Dagblaðið Vísir - DV - 23.12.1997, Síða 35

Dagblaðið Vísir - DV - 23.12.1997, Síða 35
ÞRIÐJUDAGUR 23. DESEMBER 1997 35 Fréttir Keyptu gamalt aflaskip á 10 krónur: Breyttu síldarbát I glæsiskip Dy Hólmavík: Mikið glæsiskip sigldi um Húnaflóa í sumar og var auk þess til sýnis gestum hinna ýmsu hátíða sumarsins og til þjónustu reiðubúið. Þar má nefna Djúpuvíkurhátíð og Bryggjuhátíð á Drangsnesi þar sem nokkur hundruð manna tóku sér far með skip- inu. Með sanni má segja að ali- ir hafi undrast þann glæsi- lega búning sem þetta aldna skip hefur verið fært í. Þar hafa frjór hugur og hagleiks- hendur stýrt góðu verki. Nán- ast er um að ræða fljótandi hótel sem nokkrir viðstaddir sögðu að verðskuldaði fjórar stjörnur. Skipið sem hér um ræðir er Húni n frá Höfða- kaupstað, 130 tonna skip sem Bjöm Pálsson alþingismaður lét smíða 1963 í Skipasmíða- stöð KEA á Akureyri. Var það fengsælt aflaskip, ekki síst á síldveiðum, undir far- sælli stjóm Hákonar Magnús- sonar. Fyrir um tveimur árum björguðu hjónin Ema Sigurbjöms- dóttir og Þorvaldur Skaftason skip- inu frá því að veröa eldinum að bráð. Það hafði þá fyrir nokkm lok- ið hlutverki sínu sem fiskiskip og verið úrelt. Gjaldið sem þau þurftu að leggja út var ekki hátt eöa 10 krónur. „Hann var þá vélarlaus og í held- ur óhrjálegu ástandi," segir Þor- valdur. Þá þegar hófust þau handa í þeim tilgangi að gera þetta skip að notalegum viðkomu- og verustað fyrir gesti sem einnig gætu hugsað Þorvaldur og Erna í fagurlega skreyttri brúnni. DV-mynd Guöfinnur sér að njóta þægilegs og af- slappandi lifs í stuttum og einnig lengri ferðum þar sem njóta mætti náttúrufeg- urðar Húnaflóasvæðisins og fylgjast með fjölskrúðugu fugla- og dýralífi þess, svo sem hátterni hvala og sela sem mikið er af á þessum slóðum. „Núna erum við búin að leggja út til kaupa á vél ogr tækjum, svo og búnaði við innréttingu og breytingar, nær tvo tugi milljóna króna og ekki allt búið,“ segir Þor- valdur. Nú hafa þau hjón ákveðiö að venda sínu kvæði í kross og hefja landvinninga á nýj- um vígstöðvum. Eru þau komin í samstarf við þá sem reka Fjörukrána í Hafnar- firði um feröir i samstarti við þá. „Hér taka okkur allir opn- um örmum, bæði ferðamála- menn og bæjaryfirvöld - vilja gera allt til að styðja okkur og styrkja. Ég er því mjög bjartsýnn," segir Þor-*' valdur Skaftason. -G.F. Skriðuföll í Kambaskriðum DV, Stöðvarfirði: Mikil aurskriða féll á veginn um Kambaskriður á milli Stöðvarfjarðar og Breiðdalsvíkur að morgni laugar- dags og lokaðist vegurinn af þeim sökum. Bílar sem voru á þessari leið lok- uðust sitt hvoru megin, þar á meðal vöruflutningabíll á leið til Fáskrúðs- fjarðar. Þá varð sérleyfishafi Suður- fjarða að bera farangur yflr skriðuna og farþegar að ganga. Annar bíll beið Breiödals meginn skriðunnar og tók við farþegum og farangri. Er þetta bagalegt fyrir sérleyflshafann þar sem nú er mikið að gera í flutning- inn á fólki og farangri og fer hann tvær ferðir á dag milli Egilsstaða og Breiödalsvikur. Skriðan mun vera um 20 metrar á breidd og um 4 metrar á þykkt. Vöruflutningabilstjóri sagöi að ekki mundi unnt að ryðja skriðunni burt strax, þar sem enn væru að koma smá spýjur úr hlíðinni. Á meðan er þó alltaf hægt að fara Breiödalsheiði, en í góðviðrinu nú er hún snjólaus eins og flestir aðrir fjallvegir. Það lengir þó leiðina nokkuð fyrir þá sem til Fáskrúðsfjaröar fara eða úr um 45 km í um 150 km. -GH Við áskuiu landsmönmim öllnin alcðikqra jóla, árs oq friðar. Pökkum lcscndiim imjy/cjdiiia á árimi »l.iun i /<t thil.l.i i ttiil t\iimtndoiui iu ,u

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.