Dagblaðið Vísir - DV - 23.12.1997, Page 12

Dagblaðið Vísir - DV - 23.12.1997, Page 12
12 ÞRIÐJUDAGUR 23. DE?EMBER 1997 Spuriungin Hjördís Ásgeirsdóttir, 5 barna móðir: Nei, en ég hef gert það. Ann- ars finnst mér best að iðka mína trú heima við og svo hlusta ég náttúr- lega á messuna. Dana Sif Óöinsdóttir, 12 ára: Nei, það geri ég ekki. Sigríður Lilja Gunnarsdóttir, 13 ára: Nei. Auður Hansen bókari: Ekki í ár því ég ætla að dvelja á Kanaríeyjum yfír jólin. Helma Rut Einarsdóttir: Já, ég fer í messu í Hallgrímskirkju. Lesendur Breiðbandiö er fram- tíðin - ekki spurning! Friðrik Friðriksson, for- stöðumaður breiðbands- þjónustu P&S, skrifar: Ásta Ragnheiður Jóhann- esdóttir þingmaður er greinilega ekki í hópi þeirra borgara sem horfa með til- hlökkun til nýrrar fjar- skiptatækni eins og nýlega mátti lesa um í kjallara hennar í DV. í það minnsta telur hún sig umkomna að lýsa því yfir að þær leiðir sem Póstur og sími velur til að byggja upp framtíðarfjar- skiptakerfi sitt séu gamal- dags og tæknin úrelt þannig að breiðbandið sé gamli tím- inn en ekki framtíðin. Nokkur atriði til and- svara. Breiðbandið er fjar- skipta- og margmiðlun- arkerfi til framtíðar, byggt meö full- kominni tækni þar sem ljósleiðar- inn er burðarefniö, hraðbrautin. Uppbygging breiðbandsins tekur nokkur ár og á þeim tíma standa jafnt og þétt nýjar þjónustur til boða sem eru nú jafnvel aðeins draumar. Breiðbandið er leið Pósts og síma inn í framtíðina og uppbygging þess sem fjarskiptakerfis fyrir margmiðl- un er óháð þeirri ákvörðun að heíja dreifmgu á sjónvarpsefni nú um breiðbandið. Sjónvarpsdreifing er ein tegund þjónustu sem tekur örum breytingum en hitt er mikil- vægast að kjarni fjarskiptakerfis- ins/breiðbandsins, sem byggt er á nýtingu ljósleiðara, stendur óhagg- aður til framtíðar þótt lausnir fyrir notendur breytist. Þingmaðurinn veltir fyrir sér hvort aukin notkun á hefðbundnum símalínum úr kop- ar, sem þjónað hafa í ára- tugi, leysi vanda framtíðar- innar eða hvort gervihnettir geti leyst af hólmi dreifingu um loft eða í jörð innan- lands. Sú hugmynd byggist væntanlega á þeirri sýn að flytja öll fjarskipti íslend- inga úr landi. Þegar allt er til tekið og miðað við gæði, áreiðanleika, flutningsgetu og hagkvæmni Ijósleiðarans fyrir islenskar aðstæður þá hefur Póstur og sími komist að þeirri niðurstöðu að breiðbandskerfi byggt á ljós- leiðaratækni sé best fallið til að mæta fjarskiptaþörf í upphafi næstu aldar. Póstur og sími hefur legið undir miklu ámæli að und- anfomu en aldrei fyrr hefur verið dregin í efa hæfni starfs- manna fyrirtækisins og stjómenda þess til að ákvarða um fjárfestingar til uppbyggingar á nýrri tækni. Reyndar á hið gagnstæða við þar sem fyrirtækinu hefur gjaman ver- ið hrósað bæði innanlands og er- lendis fyrir framsýni í uppbyggingu fjarskiptanetsins sem í dag er eitt hið fullkomnasta í heiminum og kostar notendur hvað minnst. Rangfærslur formannsins Kristján Aðalsteinsson, fram- kvæmdastjóri Sæplasts, skrifar: í dálki DV „Með og á móti“ fimmtudaginn 18. des. sl. er fjallað um fyrirhugaða sjávarútvegssýn- ingu í Laugardalshöll. Þar lætur Haraldur Sumarliðason hafa eftir sér ummæli sem em þess eðlis að ekki verður hjá því komist að gera við þau athugasemdir, enda um hreinar rangfærslur að ræða hjá honum og virðist aöaltilgangurinn hjá formanninum að reyna að kasta rýrð á þá aðila sem skipulagt hafa Islensku sjávarútvegssýninguna og staðið að baki henni frá upphafi. Formaðurinn leggur á það áherslu að sýningarhaldið verði í höndum íslendinga og fer fógmm orðum um stuðning Samtaka iðnað- arins við félagsmenn á undangengn- um sýningum. Sem aðili að um- ræddum samtökum hef ég