu. ífyrsta sinn, sem
vitnið var yfirheyrt, kvaðst það
muna eftir klunnalegu göngulagi
Petterssons. Vitnið átti hins vegar
erfiðara með að muna eftir andliti
Pettersson. Dáleiðsla 1987 hressti
hins vegar upp á minnið.
Þegar réttarhöldin yfir Pettersson
stóðu 1989 kveðst vitnið hafa fengið
hótun símleiðis frá konu sem var
kunningi Petterssons. Þess vegna
þorði vitnið ekki að benda á Petters-
son fyrir rétti. Hótun konunnar var
tekin upp á símsvara og kærði vitn-
ið hófimina til lögreglunnar. Það
var ekki fyrr en 1996 sem vitnið
sagði, fyrst í sjónvarpi og síðan hjá
rannsóknamefnd, að það hefði allan
tímann verið visst í sinni sök.
Hæstiréttur í Svíþjóð hefur beðið
Pettersson að tjá sig skriflega um
það sem kemur fram gegn honum í
beiðni ríkissaksóknara um endur-
upptöku málsins.
Órói á mörkuðum
Órói var enn á mörkuöum í
Asíu í morgun í kjölfar hruns í
kauphöllinni í Tokyo i gær. Hran-
ið varð vegna gjaldþrots fyrirtæk-
isins Toshukus.
Flugárekstur
SAS-flugvél, með 123 farþega,
var nærri lent í árekstri við flug-
vél frá Air Europe, með ferða-
menn á leið til Bodö, í 35 þúsund
feta hæð yfir Þrándheimi síðast-
liðinn miðvikudag.
Paulauskas sigraði
Artm-as Paulauskas hlaut flest
atkvæði í forsetakosningunum í
Litháen á
sunnudaginn
eða 45,35 pró-
sent. Næstflest
atkvæði hlaut
Valdas Adam-
kus, 28 prósent.
Vytautas
Landsbergis
lenti í þriöja sæti meö 16 prósent
atkvæöa. Þar sem enginn hlaut
hreinan meirihluta verðrn- efiit til
annarrar umferðar eftir tvær vik-
ur.
Lífstíöarfangelsi
Saksóknari i París krafðist í
gær lífstíðarfangelsisdóms yfir II-
ich Ramirez Sanchez sem kallað-
ur hefur verið Sjakalinn Carlos.
Sjakalinn er fyrir rétti vegna
meintra morða á frönskum leyni-
þjónustumönnum.
Skallapilla
Bandaríska matvæla- og lyfja-
eftirlitið hefur í fyrsta sinn viður-
kennt pillu gegn skalla. Einungis
þarf að taka eina pillu á dag. Lyf-
ið kemur á markað um miðjan
janúar.
Fergie ein á jólunum
Hertogaynjan af Jórvík, sem
köUuð er Fergie, mun í ár opna
jólagjafimar ein. Dætumar verða
með bresku konungsfjölskyldunni
á aöfangadag. Elísabet drottning
hefur þó boðið Fergie í te á annan
í jólum.
Fayed fær vegabréf
Egyptinn Mohamed Fayed, fað-
ir ástmanns Díönu prinsessu og
eigandi Har-
rodsverslunar-
innar, fær ef tU
vill breskt
vegabréf. Jack
Straw, innarík-
isráðherra
Bretlands, hef-
ur lofað að end-
urskoða vegabréfsumsókn Fayeds
sem búið hefur í Bretlandi í 30 ár.
Andlitslyfting
Þaö era ekki bara kaupmenn
sem vinna fram á rauða nótt fyrir
jólin. Lýtalæknar í Bandaríkjun-
um eru einnig önnum kafnir
vegna aðgerða sem viðskiptavinir
hafa fengið í jólagjöf fyrir fram.
Milosevic ánægður
Milan Milutinovic, frambjóð-
andi Slobodans MUosevics, leið-
toga Serbíu, sigraði í forsetakosn-
ingunum í Serbíu á sunnudaginn.
Stjórnarandstæðingar segja að um
kosningasvindl hafi verið að ræða.
Heim frá Bosníu
Clinton Bandaríkjaforseti sneri
í gær heim frá Bosníu þar sem
hann hafði ver-
ið í eins dags
heimsókn tU að
heimsækja
bandaríska her-
menn. Forset-
inn þurfti að
flýta heimferö-
inni vegna
slæms veðurs yfir Italíu þar sem
hann átti að skipta um flugvél.
Slátra kjúklingum
Yfirvöld í Hong Kong ætla að
slátra kjúklingum sem koma frá
meginlandi Kina fylgi þeim ekki
heUbrigðisvottorð. Nú hafa þrír
látist af völdum fuglaflensunnar í
Hong Kong. Reuter
Reuter
Jólasveinninn er kominn til Betiehem og skemmtir hér palestínskum börnum á torgi nálægt fæöingarkirkjunni.
Ferðamenn hópast nú til Betlehem til aö vera í fæöingarborg frelsarans á jólunum. Sfmamynd Reuter
Palmemorðið:
Skammbyssan geymd
hjá sprengjumanni