Dagblaðið Vísir - DV - 23.12.1997, Síða 19

Dagblaðið Vísir - DV - 23.12.1997, Síða 19
T^V ÞRIÐJUDAGUR 23. DESEMBER 1997 19 Drykkjuskapur útbreiddur „Drykkjuskapur var útbreiddur og á sjúkrahúsinu voru ólar í rúmunum. Jafnvel tröllin, sem unnu í námunum, gátu bilast á drykkjunni. Annars voru menn reknir fyrir að vera lengi á fylliríi. Það var raunar merkilegt að þótt fjórir læknar væru starfandi á sjúkrahúsinu voru aldrei sjúklingar þar. Allir sem veiktust voru umsvifa- laust sendir til lands," segir Skírnir. Skírnir var formaður 17. maí- nefndarinnar á staðnum þegar hann uppgötvaði að sjúkrahúsið stóð alltaf tómt. „Ég hef aldrei verið svona 17. maí- maður en af því að ég var orðinn for- maður fannst mér að við þyrftum að hafa lúðrasveit. Allir sem eitthvað kunnu á hljóðfæri voru kallaðir sama og svo var farið á sjúkrahúsið og læknarnir spurðir hvort ekki mætti spila fyrir sjúklingana. Þá var okkur sagt að hér væru engir sjúklingar en við gætum æft úti. Þar var hálka, einn af okkur datt og fótbrotnaði. Hann var lagður inn í skyndi og svo spiluðum við fyrir hann,“ segir Skírnir um sjúkrahúsreksturinn. Útbreitt framhjáhald „Annars var framhjáhaldið síst minna vandamál en drykkjuskapur- inn,“ heldur hann áfram í sama sjálf- sagða tóninum og áður. „Sjeffamir vora sumir með tvær í takinu, eigin- konuna og svo gifta eða ógifta hjá- konu. Ég greip einu sinni inn í svona framhjáhaldsmál en sjeffmn sagðist hafa rétt til að gera það sem honum sýndist. Það mál leystist þegar eigin- konan pakkaði saman og fór,“ segir Skírnir og er enn að segja frá sjálf- sögðum hlutum. Skírnir segir að stéttaskipting hafi líka verið mikil og yfirmenn borðuðu t.d. ekki með undirmönnunum. „Ég neita því ekki að ég sá stundum eftir að hafa farið til Svalbarða og spurði mig hvað ég væri að gera þarna. Og núna bíð ég eftir að komast aftur," segir Skímir. Kristnihald á Svaibarða „Það voru margir sem töldu að harðjaxlarnir á Svalbarða hefðu ekk- ert við kristindóm að gera. Þess vegna var allt kristnihald í hálfgerðu lama- sessi og er það enn. Það er kannski þess vegna sem mér finnst ég enn eiga ýmislegt ógert á Svalbarða," segir Skirnir til að skýra frekar áhuga sinn á að komast norður þangað enn á ný. Hann hefur líka sagt upp stöðu sinni í Þrándheimi, eða Niðarósi eins og íslendingar kölluðu alltaf bæinn. Skírnir var um árabil sóknarprestur í Tempe-kirkjunni í einu fátækasta hverfi bæjarins og er nú afleysinga- prestur þar. Hann langar eiginlega burt en veit þó ekki hvert ef hann fær ekki aftur stöðu á Svalbarða. Ofsatrúarmenn „Ég verð líka að viðurkenna að mér líkar ekki að vinna fyrir stofnun sem verður sér til skammar með reglulegu millibili," segir Skírnir og á þá við vaxandi áhrif ofsatrúarmanna innan norsku kirkjunnar. Baráttan gegn kvenprestum harðnar og samkyn- hneigðir eru útilokaðir. „Það er eins og kynlíf skipti öllu í kirkjunni. Norðmenn hafa aUtaf átt i mesta basli með aUt neðan beltis," segir Skírnir mn ofsatrúna og kynór- ana sem ríða húsum í Noregi. „Það var einu sinni hringt í mig frá skrifstofu biskups og spurt hvort ég gæti hugsað mér að hafa tUtekinn mann sem aðstoðarprest. Ég vissi ekki að maðurinn var hommi og sagði já. Hann reyndist afburðavel sem prestur, var músíkalskur og ekkert upp á hann að klaga en safnaðar- stjómin lét hann fara og nú er hann embættislaus," segir Skímir um erflð- leika sína í söfnuðinum. Fólkið skiptir engu Hann segist og hafa verið gagn- rýndur fyrir að blanda sér inn í fé- lagsleg vandamál eins og að ala önn fyrir fjölskyldu flóttamanns sem hvergi átti höfði að að haUa og að hafa tekið undir sinn verndarvæng tvo drengi sem foreldrarnir höfðu hastað út í fyUeríi. „Það er oft eins og vandamál fólks- ins skipti engu máli. Nú á að auka þátttöku safnaðarins í ísraelstrúboð- inu norska. Eins og það skipti öUu máli að kristna gyðinga í ísrael með- an rónarnir liggja hálfdauðir hér fyr- ir utan,“ segir Skímir og hefur talað í sig hita. Norðmenn hafa um langt ára- bil reynt að snúa gyðingum frá viUu síns vegar með grátlega litlum ár- angri. „Manni finnst stundum eins og Norðmenn haldi að þeir hafi fundið upp kristindóminn," segir Skírnir mn þessa sémorsku blöndu af sjátfum- gleði og trúarofsa. Of frjálslyndur „Ég leit aUtaf á mig sem gamaldags prest og ég er það. Hér í Noregi er ég hins vegar aUtof frjálslyndur. Þess vegna sagði einn prestur við mig að ég væri eiginlega utangarðsmaður," segir Skírnir. „Þetta er alvarlegt mál. Hér í Nor- egi eru tvær tegundir af prestum. Annars vegar prestar sem eru á móti konum, hommum og fráskildu fólki. Hins vegar eru svona gamaldags prestar eins og ég sem finnst ekkert að því að gifta fráskilið fólk ef það viU eigast,“ segir Skímir tU að skýra tog- streituna innan norsku kirkjunnar. „Ég er mjög ósáttur við að kirkjan verði sér aUtaf að athlægi. Ég er frjáls- ari á Svalbarða. Þar er eingangrunin ekki svona mikU,“ segir Skírnir. Langar heim „Ég var að spá í að flytja heim í sumar og var að svipast um eftir laus- um stöðum en svo fann ég að lífið heima átti ekki lengur við mig,“ segir Skímir og talar um lág laun, langan vinnutíma og stress. „Það er samt eins og ég festi aldrei rætur héma. Það er aUtaf eitthvað sem pirrar og svo býr það sennUega í öllum Islendignum, hvar sem þeir em, að vera aUtaf á leiðinni heim,“ segir Skírnir. Gísli Kristjánsson y / (0) ^eV\a? %lsi ^ ' /{rTum kohuw Bætt kjör kvenna skila sértil barnanna og samfélagsins. Munið gíróseðlana. i i hjálmrstofnun — Vnr/kirkjunnar - heima og heinian „Grúm“ -ómótstæðilegir fyrir kaldar tær! Vatnsheldir kuldaskór með einstaklega hlýju Thermolite fóðri. Verð aðeins 5.980,- KKIDMSr SKEIFAN 7 - Sflll: Sll ] B00 - FAX: 511 1B7S jjrval - gott í bátinn NA LENGRA GUNNAR BERNHARD EHF. VATNAGARÐAR24 SÍMI: 520 1100 FYRST KEM EG

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.