ekki orð- ið var við þann stuðning. Þvert á móti hafa samtökin gefið þátttöku okkar, sýningaraðilanna, lítinn gaum og helsta framlag þeirra hefur verið útgáfa lítils bæklings sem Iðn- lánasjóður hefur greitt. Formaðurinn gerir mikið úr því að sýningin eigi að vera alíslensk. Til þess að tryggja markaðssetningu erlendis hafi þó verið gerður samn- ingur við breska fyrirtækið EMAP, útgefanda Fishing News International. Hann lætur þó hjá líða að geta þess að breska fyrirtæk- ið er orðið eignaraðili að Sýningum efh. og væri fróðlegt að vita hvort formaðurinn telur það fyrirtæki vera lengur alíslenskt. Formaður minn rómar einnig nýja samstarfsaðila; ASÍ, VSÍ, LÍÚ, Samtök fiskvinnslustöðva og Sam- tök seljenda skipatækja, auk fleiri aðila. Vert er að geta þess að fyrir utan Samtök seljenda skipatækja hafa þessi hagsmunasamtök ekki verið þátttakendur í íslensku sjáv- arútvegssýningunni enda t.d. mjög vandséð hvaða tilgangi það þjónar fyrir hagsmunasamtök launþega að taka þátt í sjávarútvegssýningu. Þar sem Samtök iðnaðarins virð- ast nú hafa fengið skyndilegan áhuga á sýningarhaldi íslensku sjávarút- vegssýningarinnar er vert að spyija hvers vegna í ósköpunum þau reyndu ekki fremur að ganga til liðs við þá aðila sem fyrir voru. Með því hefðu samtökin alla vega gengið að aðila sem hefur reynslu og ljóst er að íslenskir sýnendur treysta og vita að nær árangri. Þaö hefðu Samtök iðn- aðarins gert hefðu þau haft hags- muni þeirra félaga sinna sem taka þátt i slíkum sýningum að leiðarljósi. Allur málflutningur aðstandenda nýju sýningarinnar hefur einkennst af útúrsnúningum og að því að beina umræðum ffá þvl sem skiptir meginmáli, þ.e. hagsmunum sýnenda. Ég tel að skynsamlegast væri fyrir Samtök iðnaðarins, „samtakanna minna“, að horfa á stofnfé sitt í umræddu sýningarfyr- irtæki sem glatað fé og hlusta á ósk- ir félaga sinna að ganga til liðs við skipuleggjendur íslensku sjávarút- vegssýningarinnar og þar með hafa hag félaga sinna í fyrirrúmi. Jafnaðarmenn og peningavelta Kjötkveöjuhátíö veröur haldin í miöbæ Reykja- víkur ef jafnaöarmenn komast til valda, segir bréfritari. Jafnaðarmenn hafa verið að sigra í kosningum á Vesturlöndum und- anfarið. Nú ætla íslenskir jafnaðar- menn að sameinast og leika sama leikinn. Þaö eru mjúku málin sem slegist er um. Því er haldið fram að fjármagninu eigi að dreifa jafnara. Heilbrigðis- og skólamál eru þar efst á baugi. Ef jafnaðarmenn ná völdum munu þeir nálgast kjöltukatla efna- hagslífsins með því að kippa upp úr þeim bitum og dreifa til fólksins. Kannski er þetta jafneinfalt og að segja það. Hins vegar er það svo að markaöurinn í dag er það upp- spenntur að fjármagnið í honum er bundið í veltu og helgast af því að þetta fjármagn á sig sjálft í veltunni en er verðlaust utan hennar. Þannig er það að veltan er þanin á þvílíkan hátt að hvergi má taka vænan bita án þess að gera hann verðlausan. Gullið hefur alltaf þótt gott. Sjálfstæðismenn hafa með mark- aöshugsun siimi eignast fjármagns- markaðinn og því geta þeir hagað stefnumálum sínum eftir því. Jafn- aðarmenn eru hins vegar í þeirri aðstöðu að geta ekki fært til pen- inga að ráði þó að þeir séu við völd vegna þess að þeir eiga aðeins lítinn hlut í veltunni í þjóðfélaginu. Það er því nauðsynlegt fyrir jafnaðarmenn að eiga stærri hlut í veltu efna- hagslífsins áður en mannúðarloforðin eru sett fram. ímyndum okkur að jafnaðarmenn vinni meirihluta í næstu kosningum. Þeir koma ijóðir og sællegir að kötlum efnahagskerf- isins og dást þessi ósköp að dáindissoðspottum sem rýkur upp af. Þeim til undrunar stendur letrað með gulli: „ekki snerta, uppskriftin er ónýt“. Kokkurinn liggur meðvitundarlaus, „hæ- grimafian" er skrifað á enni hans með blóði. Forustumaður jafnaðarmanna stígur upp á stól og segir: „Við ausum úr pottunum, nú verður haldin veisla". Allir lands- menn flykkjast að. Kjötkveðjuhátíð verður haldin í miðbænum að hætti þeirra i Riodejanero! Allir ríku karlarnir flýja umsvifalaust til Brasilíu. Nokkrum dögmn seinna les Gerður G. Bjarklind upp í út- varpinu svohljóðandi skilaboð: „ís- land er gjaldþrota, Margrét Þórhild- ur Danadrottning á nú landið." Esra og Ingólfur Konráð Friðfinnsson skrifar: Það kann að vera rétt að mál Esra Péturssonar og sálumessu hans þurfi frekari athugunar við. Eitt kemur þó ekki heim og saman í málinu en það er hví nauðsynlegt sé að draga nafn skrásetjara og út- gefanda inn i þessa rannsókn. Söguritari var fenginn til að rita sögu Esra og festa það á blað sem hann vildi segja um sína ævi. Ef hann hefur ákveðið að hafa bókina svona er lítið hægt að segja við því. Fráleitt getur sá sem skráir tekið upp á sitt eindæmi að rit- skoða ummæli læknisins eða þá að breyta emhverju sem áður var búið að festa á blað og höfundur taldi ástæðu til að fylgdi með í skræðunni. Skrásetjarinn lagar að vísu stO- inn en hann má ekki fara út fyrir sinn ramma sem er að koma því til skila sem honum og viðmæl- anda hans fór á milli. Aðra álykt- un er því ekki unnt að draga en þá að hendur Ingólfs Margeirssonar séu hvítþvegnar i þessu undarlega máli. Töffarastælar ráðamanna Ingvi H. Eggertsson skrifar: Eru háttvirtir þingmenn og ráð- herrar í einhvers konar nautaats- leik við sjómannastéttina? Hug- myndir um hugsanlega niðurfell- ingu sjómannaafsláttar eru bara til þess fallnar að æsa menn upp. Þetta er hættulegur leikur og legg ég til að menn breyti hegðun sinni áður en illa fer. Þetta á jafnt við um þingmenn og sægreifa, að svo lengi megi deigt járn brýna að það biti. Kannski eru þetta meiningar- lausir töffarastælar i þessum mönnum og að þeir lognist út af eins og gúmmítöffara er háttur þegar á hólminn er komið. Að lok- um vil ég óska háttvirtum þing- mönnum og ríkisstjórn gleðilegra jóla og ég vona að þeir verði sem lengst í jólafríi, því þeir gera þá enga dellu á meðan. Hermann kaup aldarinnar? Eiríkur hringdi: Nú fýrir stuttu var fjallað um það i DV að kaup Crystal Palace á varnarjaxlinum Hermanni Hreið- arssyni frá ÍBV hefðu verið kaup aldarinnar í ensku knattspyrnunni. Þetta finnst mér vera hin mesta firra, því kaup fallkandídata í ensku úrvalsdeildinni á íslenskum bakverði geta varla talist þau bestu sem gerð hafa verið á þeim vett- vangi á allri tuttugustu öldinni. Þetta segi ég með fullri virðingu fyrir Hermanni. Hann á að mínu mati fullan rétt á að spila í ensku úrvalsdeildinni og kemst vonandi að hjá frambærilegra liði í fram- tíöinni. Ég held aö íslenskir fjöl- miölar ættu að varast að falla í þá gildru að blása upp mikilvægi og getu íslenskra íþróttamanna. Það hefur enginn gott af slíku, hvorki íslensk alþýða né íþróttamennim- ir sjálfir. Munum líknar- félögin Guðrún hringdi: Mig langaði bara svona rétt að minna fólk á allt það óeigingjama hjálparstarf sem hin ýmsu líknar- félög vinna. Þó svo starfiö sé mik- ið allan ársins hring er það aldrei jafii mikið og um jólin, þvi það er á þessum árstíma sem neyð þeirra sem minna mega sín kemur hvað skýrast fram. Því beini ég þeim eindregnu tilmælum til fólks að veita þessum félögum liðsinni - hjálpum þeim að hjálpa öðrum. Þó svo við höfum það flest gott um þessar mundir eru alltaf einhverj- ir sem þurfa á aðstoð að halda. Gerum jólin skemmtilegri fyrir alla. Það getum við sem erum af- lögufær gert með því að veita likn- arfélögum smáhluta af auði okkar.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.